Fréttablaðið - 21.08.2020, Síða 20
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Einstök blanda af virkum plöntukjörnum í
gelformi án alkahóls og kemískra
íblöndunar- og geymsluefna.
SORE NO MORE eru náttúruleg hita- og
kæligel sem henta vel við tímabundnum
vöðvaeymslum, bólgum, harðsperrum og
þreytu eftir stífar æfingar.
Náttúruleg lausn við
bólgu og verkjum í
vöðvum og liðum
SORE NO MORE hitagel
• Gott á þráláta verki eins og
liðagigt, sinabólgur og vefjagigt.
• Örvar blóðrásina.
• Hitar og hjálpar til við að auka
hreyfigetu.
• Mjög hentugt til að hita og
mýkja upp stífa vöðva fyrir
æfingar.
SORE NO MORE kæligel
• Linar bráða verki vegna byltu
eða höggs.
• Frábært á vöðvabólgu.
• Kælir rólega og djúpt inn í
vöðvann.
• Upplagt til að minnka
harðsperrur og vöðvaverki.
Sore No More 5x10 copy.pdf 1 24/01/2018 11:07
Hjónin Íris Huld
og Einar Carl á
góðri stundu.
Íris býr yfir viðamikilli reynslu á sviði heilsuræktar. „Ég hef verið með annan fótinn í heilsu-
bransanum síðastliðin 20 ár. Ég
er íþróttafræðingur að mennt
auk þess sem ég hef lært heilsu-
markþjálfun frá IIN (Institute for
Integrative Nutrition) og stjórn-
endamarkþjálfun frá HR,“ skýrir
hún frá.
„Árið 2015 stofnaði ég Lífsmark
– hugur & heilsa þar sem ég býð
upp á heilsumarkþjálfun fyrir alla
sem vilja taka skref í átt að betri
heilsu og setja sig í fyrsta sæti. Í dag
starfa ég sem þjálfari í fullu starfi
með áherslu á heilsumarkþjálfun,
líkams- og hugrækt.“
Jafnvægi mikilvægt
Íris segir áhuga sinn á hreyfingu
hafa fylgt henni alla tíð. „Ég ólst
upp úti á landi sem voru algjör
forréttindi og þá kynntist maður
hinum ýmsum íþróttagreinum
og í minningunni bjó ég í
íþróttahúsinu og vildi hvergi
annars staðar vera. Það mætti því
segja að áhuginn hafi kviknað
snemma.“
„Ég hef meira og minna alla ævi
verið meðvituð um mikilvægi
heilsusamlegs lífernis en með
árunum hefur þessi meðvitund
aukist jafnt og þétt. Líklegast
sökum þeirrar vitneskju að ég ein
ber ábyrgð á minni líðan og vit-
andi það að með aukinni ábyrgð
og fjölgun daglegra verkefna þarf
ég sífellt að huga betur að eigin
heilsu og vellíðan.“
Heilsa er víðtækt hugtak sem
felur í sér marga tengda þætti,
ekki einungis þann líkamlega.
„Það að stunda reglubundna
líkamsrækt hefur marga kosti í
för með sér en það þarf þó ekki
að þýða að sá hinn sami sé í raun
í sínu toppstandi. Til þess að
geta upplifað sig sem heilbrigðan
einstakling þarf maður að huga
að mörgum öðrum, ekki síður
mikilvægum þáttum lífsins
og þar að mínu mati kemur
heilsumarkþjálfunin inn, að finna
gott jafnvægi.“
Dýrmætar samverustundir
Íris stundar hreyfingu af ýmsu
tagi. „Ég kýs fjölbreytta hreyfingu.
Árangur næst ekki af sjálfu sér
Íris Huld Guðmundsdóttir hefur alla tíð haft mikinn áhuga á hreyfingu. Í dag starfar hún meðal
annars sem heilsumarkþjálfi auk þess að leiða streitulosandi tíma ásamt eiginmanni sínum.
Íris Huld leggur áherslu á heilbrigðan lífsstíl. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Utandyra eru það fjallgöngur,
hjólreiðar og kajakferðir.
Fjallgöngurnar eru efstar á
vinsældalistanum, þær veita mér
aukinn kraft og næra bæði líkama
og sál.“
Eiginmaður Írisar er Einar
Carl Axelsson, stofnandi og einn
eigenda Primal Iceland. Saman
eiga þau tvo drengi sem eru sex og
sjö ára. Hjónin reyna eftir fremsta
megni að flétta saman útivist
og gæðastundir fjölskyldunnar.
„Annar kostur við sportið utan-
dyra er að þá getur fjölskyldan
sameinast og notið þess að fá
hreyfingu og góða samveru. Við
notum hvert tækifæri til þess að
hreyfa okkur saman og gerum í því
að virkja drengina með okkur og
smita þá af áhuga okkar um heilsu
og hreyfingu. Það má segja að vel
hafi tekist til,“ segir hún brosandi.
„Þegar inn í líkamsræktarsalinn
er komið verður Movement hjá
Primal fyrir valinu. Movement er
eitt fjölbreyttasta líkamræktar-
form sem ég hef kynnst og má segja
að maður fari út fyrir kassann í
hverjum tíma sem maður sækir.“
Sigrast á streitunni
Þá hafa þau hjónin undanfarið
ár leitt námskeið þar sem farið er
yfir leiðir til að draga úr streitu.
„Auk heilsumarkþjálfunar kenni
ég fjögurra vikna námskeið hjá
Primal Iceland sem nefnist Sigrum
streituna. Námskeiðið höfum við
Einar Carl haldið mánaðarlega í
rúmt ár og sést bersýnilega á góðri
þátttöku að fólkið í landinu er
orðið mun meðvitaðra um mikil-
vægi þess að vinna bug á streitunni
og læra aðferðir til þess að takast á
við álag í daglegu lífi,“ útskýrir Íris.
„Það má segja að þetta sé sam-
eiginlegt áhugamál okkar hjóna.
Ekki streitan sjálf heldur þær
aðferðir sem hægt er að tileinka
sér til þess að draga úr áhrifum
streitunnar. Við erum ófeimin við
að prufa alls kyns aðferðir til þess
að ná aukinni slökun, bæta svefn
og andlega líðan. Maður verður að
halda sér á tánum og passa upp á
heilsuna því auðvelt er að festast í
vítahring streitunnar.“
Meðal þess sem þau leggja
áherslu á eru öndunaræfingar.
„Á Sigrum streituna styðjumst við
meðal annars við öndunartækni
sem nefnist Buteyko auk liðleika-
og teygjuæfinga sem stuðla að
aukinni hreyfigetu og vellíðan
í stoðkerfi. En til þess að maður
nái árangri þarf maður að vera
meðvitaður um vandann, tilbúinn
að gera breytingar og tileinka sér
nýjar venjur. Því þetta gerist ekki
af sjálfu sér.“
Það sé mikið í húfi. „Streita
og streitutengdir kvillar eru ein
helsta heilsufarsógnin í nútíma
samfélagi og því er mikilvægt fyrir
fólk að grípa inn í fyrr en síðar.
Heilsan okkar er svo dýrmæt. Oft
á tíðum gerir fólk sér ekki grein
fyrir ástandinu sökum álags sem
mögulega hefur verið viðvarandi í
langan tíma og þekkir ekki annað
en að til dæmis sofa illa og vera
með vöðvabólgu og verki. Þá er
gott að taka stöðuna í dag og taka
skref í átt að betri heilsu áður en
vandinn eykst.“
Næsta streitunámskeið þeirra
hjóna hefst 7. september. Hægt er
að fylgjast með Írisi á lifsmark.is
og á Instagram.
Við notum hvert
tækifæri til þess að
hreyfa okkur saman og
gerum í því að virkja
drengina með okkur og
smita þá af áhuga okkar
um heilsu og hreyfingu.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHEILSURÆKT