Morgunblaðið - 06.01.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Vestfjarðavegur um Dynjandisheiði og
Bíldudalsvegur frá Bíldudalsflugvelli að
Vestfjarðavegi á Dynjandisheiði
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummats-
skýrslu um vegaframkvæmdir á Dynjandisheiði og Bíldudalsvegi í
Vesturbyggð og Ísafjarðarbæ.
Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 6. janúar—17. febrúar á eftirtöldum stöðum: Bókasafni Bílddælinga,
Bókasafninu Ísafirði, Landsbókasafni Íslands og hjá Skipulags-
stofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar
www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 17. febrúar 2019 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105
Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfi-
salurinn er opinn kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur.
Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari
upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl.
12.30. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. s: 535 2700.
Dalbraut 18-20 Myndlist kl. 9 í vinnustofu. Brids kl. 13 í borðsal.
Dalbraut 27 Óli og Embla verða í setustofunni á fyrstu hæð kl. 10.30.
Píla í parketsalnum kl. 14.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl.
8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Félagsvist
kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir
óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Hjúkrunarfræðingur kl. 10. Núvitund kl.
10.30. Silkimálun kl. 12.30. Göngutúr um hverfið kl. 13. Handaband kl.
13. Bridge kl. 13. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30. Skák kl. 14.
Handavinnuhópur hittist kl. 15.30. Verið öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar í síma 411 9450.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl 8.30-16.
Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong 10-11. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-
11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gullsmára Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30 og 17. Bridge og
handavinna kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Jóga með
Carynu kl. 8.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Jóga með Ragnheiði kl. 11.10.
Jóga með Ragnheiði kl. 12.05. Tálgun – opinn hópur kl. 13-16. Frjáls
spilamennska kl. 13. Stólaleikfimi kl. 13.30.
Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Ganga kl. 10 í dag
gengið frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll, vonumst til
að sjá ykkur sem flest. Félagsvist kl. 13 í dag í Borgum og skartgripa-
gerð á sama tíma í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16. Gönguhópurinn kl. 13.30, bíó í betri
stofunni kl. 15.30. Uppl í s. 411 2760.
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheim. kl. 9. og 13. Leir á
Skólabraut kl. 9. Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum
kl. 10.30. Jóga á Skólabraut kl. 11. Handavinna á Skólabraut kl. 13.
Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Nk. miðvikudag 8. jan. kl. 19.30
er árleg SÖNGVEILSA SELKÓRSINS í safnaðarheimili SELTJARNAR-
NESKIRKJU. Söngur, súkkulaði og krásir. Allir velkomnir.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið kl. 10-16. Heitt á
könnunni kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er kl.
11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist kl.
13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er: 568 2586.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
SANDBLÁSTUR
www.blastur.is
Sími 555 6005
Helluhrauni 6, 220 Hf.
Raðauglýsingar
með
morgun-
nu
✝ Kjartan BjarniKristjánsson
fæddist í Hnífsdal
á 9. apríl 1933.
Hann lést í Skóg-
arhlíð á Öldrunar-
heimilum Akur-
eyrar 20.
desember 2019.
Foreldrar Kjart-
ans voru Kristján
Jónsson, skóla-
stjóri og organisti,
f. 1897, d. 1988,og Sigríður
Kjartansdóttir kennari, f. 1901,
d. 1956. Systkini hans eru
Kristjana, f. 1936, Elísabet, f.
1939, Jón Kristinn, f. 1942, d.
1994, og Kristján Sigurður, f.
1942.
Kjartan kvæntist 1958 eigin-
konu sinni Jóhönnu Valdemars-
dóttur snyrtifræðingi, f. 1933,
d. 2017, og áttu þau eina dótt-
ur, Sigríði, f. 1961. Eiginmaður
hennar er Kristján Þórhallur
Halldórsson, f. 1961, börn
bjuggu þar fram að Heima-
eyjargosi en fluttu þá til Akur-
eyrar. Kjartan vann ýmis verk-
fræðistörf, lengst af við
ullariðnað, en fór síðar í
kennsluréttindanám og kenndi
við Verkmenntaskólann á
Akureyri síðasta hluta starfs-
ævinnar.
Kjartan og Jóhanna byggðu
og áttu sumarbústaðinn Hálsa-
kot í Varmahlíð í Skagafirði,
það var þeirra sælureitur þar
sem þau ræktuðu upp dásam-
legan skógarreit úr fyrrver-
andi hrossabeitarhólfi. Kjartan
átti mörg önnur áhugamál,
hann las mikið um hin fjöl-
breyttustu efni, allt frá vís-
indum og tækni til andlegra
mála, hann stundaði stangveiði
og fluguhnýtingar, var alltaf
duglegur að hreyfa sig og
stunda líkamsrækt og var virk-
ur í Oddfellowhreyfingunni
eftir því sem heilsa leyfði.
Síðasta árið bjó Kjartan í
Skógarhlíð á Öldrunarheimil-
um Akureyrar þar sem hann
naut virðingar og góðrar
umönnunar.
Útför hans verður frá Akur-
eyrarkirkju í dag, 6. janúar
2020, klukkan 13.30.
þeirra eru: 1) Kjart-
an Bjarni, f. 1990,
rafmagnsverkfræð-
ingur, sambýliskona
hans er Erla Sara
Svavarsdóttir, f.
1989, dóttir þeirra
er Halldóra Laufey,
f. 2018. 2) Guðrún,
f. 1993, læknanemi.
3) Auður, f. 1993,
nemi í sjúkraþjálf-
un, unnusti hennar
er Magnús Finnsson, f. 1993. 4)
Ingunn Jóhanna, f. 1999, nemi í
íslensku.
Kjartan ólst upp í Hnífsdal,
fór svo til náms í Mennta-
skólann á Akureyri og þaðan í
Háskóla Íslands þar sem hann
lærði verkfræði og útskrifaðist
sem rafmagnsverkfræðingur
frá Kaupmannahafnarháskóla.
Kjartan og Jóhanna fluttu heim
frá Danmörku 1962 og eftir
stutta dvöl í Reykjavík fóru
þau til Vestmannaeyja og
Það eru tímamót því hann
Kjartan frændi okkar er dáinn.
Hann var frumburður foreldra
sinna og eftir ömmu Sigríði ligg-
ur dagbók sem hófst við fæðingu
hans.
Samkvæmt dagbókinni var
Kjartan einstakt barn, ljúfur,
umhyggjusamur og blíður. Hann
var líka þannig maður. Í dagbók
ömmu segir hún frá því þegar
hann var farinn að heiman í
menntaskóla og kom heim í
jólafrí og hún spurði hann hvort
hann hefði ekki komið með
óhreinu fötin til að hún gæti
þvegið þau yfir jólin. Hann sagð-
ist ekki hafa gert það – honum
hefði ekki þótt það sonarleg jóla-
gjöf til móður sinnar.
Kjartan og Jóhanna kona hans
voru einstaklega glæsileg hjón og
höfðu yfir sér ákveðinn ljóma
þegar þau komu í Hnífsdalinn
þegar við vorum að alast þar upp.
Alltaf á glæsilegum Citroen-bíl
sem lyftist að aftan þegar hann
var gangsettur, og Sidda, flotta
stóra frænka okkar með þeim
fyrstu árin allavega.
Þau voru samofin Kjartan og
Jóhanna, Jóhanna og Kjartan,
heimsborgarar, ferðuðust mikið
og bjuggu um tíma erlendis. Hjá
þeim í Norðurbyggðinni var allt í
föstum skorðum og fallegt. Þang-
að fannst vestfirsku börnunum
spennandi að koma og var ávallt
tekið fagnandi af mikilli gestrisni.
Kjartan var frændrækinn og
þau Kjartan og Jóhanna mættu
alltaf galvösk á fjölskyldumótin
okkar í Fremri-Hnífsdal sem við
byrjuðum að halda 1997. Þó hann
hefði aðeins búið í dalnum tæp-
lega fyrsta fjórðung lífsins voru
ræturnar þar og verðmætar
minningar. Það fundum við í
hvert sinn sem við hittumst.
Við systkinin og fjölskyldur
okkar vottum Siddu frænku og
hennar fjölskyldu einlæga samúð
um leið og við þökkum Kjartani
frænda allar góðu stundirnar.
Sigríður Ólöf,
Harpa Lind,
Gísli Már og Kristján Þór
Kristjánsbörn.
Þegar ég var að alast upp í
Brekku þótti mér afskaplega
hressandi þegar Kjartan og Jó-
hanna móðursystir mín komu í
heimsókn. Mér þótti þau bera
með sér andblæ framandi landa,
menntuð í útlöndum og að fást við
hluti sem ekki var verið að fást
við í sveitinni. Kjartan oft með
myndavélina á lofti, eini maður-
inn í fjölskyldunni sem stundaði
þá iðju.
Þau Kjartan og Jóhanna voru
eins og eitt, einstaklega samrýnd
og alltaf saman. Þau undu sér
best í Hálsakoti, skika í kringum
bústaðinn þeirra í Varmahlíð, þar
sem þau ræktuðu skóg svo mik-
inn að þau höfðu ekki undan að
höggva hin síðari ár.
Þegar ég fór í menntaskóla á
Akureyri var ég heimagangur
hjá þeim Jóhönnu og Kjartani.
Ósköp var gott fyrir óharðnaðan
ungling sem var sendur að heim-
an til að búa á heimavist að eiga
fastan punkt í tilverunni þar sem
hægt var að koma, fá í svanginn
og finna smá umhyggju. Ekki var
verra að eiga Kjartan að þegar
illa gekk við námið. Taldi hann
ekki eftir sér að sitja með mér og
koma mér í samband við dídí den-
der og aðrar lykilpersónur í
þýskri málfræði eða sannanir í
stærðfræði, enda á heimavelli á
báðum vígstöðvum.
Á seinni árum lágu leiðir okkar
Kjartans saman í gegnum lax-
veiði. Ég kynnti Kjartan laxveiði
í Sæmundará og seinna fórum við
mörg ár saman í Selá í Vopna-
firði. Þetta voru afskaplega
ánægjulegar ferðir; hjá Kjartani
fór saman mikill áhugi á veiðinni
og sérlega þægileg nærvera.
„Er þetta ekki bara orðið
gott?“ sagði Jóhanna við mig
þegar við heimsóttum hana til að
kveðja í síðasta sinn fyrir tveimur
árum. „Að hafa fengið að eiga
svona gott líf, að vera ástfangin
alla daga,“ bætti hún við, hló eins
og unglingur og tók í höndina á
Kjartani, sem sat við rúmstokk-
inn hjá henni við hlið mér. Nú
fyrir jólin fannst Kjartani þetta
líka vera orðið gott og kominn
tími til að fara til Jóhönnu sinnar.
Nú eru þau sameinuð á ný, geta
ræktað skóg sinn í sumarlandinu
og verið áfram ástfangin alla
daga.
Ég þakka fyrir mig, fyrir
ánægjulega samfylgd og stuðn-
ing í gegnum lífið.
Magnús Ingi Óskarsson.
Kjartan Bjarni
Kristjánsson
✝ Ásta SigríðurÞorleifsdóttir
fæddist í Hafnar-
firði 25. júlí 1921.
Hún lést á Sól-
vangi í Hafnarfirði
17. desember 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Þorleifur
Jónsson, f. 1896, d.
1983, og Margrét
Oddsdóttir, f.
1891, d. 1983.
Eiginmaður Ástu Sígríðar
var Halldór Baldvinsson skip-
stjóri, f. 1921, d. 1999. Börn
Sigríðar og Halldórs eru: 1)
Baldvin prentsmiður, f. 1944.
Eiginkona Ragnhildur Lýðs-
dóttir, f. 1941. Börn þeirra eru
Halldór, f. 1969, Aldís, f. 1972,
Ragnar Baldvin, f. 1976. 2)
Margrét, f. 1945. Eiginmaður
Gunnlaugur Gunnlaugsson, f.
1949. Dóttir Margrétar með
Sigurði Georgssyni er Erla, f.
1964. Dætur Margrétar og
Gunnlaugs eru Sigríður, f.
1968, og Jóhanna, f. 1973. 3)
Björgvin, tónlist-
armaður og fram-
kvæmdastjóri, f.
1951. Eiginkona
Ragnheiður Björk
Reynisdóttir, f.
1954. Sonur Björg-
vins með Þórunni
Ólafsdóttur er Sig-
urður Þór, f. 1971.
Börn Björgvins og
Ragnheiðar eru
Svala Karitas, f.
1977, og Oddur Hrafn, f. 1979.
4) Helga, starfsmaður á Hrafn-
istu, f. 1952. Eiginmaður Hass-
an Ouhna, f. 1968. Sonur
Helgu er David Halldórsson, f.
1969. 5) Oddur prentsmiður, f.
1959. Sambýliskona Ásta Mar-
grét Gunnarsdóttir, f. 1955.
Börn Odds með Elísabetu
Böðvarsdóttur eru Böðvar, f.
1984, d. 2010, og Ásta Sigríð-
ur, f. 1993.
Útför Ástu Sigríðar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
6. janúar 2020, og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Í dag fylgjum við móður minni,
Ástu Sigríði Þorleifsdóttur, til
grafar. Margar og góðar minn-
ingar koma upp í hugann í dag
sem við munum geyma vel og
vandlega. Mamma var vinmörg
og mjög félagslynd og hafði gam-
an af að vera innan um fólk og
fólk varð ríkara af að kynnast
henni. Kímnigáfa hennar var
engu lík. Orðtök hennar og sögur
sem og lýsingar hennar á fólki
einstakar. Hún var mjög músík-
ölsk og leitaði ég oft í lagabanka
hennar til að finna réttu lögin.
Hún fylgdist mjög vel með tón-
listarbransanum og hafði gaman
af að hlusta á nýjustu listamenn-
ina flytja lög sín. Mamma var
heilsuhraust allt sitt líf þar til hár
aldurinn fór að gera vart við sig.
Hún var svo til nýflutt í nýju álm-
una á Sólvangi og undi sér vel.
Ég vil nota þetta tækifæri og
þakka starfsfólki Sólvangs fyrir
hlýjuna og frábæra umönnun
sem þau veittu henni. Ég vil
þakka mömmu fyrir allt sem hún
gaf okkur frá æskudögum til
dagsins í dag.
Takk fyrir að hjálpa mér að
skilja lífið betur. Takk fyrir að
trúa alltaf á mig og styðja mig í
mínum ákvörðunum í lífinu.
Góða ferð elsku mamma. Bið
að heilsa pabba sem tekur á móti
þér. Blessi allar góðar vættir
minningu mömmu.
Ég trúi því af hverjum dropa regn
sem féll sé vaxin rós.
Ég trúi því að dýpst í hinni dimmu
nótt sé lítið ljós.
Ég trúi því að hverjum þeim sem
villtur fór
sé vísað fram á rétta leið
Ég trúi því. Já. Ég trúi því.
Ég trúi því að gegnum storminn
hljómi skært
hver minnsta bæn.
Að einhvers staðar finnist sá sem
heyrir allt.
Er grætur nýfætt barn, er grænka
lauf á tré.
Er birtir til ég veit á ný.
Vegna hvers. Ég trúi því.
Er grætur nýfætt barn er grænka
lauf á tré
Er birtir til ég veit á ný.
Vegna hvers. Ég trúi því.
(Á. Níelsson)
Björgvin Halldórsson
og fjölskylda.
Mig langar til að minnast góðr-
ar nágrannakonu minnar og vin-
konu, Ástu Sigríðar Þorleifsdótt-
ur, sem alla tíð var kölluð Sigga.
Hún var sannur Hafnfirðingur,
fædd og uppalin í þessum fagra
bæ. Við vorum nágrannar á Álfa-
skeiðinu frá því frumbyggjend-
urnir voru að koma sér fyrir. Þar
á meðal voru Halldór og Sigga
með tvö elstu börnin, Baldvin og
Margréti. Síðan bættust við
Björgvin, Helga og Oddur. Sigga
þekkti Hafnarfjörð og flesta
Hafnfirðinga betur en margir.
Það var gaman að heimsækja
hana, fræðast um liðna daga,
menn og málefni. Meðal annars
hvernig bærinn okkar hefur tekið
stakkaskiptum í gegnum árin og
frá hennar unga aldri. Hún var
hafsjór af skemmtilegum minn-
ingum. Sigga var ekki alltaf í for-
tíðinni. Nei, hún fylgdist mjög vel
með því sem var að gerast í sam-
félaginu á okkar tímum þótt árin
hafi verið orðin 98. Hún var mikill
lestrarhestur, enda var það henn-
ar áhugamál að lesa spennubæk-
ur og gera handavinnu. Sigga var
létt í spori og fínleg dama. Hún
talaði oft um tískuna og vissi al-
veg hvað var „móðins“. Það var
oft gestkvæmt hjá þessari
skemmtilegu og gestrisnu konu.
Gestirnir voru á öllum aldri og
var yngri kynslóðin iðin við að
heimsækja hana. Texti lagsins
Mamma, sem Björgvin söng svo
fallega á jólatónleikum sínum og
tileinkaði mömmu sinni, átti vel
við hana. Sigga gat búið heima
hjá sér í hárri elli með aðstoð
Helgu dóttur sinnar og tengda-
sonar, Hassan, sem fluttu inn til
hennar og sinntu henni einstak-
lega vel. Svo kom að því að heilsa
hennar og þrek dvínaði og fluttist
hún á Hjúkrunarheimilið Sólvang
síðasta æviárið og fékk góða
umönnun hjá starfsfólkinu þar.
Skuggi, kisan hennar Siggu til 19
ára, dó fyrir nokkrum vikum og
var orðinn háaldraður. Aska hans
fylgir fóstru sinni til Drauma-
landsins. Skuggi hvíldi sig mikið í
fangi Siggu og kunni hún að meta
hve hann var góður og gæfur vin-
ur.
Mér er efst í huga þakklæti
fyrir góðar og glaðar samveru-
stundir sem við áttum í gegnum
árin.
Sendi fjölskyldu Siggu innileg-
ar samúðarkveðjur.
Hvíl í friði kæra vinkona.
Birna Loftsdóttir.
Ásta Sigríður
Þorleifsdóttir