Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Page 16
16 EYJAN 21. ÁGÚST 2020 DV
Þ að gæti vel verið að við værum að færa okkur frá vorkosningum til
Alþingis og inn í haustkosn-
ingar almennt,“ segir Ólafur
Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði. Samkvæmt
tilkynningu frá forsætisráð-
herra verður kosið til Alþingis
þann 25. september á næsta
ári en hefðbundið er að þing-
kosningar fari fram að vori.
Sú ríkisstjórn sem nú situr var
hins vegar mynduð eftir kosn-
ingar í október 2017 sem voru
haldnar á óhefðbundnum tíma
eftir að Björt framtíð sleit rík-
isstjórnarsamstarfi við Við-
reisn og Sjálfstæðisflokkinn
vegna trúnaðarbrests. Kosn-
ingar að ári verða því þegar
mánuður er eftir af fjögurra
ára kjörtímabili.
„Það er í sjálfu sér ekkert
óeðlilegt við að ríkisstjórnin
vilji sitja heilt kjörtímabil
frekar en að stytta það. Marg-
ir hafa talað um að það skipti
máli að kjósa að vori þannig
að ný ríkisstjórn fái tækifæri
til að setja mark sitt á fjárlög
fyrsta ársins. Þá má benda á
að það er kosið að hausti bæði
í Noregi og Svíþjóð, svo dæmi
séu tekin. Ef ekki eru miklar
sveiflur í fjárlagagerð og emb-
ættismenn hafa lagt línurnar
að mestu leyti varðandi fjár-
lög næsta árs skiptir ekki
sköpum þó ný ríkisstjórn taki
við að hausti,“ segir Ólafur.
Pirringur í gangi
Búast má við að baráttan
um atkvæðin hefjist strax á
haustmánuðum þó eiginleg
kosningabarátta eigi sér stað
nær kjördegi. „Þessi síðasti
vetur fyrir kosningar mun
hafa áhrif á flokkana. Ef við
skoðum ríkisstjórnarsam-
starfið þá virðist það hafa
gengið mjög vel og engin
ástæða til að ætla annað en
að stjórnin sitji fram á næsta
haust. Sannarlega hefur orðið
vart við ákveðinn pirring hjá
einstaka þingmönnum innan
stjórnarflokkanna sem gæti
hugsanlega aukist en heilt yfir
gengur þetta vel,“ segir hann.
Ólafur bendir á að í vetur
megi reikna með að fulltrúar
allra flokka fari að velta fyrir
sér hvaða stjórnarsamstarf
sé í spilunum. „Fyrst ber
að nefna að í COVID hefur
stuðningur við ríkisstjórnina
farið upp og þegar litið er til
stuðnings við ríkisstjórnina
á þessum tíma kjörtímabils
þá er hann alveg prýðilegur.
Stuðningur við flokkana í rík-
isstjórn hefur hins vegar ekki
verið í samræmi við þetta.
Í öllum síðustu könnunum
hafa ríkisstjórnarflokkarnir
samanlagt verið með töluvert
minna en helming atkvæða.
Miðað við þessar kannanir
þá myndi ríkisstjórnin falla.
Það sem eykur líkur á að hún
falli er að í raun allir flokkar
sem hafa setið í ríkisstjórn frá
hruni hafa tapað fylgi eftir
stjórnarsetu. Líkurnar á að
ríkisstjórnarflokkarnir nái að
halda meirihluta hljóta því að
teljast minni en meiri,“ segir
hann.
Miðflokkurinn skapar sér
sérstöðu
Ólafur setur upp nokkrar
sviðsmyndir af því sem gæti
gerst eftir kosningar ef ríkis-
stjórnarflokkarnir ná ekki
að halda meirihluta. „Fyrsti
augljósi möguleikinn er að
þeir reyni að bæta við sig
fjórða flokknum, það er ef
þessir þrír flokkar vilja halda
áfram að vinna saman. Bæði
Samfylking og Píratar hafa
lýst því yfir að þeir vilji ekki
fara í stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum, hvort sem það
heldur eða ekki. Viðreisn væri
því einn möguleikinn en ég er
ekki sannfærður um að það
væri líkleg niðurstaða. Annar
möguleiki er Miðflokkurinn.
Mér finnst þó ólíklegt að
Vinstri græn og Framsókn
myndu vilja taka hann með.
Reyndar hef ég upplifað að
Miðflokkurinn sé að skapa sér
sérstöðu í íslenskum stjórn-
málum sem gerir að það gæti
verið erfitt fyrir aðra flokka
að vinna með honum. Við
sáum í forsetakosningunum
að stór hluti kjósenda Mið-
flokksins studdi Guðmund
Franklín á meðan yfirgnæf-
andi meirihluti allra annarra
flokka, utan Flokks fólksins,
studdi Guðna [Th. Jóhannes-
son]. Ýmislegt er til marks um
að Miðflokkurinn sé að verða
lýðhyggjuflokkur, eða popúl-
istaflokkur, sem er líklegt að
einangri hann þegar kemur
að möguleikum á stjórnar-
myndun.“
Hann bendir á að annar
möguleiki sé að ríkisstjórnar-
flokkarnir einfaldlega bæti
nýjum flokki inn í samstarfið
eftir kosningar. Enn annar
möguleiki sé að mynda það
sem hann kallar „einhvers
konar Reykjavíkurmeiri-
hluta“. Ólafur vísar þar til
meirihlutasamstarfs Sam-
fylkingar, Viðreisnar, Pírata
og Vinstri grænna í borgar-
stjórn. „Það virðist vera tölu-
verð málefnaleg samstaða
milli Samfylkingar, Pírata
og Viðreisnar á Alþingi þó
auðvitað sé líka margt sem
greinir þessa flokka að. Ég
myndi telja að þessir flokkar
væru ekki ólíklegir til að vilja
fara saman í ríkisstjórn og
taka þá Vinstri græna með.
Ég tel ekki útilokað að Vinstri
græn myndu hoppa á slíkan
vagn. Hér er þó ekki heldur
útilokað að Framsókn kæmi
inn, hvort sem það væri sem
fimmti flokkurinn eða í stað
Pírata,“ segir Ólafur.
Vinstri græn í lykilstöðu
„Ég sé engar málefnalegar
hindranir á því að Píratar
færu inn í slíkt stjórnar-
samstarf nema þeir gerðu
það að skilyrði að frumvarp
stjórnlagaráðs yrði samþykkt
óbreytt. Við síðustu stjórnar-
myndun töldu margir Pírata
ekki stjórntæka, hvort sem
það var rétt mat eða ekki. Það
sem eykur líkur á að menn séu
tilbúnir í samstarf með þeim
er að þetta þriggja flokka
samstarf í stjórnarandstöð-
unni virðist ganga mjög vel. Í
borgarstjórnarmeirihlutanum
er heldur ekki að sjá að hinir
flokkarnir telji Pírata hafa
verið til nokkurra vandræða.
Þetta tvennt gæti skipt máli,“
segir Ólafur. Hann bendir þó á
að ýmsir gætu viljað fá Fram-
sókn inn í slíkt samstarf. „Það
væri þá stærri stjórn sem
gæti haldið velli þó Píratar
myndu hlaupa undan merkj-
um. Slík stjórn væri ávísun á
meiri stöðugleika. En ég tek
fram að þetta eru allt auðvitað
bara vangaveltur,“ segir hann.
Hann telur alls óvíst að
Flokkur fólksins nái inn
manni í næstu kosningum og
að flokkurinn skipti litlu máli
þegar kemur að stjórnar-
myndun.
Ólafur segir að á komandi
þingvetri gætu fulltrúar
flokkanna reynt að „hafa
sæmilega gott veður“ milli
þeirra flokka sem viðkom-
andi teldu hugsanlega geta
komið með sér í ríkisstjórn.
„Kannski á þetta sérstaklega
við Vinstri græn,“ segir hann.
Ekki er von á raunveruleg-
um kosningaskjálfta fyrr en á
vorþinginu en ýmsir gætu þó
farið að brýna tennurnar. „Við
sjáum líklega strax í haust
að stjórnarandstaðan hvessi
sig. Hún hefur þegar verið
að hvessa sig varðandi veiði-
gjöldin en aðallega verður
kosningaskjálftinn í vor og
síðan má búast við baráttunni
upp úr miðjum ágúst á næsta
ári,“ segir Ólafur. n
LÍNURNAR SKÝRAST
HJÁ FLOKKUNUM Í VETUR
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor segir mögulegt að
við séum að færa okkur í átt að almennum haustkosningum. Hann
veltir upp ólíkum myndum þegar kemur að ríkisstjórnarsamstarfi.
Ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar þykir almennt hafa gengið vel.
Ólafur Þ. Harðarson
stjórnmálaprófessor
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is