Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 24
Eva Dögg hefur í nógu að snúast. „Ég er mamma, jóga- og hugleiðslukennari og hönnuður. Ég vinn sjálfstætt og var að stofna vellíðunarveröldina rvkritual.com með samstarfskonu minni Dagnýju Gísladóttur. Við höldum viðburði og námskeið á internetinu og í raunveruleik- anum, þegar það er í boði, þar sem að við fókuserum á heilnæma vellíðan.“ Hrein og öflug bætiefni Eva Dögg svarar játandi þegar hún er spurð að því hvort hún hafi mikla reynslu af því að taka inn vítamín og bætiefni. „Já svo sannarlega, þetta er stórt áhugamál og ég held að ég hafi lesið meira um jurtir, heilnæma heilsu, bætiefni og annað í þeim dúr en ég hef nokk- urn tímann lesið í háskólanáminu mínu sem fatahönnuður. Ég vil fá bætiefni sem eru hrein og öflug, með góða upptöku og án allra óæskilegra fylliefna.“ Kynni Evu Daggar af Solaray vör- unum mörkuðu ákveðin straum- hvörf í lífi hennar þar sem hún fór í kjölfarið að huga að og leita frekari leiða til þess að efla heilsu. „Ég kynntist þeim í Danmörku! Þegar ég var að vinna sem fatahönnuður undir mjög miklu álagi og mjög mikið. Þetta var í fyrsta skipti sem að ég fann álagið svona sterkt á líkamanum mínum, byrjaði að missa hárið og annað skemmtilegt. Þá var mér bent á að byrja að taka inn Mega B Stress og ég hef sjaldan fundið jafn hröð og mikil áhrif á sjálfri mér. Þetta var svona fyrsta skrefið mitt í að taka fulla ábyrgð á minni eigin heilsu á allan hátt.“ Solaray verður fyrir valinu fyrst og fremst vegna virkni. „Þau mæta mínum kröfum og ég finn raunverulegan mun þegar ég tek þau inn. Sem er ekki alltaf raunin. Einnig finnst mér flokkunin á vörunum skemmtileg og ég er líka stór aðdáandi jurtanna og ayur- veda-línunnar.“ Treystu líkamanum þínum Blaðamaður spyr Evu Dögg hvort það sé eitthvað sem æskilegt gæti verið að hafa í huga áður en byrjað er að taka inn bætiefni. „Farðu til læknis og í blóðprufu til að byrja með og helst reglulega. Athugaðu hvort að þig vanti eitthvað sérstakt og taktu það svo þaðan.“ Þá sé áríðandi að hlusta á eigið innsæi. „Þó að allt komi vel út þýðir það samt ekki að þú ættir ekki að taka neitt inn, en þá veistu hvar þú stendur til að byrja með. Hlustaðu svo innsæið. Hvað er líkaminn þinn að kalla á? Og treystu líkamanum þínum. Það þekkir enginn líkamann þinn betur en þú sjálfur, þetta er þitt heimili og þú ætlar að eiga heima þarna lengi og búa vel,“ segir hún. „Ég lít mjög heilnæmt á heilsu. Góð heilsa kemur að innan. Ef að þú vilt hafa fallegt hár og fallega húð til dæmis þá skiptir meira máli hvað þú setur ofan í þig af næringu og hugsunum en hvað þú berð á þig, það er bara smá plús. En ALLT byrjar innan frá. Stress, áhyggjur og neikvæðar hugsanir trompa yfirleitt allt og þá skiptir ekki miklu máli þó að þú takir bestu bætiefnin og notir dýrustu kremin. Borðaðu hollt og fjölbreytt og svo bætirðu bætiefn- unum við til að gefa þér smá bónus þegar þess þarf og eftir því á hvaða tímabili þú ert í lífinu og einnig eftir árstíðum.“ Eva Dögg nefnir nokkur atriði sem hafa reynst henni vel. „Ég hug- leiði! Sem er það mikilvægasta sem ég geri, ég stunda jóga, geri öndunar- æfingar og hreyfi mig á heilnæman hátt. Ég nota kjarnaolíur og jurtir til að styðja við heilsuna, borða holla og heila fæðu og neyti alls engra dýraafurða. Ég stunda þakklæti daglega og hef það skemmtilegt. Man eftir því að dansa, brosa og njóta augnabliksins.“ Þá er nóg á döfinni. „Akkúrat núna vorum við Dagný að byrja með námskeiðið okkar The Ritual Class: Self Mastery í þriðja skiptið. Það er alveg ótrúlega tilfinning að vera að vinna með fólki frá öllum heiminum og styðja við þau á þeirra ferðalagi í átt að daglegri hugleiðslu og meiri vellíðan. Ann- ars er ég líka að dunda mér í mínu eigin snyrtimerki @eva_holistic- beauty þar sem að ég handgeri líf- ræn krem með heilnæmri áherslu.“ Hægt er að fylgjast með Evu Dögg á Instagram undir: evadoggrunars Eva Dögg Rúnarsdóttir er himinlifandi með vörurnar frá Solaray. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Framhald af forsíðu ➛ Ég finn raunveru- legan mun þegar ég tek þau inn. Sem er ekki alltaf raunin. Einnig finnst mér flokkunin á vörunum skemmtileg og ég er líka stór aðdáandi jurtanna og ayurveda- línunnar. Solaray er hágæða vítamín– og bætiefnalína sem unnin er úr jurtum. Á hverjum degi vinnum við með náttúruleg hráefni sem geislar sólarinnar hafa skapað og fyllt orku. Þannig tryggjum við þér hrein vítamín og bætiefni með mikla virkni. Hágæða náttúruleg vítamín fyrir almenna vellíðan 8 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHEILSA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.