Fréttablaðið - 21.08.2020, Qupperneq 41
SJÁLF FÉKK ÉG Í
HENDUR BRÉF SEM
LANGAFI MINN, SEM VAR
BERKLASJÚKLINGUR, SKRIFAÐI
TIL LANGÖMMU. MÉR FANNST
MJÖG FALLEGT AÐ SJÁ HVERNIG
HANN OPNAÐI SIG Í ÞEIM
BRÉFUM.
Ný tvöföld virkni sem
veitir hraða og langvarandi
vörn gegn tannkuli.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
KEBE
Hvíldarstólar
Tegundir: Rest og Fox
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski...
STÓRUM HUMRI!!
Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á
úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa.
Einnig má finna vörur Norðanfisks í
neytendapakkningum í verslunum
Bónus um land allt.
Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700
Æfingar á sviðs-l i s t a v e r k i n u Tæring eru að hefjast á Hæl-inu, setri um sögu berklanna
á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit. Verkið
er innblásið af sögu berklasjúklinga
sem þar dvöldu á síðustu öld og er
frumsýning fyrirhuguð 19. septem-
ber.
Listrænir stjórnendur sýningar-
innar eru Vala Ómarsdóttir leik-
stjóri, Vilhjálmur B. Bragason leik-
skáld, Auður Ösp Guðmundsdóttir
leikmynda- og búningahönnuður,
María Kjartansdóttir vídeólista-
kona og ljósmyndari og Biggi Hilm-
ars tónlistarmaður. Á meðal leikara
eru Birna Pétursdóttir, Árni Bein-
teinn og Kolbrún Lilja Guðnadóttir.
Upplifun sjúklinga
„María Pálsdóttir sem rekur Hælið
hafði samband við mig í vor og bauð
mér að leikstýra verkinu. Þetta er
alltumlykjandi verk, þannig að
áhorfendur ganga um hælið og
rými þess og leiknar senur og inn-
setningar eru um allt húsið,“ segir
Vala Ómarsdóttir leikstjóri.
„Við sem komum að sýningunni
vinnum hana saman út frá heim-
ildum og fáum þaðan innblástur.
Við erum að segja sögu um þennan
sjúkdóm, hvernig hann lagðist á fólk
og áhrifin sem hann hafði á það. Við
höfum sökkt okkur ofan í þennan
tíma, frá 1930-1950, þegar sjúkl-
ingar voru á þessu hæli og kynnum
okkar þeirra upplifun, til dæmis
í gegnum bréfaskriftir sjúklinga
til fjölskyldu og vina. Þar finnur
maður að fólk er að glíma við sjálft
sig og setur sögu sína í samhengi
um leið og það reynir að sýna æðru-
leysi. Sjálf fékk ég í hendur bréf sem
langafi minn, sem var berklasjúkl-
ingur, skrifaði til langömmu. Mér
fannst mjög fallegt að sjá hvernig
hann opnaði sig í þeim bréfum.
Við könnum þessa tíma líka með
tilliti til ástandsins sem ríkir nú á
okkar tímum. Kannski er eitthvað
svipað í gangi hvað varðar viðhorf
okkar til lífsins og þess hvernig
hugurinn og sálin tekur á því. Þar
er mér ofarlega í huga það æðru-
leysi sem við þurfum að tileinka
okkur í óvissu.“
Leikið á mót vídeói
Verkið er sérstaklega unnið inn í
sýningarrýmið þar sem leiknum
senum er blandað við vídeóverk og
hljóðverk og einnig fara atriði fram
utandyra en áhorfendur sjá þau út
um glugga. „Vilhjálmur B. Bragason
leikskáld skrifar textann og verður
á æfingaferlinu til að þróa verkið
með okkur. María Kjartansdóttir
vídeólistakona og ljósmyndari
gerir vídeóverk fyrir sýninguna.
Leikararnir leika stundum á móti
vídeói, sem færir aðra vídd inn í
verkið.
Fáir áhorfendur geta upplifað
sýninguna í einu og höfum við
fækkað þeim enn frekar til þess
að geta fylgt sóttvarnareglum. En í
staðinn sýnum við verkið oftar og
tvisvar í röð á hverju kvöldi. Einn-
ig útdeilum við grímum til áhorf-
enda. Grímurnar smellpassa inn í
þema sýningarinnar og þjóna líka
því hlutverki að greina áhorfendur
frá leikurunum sem munu verða
allt í kringum þá.“
Fjalla um æðruleysi í óvissu
Sviðslistaverkið Tæring er innblásið af sögu berklasjúklinga.
Vala Ómarsdóttir leikstýrir. Áhorfendur ganga um Hælið.
Við könnum þessa tíma líka með tilliti til ástandsins sem ríkir nú á okkar tímum, segir Vala. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Laugardaginn 22. ágúst klukkan 14.00 heldur Skálholtstríóið tónleika í Akraneskirkju.
Tríóið er skipað þeim Jóni Bjarna-
syni orgelleikara og trompetleikur-
unum Vilhjálmi Inga Sigurðarsyni
og Jóhanni Stefánssyni. Þeir félagar
hafa spilað mikið saman undan-
farin ár.
Efnisskrá þeirra er fjölbreytt, en á
henni er meðal annars að finna verk
eftir J.S. Bach, A. Vivaldi, Eugene
Bozza, Sigfús Einarsson, Rodriguez
Solana og fleiri. – kb
Skálholtstríó á Akranesi
Skálholtstríóið verður með tón-
leika í Akraneskirkju um helgina.
Sjávarmál er skúlptúr sem bar sigur úr býtum í samkeppni um nýtt listaverk í Vesturbænum
2020. Höfundar tillögunnar eru
arkitektarnir Baldur Helgi Snorra-
son og David Hugo Cabo í samstarfi
við Andra Snæ Magnason rithöf-
und. Sjávarmál snýr að samskiptum
okkar við náttúruna og þeim breyt-
ingum sem eru að verða á henni.
Í niðurstöðum dómnefndar segir
meðal annars: „Hugmynd verksins
er skýr og aðgengileg og formgerð
þess sameinar einfalt form og marg-
breytilega virkni. Fyrirmynd verks-
ins er fengin frá svokölluðum hljóð-
speglum sem notaðir voru í fyrri
heimsstyrjöldinni og á fyrstu ára-
tugum tuttugustu aldar til að hlusta
eftir loftförum og flugvélum. Verkið
kemur fyrir sjónir sem dökkur
veggur sem blasir við hafi og sjón-
deildarhring. Á þeirri hlið sem snýr
að hafinu er steypt innbjúg skál sem
safnar hljóðinu og magnar það upp
með einföldu endurkasti fyrir þann
sem stendur fyrir framan spegilinn.
Á þeirri hlið sem snýr að byggð er
hrjúfur veggur þar sem íslensk heiti
fyrir hafið eru áletruð.“
Staðsetning verksins er miðuð
við nálægð við hafið og fjöruborðið
og lagt er til að verkinu verði fund-
inn staður hjá Eiðsgranda milli
Grandavegar og Rekagranda.
– kb
Sjávarmál í Vesturbænum
Vinningslistaverkið Sjávarmál.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F Ö S T U D A G U R 2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0