Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Side 24
TÍMAVÉLIN Þ að urðu tímamót í ís­lenskri sjónvarpssögu þegar Stöð 2 hóf út­ sendingar þann 9. október 1986. Dagskráin hófst um kvöldið með ávarpi Jóns Ótt­ ars Ragnarssonar, annars stofnanda stöðvarinnar, þá tók við fréttatími sem hófst klukkan 19.25. Því næst átti að vera bein útsending frá komu Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta til lands­ ins vegna leiðtogafundarins umtalaða. Það fór þó ekki betur en svo að Stöð 2 neydd­ ist til að sýna leikbrúðuþátt í staðinn. Þetta var vatn á myllu þeirra sem töldu enga þörf fyrir annað en Ríkissjónvarp­ ið og skildu heldur ekki af hverju Stöð 2 ætlaði eiginlega að bjóða upp á sjónvarpsfrétt­ ir. En samkeppni er almennt af hinu góða og segja má að fall hafi verið fararheill hjá Stöð 2 sem enn er við lýði, 34 árum seinna. Fréttatími stöðvarinnar eignaðist brátt fastan sess klukkan 19.19 en á þessum tíma voru sjónvarpsfréttir RÚV klukkan 20.00. Þær voru síðar færðar framar í dagskrána til að keppa við kvöldfréttir Stöðvar 2. Bið eftir afruglurum Sama dag og útsendingar hófust sagði DV fréttir af því að fimm þúsund manns hefðu pantað sér afruglara og því virtist stöðin vera að slá í gegn áður en fyrsti út­ sendingardagurinn væri úti. Áhugasamir gátu pantað af­ ruglara frá Heimilistækjum en reikna þyrfti með að bíða í þrjár vikur eftir að fá hann afhentan. Tekið var fram að um þúsund tæki bærust til landsins í hverri viku. Verð á afruglaranum var 11.200 krónur gegn staðgreiðslu en 11.800 með afborgunum. Í byrjun var mánaðargjald fyrir áskrift 980 krónur. Félagsfræðingurinn Jóhann Hauksson, sem síðar varð verðlaunablaðamaður, gerði könnun á sjónvarpsdagskrá Stöðvar 2 og RÚV dagana 28. nóvember til 18. desem­ ber 1986. Niðurstaðan var að tæp 87% af efni Stöðvar 2 væru erlend, samanborið við 53% hjá RÚV. Hjá RÚV voru 70% af erlendu sjónvarpsefni „angloamerísk“ en 100% hjá Stöð 2. Barnaefni á morgnana Þegar Stöð 2 fagnaði þriggja ára afmæli auglýsti hún í helstu blöðum landsins og rakti helstu afrek sín, að eig­ in mati: „Það var Stöð 2 sem réðst gegn gamalli bábilju ríkisforsjármanna um sjón­ varpslaus fimmtudagskvöld. Það var Stöð 2 sem lengdi útsendingartíma sjónvarps á Íslandi og kom þannig til móts við óskir landsmanna sem ríkisforsjármenn höfðu ekki séð neina ástæðu til að sinna. Það var Stöð 2 sem ruddi brautina í talsetningu á erlendu barnaefni og kom þannig til móts við óskir barna og foreldra sem ríkis­ forsjármenn höfðu hummað fram af sér í mörg ár.“ Þeir sem voru börn á þeim tíma sem Stöð 2 hóf útsend­ ingar muna eflaust eftir því hversu mikil tímamót það voru að geta horft á teikni­ myndir á morgnana um helgar, og það með íslensku tali. Meðal þess barnaefnis sem var hvað vinsælast má nefna Kærleiksbirnina, Litla folann minn, Þrumukett­ ina og Feita Albert. Á öðru starfsári hófu þættirnir Með afa göngu sína þar sem Örn Árnason brá sér í hlutverk afa sem varð ein langlíf­ asta persóna Arnar, enn sem komið er. n Stöð 2 bauð strax upp á fjölbreytt afþreyingarefni, sinn eigin kvöldfrétta- tíma og sýndi lengur fram á kvöld en áður hafði þekkst. Það nýmæli að geta horft á teiknimyndir á morgnana um helgar naut mikilla vinsælda. Gríðarleg tímamót í íslensku sjónvarpi Stöð 2 hóf útsendingar á fimmtudegi árið 1986 en þá voru fimmtu- dagar enn sjónvarpslausir í Ríkissjónvarpinu. Þetta var aðeins eitt af fjölmörgu sem stjórnendur stöðvarinnar gerðu til að ögra. Örn Árnason í hlutverki afa. Fjölbreytt talsett barnaefni sló í gegn á Stöð 2. Mikilvægar leiðbeiningar. Dagskrá RÚV og Stöðvar 2, sunnudaginn 19. desember 1989, frá kl. 8.00-18.00. Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Vala Matt, Valgerður Matthíasdóttir, sló eftirminnilega í gegn eftir að Stöð 2 fór í loftið. „Á hár- greiðslustofum biðja konur um greiðslu eins og Vala Matt. Þær hinar sömu, sem ekki þykjast þola flissið í henni í sjónvarpinu.” MYNDIR/TIMARIT.IS 24 FÓKUS 21. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.