Morgunblaðið - 06.01.2020, Blaðsíða 32
Ármúla 10
) 568 9950
duxiana.comHáþróaður svefnbúnaður
Náttúruleg efni, einstakt handverk og PASCAL gormakerfið
gera rúmin okkar að athvarfi fyrir stöðugan gæðasvefn.
FRUMKVÖÐLAR SÍÐAN 1926
Klæðskerasniðin
þægindi
Rokksveitin HAM snýr aftur í lok
mánaðar og heldur tónleika í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, 24.
janúar. HAM hefur ekki haldið tón-
leika hér á landi í tæp tvö ár en lék
eftirminnilega við opnun sýningar
Hrafnhildar Arnardóttur „Shop-
lifter“ á Feyneyjatvíæringnum í maí
í fyrra og frumflutti þar tónverkið
Chromo Sapiens, samnefnt sýningu
Hrafnhildar, sem hljómsveitin vann
í samstarfi við hana og Skúla Sverr-
isson. Sýning Hrafnhildar verður
opnuð í Hafnarhúsi degi fyrir tón-
leika.
HAM í Hafnarhúsi
MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 6. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik tapaði með átta marka
mun þegar liðið mætti Þýskalandi í
Manheim á laugardaginn í lokaleik
sínum fyrir EM í Austurríki, Noregi
og Svíþjóð sem hefst í vikunni. Þá
herja meiðsli á hópinn og hafa þau
truflað lokaundirbúning liðsins fyr-
ir fyrsta leik gegn Dönum sem fram
fer í Malmö hinn 11. janúar. »26
Óvissuástand hjá
karlalandsliðinu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Stjarnan vann sinn áttunda sigur í
röð í Dominos-deild karla í körfu-
bolta er liðið vann Þór Þorlákshöfn
á heimavelli í gærkvöld, 84:70. Með
sigrinum náði Stjarnan fjögurra
stiga forskoti á toppi deildarinnar, í
bili a.m.k. Njarðvík hefur
unnið sjö í röð en liðið
vann 88:64-sigur á ÍR
á heimavelli. Njarðvík-
ingar byrjuðu illa í vet-
ur en hafa unnið alla
leiki sína eftir að
Bandaríkjamaðurinn
Chaz Williams gekk
í raðir félagsins.
Þá unnu KR-
ingar góðan
sigur í
Grindavík.
»27
Átta í röð hjá meistara-
efnum Stjörnunnar
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sigurður Grétar Geirsson bifvéla-
virki hefur staðið vaktina í Bílanesi,
viðgerðar-, réttinga- og málningar-
verkstæði, á Seltjarnarnesi í um 40 ár
eða frá 1978, en synirnir Kristján og
Hörður hafa tekið við rekstrinum,
sem hefur verið í Bygggörðum frá
1987. „Það var eiginlega sjálfhætt hjá
mér, heilsan fór í bankahruninu,“
segir Sigurður.
Þegar synirnir voru í fótboltanum
var Sigurður í stjórn knattspyrnu-
deildar Gróttu í nokkur ár. „Það var
mjög skemmtilegur tími og gefandi
og einu fríin tengdust guttunum í
boltanum.“ Á svipuðum tíma hafði
hann umsjón með áramótabrennu á
Nesinu. „Ég er síðasti brennukóng-
urinn í sjálfboðavinnu en endirinn var
ekki skemmtilegur því Seltjarnar-
nesið brann og kalla þurfti út slökkvi-
liðið til að hefta útbreiðslu eldsins.“
Brennan var þá skammt frá tjörn-
inni og Sigurður segir að neistaflugið
hafi fleytt kerlingar á ísnum en
skyndilega hafi vindáttin breyst. „Þá
byrjaði Nesið að brenna, vel logaði
meðfram tjörninni og við endann á
golfvellinum en sem betur fer varð
hestum í hesthúsi í grennd ekki
meint af og við sluppum með skrekk-
inn.“
Hjálpsemi framar öllu
Tilviljun réð því að Sigurður lærði
bifvélavirkjun. „Ég ætlaði bara að
læra eitthvað sem gagn væri í með
það að leiðarljósi að hafa nóg að gera
og bílarnir urðu fyrir valinu,“ rifjar
hann upp. Hann segir að atvik í brúð-
kaupsferð hjónanna, hans og Guð-
veigar Nönnu Guðmundsdóttur, árið
1976 hafi sannfært hann enn frekar.
Þau hafi farið hringveginn og á
Skeiðarársandi hafi maður á bíla-
leigubíl veifað og beðið um aðstoð.
„Ég var að ljúka náminu og sá að ég
gat hjálpað manninum og það hefur
verið veganesti mitt, að hjálpa og
bjarga.“
Sigurður hefur hjálpað mörgum í
gegnum tíðina og er ánægður með að
hafa getað orðið að liði en minnist
eins neyðarlegs atviks. Hann hafi
þurft að skjótast út í sjoppu um kvöld
og skömmu eftir að hann kom heim
hafi lögreglan mætt og sakað hann
um bílþjófnað. Hann hafi þrætt fyrir,
sagst hafa verið með bílinn í viðgerð
og vera að fara að skila honum til eig-
andans. „Þá sagðist maður, sem var
með lögreglunni, vera eigandi bílsins.
Við nánari skoðun sá ég að þetta var
ekki bíllinn sem ég hafði verið með í
viðgerð. Í ljós kom að maðurinn hafði
skilið hann eftir í gangi fyrir utan
sjoppuna og ég tekið hann í mis-
gripum. Löggan sagði að við ættum
að læra af þessu, að skilja bíla ekki
eftir mannlausa í gangi eða með lykla
í svissinum.“
Þau Guðveig kynntust á Akureyri
og skömmu síðar lentu þau í bílslysi.
„Fimm ungmenni hætt komin við
Mývatn, voru á margra vörum, en
hún varð eftir á spítalanum á Húsa-
vík og ég fór suður,“ segir Sigurður.
Við skiptumst á símanúmerum og
skömmu síðar hringdi ég heim til
hennar. Mamma þekkti númerið og
skýringin var sú að pabbi var á sjó
hjá afa Guðveigar á 18 vertíðum.
Þetta er lítið land.“
Synirnir stóðu vart út úr hnefa
þegar þeir mættu á verkstæðið. „Þeir
byrjuðu um leið og þeir gátu haldið á
kústinum og hafa jafnt og þétt tekið
við,“ segir Sigurður. „En ég hef verið
til friðs í dágóðan tíma og fæ að send-
ast fyrir þá.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bílanes Sigurður Grétar Geirsson, Kristján og Hörður á verkstæðinu í Bygggörðum á Seltjarnarnesi.
Þá fór Nesið að brenna …
Bifvélavirkinn Sigurður Grétar síðasti brennukóngurinn