Fréttablaðið - 21.08.2020, Page 10
Greta Thunberg var í hópi umhverfisaðgerðasinna sem heimsóttu Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í gær og ræddu við hana um
loftslagsmál. Á blaðamannafundi tengdum heimsókninni stefndi þessi vespa beint að Gretu sem lét sér þó fátt um finnast. MYND/GETTY
Þessi maður var í viðeigandi hlífðarbúnaði þegar hann tók COVID-19 sýni
við A8-hraðbrautina í Þýskalandi í gær. Margir sem verið hafa á ferðalagi
snúa heim um þessar mundir og eru sýni tekin í bílunum. MYND/GETTY
Það var fallegt um að litast í Puck í Póllandi í gær þar sem fram fór Evrópukeppni á fallhlífabretti. Slík keppni hefur
aldrei fyrr verið haldin í Póllandi. Dagurinn var sólríkur, keppendum og áhorfendum til mikillar gleði. MYND/EPA
Þessi kona tók sig vel út fyrir framan gullverslun í Istanbúl, höfuðborg
Tyrklands, í gær en gjaldmiðill landsins, tyrknesk líra, hefur tapað um 20
prósentum af gildi sínu frá því í upphafi þessa árs. MYND/EPA
Mikil rigning og rok var í Bretlandi í gær og mátti þessi
drengur hafa varann á þegar hann fór á hjóli sínu með-
fram sjávarsíðunni í Saltcoast. MYND/GETTY
ÁSTAND HEIMSINS
2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð