Morgunblaðið - 06.01.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur
tekið jákvætt í umsókn fyrir-
tækisins Zephyr Iceland um leyfi
til uppsetningar á búnaði til að
mæla vindaðstæður á Syðri-
Fljótum og Slýjum í Meðallandi.
Fyrirtækið er með uppsetningu
vindorkugarðs á svæðinu til skoð-
unar. Ketill Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Zephyr á Íslandi,
segir að í Meðallandi séu góðar
vindaðstæður sem bjóði upp á mik-
ið afl, en á móti vinni fjarlægð frá
flutningskerfi.
Á borðum sveitarstjórna
Fyrirtækið hefur skoðað að-
stæður á fleiri stöðum víða um land
og rætt við landeigendur, en engar
ákvarðanir hafa verið teknar um
byggingu vindorkugarða. Umsóknir
um rannsóknaleyfi og vindmælingar
eru nú á borðum nokkurra sveitar-
stjórna vegna u.þ.b. tíu svæða að
sögn Ketils. Hann vill að svo stöddu
ekki greina frá hvaða svæði eru
einkum til skoðunar, enda vilji fyrir-
tækið fyrst kynna öllum hlutaðeig-
andi aðilum hugmyndirnar.
Þá segir hann að ferli rannsókna
og leyfisveitinga geti tekið tals-
verðan tíma og ýmislegt sé óljóst
varðandi lagaumgjörð og hvort
vindorkan fari undir rammaáætlun.
Að loknu rannsókna- og leyfisferli
geti vindorkugarður risið á tiltölu-
lega skömmum tíma samanborið við
vatnsorku og jarðvarma. Fjárfest-
ing hljóti að fara eftir eftirspurn, en
víða á landinu séu aðstæður góðar.
Ketill segir að miðað við mark-
aðsaðstæður hérlendis sé fremur
ólíklegt að hver vindorkugarður
verði stærri en sem nemur u.þ.b. 50
megavöttum, þ.e. um 12 vindmyllur,
en slík fjárfesting geti verið hátt í
10 milljarða króna.
Í eigu sveitarfélaga
Móðurfyrirtæki Zephyr á Íslandi
er norska vindorkufyrirtækið Zep-
hyr. Það er í eigu þriggja norskra
vatnsaflsfyrirtækja, sem öll eru í
eigu sveitarfélaga í Noregi. Zephyr
er nú með um 500 megavött af vind-
afli í rekstri og um 200 MW bætast
við næsta haust. Fyrirtækið selur
orkuna einkum með langtímasamn-
ingum til stórfyrirtækja. Þannig er
Google kaupandi að allri orkunni frá
um 160 MW vindorkugarði og við-
bótin á næsta ári hefur verið seld til
Alcoa í Noregi.
Vindorkugarðar Zephyr eru eink-
um nálægt vesturströnd Noregs og
ekki innan sveitarfélaganna sem
eiga fyrirtækið, enda eru þeir
byggðir þar sem vindaðstæður eru
hvað bestar.
Hyggjast mæla vindinn í Meðallandi
Ljósmynd/Zephyr
Vindorka Nýjasti vindorkugarðurinn á vegum Zephyr verður tekinn í notk-
un í haust og framleiðir um 200 megavött. Alcoa í Noregi kaupir rafmagnið.
Zephyr á Íslandi sækir um rannsóknaleyfi vegna mögulegra vindorkugarða á nokkrum stöðum
á landinu Móðurfyrirtækið í Noregi með um 500 megavött í rekstri og 200 bætast við í haust
Nýjasta mynd Ragnars Bragasonar, hér fyrir miðju,
var frumsýnd í Háskólabíói í gærkvöld. Á meðal leik-
ara í myndinni eru Hallgrímur Ólafsson, hér lengst til
vinstri, Sigrún Edda Björnsdóttir, honum við hlið, svo
og Halldóra Geirharðsdóttir, lengst til hægri. Guðni
Th. Jóhannesson forseti mætti og fagnaði með.
Fjöldi fólks í Háskólabíói í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fögnuðu frumsýningu Gullregns
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Útgáfa hljóðbóka á íslensku hefur
aldrei verið meiri en á síðasta ári.
Alls komu út um 400 íslenskar hljóð-
bækur sem er
tæplega tvöföld-
un frá 2018. Stef-
án Hjörleifsson,
framkvæmda-
stjóri hljóð-
bókaveitunnar
Storytel á Ís-
landi, segir að
aukin útgáfa og
lestur hljóðbóka
sé jákvæð fyrir
íslenska bókaút-
gáfu enda hafi veltan í sölu hefð-
bundinna bóka verið svipuð eða
minni á síðasta ári en árið áður. Eins
og kom fram í Morgunblaðinu á
föstudag mun árið að líkindum enda
í 20% vexti hjá íslenskri bókaútgáfu
milli ára í heild ef rafrænar hljóð-
bækur eru teknar með.
„Þrátt fyrir að endanlegar sölutöl-
ur hefðbundinna bóka liggi ekki fyr-
ir þá blasir það við að hljóðbækur
eru meginástæða þessa mikla og
ánægjulega vaxtar bókageirans.
Hljóðbækur eru nú um 15% af heild-
armarkaði íslenskrar bókaútgáfu ef
miðað er við veltu,“ segir Stefán sem
bendir á að fyrir tveimur árum hafi
hljóðbækur mælst innan við 1% af
heildarútgáfu bóka á Íslandi.
Um 600 titlar í fyrra
Stefáni telst til að um 600 íslensk-
ir titlar hljóðbóka hafi komið út árið
2019. Þar af eru um 400 hefð-
bundnar hljóðbækur í öllum flokkum
en einnig komu út um 200 óhefð-
bundnari hljóðbækur sem hlaðvörp
sem öll tengjast bókum á einn eða
annan hátt. „Þessi hlaðvörp eru sér-
staklega skrifuð fyrir Storytel og
sem dæmi má nefna afar áhugaverð-
an bókaflokk Illuga Jökulssonar sem
byggður eru á efni gamalla íslenskra
bóka og hefur notið mikilla vinsælda.
Einnig hefur það færst í vöxt hjá
Storytel að bækur komi nú fyrst út,
eða aðeins, sem hljóðbækur og á því
verður mikil aukning á þessu ári,“
segir Stefán.
Hljóðbækur 15%
af bókamarkaði
Fjöldi titla tvöfaldaðist milli ára
Stefán
Hjörleifsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tvær lægðir sem eru á leið til lands-
ins geta valdið erfiðleikum í sam-
göngum, frekar þó á morgun en í dag.
Veðurstofan gaf í gær út gula veð-
urviðvörun fyrir daginn í dag, fyrir
Suðausturland frá hádegi í dag og
Austfirði í kvöld.
Í viðvörun Veðurstofunnar kemur
fram að búist er við að vindhraði í
vestanhvassvirði eða stormi verði 15-
23 metrar á sekúndu á Suðaustur-
landi og Austfjörðum og staðbundnir
vindstrengir geti farið upp í 30-35
metra. Hvassast verður í Mýrdal og
Öræfum. Viðvaranirnar gilda síðdeg-
is í dag og kvöld. Ökumenn eru hvatt-
ir til að fara varlega og íbúar á Aust-
fjörðum að tryggja lausamuni sem
eru utan dyra. Vestanáttin fer vax-
andi í dag og nær hámarki í kvöld og
víða verða él.
Veðurhæðin ræðst af ýmsu
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræð-
ingur hjá Veðurvaktinni, hefur meiri
áhyggjur af djúpri lægð sem kemur
að landinu á morgun. „Ef þessi spá
gengur eftir skellur á okkur mikill
vestanhvellur sunnan lægðarmiðj-
unnar þar sem kalt loftið vestan að
þrengir sér undir mildara loft við
miðju lægðarinnar,“ skrifaði Einar á
veðurvefinn Bliku. Tók hann fram að
veðurhæðin réðist af ýmsu, svo sem
risi loftþrýstings í kjölfarið og ná-
kvæmri staðsetningu lægðarmiðj-
unnar.
Skafrenningur og hálka var víða á
fjallvegum í gær og gærkvöldi en eng-
ir vegir lokaðir vegna veðurs. Þriggja
bíla árekstur varð í Bakkaselsbrekku,
sem liggur úr Öxnadal upp á Öxna-
dalsheiði, klukkan hálffjögur í gær.
Urðu smávægilegar tafir á umferð
um hringveginn vegna atviksins.
Enginn meiddist í árekstrinum en bíl-
arnir voru taldi óökufærir.
Leiðindaveður var á landinu á laug-
ardag og urðu nokkrar tafir á sam-
göngum. Náði veðrið hámarki á vest-
anverðu landinu um hádegið.
Nokkurt tjón varð í Urriðaholti í
Garðabæ um hádegið þegar bygg-
ingakrani féll á einbýlishús við
Hraungötu og bíl sem þar stóð. Þak
hússins skemmdist og rúða brotnaði í
bílnum. Vinnueftirlitið var kallað á
staðinn og jafnframt gengið í það að
fjarlægja kranann og laga þakið á
húsinu til bráðabirgða.
Varað við vestanhvelli á morgun
Tvær lægðir nálgast landið Veðurstofan hvetur vegfarendur á Suðausturlandi og Austfjörðum til
að fara varlega Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við djúpu lægðinni sem nálgast á morgun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ófærð Margir ökumenn lentu í vandræðum, festu bíla sína innan bæja og ut-
an, í óveðrinu sem gekk yfir landið um helgina. Allir losnuðu að lokum.