Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 16
Tónlistar- og athafna-maðurinn Logi Pedro er á fullu í tónlist, dagskrárgerð, útvarpsmennsku, útgáfu og rekstri símafélags og í dag gefur hann út nýja plötu, sem heitir Undir bláu tungli. Á plötunni eru öðruvísi áherslur en í fyrri útgáfum Loga, en hún er undir miklum áhrifum frá afrískri popptónlist. Hann segist ánægður með verkið og er forvitinn að sjá hvernig viðtök- urnar verða. Logi býr í miðbænum ásamt kærustu sinni, Hallveigu, og syni þeirra, Bjarti, sem verður þriggja ára í október. „Þessa dagana er ég bara að sinna verkefnum hjá Útvarpi 101,“ segir hann. „Skrif- stofan okkar er líka skrifstofa útgáfunnar Les Frères Stefson, símafélagsins Sambandið 101 og stúdíóið okkar er þar líka. Þannig að þetta er rými þar sem við gerum allt mögulegt.“ Logi segir að Útvarp 101 gangi frábærlega. „Við erum búnir að vera að vinna mikið af sjónvarps- efni síðustu mánuði, við erum núna með tvær seríur á Stöð 2, Að tala saman og Bibba flýgur, við erum líka að taka upp tvær aðrar og við erum búnir að sýna tvær eða þrjár. Þetta er mjög skemmti- legt,“ segir Logi. „Svo tekur 101 Sambandið, símafélagið okkar, líka mikinn tíma, en við erum ein- mitt að fagna eins árs afmæli núna um helgina.“ Koma tónlistarmönnum af stað Útgáfufyrirtækið Les Frères Stefson er líka á mikilli siglingu. „Við höfum unnið með frábæru tónlistarfólki síðustu ár og gefið út mjög mikið af vinsælum plötum. Við gáfum út báðar plöturnar hans Flóna, síðustu GDRN-plötu, plötuna hans Birnis, allar Sturlu Atlas-plöturnar, allar Joey Christ- plöturnar og stefnum á útgáfu með Unu Schram. Útgáfan var stofnuð í kringum stúdíóið til að hjálpa fólki að springa út og fá góðan grunn sem tónlistarmenn. Flóni er til dæmis orðinn einn stærsti popptónlistar- maður á landinu og hann sér núna um sín eigin útgáfumál. Það er draumur að koma fólki á þann stað að það sé búið að festa sig nógu vel í sessi til að geta sinnt eigin rekstri,“ segir Logi. „Þetta hefur alltaf verið launalaus starfsemi hjá okkur, við vildum bara hjálpa öðru fólki í bransanum fyrst við áttum frábært stúdíó og veita þeim umgjörð í kringum verkefni sín. Svo þegar fólk er komið með eigin umgjörð tekur það bara við keflinu og heldur áfram.“ Tími fyrir endurskoðun á leikbókinni Heimsfaraldurinn hefur bitnað mikið á starfi Loga. „Þetta er búið að vera alveg hellað, ég missti miklar tekjur í mars og apríl, en þá var ég að fara að spila á fullt af tónleikum,“ segir hann. „Ég missti tekjur sem áttu að halda mér gangandi í einhverja mánuði. En svo fékk ég listamenn til að hjálpa mér að klára plötuna og ganga frá henni og það bjargaði eiginlega sumrinu fyrir mig. Þessi faraldur er ein stór barátta og það er mikilvægt að muna að skapa grundvöll fyrir fólk sem er að missa tekjur, hvort sem það eru listamenn, fólk í ferðaþjónustu eða aðrir. Ég held að núna sé gott að einbeita sér að því að viðhalda einhvers konar kaupmætti en líka lífsgæðum hjá fólki, þrátt fyrir áfallið,“ segir Logi. Þegar Logi er spurður um það sem honum finnst helst þurfa að bæta í íslenskum stjórnmálum nefnir hann strax ákallið um nýja stjórnarskrá. „Ég tek undir það. En það þarf samt ekki endilega að vera stjórnarskráin sem var samin á stjórnlagaþinginu,“ segir hann. „Ég held að það sé gott að nota hana sem grunn, en ég held að það sé kominn tími fyrir algjöra endurskoðun á leikbókinni okkar, gildum og hefðum. Ég held að það sé mjög mikilvægt og maður hefur líka verið minntur vel á það síðustu daga hvað það er mikil- vægt að setja kvótann á markað og bæta réttindi fólks almennt.“ Áhrifamikil ferð til Afríku Logi fór til Síerra Leóne árin 2018 og 2019 til að vinna í tónlist. „Ég fór út á vegum íslensks velgjörðasjóðs, Aurora Fund, sem starfar mikið þar. Þau er með alls konar verkefni sem ganga út á að virkja samfélagið og ákváðu að prófa að gera eitthvað með tónlistarbransann. Þau fengu nokkra tónlistarmenn frá Íslandi, Bretlandi og Írlandi til að fara og vinna með tónlistarmönnum sem eru þaðan,“ segir hann. „Við vorum öll sett á eldgamalt hótel inni í frumskóginum og vorum þar í viku að taka upp tónlist. Útkoman var platan Osusu, sem er á Spotify og fleiri streymisveitum. Við fórum svo aftur út árið 2019 til að vinna í upptökum og ég spilaði með þarlendri hljómsveit á Freetown Music Festival, sem er eina alþjóð- lega tónlistarhátíðin í landinu. Það var ótrúlega skemmtilegt að koma í fyrsta sinn til Afríku, en ég er ættaður frá Angóla. Síerra Leóne er ótrúlegt land. Það er mikil fátækt þar og lítil ferða- þjónusta en það er ótrúlega gaman að vera þarna og labba um götur Freetown og ég upplifði mig mjög öruggan,“ segir Logi. „Þetta var líka öðruvísi upplifun fyrir mig en suma af krökkunum sem eru ekki ættuð frá Afríku, því þau voru svo greinilega túristar. Ég gat falið mig meira í fjöldanum. Þessi ferð mótaði nýju plötuna mjög mikið. Ég kynntist alls konar nýrri tónlist sem kynnti mig fyrir nýjum möguleikum og ég var mjög spenntur fyrir, sem gerist ekki oft. Ég hef hlustað mjög mikið á afríska popptónlist síðan og hún hefur haft áhrif á laga- smíðar, útsetningar og hljóðheim plötunnar,“ segir Logi. Plata sem endurspeglar sjálfið Logi segir að fyrir vikið sé mjög afrískur hljómur á nýju plötunni. „Hún hefur í rauninni verið í vinnslu síðan ég kláraði síðustu plötu og ég tók hluta af henni upp í Síerra Leóne. Textarnir fjalla um næturlíf og alls konar litlar smá- sögur eru settar saman. Mér finnst líka gaman að gefa hana út svona seint í sumar, því hún er dansvæn og taktmikil. Ég vil reyna að teygja sumarið aðeins áfram,“ segir hann. „Ég myndi segja að á henni mæti afrísk dægurtónlist íslenskri. Ég er að nota afrósentrískar tón- listarstefnur sem miðil fyrir íslenskar lagasmíðar. Það helst bæði í hendur við hvernig tónlist er almennt, þar sem er mikið af afrískum áhrifum og það kjarn- ast líka í sjálfum mér, verandi frá Íslandi og Angóla. Ég ákvað að gefa ekki út neinar smáskífur af plötunni vegna þess að þetta er verk sem stendur saman sem ein heild og mig langaði að gefa hana út þannig. Myndin sem er framan á plöt- unni var tekin á Suðurlandi og við létum sauma fánann á saumastofu á Hofsósi, en þetta er norrænn krossfáni í pan-afrískum litum. Þessir litir koma frá mannrétt- indafrömuðinum Marcus Garvey, sem var uppi á fyrri helmingi 20. aldar og setti saman fána fyrir fólk um allan heim sem er af afrískum uppruna og tengist mjög rétt- indabaráttu þeirra,“ segir Logi. „Litirnir eru svartur, rauður og grænn og þeir hafa mikið verið notaðir í þjóðfána afrískra þjóða sem hafa fengið sjálfsstjórn og sjálfstæði.“ Platan er komin á allar helstu streymisveitur en það kemur í ljós síðar hvort hún verður gefin út í föstu formi. Rólegur gagnvart stressinu „Það er alltaf mjög stressandi að gefa út plötu, en á sama tíma hef ég ákveðna ró gagnvart stressinu,“ segir Logi. „Ég er forvitinn að vita hvernig henni verður tekið og hvort það verði hlustað á hana, en ég er líka bara ánægður með hana og langaði að gera hana. Ég held að þetta sé sterkt verk. Það er svo stór spurning hvernig henni verður fylgt eftir þar sem það er ekki hægt að spila á tón- leikum. Það átti að vera fullt af tónleikum og ég hélt að það myndi ganga eftir á seinni hluta sumars- ins,“ segir Logi. „En svo kom önnur bylgja af faraldrinum og það er bara eins og það er. Það verður áhugavert að sjá hvort maður fái að spila í vetur.“ Þrátt fyrir tónleikaleysi er samt nóg fram undan hjá Loga. „Ég verð áfram með Sambandið og ætla að halda upp á eins árs afmælið og svo er ég líka að fara í ný og spenn- andi verkefni,“ segir hann. „Ég ætla að setjast á skólabekk og læra vöruhönnun og svo bara halda áfram að lifa lífinu og gera tónlist.“ Logi segir að það sé alltaf mjög stressandi að gefa út plötu, en hann sé samt frekar rólegur og aðal- lega forvitinn að vita hvernig henni verður tekið. Hann segist vera ánægður með plötuna og telja hana sterkt verk. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Framan á plötunni er mynd af Loga með norrænan krossfána í pan-afrískum litum. Litirnir koma frá Marcus Garvey, sem var uppi á fyrri helmingi 20. aldar og setti saman fána fyrir fólk um allan heim sem er af afrískum uppruna. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Ég hef hlustað mjög mikið á afríska popptónlist og hún hefur haft áhrif á lagasmíðar, útsetningar og hljóðheim plötunnar. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.