Fréttablaðið - 21.08.2020, Síða 30
Astaxanthin
Eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar
Astaxanthin frá Algalíf er 100% náttúrulegt hágæða
bætiefni, framleitt á sjálfbæran hátt við kjöraðstæður
sem tryggja að innhaldið skili sér til neytenda.
n Vissir þú að náttúrulegasta og hreinasta uppspretta
astaxanthins finnst í smáþörungum sem kallast
Haematococcus pluvialis, en þeir
framleiða þetta sem varnarefni gegn
erfiðum aðstæðum í umhverfinu?
n Talið er að þetta öfluga andoxunarefni
geti stutt við heilsusamlegt líferni
og almenna líðan, verndað gegn
sterkum útfjólubláum geislum
sólar og oxunarskemmdum,
ásamt því að geta
aukið styrk, þol og liðleika.*
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir, Costco og flestum stórmörkuðum.
*https://www.alifenutrition.cz/userfiles/dietary-supplementation-with-
astaxanthin-rich-algal-meal-improves-strenght-endurance.pdf
14 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHEILSURÆKT
Ég vil meina að sykur sé ofmet-inn og að við getum alveg gert vel við okkur án þess að
úða í okkur óhollustu, segir María
Krista, hönnuður og matgæðingur,
sem tók lífsstíl sinn í gegn með lág-
kolvetnamataræði fyrir fáeinum
árum og hefur miðlað lífsstílnum
æ síðan.
„Ef maður hættir að líta á
mataræði sem einhvern kúr eða
kvöð, þá verður allt svo auðvelt
enda af nógu að taka þegar kemur
að uppskriftum, bæði hjá mér og
öðrum. Því er um að gera að losa
sig við sykurpúkann sem fyrst og
til frambúðar,“ segir María Krista.
Hún hefur í nógu að snúast við
að hanna sínar eigin gjafavörur og
skart alla daga og heldur úti vin-
sæla vefnámskeiðinu Lífsstíll til
framtíðar fyrir þá sem vilja prófa
ketó- eða LKL-mataræði.
„Annars heldur mér upptekinni
alla daga að sinna hundinum og
barnabarninu eins oft og ég get,“
segir hún, sæl yfir bakstrinum.
„Þessi gómsæta kaka lítur
kannski ekki út fyrir að vera neinn
sérstakur heilsubiti en ég sver að
hún er það. Hún er ekki stútfull af
sykurlausu súkkulaði eins og svo
margar svona „heilsukökur“ því
súkkulaðið telur alltaf smá af kol-
vetnum þótt það sé sykurlaust.“
Til að fá hugmyndir af f leiri
heilsusamlegum uppskriftum er
hægt að skoða blogg Maríu Kristu:
mariakrista.com, á Instagram
#kristaketo og hennar eigin
hönnun á kristadesign.is.
Brownie með rjómaosti
120 g sæta (María Krista notar
Sweet like sugar)
100 g smjör, mjúkt eða brætt
1 egg
120 g rjómaostur
140 ml ósæt möndlumjólk
120 g möndlumjöl (hefðbundið
eða 50 g fituskert möndlumjöl)
15 g kókoshveiti
45 g kakó (María Krista notar Nóa
Siríus)
1 tsk. skyndikaffiduft
2 msk. husk
1 tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
1 tsk. vanilludropar
2 Nicks soft toffee til að stinga
ofan í kökuna, má sleppa
Hrærið saman smjöri og sætu
ásamt egginu. Bætið síðan við
rjómaosti og vanillu og þeytið
rólega saman. Setjið næst þurr-
efnin saman við og að lokum
möndlumjólkina og blandið
varlega. Deigið er frekar stíft en
þið smyrjið því í form að eigin
vali, gott að hafa smjörpappír í
botninum.
Bakið kökuna í 170°C heitum
ofni með blæstri í 20-30 mínútur,
passið að baka ekki of lengi,
kakan stífnar þegar hún kemur
úr ofninum. Þegar 15 mínútur eru
liðnar má stinga Nicks-súkkulaði
hér og þar í deigið og baka áfram.
Hellið súkkulaðisósu yfir í lokin
en það þarf ekki, uppskrift er hér
fyrir neðan:
Súkkulaðisósa
1 dl rjómi
85 g sykurlaust súkkulaði
20 g smjör
2 msk. sykurlaust síróp
Bræðið smjörið, blandið rjóma og
sírópi saman við og hitið að suðu.
Hellið yfir súkkulaðið og hrærið
þar til slétt og fellt.
Bráðholl brúnka
Hönnuðurinn María Krista kann á því
lagið að útbúa hollar sælkerakrásir.
ERTU MEÐ
VÖÐVABÓLGU?
DEEP HEAT ROLL ON EYKUR BLÓÐFLÆÐI TIL VÖÐVA.
VIRKAR BÆÐI SEM HITA- OG NUDDMEÐFERÐ.
Brownie með rjómaosti lítur út fyrir að vera óholl en er það sko alls ekki.
Save the Children á Íslandi
María Krista kann tökin á hollustu.