Morgunblaðið - 06.01.2020, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 6. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 4. tölublað 108. árgangur
VINSÆL NÆR-
INGAREFNI ÚR
ÞÖRUNGUM
Í NÁVÍGI VIÐ
MAGNÚS
PÁLSSON
SETUR SVIP
SINN Á
JÓKERINN
GAGNRÝNI 29 HALLDÓR ÚLFARSSON 11SAGA NATURA 12
Tvíorkuskip
» Herjólfur er tvíorkuskip.
Gengur bæði fyrir rafmagni úr
landi og dísilvél.
» Hlaðið verður í báðum höfn-
um og á orkan að duga fyrir
ferðina.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur
skiptir úr dísilolíu í rafmagn sem
hlaðið er úr landi upp úr miðjum
mánuði, ef ekkert nýtt kemur upp á.
Dísilvélin verður áfram notuð með
en talið er að þegar hægt verður að
sigla fyrir rafmagni úr landi muni
35-40% olíukostnaðar sparast.
Öll orka Herjólfs er úr dísilvélinni
og hefur svo verið þá tæpu sjö mán-
uði sem liðnir eru frá því skipið kom
til landsins. Hleðslubúnaðurinn var
settur upp í Vestmannaeyjum og
Landeyjahöfn í haust en búnaðurinn
í Eyjum virkaði ekki. Framleiðendur
segjast nú vera búnir að leysa vanda-
málið og verður búnaðurinn stilltur í
vikunni. Í næstu viku koma fulltrúar
rafbúnaðarins til að stýra hleðslu inn
á rafgeyma skipsins. Guðbjartur Ell-
ert Jónsson, framkvæmdastjóri
Herjólfs ohf., segir að rekstrarfélag-
ið sé með samning við Vegagerðina
um rekstur á ferjunni. Telur hann að
gildandi samningar taki til dráttar
sem orðið hafi á afhendingu skips og
búnaðar og verði fyrirtækinu bættur
aukakostnaður.
Siglir senn fyrir rafmagni
Framleiðendur hleðslubúnaðar Herjólfs koma honum í gang í vikunni
Ferjan hefur eingöngu gengið fyrir dísilvél frá því hún kom til landsins
MBúið að leysa vandamálið »4
Sólin stráði gylltum geislum yfir Hafnarfjörð þegar hún
braust fram úr skýjunum. Dökku óveðursskýin voru þó ekki
horfin með öllu. Fólk sem var að viðra hunda sína á útivist-
arsvæðinu Bala í Garðabæ, við mörk Hafnarfjarðar, naut
sjónarinnar. Handan fjarðarins blasir hafnarsvæðið við og
Hvaleyrin utar en þar er frægur golfvöllur Hafnfirðinga.
Hundaeigendur á Bala njóta geisla sólar við Hafnarfjörð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Ástandið er
hræðilegt,“ segir
Þorvaldur
Hreinsson, Ís-
lendingur sem
hefur verið bú-
settur í Ástralíu í
30 ár, um kjarr-
eldana sem geisa
víða í Nýju Suð-
ur-Wales. Hann býr í bænum Eden,
sem er skammt frá verstu hamfara-
svæðunum, og liggur þykkur reykj-
armökkur yfir bænum hans. Miklar
skemmdir hafa orðið í sveitunum í
kringum bæinn.
„Það er of snemmt að segja til um
eyðilegginguna því það er svo mik-
ill svartur og þykkur reykur alls
staðar,“ sagði hann við Morgun-
blaðið. »4
„Svartur og þykkur
reykur alls staðar“
Slökkviliðsmenn í
baráttu við eldana.
Rannsókn á áhrifum innflutnings er-
lendra nautgripa bendir til þess að
þau séu nánast engin. Íslenski kúa-
stofninn er mjög hreinn, nánast
óblandaður, að sögn Egils Gauta-
sonar sem vinnur að doktorsverkefni
við Árósaháskóla um uppruna
stofnsins og skyldleika við önnur
kyn. Grein hans um þetta efni birtist
í vísindatímariti norrænna bú-
vísindamanna. Telur Egill að
verndargildi stofnsins sé ótvírætt
mjög mikið. Það kom Agli á óvart að
innflutningur á dönskum rauðum
kúm er varla finnanlegur í erfða-
mengi íslenska stofnsins þrátt fyrir
að heimildir séu um innflutning. »10
Verndargildi íslenska
kúastofnsins talið mikið
Kýr Kúastofninn hefur sérstöðu.
Alls komu út um 400 íslenskar
hljóðbækur á síðasta ári sem er
tæplega tvöföldun frá 2018. Velta
bókaútgáfu jókst um 20% milli ára
og segir Stefán Hjörleifsson, fram-
kvæmdastjóri Storytel á Íslandi, að
þá aukningu megi að mestu rekja
til hljóðbóka. „Hljóðbækur eru nú
um 15% af heildarmarkaði íslenskr-
ar bókaútgáfu ef miðað er við
veltu,“ segir Stefán sem bendir á að
fyrir tveimur árum hafi hljóðbækur
mælst innan við 1% af heildar-
útgáfu bóka á Íslandi. »2
Útgáfa hljóðbóka tvö-
faldaðist milli ára
Guðni Bergsson, formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands, segir
starfsumhverfi afreksíþrótta
strembið, nú þegar fyrirtæki eru að
minnka stuðning við íþróttir auk
þess sem launakostnaður leikmanna
sé mögulega hærri en æskilegt er.
Í samtali við Morgunblaðið ítrek-
ar Guðni mikilvægi þess að rekstr-
arumhverfi knattspyrnufélaga sé
heilbrigt.
Víða sé barna- og unglingastarfið
rekið sérstaklega með æfingagjöld-
um iðkenda ásamt frístunda-
styrkjum sveitar-
félaga og
utanaðkomandi
stuðningi eftir at-
vikum.
„Við verðum að
vinna saman að
því að rekstur fé-
laga verði sjálf-
bær og starfsum-
hverfið heilbrigt.
Við megum ekki gleyma því að fót-
boltinn skilar miklu til samfélags-
ins,“ sagði hann. »6
Starfsumhverfi afreks-
íþróttanna þungt
Guðni Bergsson