Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Blaðsíða 24
TÍMAVÉLIN
Þ að urðu tímamót í íslenskri sjónvarpssögu þegar Stöð 2 hóf út
sendingar þann 9. október
1986. Dagskráin hófst um
kvöldið með ávarpi Jóns Ótt
ars Ragnarssonar, annars
stofnanda stöðvarinnar, þá
tók við fréttatími sem hófst
klukkan 19.25. Því næst
átti að vera bein útsending
frá komu Ronalds Reagan
Bandaríkjaforseta til lands
ins vegna leiðtogafundarins
umtalaða. Það fór þó ekki
betur en svo að Stöð 2 neydd
ist til að sýna leikbrúðuþátt í
staðinn.
Þetta var vatn á myllu
þeirra sem töldu enga þörf
fyrir annað en Ríkissjónvarp
ið og skildu heldur ekki af
hverju Stöð 2 ætlaði eiginlega
að bjóða upp á sjónvarpsfrétt
ir. En samkeppni er almennt
af hinu góða og segja má að
fall hafi verið fararheill hjá
Stöð 2 sem enn er við lýði, 34
árum seinna.
Fréttatími stöðvarinnar
eignaðist brátt fastan sess
klukkan 19.19 en á þessum
tíma voru sjónvarpsfréttir
RÚV klukkan 20.00. Þær
voru síðar færðar framar í
dagskrána til að keppa við
kvöldfréttir Stöðvar 2.
Bið eftir afruglurum
Sama dag og útsendingar
hófust sagði DV fréttir af
því að fimm þúsund manns
hefðu pantað sér afruglara
og því virtist stöðin vera að
slá í gegn áður en fyrsti út
sendingardagurinn væri úti.
Áhugasamir gátu pantað af
ruglara frá Heimilistækjum
en reikna þyrfti með að bíða
í þrjár vikur eftir að fá hann
afhentan. Tekið var fram að
um þúsund tæki bærust til
landsins í hverri viku. Verð
á afruglaranum var 11.200
krónur gegn staðgreiðslu
en 11.800 með afborgunum.
Í byrjun var mánaðargjald
fyrir áskrift 980 krónur.
Félagsfræðingurinn Jóhann
Hauksson, sem síðar varð
verðlaunablaðamaður, gerði
könnun á sjónvarpsdagskrá
Stöðvar 2 og RÚV dagana
28. nóvember til 18. desem
ber 1986. Niðurstaðan var
að tæp 87% af efni Stöðvar 2
væru erlend, samanborið við
53% hjá RÚV. Hjá RÚV voru
70% af erlendu sjónvarpsefni
„angloamerísk“ en 100% hjá
Stöð 2.
Barnaefni á morgnana
Þegar Stöð 2 fagnaði þriggja
ára afmæli auglýsti hún í
helstu blöðum landsins og
rakti helstu afrek sín, að eig
in mati: „Það var Stöð 2 sem
réðst gegn gamalli bábilju
ríkisforsjármanna um sjón
varpslaus fimmtudagskvöld.
Það var Stöð 2 sem lengdi
útsendingartíma sjónvarps
á Íslandi og kom þannig til
móts við óskir landsmanna
sem ríkisforsjármenn höfðu
ekki séð neina ástæðu til að
sinna. Það var Stöð 2 sem
ruddi brautina í talsetningu
á erlendu barnaefni og kom
þannig til móts við óskir
barna og foreldra sem ríkis
forsjármenn höfðu hummað
fram af sér í mörg ár.“
Þeir sem voru börn á þeim
tíma sem Stöð 2 hóf útsend
ingar muna eflaust eftir því
hversu mikil tímamót það
voru að geta horft á teikni
myndir á morgnana um
helgar, og það með íslensku
tali. Meðal þess barnaefnis
sem var hvað vinsælast má
nefna Kærleiksbirnina, Litla
folann minn, Þrumukett
ina og Feita Albert. Á öðru
starfsári hófu þættirnir Með
afa göngu sína þar sem Örn
Árnason brá sér í hlutverk
afa sem varð ein langlíf
asta persóna Arnar, enn sem
komið er. n
Stöð 2 bauð strax upp á
fjölbreytt afþreyingarefni,
sinn eigin kvöldfrétta-
tíma og sýndi lengur fram
á kvöld en áður hafði
þekkst. Það nýmæli að
geta horft á teiknimyndir
á morgnana um helgar
naut mikilla vinsælda.
Gríðarleg tímamót
í íslensku sjónvarpi
Stöð 2 hóf útsendingar á fimmtudegi árið 1986 en þá voru fimmtu-
dagar enn sjónvarpslausir í Ríkissjónvarpinu. Þetta var aðeins eitt
af fjölmörgu sem stjórnendur stöðvarinnar gerðu til að ögra.
Örn Árnason í hlutverki afa. Fjölbreytt talsett barnaefni sló í gegn á Stöð 2.
Mikilvægar leiðbeiningar.
Dagskrá RÚV og Stöðvar 2,
sunnudaginn 19. desember
1989, frá kl. 8.00-18.00.
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Vala Matt, Valgerður Matthíasdóttir, sló eftirminnilega í gegn eftir að Stöð 2 fór í loftið. „Á hár-
greiðslustofum biðja konur um greiðslu eins og Vala Matt. Þær hinar sömu, sem ekki þykjast þola
flissið í henni í sjónvarpinu.” MYNDIR/TIMARIT.IS
24 FÓKUS 21. ÁGÚST 2020 DV