Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2020, Side 18
Í ljósi vinkonuhittings ferða-málaráðherra sem mikið hefur farið fyrir í vikunni rifjast upp nokkur eftirminni- leg hneyksli og viðbrögð hlut- aðeigandi við þeim, þar sem fæstir báðust afsökunar eða gengust við myrkraverkum sínum. Vandinn og fegurðin felst í því hversu fljótt snjóar yfir skandala. Er þá gjarnan bent á að þjóðfélagið hér á landi er mjög umburðarlynt eða með- virkt, sjálfsagt vegna fámenn- is. Stjórnmálamaður haggast ekki nema viðkomandi missi tiltrú félaga sinna. Samherjamálið Samherjamálið kom upp síðasta haust eftir umfjöllun Kveiks, Stundarinnar og Al Jazeera um meintar mútu- greiðslur Samherja í Namibíu. Athygli vakti þá að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er góð- ur vinur forstjóra Samherja, Þorsteins Más Baldvinssonar. Hæfi Kristjáns í málefnum Samherja var því dregið í efa og kröfðust margir þess að ráðherra segði af sér. Krist- ján fór þá millileið að segja sig frá þeim málum er varða Samherja og fá þau öðrum til úrlausna. Klausturmálið Sex þingmenn komu saman á barnum Klaustri í nóvember árið 2018 og áttu þar spjall um kollega sína og fleiri þekkta Íslendinga. Samtal þeirra var ekki til fyrirmyndar og voru bæði nafntogaðir einstakling- ar og minnihlutahópar teknir fyrir með niðrandi hætti. Þingmennirnir sex ákváðu þó að snúa vörn í sókn. Í stað þess að gangast við ábyrgð á framkomunni reyndu þeir að koma höggi á uppljóstrarann, Báru Halldórsdóttur, með því að stefna henni fyrir dóm en varð ekki kápan úr því klæð- inu. Sexmenningarnir töldu sig með engum hætti þurfa að bera pólitíska ábyrgð og sitja enn allir á þingi Akstur Ásmundar Ásmundur Friðriksson var grunaður um að hafa misfarið með almannafé árið 2018 eftir að í ljós kom að hann innheimti himinháar akstursgreiðslur af Alþingi. Meðal annars fékk hann endurgreiddan útlagðan aksturs kostnað vegna þátta- gerðar fyrir ÍNN sem tengd- ist ekki þingstörfum hans. Árið 2017 fékk Ásmundur um 4,6 milljónir króna í aksturs- greiðslur sem jafngildir rúm- lega 380 þúsund krónum á mánuði. Hefði að líkindum ver- ið töluvert ódýrara fyrir þing- manninn að vera á bílaleigubíl og fá aðeins bensínkostnað endurgreiddan af þinginu. Frá því að málið kom upp hefur aksturskostnaður Al- þingis lækkað tölu- vert. Hins vegar fór Ásmundur þá leið að sitja sem fastast á þingi og kvartaði til siðanefndar Al- þingis, forsætis- nefndar og Evrópu- ráðsþingsins vegna ummæla þingmanns- ins Þórhildar Sunnu Æv- arsdóttur um athæfi hans. Wintris-málið Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son var forsætisráðherra 2016 þegar hann fór í Kastljóss- viðtal. Í viðtalið var hann fenginn á fölskum forsendum og var óvænt spurður út í að- komu sína að aflandsfélaginu Wintris sem hafði verið í eigu hans og eiginkonu hans. Var hann vændur um að fela eignir í skattaskjóli. Sigmundur laug í viðtalinu og kvaðst ekkert kannast við félagið. Sigmundur sagði í kjölfarið af sér sem for- sætisráðherra og klauf hann sig úr Framsóknarflokknum og stofnaði sinn eigin flokk, Miðflokkinn, sem hann situr fyrir á þingi í dag. Lekamál Hönnu Hanna Birna Kristjánsdóttir, þáverandi innanríkisráðherra, sagði af sér í nóvember 2014 í kjölfar hneykslis sem í daglegu tali kallast Lekamálið. Málið kom upphaflega upp ári fyrr þegar ljóst var að minnisblaði með trúnaðarupplýsingum um hælisleitanda hafði verið lekið í fjölmiðla. Málið vakti mikla athygli og reiði meðal almenn- ings. Tvímælalaust komu upp- lýsingarnar úr innanríkisráðu- neytinu en enginn gekkst þó framan af við því að eiga sök á lekanum. Allra augu voru því á Hönnu Birnu sem fyrirsvars- manni ráðuneytisins. Hanna sór af sér sakir og taldi málið allt vera pólitískt útspil sem væri ætlað að koma á hana höggi. Reynir Trausta- son, þáverandi ritstjóri DV, greindi frá því að Hanna Birna hefði haft samband við hann og reynt að beita hann þrýstingi til að hafa áhrif á fréttir af Lekamálinu. Síðar steig aðstoðarmaður Hönnu Birnu fram og gekkst við lek- anum. En skaðinn var skeður og Hanna Birna sá sér ekki annað fært en að segja sig frá embætti sínu. Ási að fá sér Ásmundur Einar Daðason, fé- lags- og barnamálaráðherra, var sakaður um að hafa verið ölvaður í flugi frá Bandaríkj- unum árið 2015. Mun hann hafa orðið slappur í maganum og kastað ítrekað upp í flug- inu og yfir nokkur sæti við salerni vélarinnar. Vitni að atvikinu voru fjölmörg. DV bárust ítrekaðar ábendingar um að Ásmundur, sem þá var þingmaður, hefði drukkið af miklum metnaði í flugferð- inni. Ásmundur tók þó fyrir að hafa verið ölvaður. „Ég fékk einhverja magakveisu þennan dag og hélt engu niðri. Ég ældi út um allt,“ sagði hann í samtali við DV. Sagðist hann enn fremur ætla að leita sér læknisaðstoðar vegna kveisunnar. Uppá- koman vakti mikla athygli og varð myllumerkið #ásiaðfásér vinsælt á Twitter. n Vinur Samherja. Laug um aðkomu sína að Wintris. Sagði af sér vegna leka. Borðið fræga sem sexmenningarnir sátu við. MYND/FACEBOOK Ásmundur elskar að fara í góðan bíltúr. HNEYKSLI Á ALÞINGI! Enginn er fullkominn og öllum verður okkur á í messunni. Fæst- ar yfirsjónir vekja þó jafnmikla athygli og þær sem kjörnir full- trúar okkar gerast sekir um. Ásmundur fékk kveisu í flugi. Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is 18 EYJAN 21. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.