Morgunblaðið - 06.01.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.01.2020, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020 ✝ Páll Þor-steinsson fædd- ist í Reykjavík 8. september 1984. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 24. desember 2019. Hann var son- ur hjónanna Þor- steins Pálssonar, f. 1954 og Kristínar Árnadóttur, f. 1954. Páll átti fjórar syst- ur. 1) Eva Þorsteinsdóttir, f. 1973. Börn hennar eru: Victor Andri og Róbert Fannar, f. and- vana 11. desember 1995, Andri Fannar Kristjánsson, Tara Líf Kristjánsdóttir, Natalía Krist- jánsdóttir. 2) Hulda Sif Þor- steinsdóttir, f. 1978. Maki: Er- lendur Þór Gunnarsson. Börn þeirra eru: Elísabet Erlends- dóttir, Þorsteinn Kári Erlends- son og Karólína Erlendsdóttir. 3) Selma Rut Þorsteinsdóttir, f. 1979. Maki: Árni Davíð Skúlason. Börn þeirra eru: Tanja Kristín Árna- dóttir, Mikael Aron Árnason og Hilmir Hrafn Árnason. 4) Fanný Hrund Þor- steinsdóttir, f. 1982. Maki: Magni Krist- jánsson. Börn þeirra eru: Gabríella Tóm- asdóttir, Ísabella Magnadóttir og Kristín Anna Magnadóttir. Páll lærði hljóðupptökustjórn og starfaði sem tónlistarmaður. Hann hóf feril sinn með hljóm- sveitinni Afkvæmi guðanna og vann með fjölmörgum tónlist- armönnum í hipphopp-senunni. Páll átti farsælan feril að baki og var meðal annars þekktur undir listamannsnafninu Guli drekinn. Páll var ókvæntur og barnlaus. Útför Páls fer fram í Fríkirkj- unni í Reykjavík í dag, 6. janúar 2020, klukkan 13. Elsku hjartans gullið okkar pabba og mömmu, elsku Páll okk- ar, við eigum engin nógu falleg og sterk lýsingarorð til að lýsa þér sem persónu og fallega drengnum okkar sem við elskum svo heitt. Engin orð geta heldur lýst því hvað við söknum þín og hvað lífið getur orðið hverfult, að þú elsku drengurinn okkar sért farinn á undan okkur í blóma lífsins. Við pabbi og mamma sitjum hnípin og söknum þín óendanlega mikið, rifjum upp allar fallegu björtu minningarnar um þig með systrum þínum og hvað þú varst mikið litla yndið okkar allra í fjöl- skyldunni, elskaður og dáður í öllu sem þú gerðir, allt til loka lífs þíns. Það er svo margt sem þú hefur kennt okkur, elsku vinur. Þú varst ákveðinn í skoðunum þínum á heiminum í dag sem þér fannst fara versnandi, með allri tækninni svo sem snjalltækjum og fleiru. Þú varst með gamla sál og vildir hafa hlutina á þann hátt, sérstak- lega hin seinni ár. Líklega hefur heilsa þín gert það að verkum að þú þoldir ekki allt það kapphlaup sem þér fannst vera óþarft, við vorum oft sammála um það og þú elskaðir að hlusta á mömmu og pabba segja frá æsku okkar. Þú elskaðir öll systrabörnin þín 12 og það yljar okkur um hjarta- rætur, að sjá allar myndirnar af þér þar sem þú heldur á þeim eins og þú ættir í þeim öllum, sem þú áttir svo sannarlega. Því þau elsk- uðu Palla frænda, og munu gera það til æviloka. Það er því erfitt að vita til þess að þú þráðir þína eigin fjölskyldu og við ræddum það oft, við töldum þér trú um að þú ættir allt lífið framundan til þess, elsku hjartað okkar. Við vorum vongóð um bata hjá þér, en það brást hér á jörð. En við verðum að treysta því og trúa að þú sért á góðri leið að enn betra lífi þar sem allt er svo grænt og fal- legt, sólin skín og blómin teygja sig á móti þér. Þar sem allt skyld- fólkið þitt tekur á móti þér opnum örmum, afar og ömmur, Árni Þór frændi og jafnaldri, og þið náið að hlaupa undir skæran regnbogann sem þið reynduð sem litlir drengir. Elsku drengurinn okkar, far þú í guðs friði og hann mun taka þig í faðm sinn og leiðbeina þér í nýjum heimkynnum þar sem allur sárs- auki verður á bak og burt, því trú- um við og treystum. Við munum hitta þig á ný, þang- að til munt þú alltaf vera skærasta ljós í lífi okkar. Elskum þig um alla eilífð. Þín elskandi mamma og pabbi, Kristín Árnadóttir, Þorsteinn Pálsson. Elsku bróðir, nú ertu farinn frá okkur. Það er skrýtið að hugsa til þess að fá ekki að sjá þig aftur. Það vantar einn í systkinahópinn, litla bróður, yngstur af okkur fimm. Eftir stöndum við fjórar. Hulda systir hringdi í mig á að- fangadag til að segja mér að þú værir dáinn, farinn. Ég sagði henni að hætta að ljúga. Jólin stoppuðu. Elsku Palli minn, þú varst svo glaður þegar ég átti Andra, það var kominn annar strákur í fjöl- skylduna. Ef þú heyrðir að hann var vaknaður eða grét þegar við bjuggum á Selfossi komstu hlaup- andi niður að ná í hann, 11 ára gamall í víðu Dickies-buxunum þínum. Seinna hjálpaðirðu honum í tónlistinni. Það er það sem þú elskaðir. Að gera bít, að tengja tæki og taka upp. Ég er elst, þú varst yngstur. Svo lík, en samt ekki. Þess vegna urðum við bara stundum að vera sammála um að vera ósammála. Við áttum samt sameiginlegan húmor, svartan húmor sem var ekki fyrir alla. Elsku bróðir, nú er lagið þitt búið en takturinn lifir í okkur. Ég elska þig og hitti þig seinna. Þín stóra systir Eva. Elsku besti bróðir og vinur. Elsku hjartahlýi, fallegi, yndislegi, hæfileikaríki og skemmtilegi Palli. Ég hef haft hugmynd um að slíkur sársauki sem ég upplifi nú væri til en að upplifa hann eins og nú nær ekki að lýsa honum. Hjarta mitt hefur verið brotið í tvennt og tómarúm hefur myndast. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að fylgja þér alla þína ævi og þakklát fyrir minningarnar sem við höfum skapað í samein- ingu, elsku Palli minn, þær eru ómetanlegar og mun ég ávallt varðveita í hjarta mínu. Aðeins tvö ár eru á milli okkar og höfum við alltaf náð saman, sem börn og fullorðin. Manstu eft- ir hótelleikjunum okkar sem við fórum í þegar pabbi þurfti að ferðast vegna vinnu? Þá skipt- umst við á að vera hótelstjóri og svo bisnessmaður eins og pabbi. Eða La Bamba-tímabilið okkar, búningaleikir, brandaragerð o.fl. „Er hurðin stíf, Martin?“ Ég veit að þú hlærð núna með mér elskan mín eins og við gerðum reglulega þegar við rifjuðum upp gamla tíma. Laugardagsbíltúrarnir með pabba, NBA-myndir, pylsa og kók, og spjall um lífið og tilveruna sem endaði svo með Mömmumat og vídeókvöld með fjölskyldunni. Á fermingarárinu mínu fórum við með mömmu og pabba og keyrðum um Evrópu og fórum síðar til Mallorca, dýrmætar minningar. Ég var hins vegar svo- lítið mikið í fýlu en þú svo ljúfur og skemmtilegur en þú hjálpaðir mér að dempa sveiflurnar og við gát- um verið börn aftur. Okkur fannst nú svolítið spennandi að fá að vera ein á hótelherbergi og ekkert lítið fyndið að heyra Simpsons á frönsku. Síðan fórst þú á gelgju, nei ókei, ekkert í hálfkvisti við mig. Hjóla- bretti, rapp og tölvur. Síðan varð til þessi magnaði tónlistarmaður sem þú ert, elsku Palli. Þegar ég flutti aftur heim til ykkar mömmu og pabba með litlu Gabríelluna okkar í Strýtuselið var Guli Drekinn að hefja sig á flug. Það kom mér hins vegar ekk- ert á óvart þar sem þú hefur alltaf verið svo klár og hæfileikaríkur, engin takmörk fyrir því. Rapparar fylktu liði í helli Gula Drekans, Elvar og Stjáni í fararbroddi með þér og Afkvæmi guðanna urðu til. Þú gerðir aldrei mannamun, engir fordómar, bara kærleikur. Þú studdir við bakið á mér og hafðir trú á mér þegar ég var á mínu tónlistartímabili. Þolinmæð- in endalaus enda enginn eins klár og Guli Drekinn. Magni vinur þinn kom svo í líf mitt og milli okkar varð yndislegt vinasamband. Ein- lægur fjölskyldumaður ertu, elsku Palli. Yndislegur með systurbörn- um þínum sem líta öll svo upp til þín, öll með tölu. Söknuðurinn er óbærilegur, elsku Palli. Ég veit hins vegar að þú verður alltaf með okkur og ég veit að ég hitti þig aftur og það verður mín eina huggun að sinni. Ég vil segja þér að ég er svo stolt af þér elsku bróðir, fyrir manninn sem þú hefur að geyma og fyrir allt sem þú hefur afrekað, hef sennilega ekki sagt þér það nógu oft. Ég mun halda minning- unni þinni á lofti og ég veit að aðrir munu einnig gera það. Ég elska þig út af lífinu og mun alltaf gera, þú munt ávallt vera í hjarta mínu. Þín elskandi systir Fanný Hrund. Elsku litli bróðir. Ég veit ekki hvernig ég á að koma orðum að þessari kveðju, því þetta er enn svo óraunverulegt. Þú ert svo ungur, við ætluðum öll að hjálpast að við að takast á við þessi veikindi sem gerðu lífið svo erfitt undanfarna mánuði. Þú fékkst ekki tækifæri til að gera svo margt í lífinu og ég er svo óendanlega sorgmædd yfir því. Þegar þú fæddist varstu svo einstakur, yngstur og lítill strákur í stórum systrahópi. Fallegra barn höfðum við ekki séð. Við elskuðum allar að fylgjast með þér, hvort sem það var þegar mamma var að skipta á þér, eða þegar þú varst að dunda þér við að útbúa flóknar græjur með legókubbum og lést fylgja með því nákvæma lýsingu á hvernig allt virkaði. Þegar þú varst með Turtles-kallana þína að leika. Ég get enn heyrt barna- röddina þína segja frá öllu sem er að gerast í leiknum. Myndin sem þú gafst mér þar sem þú teiknaðir hetjuna þína, þá Dr. Dre. Þegar ég fór með þig í sveitaferðina með leikskólanum þínum, þú fimm ára og ég ellefu ára. Mér leið eins og ég væri næstum því mamma þín. Þú varst svo ótrúlega klár, snið- ugur og skemmtilegur. Tókst græjur í sundur til að skilja hvern- ig þær virkuðu, bjóst til alls kyns tæki og tól, bara af því að, og þú baðst stundum um gjafir úr búð- inni Íhlutir. Það var skrítið að gefa þér einhverjar snúrur eða eitthvað álíka í afmælis- og jólagjafir en það vildir þú. Þú varst svo góður, blíður og þrjóskur. Þú máttir ekkert aumt sjá og elskaðir að knúsa frænd- systkini þín. Þú varst svo viðkvæm sál, traustur og næmur á umhverfi þitt og tilfinningar annarra. Þegar ég var nýbúin að eiga Elísabetu mína komstu einn í heimsókn. Þetta var erfið fæðing og þarna fyrst á eftir var mér frekar erfiður tími en ég fattaði það eiginlega ekki sjálf fyrr en þú komst til mín og sagðir við mig að ég væri ekki eins og ég ætti að mér að vera. Þá varstu tvítugur og þú fannst það sem aðrir fundu ekki. Þú varst svo hæfileikaríkur, fal- legur og ótrúlega óskýrmæltur í símtölum. Það sem ég gæfi fyrir eitt klukkustundar samtal við þig aftur. Ég hef oft hugsað það í gegnum tíðina og í gegnum erfiðleikana þína að þú ert sú manneskja sem hefur kennt mér hvað mest í þessu lífi. Ég hef horfst í augu við eigin fordóma og annarra, ég hef lært að lífið er alls konar og að það er gott að vera svolítið skrítinn og öðruvísi en aðrir. Ég vil meina að ég sé næstum því alveg hætt að vera ferningur eða square eins og þú sagðir stundum að ég væri. Það ætla ég að gera fyrir þig. Ég elska þig óendanlega, litli bróðir, upp í geim og til baka enda- laust. Þín systir, Hulda Sif. Þú ert nýfæddur. Fallegasta barn sem ég hef séð. Strákur, loks- ins kominn strákur. Þú kúrir hjá mömmu. Pabbi horfir stoltur á. Við Páll Þorsteinsson ✝ Jórunn LindaJónsdóttir fæddist á Patreks- firði í Patreks- hreppi 10. mars 1956. Hún andaðist á heimili sínu 13. desember 2019. Foreldrar henn- ar voru Jón Þor- berg Eggertsson frá Haukadal, Dýra- firði, f. 7. október 1922, d. 29. janúar 2018, fyrrv. skólastjóri, og kona hans Rósa Kemp Þórlindsdóttir frá Búðum, Fáskrúðsfirði, f. 11. febrúar 1924, d. 8. mars 2012, húsfreyja. Systkini hennar eru Ólafur Ólafsson, f. 26. september 1947, Svala Haukdal Jónsdóttir, f. 31. maí 1952, Þórdís Elva Jónsdóttir, f. 9. júlí 1953, og Guðríður Erna Jónsdóttir, f. 10. mars 1956. Dætur hennar eru: 1) Aldís Buzgò, f. 2. maí 1991, maki Val- mir Qeleposhi, dóttir þeirra er Dagný Lára. 2) Heiðdís Buzgò, f. 2. maí 1991, maki Eggert Orri Hermannsson. Linda ólst upp á Patreksfirði og lauk þaðan grunnskóla- námi. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í jan- úar 1976 og stund- aði síðan nám við Íþróttakennara- skóla Íslands á Laugarvatni frá 1976-1978. Réð hún sig sem íþróttakenn- ara við Varmárskóla í Mos- fellsbæ 1978 þar sem hún starf- aði lengst af við kennarastörf. Eftir að Linda eignaðist dætur sínar flutti hún í Mosfellsbæ, Krókabyggð 22. Áhugamálin voru lestur góðra bóka, útivist og íþróttir. Stundaði hún bæði blak og körfubolta og var margfaldur meistari í körfu- bolta með KR ásamt því að spila með landsliði Íslands. Útför Lindu fer fram frá Grensáskirkju í dag, 6. janúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku Linda mín, fréttinni um andlát þitt sló niður í hjörtu okkar fyrirvaralaust og við söknum þín óendanlega mikið. Þú varst með framtíðaráætlanir og áttir að eiga eftir mörg góð ár. Í staðinn varstu skyndilega kölluð á burt frá fjöl- skyldu þinni og ástvinum. Eftir sitjum við og hörmum óréttlæti lífsins. En góðar minningar streyma að og er nærtækast að nefna systkinamót í Haukadal í Dýrafirði á liðnu sumri. Þar áttum við saman yndislegar stundir með börnum og barnabörnum okkar. Það má líka nefna margt frá barna- og unglingsárum á Patró; sumarferðalögum austur á firði, öllum sumarbústaðaferðunum með söng, glensi og gamni. Einnig velþegnum kaffisopa við stuttar heimsóknir, bæði hér heima og ytra. Eldri dóttir mín Linda er stolt yfir nafni sínu og til aðgreiningar oftast kölluð „litla“ Linda. Hún og yngri dóttirin Lilja áttu þig, systir mín, sem uppáhaldsfrænku það ár sem þú dvaldir við kennslu í Sví- þjóð. Þú varst svo natin við þær. Tímarnir breyttust er dætur þínar Aldís og Heiðdís fæddust. Linda mín, þú varst með réttu ákaflega stolt af dætrum þínum og barna- barninu Dagnýju Láru. Tóm- stundum fækkaði, en bæði hann- yrðir og garðvinna voru áfram mikilvæg áhugamál þín. Þú afrekaðir að vera valin, fyrst kvenna á Íslandi, íþróttamaður ársins fyrir frábæran árangur í körfubolta. Enda lagðir þú fyrir þig íþróttanám og starfaðir sem íþróttakennari ævilangt. Það sem einkenndi þig var fórnfýsi og greiðvikni í garð ættingja og vina, hlý kímnigáfa og einstakur dugn- aður í leik og starfi, svo fátt eitt sé nefnt. Elsku Aldís, Heiðdís og fjöl- skyldur. Við samhryggjumst ykk- ur innilega og biðjum Guð um styrk á þessum erfiða tíma. Hugur okkar er hjá ykkur. Ég veit af lind, er líður fram sem ljúfur blær. Hún hvíslar lágt við klettastall sem kristall tær. Svo berst ég inn í bjartan sal og blessað vor. Þá verður jarðlífs gatan gleymd og gengin spor. (Hugrún) Þórdís Elva Jónsdóttir og börnin Linda María, Kristín Lilja og Jón Henrik ásamt fjölskyldum. Það var föstudaginn 13. des að sú harmafregn barst mér að mín kæra mágkona og vinur Linda væri dáin, ótrúlegt og óréttlátt þegar bjartir dagar voru í vænd- um. Linda var að ná sér eftir mjaðmauppskurð en í byrjun des. sl. þurfti hún að gangast undir hjartaaðgerð. Var hún útskrifuð eftir tæpa vikudvöl á spítala og hlakkaði mikið til að komast heim til að undirbúa jólahátíðina. En stóra kallið kom öllum að óvörum. Mín fyrstu kynni við Lindu eru tengd íþróttum. Linda var góð á skíðum en það var í skíðaferð til Sviss að leiðir okkar lágu saman. Var hún þar í hópferð ásamt Ernu systur sinni og mági með góðu fólki. Seinna áttum við Svala eftir að skíða mikið með Lindu okkar í Skálafelli. Ljúfar minningar með Lindu og dætrum er þær dvöldu hjá okkur í bústaðnum í Hestvík. Þetta var árlegur viðburður í mörg ár enda mikið tilhlökkunar- efni að fá þær mæðgur í heimsókn og var gjarnan tekinn sprettur á bátnum um vatnið. Á páskum fyr- ir nokkrum árum var farið í eft- irminnilega gönguferð á ísilögðu vatninu og í gegnum hellinn í Klumbu. Ævintýrin voru alltaf til staðar og þær mæðgur aufúsu- gestir. Blessuð sé minning minnar góðu mágkonu Lindu. Ég votta dætrum hennar, Heið- dísi og Aldísi, og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Kjartan Þorbergsson Í dag kveð ég ástkæra og ynd- islega mágkonu og vin, hana Lindu. Okkar leiðir lágu saman haustið 1976 þegar við hófum nám við Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni. Þar hófst fljótlega góður vinskapur á milli okkar, eins og annarra nemenda, þ. á m. tvíburasystur hennar, Ernu. Eftir útskriftina ’78 fór Linda að kenna sem íþróttakennari við Varmárs- kóla í Mosfellsbæ. Á þessum tíma var hún ein besta körfuboltakona Íslands og spilaði með KR eins og Erna syst- ir hennar. Voru þær systur mjög sam- rýndar alla tíð og varð Linda fljótt hluti af okkar tilveru, hvað varðar ferðalög og aðra viðburði sem við Erna tókum þátt í. Margs er að minnast, t.d. er við fórum þrjú saman til Bandaríkjanna ásamt fleiri íþróttakennurum 1979 á nor- rænt námskeið, skíðaferðir til Crans Montana, svo ekki sé minnst á öll ferðalögin hér innan- lands. Ógleymanleg er ferðin til Fáskrúðsfjarðar um páskana ’81 sem við fórum á Kermit (Ford Ecord árgerð ’73, frostpinna- grænn á litinn). Þegar við keyrð- um yfir Mýrdalssandinn hófum við Linda upp raust okkar og tók- um þvílíkar óperuaríur sem voru okkur ávallt minnisstæðar. Þær systur voru ávallt í góðu og miklu sambandi og tók Linda þátt í mörgum atburðum í lífi okkar Ernu. Samgladdist okkur með allt sem við tókum okkur fyrir hendur eða eignuðumst og ég tala nú ekki um þegar börnin okkar fæddust. Þá var sko Linda frænka mætt því henni var alltaf umhugað um að vita hvernig gengi hjá þeim, þeirra líðan og ekki var hún að spara við sig þegar hún var að gleðja þau með gjöfum. Hún hugs- aði þá meira um aðra en sjálfa sig. Við þrjú vorum saman í tveim skemmtilegum hópum sem hittast alltaf reglulega, annar þeirra eru íþróttakennarar sem útskrifuðust frá ÍKÍ ’78. Frá 2005 hefur sami kjarninn af þeim hist í 3-4 daga á sumri á mismunandi stöðum á landinu, jafnvel í útlöndum, þar sem farið er í gönguferðir og ým- islegt brallað. Hinn hópurinn eru Lallarnir sem hafa haldið saman frá ’07. Þar var Linda ávallt hrók- ur alls fagnaðar. Það hefur verið höggvið stórt skarð í þessa hópa og hennar verður sárt saknað, en minningin um Lindu lifir. Einn er sá staður sem var Lindu hjartfólginn sérstaklega sl. 25 ár en það var Sæból í Haukadal í Dýrafirði, þar sem faðir hennar hafði reist sumarhús ásamt bróð- ur sínum. Dvaldi hún þar alltaf á hverju sumri með dætrum sínum og öðrum, þ. á m. okkur. Þar leið henni vel og fannst gott að vera þar í kyrrð fjallanna og stutt í fjör- una. Árið 1991 eignaðist Linda tví- buradæturnar Aldísi og Heiðdísi sem breytti lífi hennar að sjálf- sögðu. Hún ól þær upp ein alla tíð, með góðri aðstoð fjölskyldunnar. Þær eru í dag í sambúð og á Aldís dótturina Dagnýju Láru 7 ára, missir þeirra er mikill. Elsku Aldís, Valmir, Dagný Lára, Heiðdís og Eggert, megi góður guð styrkja ykkur á þessum tímum. Elsku Linda, hversu óraun- verulegt er það að þú sért farin frá okkur og að maður fái ekki að sjá þig koma inn og segja eitthvað með blik í augum og blikka! Linda mín, takk fyrir sam- veruna, eins og þú sagðir oft er þú kvaddir, og hafðu þökk fyrir öll ár- in sem við fengum að njóta með þér. Þú lifir áfram í hjörtum okk- ar. Ólafur Ágúst Gíslason. Elsku Linda frænka. Sárt þykir okkur að þurfa að kveðja þig svona skyndilega og það langt fyrir aldur fram. Lífið var að leika við þig og allt að fara til betri vegar þegar allt í einu ertu Jórunn Linda Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.