Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Síða 25
Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðar- fræðingur svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem vill huga betur að andlegri heilsu. ERFITT AÐ HALDA Í GLEÐINA Ég er ein af þeim sem hafa alltaf bara lifað sínu lífi án þess að hugsa sérstaklega um and- lega heilsu og hef haft það alveg ágætt þó maður hafi alveg glímt við ýmsa erfið- leika eins og hver annar. Ég veit að andleg heilsa hangir sama við líkamlega heilsu, það er gott að fara reglulega í göngutúra, borða hollan mat og slíkt. En ég er nú að komast á aldur og veit að andlegri heilsu fer oft að hraka með hækkandi aldri. Mig langar því að fara inn í haustið með fókus á andlegu hliðina. Ég skal líka alveg viðurkenna að þetta COVID- ástand er ekki til að hjálpa mér að halda í gleðina, með öllum þessum boðum og bönnum. Nú má maður ekki einu sinni faðma alla sem maður vill faðma. Sumar vinkonur mínar fara reglulega til sálfræðings, svona eins og aðrir fara til sjúkraþjálfara, en mér finnst það heldur dýrt. Mælirðu með því að ég skrái mig á einhver námskeið, kannski í núvitund sem er svo vinsæl núna? Eru einhver grunnat- riði til að huga að þegar kemur að því að efla andlegu hliðina? Klapp á bakið Sæl, fröken mjög meðvituð. Þú átt hrós skilið fyrir að senda inn spurningu sem snýr að fyrirbyggjandi mál- um. Fólk er svo oft að senda mér spurningar í örvæntingu eða þegar vandinn er orðinn mikill. Gott hjá þér líka að nýta þetta úrræði sem kostar ekki neitt en getur mögulega komið þér inn á hjálplega braut. Klapp á bakið fyrir þetta allt saman. Nátengdir þættir Það er rétt hjá þér að andleg og líkamleg heilsa eru ná- tengdir þættir. Aftur á móti útilokar eitt ekki hitt. Þú get- ur hlúð vel að andlegri heilsu þó líkamlega heilsan sé ekki góð og það er til fullt af fólki í góðu líkamlegu formi sem mætti vera við betri andlega heilsu. Þú orðar spurninguna þannig að þú hugsar nú þegar vel um þig líkamlega og nú ætlir þú að setja fókus á and- legu hliðina. Ég vil þó læða því að þér að þú ert nú þegar að gera fullt og ef þú skerpir aðeins á því eða blandar því við annað þá gætir þú sömuleiðis náð góð- um árangri með andlegu hlið- ina. Getur þú til dæmis sam- nýtt göngutúra og andlega næringu? Gætir þú hlustað á hljóðvörp um andlega nær- andi málefni, núvitund eða sjálfsrækt á meðan þú geng- ur? Þá eru til dæmis til mat- reiðslu/næringar-námskeið þar sem tengsl milli and- legrar heilsu og mataræðis eru skoðuð og góð ráð gefin. Hundfúlt ástand Ég veit að það er hundfúlt að við getum helst ekki faðmað hvert annað og þurfum að temja okkur nýjar umgengn- isreglur en þá er gríðarlega mikilvægt að finna nýjar leiðir, draga ekki úr tengslum við annað fólk og velja okkur félagsskap sem nærir and- lega. Einmanaleiki er orðinn einn alvarlegasti heilsufars- vandi í heimi samkvæmt Al- þjóðaheilbrigðismálastofn- uninni og þar getur COVID haft alvarleg áhrif. Þú virðist meðvituð um þetta allt saman og því hvet ég þig til þess að setja þér markmið sem snúa að tengslum og góðum félags- skap sem lið í því að styrkja andlega heilsu þína. Birtir bráðum til Já, sálfræðiþjónusta hefur verið ansi kostnaðarsöm en nýlega voru samþykkt lög á Alþingi um aukna greiðslu- þátttöku ríkisins í þeim bransa. Það ætti því fljót- lega að vera möguleiki fyrir þig að fara til sálfræðings án þess að greiða nýra og lifur fyrir. Þú hefðir örugglega bæði gagn og gaman af því að prófa slíkt. Aldrei of gömul Sterk sjálfsmynd hefur sterkasta forspárgildið um hamingju í framtíðinni. Við erum aldrei of gömul til þess að styrkja sjálfsmynd okkar og hámarka þannig ham- ingjuna. Við erum gjörn á að ota slíku að unglingunum okkar sem eru á svo miklum mótunarárum en þar sem þú finnur fyrir því að aldurinn er að færast yfir þá ertu á ákveðnu breytingaskeiði sem gæti verið fínasti stökkpallur út í slíka sjálfsvinnu. Hver ert þú núna? Hverju langar þig að breyta? Hvað lætur þig fá jákvæða sjálfs- mynd og hvenær ertu með neikvæða sjálfsmynd? Hvað þarf að breytast svo þér líði oftar vel og sjaldnar illa? Þetta eru spurningar sem við höfum öll gott af að spyrja okkur reglulega, velta fyrir okkur, setja okkur markmið í kringum og fylgj- ast með framgangi þeirra. Þetta er vinna sem þú getur unnið sjálf og jafnvel haft gaman af. Að rækta sjálfs- myndina er ekki eitthvað sem við gerum á einni kvöldstund heldur markvisst yfir lengri tíma. Líttu á þetta eins og að stunda reglulega líkamsrækt. Meira af skemmtilegu Að lokum, þú vilt fyrir- byggja að þér fari að líða illa. Það merkir að þér líður nokkuð vel og því gæti verið ráð að reyna eftir bestu getu að njóta þess. Ég horfði á heimildarmynd á RÚV fyrir stuttu um 105 ára konu sem sagði að ef hún hætti að gera skemmtilega hluti þá myndi hún örugglega drepast og þá sennilega úr leiðindum. Ég held að það sé margt til í þessu hjá henni. Ef við gerum mikið af því sem okkur finnst skemmtilegt og lítið af því sem er leiðinlegt. Ef við njót- um þess góða og leiðum hið vonda hjá okkur þá komumst við ansi langt. Gangi þér ofsalega vel og góða skemmtun. Það getur reynst þrautin þyngri á þessum COVID-19 tímum að ná að halda í gleðina. MYND/GETTY Sterk sjálfsmynd hefur sterkasta forspárgildið um hamingju í fram- tíðinni. FÓKUS 25DV 21. ÁGÚST 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.