Morgunblaðið - 06.01.2020, Side 19

Morgunblaðið - 06.01.2020, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2020 ✝ Hilmar HafsteinSvavarsson fæddist í Reykjavík 4. mars 1940. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvogi 18. desember 2019. Foreldrar hans voru Sigríður Guð- mundsdóttir, fædd á Stokkseyri 6. des. 1913, d. 26. apríl 2009 og Svavar Haf- stein Jóhannsson, kennari og bókari, fæddur í Reykjavík 21. júní 1914, d. 3. maí 1988. Al- bróðir Hilmars var Garðar Haf- stein Svavarsson kaupmaður í Reykjavík, f. 29. júní 1935, d. 7. nóv. 1997. Hálfsystkini í föður- ætt: Freygerður Erla verslm. Rvík., Örn kaupmaður Rvík., Droplaug húsmóðir í Kaup- mannahöfn, Kristófer Ingi fréttamaður Rvík., Ása Hlín leikkona Rvík. og Svavar Hrafn háskólakennari Rvík. Árið 1965 kvæntist Hilmar, Bjarnheiði Einarsdóttur frá Ólafsfirði, f. 17. nóv 1939, d. 10. des. 2019. Þau skildu. Synir þeirra eru Kristján Már, f. 18. sept. 1961 og Sigurður Smári, f. 18. ágúst 1965 sem lést af slys- förum 1983. Á síðasta ára- tug síðustu aldar kynntist Hilmar Elínu Sigurjóns- dóttur frá Vík í Mýrdal, f. 28. apríl 1945 og hófst með þeim vinátta og síðar sambúð sem stóð þar til yfir lauk. Hilmar lauk landsprófi árið 1956 og prófi í loftskeytafræð- um 1958. Starfaði hann sem loftskeytamaður á norsku skipi, síðan á ýmsum togurum, hjá Landhelgisgæslunni og á flutn- ingaskipum fram til ársins 1964. Þá réðst hann til starfa hjá bróður sínum Garðari, við Kjötverslun Tómasar Jónssonar á Laugavegi 2 og starfaði hann þar sem verslunarstjóri í hart- nær 20 ár. Árið 1984 réðst Hilmar til heildverslunarinnar Heilsa hf., sem hálfbróðir hans Örn Svavarsson rak, ásamt versluninni Heilsuhúsinu og starfaði þar í 16 ár eða til ársins 2000 er hann hætti störfum af heilsufarsástæðum. Útför Hilmars fer fram frá Seljakirkju í dag, 6. janúar 2020, klukkan 13. Hilmar bróðir rifjaði stundum upp hve honum hafi þótt atgang- urinn á kornabarninu mikill þeg- ar hann, þá 12 ára gamall, sá mig á brjósti móður minnar. Þetta voru hans fyrstu minningar af þessum hálfbróður sínum, sem næstur á eftir honum kom í átta systkina hópnum. Drátthagur var Hilmar með afbrigðum og hefur félagi hans úr barnaskóla sagt mér að bekkj- arfélagarnir vildu gjarnan eiga myndir eftir hann af Mikka mús og Andrési önd. Hilmar var hæfi- leikaríkur teiknari auk þess sem hann náði feiknagóðum tökum á olíumálun og meðferð vatnslita. Liggur allnokkur fjöldi lista- verka eftir hann og hélt hann m.a. sýningu á verkum sínum í Hannesarholti fyrri hluta árs 2018, þar sem svo til hvert verk seldist. Hann var einkar rækt- arlegur og gekkst upp í því að finna og færa fólki bækur eða hluti sem hann vissi að það lang- aði í en lágu kannski ekki á lausu og naut ég m.a. góðs af því. Líf og yndi Hilmars var stang- og skotveiði, einkum þó stang- veiðin eftir að árin færðust yfir og fjallgöngur til rjúpna reynd- ust lungum hans fullerfiðar í haustkulinu. Hilmar var mikill snillingur með flugustöngina og naut ég tilsagnar hans og drakk úr reynslubrunni þessa hæverska, ávallt miðlandi og gef- andi eldri bróður míns, í töfra- heimi fluguveiðinnar. Hann kenndi mér hvernig lesa átti veiðistaðina í Stóru-Laxá, sagði mér til í því magnaða fljóti Selá í Vopnafirði, hann kynnti mig fyr- ir Iðunni og öðrum sældarstöð- um fluguveiðimannsins, en fyrst og síðast áttum við ómældar ánægjustundir á bökkum „heimaárinnar“, Brúarár, þar sem hann veiddi vikulega allt sumarið. Þarna var gaman að vera með Hilmari, því hann fór aldrei niður að á öðruvísi en með kaffi í fleiri en einum brúsa og nesti í nokkr- um boxum. Og hvílíkur viður- gjörningur; margs konar matar- miklar samlokur og hangikjöts- flatkökur, að ógleymdu sæta- brauðinu sem órjúfanlega fylgdi með sem eftirmatur og svo aftur sem kruðerí um nónbil. Veiðin er ekki bara veiði, hún er sæla, un- aður og ævintýri í náttúrunni, mófuglakvak, spörfuglaskríkjur, árniður og félagsskapur við það góða fólk sem valist hefur með manni í þennan töfraheim. Hilmar var svo lánsamur að kynnast og hefja sambúð með Elínu, þeirri hæglátu atorku- konu, sem á sinn hæverska hátt dró fram allt það besta í mínum ágæta bróður. Ávallt er manni tekið með kostum og kynjum þegar maður rekur inn nefið á því hlýlega heimili í Hagaselinu. Ekki var síðra að líta inn í bú- staðnum, saman nutu þau alls stússins í hefðbundnu viðhaldi sumarbústaðarins og garðrækt- arinnar þar sem Elín fór fyrir og færði heimilinu kartöflur, gul- rætur, jarðarber og aðra garð- ávexti og barnabarnið og auga- steinninn Sóley skottaðist í kringum þau. Jafnframt hefur Elín tekið fullan þátt í veiðinni og eru þær ófáar bleikjurnar sem hún hefur landað úr Brúaránni. Allt jók þetta á gæðin í lífi Hilm- ars, ánægju og lífsfyllingu og El- ín segir mér að það hafi verið al- gerlega gagnkvæmt. Elín mín, missir þinn er mikill. Þeim sem næst Hilmari standa vottum við Stína hjartan- lega samúð okkar. Örn Svavarsson. Fallinn er frá listfengur höfð- ingi, Hilmar Hafstein Svavars- son. Ég var starfandi í miðbæ Reykjavíkur í tæp 40 ár. Litlu eftir að Hilmar gerðist verslun- arstjóri í kjötbúð Tómasar á Laugavegi 2 er var í eigu Garð- ars heitins bróður hans hófust fljótt kynni okkar er stóðu í ára- tugi. Ég og mínir samstarfsmenn keyptum jafnan hádegisverð í þeirri ágætu búð sem rekin var af kunnáttu og natni af Hilmari og reyndist það okkur vel. Ekki lét Hilmar þar við sitja heldur hélt hann okkur vikulegar veisl- ur eftir að ég flutti vinnustofu mína í vesturbæ Kópavogs fyrir rúmum 20 árum. Það eru orðin ófá skipti sem Hilmar kom síð- degis með nýbakað brauð og nokkuð af úrvalsáleggi og tók að undirbúa síðdegisveislu og oftast ráku margir inn nefið. Þetta var mjög vinsælt og gekk undir nafn- inu „Smurstöð Hilmars“. Hilmar lærði ungur loft- skeytafræði og starfaði lengi á ís- lenskum togurum og einnig á norskum kaupskipum. Nú eru ekki margir eftir af þeirri starfs- stétt. Hilmar var einnig virkur félagi í matarklúbbi okkar 12-14 félaga er gengur undir nafninu Ógeð, þar er áhersla lögð á rammíslenska rétti. Var hann eini Sunnlendingurinn en hinir af norðausturhorninu. Kom sér vel kunnátta hans í framreiðslu o.fl. Um þessar mundir er verið að skrifa æviminningar mínar og er áætlað að sú bók komi út fyrri hluta mars. Segja má að Hilmar hafi verið driffjöður í því verk- efni og verða myndir eftir hann í bókinni. Hann var mesti snilling- ur í vatnslitun og stærri mynd- um, akrýl og olíu. Einnig var hann liðtækur portrettmálari sem er vandasamt. Geta má þess að síðastliðið vor hélt Hilmar fal- lega málverkasýningu í Hannes- arholti. Hagyrðingur var hann góður og hafði jafnan snjallar stökur á hraðbergi mörgum til ánægju. Á yngri árum stundaði Hilmar rjúpnaveiði og hefur án efa hand- fjatlað fleiri rjúpur en nokkur Ís- lendingur. Var það mest í sam- bandi við Kjötbúð Tómasar er seldi fugl þennan utanlands og innan í áratugi, til dæmis í hinum frægu matarpökkum til útlanda. Draumalandið þeirra Elínar var sumarbústaðurinn í Gríms- nesi þar sem þau undu sér vel mikinn part af sumri og ræktuðu allskonar grænmeti. Þar í ná- grenni er Brúará, þessi bláa tæra elfa. Þar stunduðu þau veið- ar mikinn hluta sumars í áratugi. Hilmar var einnig þaulkunnugur flestum laxveiðiám landsins, ým- ist sem veiðimaður eða leiðsögu- maður. Okkur í matarklúbbnum er efst í huga þakklæti til þessa góða vinar og sendum Elínu Sig- urjónsdóttur og Kristjáni Má syni hans ásamt öðrum vensla- mönnum djúpar samúðarkveðj- ur. Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður. Andlát vinar míns, Hilmars H. Svavarssonar, kom mér ekki al- veg á óvart. Hann hafði um ára- bil ekki gengið heill til skógar en samt kom fregnin mér hálfvegis í opna skjöldu. Við höfðum talað saman í síma þremur dögum áð- ur og þá bar ekkert það á góma sem bent gæti til þess að stunda- glasið væri að tæmast. Það var veiðigyðjan sem leiddi okkur saman en við hana höfðum við báðir átt samneyti frá því við vorum strákar. Við vorum jafn- aldrar og orðnir nokkuð lífs- reyndir, hár og skegg báðum tekið að grána þegar við kynnt- umst. Okkur varð fljótt vel til vina, sem ég ásamt mínu fólki fékk einatt að njóta. Hilmar var margreyndur og snjall veiðimaður sem fór fimlega með veiðistöng – en ekki síður með penna og pensil, blek og liti. Hann bjó yfir fjölþættum list- rænum hæfileikum. Allt lék í höndum hans. Hann hafði gott brageyra, naut kveðskapar og orti sjálfur af ýmsu tilefni og fórst það vel. Sérstakur áhugi hans á fág- aðri og oft frumlegri matargerð fór ekki framhjá neinum og út- pældar kryddblöndur hans kitl- uðu bragðlaukana. Seint mun gleymast prúð- mannlegt yfirbragð, ómælt ör- læti og fágæt hjálpsemi þessa væna drengs. Elínu og öðrum aðstandend- um Hilmars færi ég samúðar- kveðjur. Pétur H. Ólafsson. Hilmar Hafstein Svavarsson ✝ Jónas SigurðurMagnússon fæddist í Reykjavík 3. ágúst 1955. Hann andaðist á Land- spítalanum 20. des- ember 2019. For- eldrar hans voru Magnús Jónasson skipasmíðameist- ari, f. 1. desember 1916, d. 6. maí 2007, og Anna Jóhanns- dóttir húsmóðir, f. 28. desember 1926, d. 8. febrúar 1998. Systkini Jónasar eru: Óskar, f. 21. febr- úar 1948, Guðrún, f. 23. mars 1960, og Edda, f. 4. desember 1964. Þann 22. nóvember 1975 kvæntist Jónas Nönnu Ólafs- dóttur hjúkrunarfræðingi, f. 27. júní 1952. Foreldrar hennar voru Ólafur Ólafsson læknir, f. 13. janúar 1924, d. 5. febrúar 1966, og Sigrún Ísaksdóttir rit- ari, f. 3. október 1932, d. 6. júní ín, f. 15. febrúar 2011 og Stefán, f. 4. júlí 2014. Jónas ólst upp í Smáíbúða- hverfinu í Fossvoginum, gekk í Réttarholtsskóla, húsasmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík 1976 og húsasmíðameistari 1978. Hóf störf hjá Lögreglunni í Reykja- vík að lokinni fyrri önn í Lög- regluskóla í des. 1981. Hann starfaði fyrst í almennri deild lögreglu, skipaður lögreglumað- ur frá jan. 1984 og rannsókn- arlögreglumaður í jan. 1997. Jónas tók þátt í hinum ýmsu félagsstörfum bæði innan og ut- an lögreglunnar og sat í stjórn hinna ýmsu samtaka, hann var meðal annars formaður Lands- sambands lögreglumanna 1992- 2002 og gjaldkeri BSRB 1997- 2006. Þá hlaut Jónas gull-, silfur- og bronsheiðursmerki Lands- sambands lögreglumanna fyrir félagsstörf sín í þágu lögreglu- manna. Jónas kom einnig að stofnun og uppbyggingu Golf- klúbbsins Glanna Borgarfirði og sat í stjórn félagsins frá stofnun og til dánardags. Útför hans fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag, 6. janúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 15. 1978. Börn Jónasar og Nönnu eru: 1) Sigrún Kristín, f. 21. október 1977, m. Eiríkur Ó. Jónsson, f. 13. ágúst 1972, synir: Halldór Ósk- ar, f. 15. maí 2002, Hermann Ingi, f. 31. maí 2005, Jónas Sig- urður, f. 27. ágúst 2008 og Magnús Óli, f. 14. mars 2012. 2) Anna Halldóra, f. 21. október 1977, m. Arnstein Njåstad, f. 4. nóvember 1967, sonur: Viðar, f. 10. maí 2017, dætur Arnsteins: Hilde, f. 26. mars 1994 og Tove, f. 1. júní 1995. 3) Magnús, f. 20. ágúst 1981, k. Þóra M. Guð- mundsd. Bech, f. 18. febrúar 1984, sonur: Guðmundur Óskar, f. 25. ágúst 2017, sonur Þóru: Kristján Gísli, f. 20. desember 2012. 4) Helga Ásdís, f. 12. apríl 1988, m. Hrafnkell Stefánsson, f. 13. apríl 1982, börn: Anna Krist- Í dag kveð ég elskulegan tengdaföður minn, Jónas Sig- urð Magnússon. Það sem er mér svo minnisstætt er þegar við Maggi sonur hans vorum að kynnast. Faðir minn, Guðmund- ur Guðjónsson, og Jónas unnu saman hér áður fyrr og þekkt- ust því ágætlega. Það fyrsta sem faðir minn sagði þegar hann frétti af kynnum okkar Magga var að ef Maggi væri líkur föður sínum þá væri hann góður maður. Jónas var góðhjartaður, ró- legur og hjálpsamur maður sem tók okkur Kristjáni Gísla, syni mínum, opnum örmum. Frá fyrstu tíð tókuð þið Nanna hon- um sem einu af barnabörnunum ykkar. Við hefðum ekki getað lent í betri fjölskyldu. Ferðin til Flórída var dásam- leg. Alltaf voru það barnabörn- in sem skiptu mestu máli og ég man þegar þú spurðir mig hvort Kristján Gísli myndi ekki hafa gaman af því að fara í Disney og fara í sjóræningja- skip. Alltaf varstu að hugsa um barnabörnin og fjölskylduna þína. Svo var það ferðin til Tene- rife. Þið Nanna fóruð ekki bara tvö til að slappa af heldur ákváðuð þið að taka með tvö barnabörn því þið vissuð hvað það yrði gaman fyrir Kristján Gísla að hafa leikfélaga. Ég trúi því ekki ennþá að þú skulir vera farinn, maður á besta aldri sem var alveg að fara að hætta að vinna og njóta lífsins með Nönnu þinni. Sárt er að hugsa til þess að sonur okkar Magga, Guðmundur Ósk- ar, sem er yngsta barnabarnið þitt, hafi ekki fengið lengri tíma með þér. Elsku Jónas, takk fyrir allt. Þóra Margrét Guðmundsdóttir Bech. Mágur okkar, hann Jónas, er látinn eftir stutta baráttu við krabbamein. Við taka minning- ar um góðan mann. Við kynnt- umst Jónasi sem unglingar og hann var litlu eldri, hann og Nanna systir nýbyrjuð saman. Þegar mamma okkar lést flutt- um við tvö inn á heimili þeirra. Þau tóku okkur bæði eins og ekkert væri sjálfsagðara en að þau rúmlega tvítug tækju að sér tvo unglinga. Þegar við síð- ar keyptum okkur íbúð og fór- um að búa sjálf, lagði Jónas parket á íbúðina og hjálpaði á alla lund. Margoft síðan höfum við fengið ráð og aðstoð sem hann veitti af vandvirkni og al- úð. Það var gott að leita til Jón- asar, hann taldi ekki eftir sér að aðstoða sitt fólk og vandaði allt sem hann tók að sér. Jónas var ábyrgur og traust- ur. Hann var ekki maður margra orða, hafði samt sterk- ar meiningar um menn og mál- efni líðandi stundar. Hann var mikill fjölskyldumaður, elskaði að ferðast með sínu fólki, dunda við húsið og sérstaklega garð- inn, sem ber honum fagurt vitni. Betri afa er vart hægt að hugsa sér. Litli kofinn sem hann smíðaði handa barnabörn- unum, allur tíminn og plássið sem þau hafa fengið á heimili afa og ömmu sýna hvern hug Jónas bar til barna og barna- barna sinna. Öllum leið vel hjá Nönnu og Jónasi, alltaf pláss fyrir óvænta matargesti eða hvern þann sem bar að garði. Þess höfum við bæði notið ríku- lega og verður seint fullþakkað. Stórt skarð hefur verið höggvið í fjölskylduna en mest- ur er missir Nönnu systur sem sér á eftir eiginmanni og föður barnanna þeirra fjögurra. Minningin lifir um góðan mann og yljar hjörtum okkar sem eft- ir lifum. Óskar Ólafsson og Helga Ólafsdóttir. Árið 1989 kallaði ég á minn fund lögreglumann, sem áhugi var á að fá til starfa í fíkniefna- deild. Ég var þá yfir- lögregluþjónn skipulags- og rannsóknardeildar lögreglunn- ar í Reykjavík. Þessi maður var Jónas Sigurður Magnússon. Í fíkniefnadeild starfaði hann í 13 ár. Árið 1997 kom út bókin Lög- reglan á Íslandi, stéttartal og saga. Ég er höfundur hennar ásamt Þorsteini Jónssyni. Bók- in var gefin út af Byggðir og bú ehf. í samvinnu við Landssam- band lögreglumanna. Um viða- mikið samstarfsverkefni var að ræða. Það kom í hlut Jónasar, sem formanns samtakanna, að rita inngang í bókina. Þar koma fram helstu þættir í sögu stétt- arfélagsmála lögreglunnar. Þetta var tímamótarit hvað efn- istök varðaði þar sem fléttað var saman æviskrám, söguþátt- um og ítarefni. Á árunum 2002 og 2003 vor- um við Jónas ásamt fleirum í nefnd embættis ríkislögreglu- stjóra, sem ég stýrði, um und- irbúning hátíðarhalda í tilefni af 200 ára afmæli hinnar einkenn- isklæddu lögreglu. Það starf fólst meðal annars í sögusýn- ingu lögreglunnar og kynningu á starfsemi hennar frá upphafi. Eitt af því var að semja ritið Ágrip af sögu lögreglunnar, sem ríkislögreglustjóri gaf út. Það var árangursríkt og ánægjulegt að starfa með Jón- asi enda var hann skarpgreind- ur og þægilegur í umgengni. Það þurfti ekki að hafa mörg orð við hann um hlutina. Nýr þáttur og náin samskipti hófust á milli okkar Jónasar þegar Magnús, sonur hans, og Þóra Margrét, dóttir mín, felldu hugi saman og giftu sig á árinu 2017. Jónas og Nanna kona hans voru mikið fjölskyldufólk og afabörnin tengdu okkur sterkum böndum. Sumarið 2018 fórum við Jónas ásamt fjöl- skyldum okkar í sumarfrí til Tenerife. Þar áttum við fjöl- skyldurnar saman góðar stund- ir sem lengi verður minnst. Við hjónin kveðjum Jónas með virðingu og hlýju. Við er- um stolt af því að hafa fengið að kynnast honum og tengjast fjöl- skylduböndum. Þá sendum við Nönnu og öðrum ástvinum Jón- asar okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Guðmundur Guðjónsson. Leiðir okkar Jónasar lágu fyrst saman aldamótaárið 2000. Nokkrir áhugamenn um bygg- ingu golfvallar í landi Hreða- vatns í Borgarfirði höfðu sam- mælst um að skoða grundvöll þess að byggja upp og reka golfvöll á svæðinu. Ein af for- sendum var að fá orlofsbyggð- ina í Munaðarnesi að uppbygg- ingunni. Jónas var þá tengiliður stjórnar BSRB inn í rekstrar- félagið og var hann því einn af fyrstu mönnum sem ég ræddi við. Jónas hafði strax jákvæða afstöðu til málsins og kynnti það fyrir stéttarfélögunum og forystu BSRB. Hann reyndist allt frá fyrsta degi áhugasamur um uppbyggingu vallarins og frá stofnun golfklúbbsins Glanna árið 2006 hefur hann setið í stjórn hans. Ekki fór hjá því að þátttaka Jónasar í upp- byggingu vallarins kveikti áhuga hans á íþróttinni og varð hann með árunum liðtækur kylfingur. Síðustu árin spiluðu þau hjónin og fleiri í fjölskyld- unni golf á Glannavelli sér til ánægju og yndisauka í fallegu umhverfi vallarins. Við fyrstu kynni mótaðist fljótt sú skoðun á Jónasi að þar færi heill og traustur maður sem ekki væri auðvelt að snúa ef hann hafði mótað sér skoðun á málum. Hann var ekki margmáll í hópi en þegar hann tók til máls var á hann hlustað því þar var ekki hrapað að niðurstöðu. Þessir eðliskostir Jónasar hafa án efa nýst honum vel í starfi lög- reglumannsins. Jónas vann óeigingjarnt starf að málum vallarins og fyrir það ber að þakka. Af hálfu stjórnar klúbbsins færi ég aðstandend- um einlægar samúðarkveðjur vegna ótímabærs fráfalls fjöl- skylduföðurins Viðar Þorsteinsson. Jónas Sigurður Magnússon  Fleiri minningargreinar um Jónas Sigurð Magnússon bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.