Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.08.2020, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 21.08.2020, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is ÉG NOTA TIL DÆMIS HELST PENNA, AF ÞVÍ ÞEIR FYRIRGEFA NEFNILEGA EKKERT OG ALLT SEM ÉG SET Á BLAÐ VERÐ ÉG AÐ NÝTA. Lykillinn margborgar sig á Kvikk stöðvunum* Þú nálgast lykilinn í verslunum Kvikk eða á Orkan.is Pylsupartí Pylsa + ½ lítri af gosi að eigin vali frá Ölgerðinni 499 kr. Red Bull Orkudrykkir 199 kr. Frítt á könnunni Ókeypis kaffi og kakó Sbarro tilboð á Vesturlandsvegi Sneið + drykkur 690 kr. OPIÐ 24/7 Kvikk: Dalvegi, Suðurfelli, Vesturlandsvegi og Fitjum *G ild ir e in g ö ng u g eg n fr am ví su n O rk ul yk ils /- ko rt s. T ilb o ð in g ild a til 3 1. á g ús t 2 02 0. Þórir Karl Celin segist hafa teiknað mikið frá því að hann man eftir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sýning Þóris Karls Celin, listamanns og grafísks hönnuðar, stendur nú yfir í Litla Gallery í Hafnar-firði og heitir einfaldlega Teikningar. Þórir hefur teiknað frá því að hann man eftir sér. „Ég er yngstur af fjórum systk- inum og var svo heppinn að fylgj- ast með þeim öllum að teikna og læra af þeim. Móðir okkar er mjög listræn og faðir okkar hvetjandi. Ég stefndi svo þráð- beint í Myndlista- og handíða- skóla Íslands af því það var í raun og veru eina sem var í boði fyrir einstakling sem hafði gaman af því að teikna,“ segir Þórir. Losað um subbuskapinn Þórir hefur meira og minna starfað í tölvugeiranum frá útskrift. „Ég var svo heppinn að vinna hjá fyrirtækinu Gogogic sem gat nýtt sér mína hæfileika. Fyrir um það bil fimm árum kvikn- aði aftur á teikniáhuganum hjá mér og þá ákvað ég markvisst að teikna það sem mér fannst skemmtilegast, sem þá voru alls konar hauskúpur og álíka hryllingur og subbuskapur sem ég þurfti að losa úr kerfinu til að sjá hvert ég myndi þróast sem teiknari,“ segir hann. Hann segist reyna að rit- skoða sjálfan sig sem minnst við gerð teikninganna. „Ég nota til dæmis helst penna, af því þeir fyrirgefa nefnilega ekkert og allt sem ég set á blað verð ég að nýta. Það bíður upp á hið óvænta, sem gefur myndunum líf. Þessi aðferð hjálpaði mér mjög þegar ég teiknaði stóra mynd inn á Matar- kjallarann, sex metra breið stílfærð pennateikning á messing-plötur af síðustu kvöld- máltíðinni, ferlið var skemmtilegt og niðurstaðan er frábær, þó ég segi sjálfur frá.“ Málar á nytjahluti Hann segir að gerð verksins hafi haft mikil áhrif á hvernig hann treysti sjálfur því sem hann teiknar. „Samstarf við aðra teiknara hefur hjálpað mér mikið í að brjóta upp teikninguna hjá mér. Helst má þar nefna samstarf mitt við Sölva Dún og Le Kock, hans teikniheimur braut upp ýmislegt hjá mér og frelsið sem Le Kock gefur er hvetjandi skemmti- legt. Það er nauðsynlegt að verða fyrir áhrifum og fá létta samkeppni frá öðrum teiknurum og sem betur fer umgengst ég marga slíka,“ segir Þórir. Hann segir sýninguna í Litla Gallery vera nokkurs konar samantekt. „Þar mætir teikniheim- urinn sem ég er búinn að vera að leika mér með síðustu ár, ásamt tilrauna- st a r f semi u ng l ing sins sem ég var fyrir löngu og heimilið sem ég ólst upp á. Þetta samsuð má sjá í gull- römmum sem voru uppi um alla veggi á mínu heimili og vinnuvélalakki á ísskáps- hurð, en vinnuvélalakk var mitt uppáhaldsefni sem unglingur. Að mála á nytja- hluti er eitthvað sem heillar mig og ætla ég að halda því áfram. Mig grunar að mín næsta sýning muni innihalda ísskápahurðir eða frystikistulok. Þann- ig að ef einhver lesandi á slíkt fyrir mig til að nýta, þá má hann endilega hafa samband,“ segir Þórir hlæjandi. Sýningin í Litla Gallery er opin í dag og á morgun. Hægt er að skoða verk Þóris nánar á thorir.com. steingerdur@frettabladid.is Penninn fyrirgefur nefnilega ekkert Sýningin Teikningar stendur nú yfir í Litla Gallery í Hafnarfirði. Listamaðurinn og grafíski hönnuðurinn Þórir sýnir þar teikningar sínar. Hann reynir að ritskoða sig sem minnst við gerð þeirra. Verk sem málað var á ísskápshurð. 2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.