Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Blaðsíða 25
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðar-
fræðingur svarar spurningum lesenda um
málefni er varða fjölskylduna, börnin og
ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni
svarar Kristín spurningu lesanda sem vill
huga betur að andlegri heilsu.
ERFITT AÐ HALDA Í GLEÐINA
Ég er ein af þeim sem hafa alltaf bara lifað sínu lífi án þess að
hugsa sérstaklega um and-
lega heilsu og hef haft það
alveg ágætt þó maður hafi
alveg glímt við ýmsa erfið-
leika eins og hver annar. Ég
veit að andleg heilsa hangir
sama við líkamlega heilsu,
það er gott að fara reglulega
í göngutúra, borða hollan
mat og slíkt. En ég er nú að
komast á aldur og veit að
andlegri heilsu fer oft að
hraka með hækkandi aldri.
Mig langar því að fara inn í
haustið með fókus á andlegu
hliðina. Ég skal líka alveg
viðurkenna að þetta COVID-
ástand er ekki til að hjálpa
mér að halda í gleðina, með
öllum þessum boðum og
bönnum. Nú má maður ekki
einu sinni faðma alla sem
maður vill faðma.
Sumar vinkonur mínar fara
reglulega til sálfræðings,
svona eins og aðrir fara til
sjúkraþjálfara, en mér finnst
það heldur dýrt. Mælirðu
með því að ég skrái mig á
einhver námskeið, kannski í
núvitund sem er svo vinsæl
núna? Eru einhver grunnat-
riði til að huga að þegar
kemur að því að efla andlegu
hliðina?
Klapp á bakið
Sæl, fröken mjög meðvituð.
Þú átt hrós skilið fyrir að
senda inn spurningu sem
snýr að fyrirbyggjandi mál-
um. Fólk er svo oft að senda
mér spurningar í örvæntingu
eða þegar vandinn er orðinn
mikill. Gott hjá þér líka að
nýta þetta úrræði sem kostar
ekki neitt en getur mögulega
komið þér inn á hjálplega
braut. Klapp á bakið fyrir
þetta allt saman.
Nátengdir þættir
Það er rétt hjá þér að andleg
og líkamleg heilsa eru ná-
tengdir þættir. Aftur á móti
útilokar eitt ekki hitt. Þú get-
ur hlúð vel að andlegri heilsu
þó líkamlega heilsan sé ekki
góð og það er til fullt af fólki
í góðu líkamlegu formi sem
mætti vera við betri andlega
heilsu. Þú orðar spurninguna
þannig að þú hugsar nú þegar
vel um þig líkamlega og nú
ætlir þú að setja fókus á and-
legu hliðina.
Ég vil þó læða því að þér að
þú ert nú þegar að gera fullt
og ef þú skerpir aðeins á því
eða blandar því við annað þá
gætir þú sömuleiðis náð góð-
um árangri með andlegu hlið-
ina. Getur þú til dæmis sam-
nýtt göngutúra og andlega
næringu? Gætir þú hlustað
á hljóðvörp um andlega nær-
andi málefni, núvitund eða
sjálfsrækt á meðan þú geng-
ur? Þá eru til dæmis til mat-
reiðslu/næringar-námskeið
þar sem tengsl milli and-
legrar heilsu og mataræðis
eru skoðuð og góð ráð gefin.
Hundfúlt ástand
Ég veit að það er hundfúlt að
við getum helst ekki faðmað
hvert annað og þurfum að
temja okkur nýjar umgengn-
isreglur en þá er gríðarlega
mikilvægt að finna nýjar
leiðir, draga ekki úr tengslum
við annað fólk og velja okkur
félagsskap sem nærir and-
lega.
Einmanaleiki er orðinn
einn alvarlegasti heilsufars-
vandi í heimi samkvæmt Al-
þjóðaheilbrigðismálastofn-
uninni og þar getur COVID
haft alvarleg áhrif. Þú virðist
meðvituð um þetta allt saman
og því hvet ég þig til þess að
setja þér markmið sem snúa
að tengslum og góðum félags-
skap sem lið í því að styrkja
andlega heilsu þína.
Birtir bráðum til
Já, sálfræðiþjónusta hefur
verið ansi kostnaðarsöm en
nýlega voru samþykkt lög á
Alþingi um aukna greiðslu-
þátttöku ríkisins í þeim
bransa. Það ætti því fljót-
lega að vera möguleiki fyrir
þig að fara til sálfræðings án
þess að greiða nýra og lifur
fyrir. Þú hefðir örugglega
bæði gagn og gaman af því
að prófa slíkt.
Aldrei of gömul
Sterk sjálfsmynd hefur
sterkasta forspárgildið um
hamingju í framtíðinni. Við
erum aldrei of gömul til þess
að styrkja sjálfsmynd okkar
og hámarka þannig ham-
ingjuna. Við erum gjörn á
að ota slíku að unglingunum
okkar sem eru á svo miklum
mótunarárum en þar sem þú
finnur fyrir því að aldurinn
er að færast yfir þá ertu á
ákveðnu breytingaskeiði sem
gæti verið fínasti stökkpallur
út í slíka sjálfsvinnu.
Hver ert þú núna? Hverju
langar þig að breyta? Hvað
lætur þig fá jákvæða sjálfs-
mynd og hvenær ertu með
neikvæða sjálfsmynd? Hvað
þarf að breytast svo þér líði
oftar vel og sjaldnar illa?
Þetta eru spurningar sem
við höfum öll gott af að
spyrja okkur reglulega, velta
fyrir okkur, setja okkur
markmið í kringum og fylgj-
ast með framgangi þeirra.
Þetta er vinna sem þú getur
unnið sjálf og jafnvel haft
gaman af. Að rækta sjálfs-
myndina er ekki eitthvað sem
við gerum á einni kvöldstund
heldur markvisst yfir lengri
tíma. Líttu á þetta eins og að
stunda reglulega líkamsrækt.
Meira af skemmtilegu
Að lokum, þú vilt fyrir-
byggja að þér fari að líða
illa. Það merkir að þér líður
nokkuð vel og því gæti verið
ráð að reyna eftir bestu getu
að njóta þess. Ég horfði á
heimildarmynd á RÚV fyrir
stuttu um 105 ára konu sem
sagði að ef hún hætti að gera
skemmtilega hluti þá myndi
hún örugglega drepast og þá
sennilega úr leiðindum.
Ég held að það sé margt til í
þessu hjá henni. Ef við gerum
mikið af því sem okkur finnst
skemmtilegt og lítið af því
sem er leiðinlegt. Ef við njót-
um þess góða og leiðum hið
vonda hjá okkur þá komumst
við ansi langt.
Gangi þér ofsalega vel og
góða skemmtun.
Það getur reynst þrautin þyngri á þessum COVID-19 tímum að ná að halda í gleðina. MYND/GETTY
Sterk sjálfsmynd
hefur sterkasta
forspárgildið um
hamingju í fram-
tíðinni.
FÓKUS 25DV 21. ÁGÚST 2020