Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 6
Það er grundvallar- munur á að leggjast veikur og hrumur inn á hjúkrunarheimili nokkur síðustu árin eða að leggjast inn ungur og dvelja þar í áratugi. Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA miðstöðvarinnar uppskera! Ný íslensk ... hjá ok ku r í d a g H já b ó nd a í gær ... Afgreiðslutímar á www.kronan.is FÉLAGSMÁL Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA mið- stöðvarinnar, segir mál Erlings Smith með þeim alvarlegri en að það sé veruleiki margra fatlaðra að þurfa að dvelja á hjúkrunarheimilum, að mestu leyti innan um aldrað fólk. Á undanförnum árum hafi reglur verið útvíkkaðar til að fatlaðir undir 67 ára kæmust frekar inn á hjúkr- unarheimili en þeim stýrt frá því að sækja um NPA-samninga. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær hefur Erling þurft að dvelja í meira en tvö og hálft ár á hjúkrun- arheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ, eftir að NPA-samningi hans var rift. Þrátt fyrir úrskurði úrskurðar- nefndar velferðarmála og álit Umboðsmanns Alþingis hreyfist mál hans ekki og nú er svo komið að fjárnám er gert í eignum hans fyrir vistunargjöldunum. Hefur Erling aldrei samþykkt langtímadvöl. Rúnar segir að NPA miðstöðin, Öryrkjabandalagið og Þroska- hjálp hafi öll mótmælt þessum breytingum harðlega, meðal ann- ars á fundum hjá velferðarnefnd Alþingis. „Við óttuðumst að þarna væri verið að útvíkka heimildir til þess að setja fatlað fólk á hjúkrunar- heimili,“ segir Rúnar. „Reynt var að fullvissa okkur um að þetta væri gert vegna óska frá fólkinu sjálfu.“ Nú sé svo komið að sveitarfélög, sjúkrastofnanir og endurhæfingar- deildir beini fólki inn á hjúkrunar- heimilin frekar en að sækja um NPA-samning og fá aðstoðarmann. „Fólki er oft ekki sagt frá þeim val- möguleika að sækja um NPA. Eða þá að hjúkrunarheimili sé eini valmöguleikinn því fólk fái aldrei NPA-samning,“ segir Rúnar. „Það er augljóslega bakslag í gangi og verið að stofnanavæða fólk. Ég er fullviss um að þessi meinta eftir- spurn sé vegna þess að verið sé að stýra fólki.“ Í lok árs 2018 voru um 140 manns yngri en 67 ára á hjúkrunarheim- ilum og 77 á almennum heimilum eða „öldrunarheimilum“. Þeir sem koma að þjónustunni gera sér grein fyrir því að þetta er vandkvæðum bundið. Í umsögn Samtaka fyrir- tækja í velferðarþjónustu um frum- varp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, var til að mynda komið inn á þetta. „Er staðan því sú að á mörgum slík- um stofnunum eru einstaklingar sem eru jafnvel undir sextugu og sem eru inni á hjúkrunarheimilum á grundvelli fötlunar af einhverju tagi, en ekki sökum aldurs. Þessir einstaklingar hafa að mörgu leyti aðrar þarfir heldur en almennir íbúar heimilanna og aðrar þarfir en hjúkrunarheimilið getur sinnt. Þessir einstaklingar vilja komast í bíó, heim til aðstandenda á jólunum og njóta samveru með sínum jafn- ingjum og jafnöldrum.“ „Það er grundvallarmunur á að leggjast veikur og hrumur inn á hjúkrunarheimili nokkur síðustu árin eða að leggjast inn ungur og dvelja þar í áratugi,“ segir Rúnar. Samkvæmt minnisblaði vel- ferðarráðs Reykjavíkurborgar frá því í maí eru 23 einstaklingar með NPA-þjónustu og 25 ein- staklingar á biðlista með fullunna umsókn. Samkvæmt Rúnari setji önnur sveitarfélög fólk ekki á bið- lista heldur annaðhvort beini því inn á hjúkrunarheimili eða hafni umsókn. Ekki sé því hægt að meta hversu mikil þörfin sé og þar af leið- andi erfitt fyrir ríkið að áætla fé til málaflokksins. Þó að sveitarfélögin beiti því fyrir sér að fjármagn skorti frá ríkinu, þá leysi það þau ekki undan ábyrgð. Samkvæmt áðurnefndum lögum sé það alveg skýrt að sveitarfélög beri ábyrgð á að taka ákvörðun um þjónustuna og beri ábyrgð á fjármögnun hennar. Einnig að fatlað fólk eigi rétt á NPA-þjónustu. Ríkið komi hins vegar aðeins inn með fjárstuðning til bráðabirgða. kristinnhaukur@frettabladid.is Fötluðu fólki ítrekað beint inn á stofnanir Formaður NPA miðstöðvarinnar segir bakslag í réttindabaráttu fatlaðs fólks og að sveitarfélög beini fólki í auknum mæli inn á hjúkrunarheimili í stað þess að gera NPA-samninga við það. Á biðlista í Reykjavík eru 25 manns. Árið 2018 dvöldu samtals 140 manns yngri en 67 ára á hjúkrunarheimilum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ORKUMÁL Landsvirkjun hefur gert samkomulag við sænska fyrirtækið Climeon um að rannsaka mögu- leikann á að nýta glatvarma til þess að vinna kísil úr jarðhitavökva, eða skilavatni. Munu prófanir hefjast við Kröfluvirkjun í Mývatnssveit. Bjarni Pálsson, forstöðumaður þróunar á jarðhita og vindi hjá Landsvirkjun, segir verkefnið hafa byrjað þegar Climeon og fleiri sóttu um styrk til að þróa áfram nýja tækni til að ná kísil og öðrum stein- efnum úr jarðhitavökva. Bæði til að kanna hvort verðmæti séu í þessum steinefnum og gera vökvann nýtan- legri, til að vinna úr honum raf- magn eða skila aftur ofan í jörðina. Steinefni hafa gjarnan stíf lað holur þegar vökvanum er skilað. Climeon er vélbúnaðarframleið- andi sem hefur reynslu á sviðinu en með þeim í verkefninu er nýsjá- lenskt fyrirtæki sem heitir Geo40, sem hefur verið að þróa aðferðir til að ná kísil úr vökvanum. Bjarni segir ekki ljóst hvenær rannsóknirnar hefjist en verkefnið sé enn þá á byrj- unarstigi og verið að fjármagna það Aðspurður um hvort Landsvirkjun mun standa að vinnslunni á kísilaf- urðum, gangi allt eftir, segir hann það ekki ákveðið á þessari stundu. „Við erum réttindahafi að nýtingu á jarðhitaréttindunum og lítum svo á að þetta falli undir það. En við höfum líka verið opin fyrir því að vera í samstarfi við aðra aðila,“ segir Bjarni. Hann segir þetta ekki algjöra nýlundu á Íslandi. Til að mynda séu heilsu- og snyrtivörur unnar í Hell- isheiðarvirkjun og einnig séu unnar vörur í tengslum við rekstur Bláa lónsins. „Nú erum við að horfa til svipaðra aðferða en á miklu stærri skala, ekki endilega til að framleiða vörur heldur aðallega til að hreinsa vökvann,“ segir Bjarni. – khg Landsvirkjun kannar leiðir til að vinna verðmæti úr jarðhitavökva Við erum réttinda- hafi að nýtingu á jarðhitaréttindunum og lítum svo á að þetta falli undir það. Bjarni Pálsson, forstöðumaður þróunar hjá Landsvirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA COVID-19 Sænsk stjórn völd munu bera á byrgð á dreifingu bólu efnis gegn kóróna veirunni sem veldur CO VID-19 til Ís lands í gegnum sam- starfs verk efni Evrópu sam bandsins. Þetta stað festi Lena Hallen gren, heil brigðis- og fé lags mála ráð herra Sví þjóðar, á blaða manna fundi í dag. Afton bladet greinir frá málinu. Um er að ræða sam starfs verk efni sem snýr að kaupum á 300 millj- ónum skammta af bólu efni. Þann- ig munu Ís land, Sviss og Noregur taka þátt með Evrópu sam bandinu í verk efninu. Bólu efnið er þróað af breska lyfja fyrir tækinu AstraZen- e ca í sam starfi við Ox ford-há skóla. Þetta er eitt af nokkrum bólu- efnum sem nú eru í bí gerð gegn kóróna veirunni. Lyfið er komið á seinna stig klínískra rann sókna og þykir því á lit legt til að verka gegn veirunni. Sagði Hallen gren á fundinum í dag að Svíar muni fá um sex millj- ónir skammta af bólu efninu í sinn hlut. Þó eigi rann sóknir eftir að leiða í ljós hvort ein staklingar munu þurfa að fá tvo skammta af lyfinu í stað eins. Það komi í ljós þegar klín- ískum rann sóknum ljúki. Þá munu Svíar hafa milli göngu um að koma efninu til Ís lands, komist það í gegnum þetta stig rann sókna. – oæg Svíþjóð mun útvega Íslandi bóluefni Lena Hallen gren 2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.