Fréttablaðið - 21.08.2020, Síða 32
SYKURLAUS OG
SVALANDI!
Á tímum þar sem margir virðast forðast kolvetni eins og heitan eldinn er
ekki úr vegi að minna á gömlu
góðu kartöf lurnar en nú er loks
runninn upp sá tími árs að hægt
er að kaupa nýuppteknar kart-
öf lur. Kartöf lur eru næringarríkar
og bjóða upp á ótal möguleika í
matargerð. Það er fátt betra en
ofnbakaðar eða grillaðar kart-
öf lur en þar er vert að hafa tvennt
í huga. Annars vegar er æskilegast
að geyma kartöf lur í dimmu,
svölu rými en ekki kæliskáp og
hins vegar er lygilega ljúffengt að
léttsjóða kartöf lurnar áður en
þær eru bakaðar eða grillaðar.
Eina sem vantar er svo smávegis
olía og krydd eftir smekk. Kartöf l-
urnar verða þannig ótrúlega safa-
ríkar, mjúkar að innan og stökkar
að utan.
Safarík og
ljúffeng næring
Kartöflurnar klikka ekki. MYND/GETTY
16 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHEILSURÆKT
Þrjár skemmtilegar og hvetjandi bíómyndir sem ættu að koma þér úr sófanum
og í ræktina.
Rocky-kvikmyndirnar eru nú
alls átta talsins. Sú fyrsta þeirra
kom út 1975. Sylvester Stallone
túlkar hnefaleikakappann Rocky
Balboa sem hefur feril sinn sem
hinn venjulegi meðaljón. En með
þrautseigju og þolinmæði tekst
honum að ná takmarki sínu.
Leikstjóri er Sylvester Stallone
sjálfur.
Billy Elliot (2000): Kvikmyndin
gerist á árunum 1984-5 í Bretlandi
í námumannaverkföllunum. Sagan
segir af stráknum Billy (Jamie Bell)
sem uppgötvar ástríðu sína í ball-
ettdansi. Verandi af verkamanna-
stétt myndast töluverður núningur
í fjölskyldunni vegna þessa óvænta
áhugamáls. Leikstjóri er Stephen
Daldry.
Million Dollar Baby (2004): Kvik-
myndin hlaut meðal annars fern
Óskarsverðlaun, en þar túlkar
Hillary Swank áhugaboxarann
Maggie Fitzgerald. Með van-
metna hnefaleikaþjálfarann
Frankie Dunn (Clint Eastwood)
í sínu horni nær Maggie að upp-
fylla draum sinn um að verða
atvinnumanneskja í hnefaleikum.
Leikstjórn er í höndum Clints
Eastwood.
Bíómyndahvatning fyrir sófakartöflur
Vantar þig hvatningu til að fara í
ræktina að lyfta einhverju þungu?
Það eflir félagstengsl meðal ungl-
inga að stunda útivist og hreyfingu.
Dagleg hreyfing er ungu fólki nauðsynleg fyrir andlega, líkamlega og félagslega
heilsu og vellíðan. Hún er sam-
eiginlegur leikur sem skapar
tækifæri til að þjálfa hreyfifærni,
bæta líkamshreysti, eignast vini,
auka félagslega færni og ef la
sjálfstraust.
Mikilvægt er að ungt fólk
takmarki kyrrsetu og hreyfi
sig í samræmi við ráðleggingar
um hreyfingu. Meginráðlegg-
ingin er að öll börn og unglingar
stundi miðlungserfiða eða erfiða
hreyfingu í minnst 60 mínútur
daglega. Heildartímanum má
skipta í nokkur styttri tímabil
yfir daginn, til dæmis 10 til 15
mínútur í senn.
Ungt fólk ætti að eiga þess kost
að stunda fjölbreytta hreyfingu
sem því finnst skemmtileg og er í
samræmi við færni þess og getu.
Þannig er grunnurinn lagður að
lífsháttum sem fela í sér daglega
hreyfingu til framtíðar.
Heimild: landlaeknir.is
Unglingar þurfa
að fá hreyfingu