Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Page 11
og kom með nýjustu æfingar
þaðan en þá var eróbikk það
vinsælasta. „Þá var mjög mik-
ið í tísku að vera með mikil
hljóð eins og „Vúhú!“ og köll
í æfingunum sem þótti mjög
byltingarkennt hér og vakti
mikla athygli,“ segir Ágústa
og hlær að minningum þar
sem legghlífar og neonlitir
réðu ríkjum í leikfimisalnum.
Tók ekkert lán
Ágústa lærði fljótt að það
þýðir ekki annað en að standa
vaktina sjálfur sé ætlunin að
skara fram úr í eigin rekstri.
„Þegar við Jónína stofnuðum
Stúdíó Jónínu og Ágústu áttum
við engan pening. Við fengum
bara hrátt húsnæði sem við
innréttuðum sjálfar með góðri
hjálp vina og vandamanna.
Við tókum ekkert lán, fengum
bara að taka efni út í reikning
hjá Húsasmiðjunni með lof-
orði um að borga um leið og
eitthvað kæmi inn í kassann.
Stúdíóið varð mjög fljótt vin-
sælt og við fórum fljótlega að
bæta við okkur kennurum.“
Þegar Jónína flutti til Sví-
þjóðar og fór út úr fyrirtæk-
inu og þáverandi eiginmaður
Ágústu, Hrafn Franklín, kom
inn á móti breyttist nafnið á
fyrirtækinu í Stúdíó Ágústu og
Hrafns. Velgengnin hélt áfram
enda hræddist Ágústa ekki
mikla vinnu á meðan brenn-
andi áhuginn dró hana áfram.
Hún tók upp mörg hundruð
líkamsræktarþætti á þessum
árum og skrifaði matreiðslu-
bækur.
„1998 sameinuðumst við
Mætti og stofnuðum Hreyf-
ingu. Þá fór ég að vinna með
Grími Sæmundsen. Okkar
veikleiki var tækjasalurinn
og ég hafði mikinn áhuga á
að fara með mitt fyrirtæki
upp á næsta stig og auka við
tækjabúnað og komast í betra
húsnæði.“ Ágústa er því rétt
liðlega þrítug þegar hún er
komin í þá stöðu að reka eina
stærstu líkamsræktarstöð
landsins.
Í dag starfar hún enn sem
framkvæmdastjóri Hreyfing-
ar sem hefur um 100 manns á
launaskrá og 6.000 viðskipta-
vini. Aðspurð hvort það sé
meira krefjandi að vera mest-
megnis með konur í vinnu –
samanber gömlu tugguna um
að konur séu konum verstar
– svarar Ágústa að svo sé
alls ekki. „Ég er mjög lítið
upptekin af kvennatali. Mér
finnst skipta mestu máli að
vera með réttu einstaklingana
og hæfasta fólkið á hverjum
stað, óháð kyni. Mannauður-
inn er fólginn í því að finna
rétta manneskju í starfið,
hvort sem það eru konur eða
karlar, þó það sé alltaf best
að hafa blöndu. En ég hef al-
mennt verið með lánsöm, með
framúrskarandi samstarfsfólk
mér við hlið.“
Úthald og agi
Konur eru meira áberandi á
líkamsræktarstöðvum, bæði
sem starfsfólk og gestir. „Yfir-
leitt eru það frekar konur sem
stunda líkamsræktarstöðvar.
Þær eru kannski samvisku-
samari að drífa sig af stað. Það
er þó ekki mikill munur. Hjá
okkur í Hreyfingu eru þetta
um 58% konur.“
Ágústa segir þjóðina vera
duglega að kaupa sér kort í
líkamsrækt en þó vanti aðeins
upp á mætinguna. „Ef við
skoðum Norðurlöndin, eins og
til dæmis Svíþjóð, þá eru færri
sem eiga kort í líkamsræktar-
stöðvum en fólk þar er í betra
líkamlegu ásigkomulagi og of-
fituvandinn þar er mun minni.
Við á Íslandi getum verið
svolítið ýkt og agalaus. Okkur
vantar gjarnan jafnvægi og
úthald til þess að að æfa að
staðaldri, þó það hafi sem
betur fer breyst mikið til hins
betra á síðustu áratugum og
hópurinn fer stækkandi sem
hefur gert þjálfun að sínum
lífsstíl. Við erum það sem við
erum, þessi tryllta orka í ís-
lensku þjóðinni er skemmtileg
og mikill kostur en við þurf-
um að ná að aga okkur betur
þegar það kemur að heilsu.“
Hreyfing hefur fundið vel
fyrir kórónaveirufaraldrinum
eins og flest fyrirtæki en allar
líkamsræktarstöðvar voru
lokaðar í rúma tvo mánuði og
erfitt getur reynst að virða
tveggja metra regluna í hópa-
tímum, sem dæmi.
„Ég hugsaði í byrjun árs
að þetta ár yrði stórkostlegt
ár og líklega okkar besta ár
i sögu fyrirtækisins. En það
fór öðruvísi. Við náðum þó
að nýta tímann vel á lokunar-
tímabilinu og helltum okkur
í miklar endurbætur á að-
stöðunni, fjárfestum í nýjum
tækjum og bættum ýmsan
aðbúnað. Rekstraráætlun árs-
ins fór auðvitað út um glugg-
ann strax í mars. Fyrirtækið
stendur þó styrkum fótum en
auðvitað þarf alltaf að halda
þétt á málum til að halda sjó.“
Fyrsta stefnumótið
og Liverpool
Ágústa og eiginmaður hennar,
Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra, kynntust í
gegnum pólitík þegar Ágústa
gaf kost á sér í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins árið 1997. Þau
fóru þó ekki að vera saman
fyrr en síðar. Guðlaugur hafði
þá verið fastakúnni í stöðinni
hjá Ágústu lengi. „Á fyrsta
stefnumótinu okkar bauð hann
mér í mat. Þessi elska lagði í
að elda ungverska gúllassúpu
sem mér þótti ekki neitt sér-
staklega góð en það hafði nú
ekki stærri afleiðingar en
raun ber vitni. Hann var ekki
mikill kokkur á þessum tíma
en það hefur nú heldur betur
breyst og nú eldar hann dýr-
indis mat oft í viku.“
Ágústa átti tvö börn á tán-
ingsaldri þegar hún kynntist
Guðlaugi og saman eiga þau
18 ára tvíbura og eitt barna-
barn svo það er oft líf og fjör
á heimilinu og því þörf á góðri
eldamennsku.
Matreiðsla er eitt af sameig-
inlegum áhugamálum Ágústu
og Guðlaugs en þau eru einn-
ig skíðafólk og eiga auk þess
skógræktarjörð sem þau sinna
saman. Eiginmaður Ágústu er
annálaður Liverpoolmaður en
sjálf segist Ágústa hafa tak-
markaðan áhuga á fótbolta.
„Ég hef með árunum linast í
andstöðu minni við fótboltann.
Það hefur ekkert upp á sig að
vera að pirrast út í þennan
brennandi áhuga hans á Liver-
pool,“ segir Ágústa og kemur
jafnvel fyrir að hún horfi á
einn og einn leik með sínum
heittelskaða.
Pólitískt þras tekur á
Guðlaugur Þór hefur sætt
gagn rýni í starfi sínu líkt og
flestir ráðherrar. Fyrir ári
bárust Guðlaugi morðhótanir í
tengslum við þriðja orkupakk-
ann sem var þá til umræðu á
þingi. Aðspurð hvort hún hafi
aldrei fengið nóg af áreitinu
sem fylgir ráðherrastarfinu
og hvatt eiginmann sinn til að
finna sér annað starf svarar
hún: „Jú, ég hef ekki tölu á
því hvað ég hef oft sagt það
við hann en þetta er það sem
hann brennur fyrir og ég tek
það ekki af honum.
Ég hef ekki eins mikið út-
hald og umburðarlyndi fyrir
þessu argaþrasi sem fylgir
pólitíkinni. Maður lærir bara
að reyna að láta þetta ekki
trufla sig og myndar auð-
vitað skráp fyrir því, en það
er gott að það séu til öflugir
einstaklingar sem nenna að
starfa í stjórnmálum. Umtalið
og áreitið sem fylgir starfinu
er alltaf að verða erfiðara og
erfiðara, sérstaklega eftir að
samfélagsmiðlarnir komu. Það
er allt komið með það sama
á samfélagsmiðla og þaðan
í fjölmiðla. Það er beinn að-
gangur að öllum.“
Í þessu samhengi berst til
tals bréf sem Ágústa sendi
fyrir hönd Samtaka líkams-
ræktarstöðva til sóttvarna-
læknis þar sem hún óskaði
eftir fundi þegar ljóst var að
Ég skammast mín
ekki fyrir það
sem ég á. Þetta
er botnlaus vinna
og ég hef aldrei
fengið neitt upp í
hendurnar.
Ágústa Johnson stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki rétt rúmlega tvítug. MYND/SIGTRYGGUR ARI
FRÉTTIR 11DV 21. ÁGÚST 2020