Fréttablaðið - 21.08.2020, Qupperneq 4
OPIÐ
10.00-22.00
alla daga
Renndu við og fáðu lyn
afgreidd beint í bílinn
www.lyfsalinn.is
BÍLAAPÓTEK
VIÐ VESTURLANDSVEG
LÖGREGLUMÁL Rannsóknarlög
reglumaður telur fulla þörf á að
skoða ráðningamál hjá lögreglunni
á Suðurnesjum. Eiríkur Valberg
rann sóknar lög reglu maður segist
nýverið hafa komist yfir upplýs
ingar um umsagnir við umsókn
hans um starf innan embættis
ins. Telur hann þær ekki standast
skoðun og að þær bendi til þess að
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlög
fræðingur embættisins, og Helgi Þ.
Kristjánsson mannauðsstjóri hafi
unnið gegn sér.
Mikil ólga hefur verið innan lög
reglunnar á Suðurnesjum um langt
skeið sem hefur kristallast í baráttu
milli Ólafs Helga Kjartanssonar, frá
farandi lögreglustjóra, og hóps sem
Alda Hrönn og Helgi leiða. Dóms
mála ráð herra til kynnti í fyrradag
að Grímur Her geirs son, stað gengill
lög reglu stjórans á Suður landi, yrði
settur sem lög reglu stjóri á Suður
nesjum til 1. nóvember. Þá fær
Ólafur Helgi starf í ráðuneytinu, en
hann hafnaði starfi lögreglustjóra í
Vestmannaeyjum.
Alda Hrönn og Helgi hafa verið í
veikindaleyfi undanfarið sem hófst
í kjölfar þess að tveir starfsmenn
kvörtuðu til fagráðs ríkislögreglu
stjóra undan einelti af þeirra hálfu.
Í bréfi sem lög maður Ólafs Helga
sendi dómsmálaráðuneytinu er
óskað eftir að veikinda leyfi tví
menninganna verði skoðað af ráðu
neytinu. Telur hann að skoða þurfi
atburðarásina í kringum veikindi
þeirra og útgáfu læknisvottorða.
Þá hefur Ei ríkur Valberg leitað
til lög manns til að gæta réttar síns
gagn vart em bætti lög reglunnar
á Suður nesjum, í máli er tengist
ráðningar ferli innan em bættisins
árið 2018. Í bréfi til yfirstjórnar
embættisins segir hann ástæðu til
að skoða ráðningarmál embættis
ins. Sakar hann Öldu Hrönn og
Helga um að hafa komið í veg fyrir
að hann fengi stöðu yfirlögreglu
þjóns á Suðurnesjum, í staðinn hafi
verið ráðin vinkona Öldu Hrannar.
Segir hann að Helgi sé vilhollur
Öldu Hrönn.
Ástæðan mun hafa verið að
Eiríkur, í starfi sínu hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu, tók afstöðu
sem hugnaðist ekki Sigríði Björk
Guðjónsdóttur, þáverandi lög
reglustjóra og núverandi ríkislög
reglustjóra.
„Gerði lög reglu stjórinn [Sig ríður
Björk innsk. blaðamanns] mér ljóst
á þessum fundi að ég myndi ekki
hljóta fram gang innan lög reglunnar
meðan hún réði ein hverju,“ segir í
bréfi Eiríks. Þegar hann sótti um
stöðuna á Suðurnesjum hafi hann
tilgreint f jóra umsagnaraðila,
honum óafvitandi hafi Alda Hrönn,
sem starfaði áður hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, einnig sent
inn umsögn þar sem Eiríkur fékk
falleinkunn.
Í hæfnismati við ráðningu í stöðu
yfir lög reglu þjóns á Kef la víkur
flug velli vorið 2019 hlaut Gestur K.
Pálma son, eigin maður Öldu Hrann
ar, 94,63 stig í einkunn, mun fleiri
en Hall dór Rós mundur Guð jóns son,
sem hefur 30 ára starfsreynslu hjá
lögreglunni.
Á meðan á um sóknar ferlinu gekk
var Hall dóri sagt upp störfum hjá
lög reglunni á Suður nesjum en ríkis
lög maður hefur viður kennt bætur
vegna ó lög mætrar upp sagnar. Hall
dór kvartaði einnig til fagráðs vegna
ein eltis af hálfu Öldu Hrannar eftir
upp sögnina. Niður staða fagráðs
var að ekki væri um ein elti að ræða.
Bóta mál Hall dórs er nú í ferli.
Í hæfnismatinu, sem Helgi sá um,
er mark þjálfunarnám Gests frá
Opna há skólanum metið til jafns
við lög fræði og mann auðs stjóra
menntun frá Há skóla Ís lands. Þá
fékk Gestur f lest stig í huglægu
mati. Ólafur Helgi virti hæfnismatið
að vettugi og réð annan í starfið.
Hvorki hefur náðst í Helga Þ.
Kristjánsson né Sigríði Björk Guð
jónsdóttur. Alda Hrönn segir að hún
vilji ekki tjá sig um innri málefni
lögreglunnar. mhj@frettabladid.is
Harðar ásakanir á stjórnendur
lögreglunnar á Suðurnesjum
Rannsóknarlögreglumaður segir ástæðu til að skoða ráðningarmál lögreglunnar á Suðurnesjum, telur
hann yfirlögfræðing og mannauðsstjóra hafa unnið gegn sér. Þá hefur fráfarandi lögreglustjóri óskað
þess að dómsmálaráðuneytið kanni hvort veikindaleyfi tveggja stjórnenda hjá embættinu sé réttmætt.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir hefur verið í veikindaleyfi undanfarið. Fráfar-
andi lögreglustjóri vill að það sé að kannað. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Mikil ólga hefur verið
innan lögreglunnar á
Suðurnesjum um langt
skeið.
GARÐABÆR Lögmaður íbúa Bygg
akurs 20 og 22 hefur sent Garðabæ
harðort bréf þar sem þess er krafist
að bærinn viðurkenni skaðabóta
skyldu vegna meints ólögmæts
byggingarleyfis fyrir einbýlishús
við Frjóakur 9 og gangi til samninga
um skaðabætur vegna þess.
Það vakti nokkra athygli þegar
hjónin Margrét Íris Baldursdóttir og
Magnús Ármann fjárfestu í húsinu
við Frjóakur 9 í byrjun árs enda eitt
dýrasta einbýlishús landsins. Kaup
verðið var 360 milljónir króna.
Húsið keyptu þau af athafna
manninum Antoni Kristni Þórar
inssyni en innanhússarkitektinn
Berglind Berndsen hafði nýlega
hannað húsið að innan.
Magnús og Margrét hófu hins
vegar strax umfangsmiklar og
umdeildar framkvæmdir á eigninni.
Meðal annars eru þau langt komin
með að útbúa fullkomna líkams
ræktaraðstöðu í kjallara hússins
þar sem útgengt er í garðinn.
Það telja nágrannar brot á deili
skipulagi enda fékkst undanþága
til þess að stækka kjallara hússins á
sínum tíma gegn því að um glugga
laust rými væri að ræða sem hefði
lítil áhrif á nágranna.
Þá hefur verið reist steinsteypt
sána við lóðarmörkin, eitthvað sem
nágrannarnir telja að sé óheimilt og
vilja að verði fjarlægt.
Í bréfinu kemur fram að sáttavilji
Magnúsar og Margrétar í deilunni
hafi enginn verið og þá er farið
hörðum orðum um þátt byggingar
fulltrúa Garðabæjar sem hafi ekki
brugðist við umkvörtunum.
Bréfið var tekið fyrir á fundi
bæjarráðs Garðabæjar í byrjun
vikunnar og var bæjarstjóra falið
að svara því. Á fundinum kom
fram að framkvæmdir við eignina
hafa verið stöðvaðar og umsókn
um breytingar á kjallaranum hafi
verið vísað til umfjöllunar skipu
lagsnefndar bæjarins. – bþ
Vilja skaðabætur frá Garðabæ út af
framkvæmdagleði kunns fjárfestis
Magnús Ármann, þekktur fjárfestir.
SKÁK Skáksamband Íslands hlaut
á síðustu stundu undanþágu frá
heilbrigðisráðuneytinu til þess að
halda Skákþing Íslands, hið eigin
lega Íslandsmót, um næstu helgi.
Landsliðsflokkur mótsins fer fram
í Garðabæ að þessu sinni og hefst
næsta laugardag en þar munu tíu
sterkustu skákmenn landsins tefla
um hinn eftirsótta titil.
Talsverð óvissa hefur ríkt um
mótshaldið undanfarnar vikur.
Þegar sóttvarnay f ir völd léttu
kröfum af Íþróttasambandi Íslands
töldu skákmenn að mótshaldið væri
hólpið enda hefur Skáksambandið
verið skilgreint sem íþróttasam
band af menntamálaráðuneytinu
þrátt fyrir að eiga ekki aðild að ÍSÍ.
Sóttvarnayfirvöld voru þó ekki
alveg sammála þeirri túlkun að
skák væri augljóslega íþrótt og
því varð Skáksambandið að sækja
undanþágu fyrir mótshaldið til
heilbrigðisráðuneytisins. Sú undan
þága var veitt um miðja vikuna eftir
að áætlun Skáksambandsins um að
tryggja sóttvarnir hafði verið yfir
farin gaumgæfilega.
Íslandsmótið hefst því á laugar
daginn klukkan 15.00 og er tef lt í
Álftanesskóla. Áhorfendur verða
bannaðir. Meðal keppenda verða
fimm stórmeistarar, þar á meðal
Margeir Pétursson sem mætir til
leiks um langan veg. – bþ
Skákmenn fengu loks undanþágu
Margeir Pétursson mætir til leiks alla leið frá Úkraínu þar sem hann býr.
SUÐURNES Bein sem fundust í Skó
fellahrauni reyndust ekki vera
mannabein eins og óttast var. Lög
reglunni á Suðurnesjum barst til
kynning um beinin í vikunni og
var þeirra umsvifalaust vitjað. Það
var ærið verkefni enda þurfti aðstoð
björgunarsveitarinnar Þorbjarnar
til þess að komast að fundarstaðn
um.
Beinin voru fjarlægð af vettangi
og færð í hendur réttarmeina
fræðings. Að rannsókn lokinni
gat sérfræðingur staðfest að ekki
væri um mannabein að ræða. Lög
reglan greindi frá niðurstöðunni á
Facebooksíðu sinni í gær en ekki
fylgdi sögunni úr hvaða skepnu
beinin voru. – bþ
Beinin eru ekki
úr manneskju
Beinin í hrauninu. MYND/AÐSEND
KÓPAVOGUR Rekstrarniðurstaða
samstæðu Kópavogsbæjar, A og
Bhluta, var neikvæð um 443
milljónir króna á fyrri hluta árs
ins 2020. Áætlun ársins gerði ráð
fyrir rekstrarhalla að upphæð 75
milljónir króna fyrstu sex mánuði
ársins á samstæðunni, en 597 millj
óna króna afgangi á árinu öllu, enda
fellur tæpur helmingur skatttekna
til á fyrri hluta árs en stærri hluti
útgjalda á ákveðnum sviðum. Tapið
endurspeglar þær hremmingar sem
COVID19 hefur leitt af sér, að sögn
Ármanns Kr. Ólafssonar bæjar
stjóra. – bþ
Mikið tap hjá
Kópavogsbæ
2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð