Morgunblaðið - 06.01.2020, Síða 9

Morgunblaðið - 06.01.2020, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020 Í drögum að reglugerð um rafræna aflaskráningu, sem kynnt hefur ver- ið á samráðsgátt stjórnvalda, segir að allar skráningar verði rafrænar, annaðhvort í rafrænni afladagbók eða með smáforriti. Í kynningu á verkefninu segir að verið sé að vinna að þróun snjallsímaforrits til afla- skráningar. Stefnt sé að því að for- ritið verði tilbúið í byrjun árs 2020 og að öll skip, stór og smá, skrái afla með rafrænum hætti frá og með 1. september 2020. Afladagbók á pappírsformi muni því heyra sög- unni til. Meðal helstu breytinga sem reglugerðardrögin fela í sér er að upplýsingar í afladagbók munu ekki lengur njóta leyndar. Rökin fyrir því séu þau að nú sjáist á net- inu hvar skip eru við veiðar og því sé núverandi leynd orðin ástæðu- laus. Áður var miðað við að upplýs- ingar sem skráðar voru í afla- dagbækur skyldu nýtast í vísinda- legum tilgangi fyrir Hafrann- sóknastofnun, sem eftirlitsgögn fyrir Fiskistofu og Landhelgisgæslu og til annarra verkefna sem varða stjórnun fiskveiða. Að öðru leyti áttu upplýsingar úr afladagbókum að vera trúnaðarmál milli ofangreindra aðila og skipstjóra. Aflaskráningu með rafrænum hætti á að ljúka áður en lagst er að landi, en áður höfðu útgerðir tvær vikur til að skila henni eftir að í land var komið. Í annarri athugasemdinni sem fyrir helgi var komin við drögin er bent á að erfitt geti verið að skrá í appið, þar sem sums staðar sé ekkert netsamband nema við bryggju. aij@mbl.is Unnið að þróun snjallsímaforrits fyrir rafræna aflaskráningu Morgunblaðið/Alfons Smábátar Nú verða stjórnendur skipa að skila inn rafrænni afladagbók. „Kveðið er á um bótaskyldu í jafn- réttislögunum, og þá er bara reynt að finna út hvað eru sann- gjarnar bætur,“ sagði Einar Karl Hallvarðsson rík- islögmaður í samtali við Morg- unblaðið um 20 milljóna króna bótagreiðslur til Ólínu Þorvarðardóttur vegna ráðn- ingar í starf þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum. Nefndi hann að í þessu máli væri miðað við 18 mánaða laun en skip- unartíminn í starfið væri 5 ár. „Eins og í öllum tilvikum þar sem við telj- um að bótaskylda sé óumflýjanleg þá er reynt að finna einhverja lend- ingu,“ segir hann og bætir við að slíkar ákvarðanir séu eðli máls samkvæmt ætíð matskenndar. Að- spurður segir hann bótafjárhæð þó alls ekki pólitíska. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra sagði málið ekki hafa komið inn á borð til sín. Hvorki náðist í Katrínu Jakobs- dóttur forsætisráðherra né Guð- mund Inga Guðbrandsson umhverfisráðherra. Töldu tuttugu milljónir sann- gjarnar bætur Ólína Þorvarðardóttir Landvernd hefur hlotið styrk upp á tæplega 2,5 milljónir króna frá 66° Norður. Styrkurinn er afrakstur þess að fyrirtækið bauð ekki upp á sérkjör á svokölluðum „Svörtum föstudegi“ heldur lét 25% af allri sölu í vefverslun dagana 29. nóv- ember til 1. desember sl. renna til Landverndar. Fannar Páll Aðalsteinsson, mark- aðsstjóri 66° Norður, afhenti Auði Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, styrkinn nýverið. Í tilkynningu er haft eftir Auði að styrkurinn komi sér mjög vel fyrir samtökin. Landvernd fær styrk frá 66° Norður Styrkur Auður Magnúsdóttir, Landvernd, og Fannar Páll Aðalsteinsson, 66° Norður. Allt tiltækt slökkvilið var kallað að íbúðarhúsi í Hafnarfirði um klukk- an tvö aðfaranótt sunnudags eftir að tilkynnt var um eld í íbúð. Eldur hafði komið upp í potti á eldavél. Einn var í íbúðinni, sem er á mið- hæð í fjölbýlishúsi, og komst hann út úr henni af sjálfsdáðum. Var hann fluttur á sjúkrahús til að- hlynningar. Slökkvistarf tók um klukkustund en íbúðin er mjög illa farin. Eldur kom upp í eld- húsi í Hafnarfirði Útsala - Frábær tilboð 10-50% afsláttur Ýmis sértilboð Örninn Golfverslun Bíldshöfða 9 577-2525 www.orninngolf.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.