Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 Smáauglýsingar Bækur Bækur til sölu Íslensk bygging, Guðjón Samúelsson, Skýrslur um lands- hagi á Íslandi 1-5, Stafrófskver handa börnum 1874, Eylenda 1- 2, Kötlugosið 1918, Ættir Austur- Húnvetninga 1-4, Landsskjálftar á Íslandi Þ.T.H., Veiðimaðurinn 1. - 86. tbl. Skák, Heimsmeistara- einvígið 1972, 1-23, Leikhúsmál 1940-1950, Líf og list, Byggðir og bú, S.Þ., ‘63, Svarfdælingar 1-2, Ættir Austfirðinga 1-9, Félags- blað Nýalssinna, Inn til fjalla 1-3, Ódáðahraun 1-3, Vestur-Skaft- fellingar 1-4, Gestur Vestfirð- ingur 1-5, Íslensk Myndlist 1-2, Úr fylgsnum fyrri alda 1-2, Vestur-Skaftafellssýsla og íbúar hennar, Húspostilla 1-2, 1838, Sjúkraliðatal, Súgfirðingabók, Íslensk þjóðlög 1974, Rit um jarðelda á Íslandi M.L. 1880, 130 bindi Stjórnartíðindi. Á torgi lífsins. Uppl. í síma 898 9475 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Tek að mér ýmiskonar húsaviðhald Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Athugun Skipulagsstofnunar Viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn og efnislosun í sjó Vegagerðin hefur lkynnt l umöllunar Skipu- lagsstofnunar frummatsskýrslu um viðhalds- dýpkun í Landeyjahöfn og efnislosun í sjó. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi l kynningar frá 13. janúar l 25. febrúar 2020 á eirtöldum stöðum: Á skrifstofu Rangárþings eystra og í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulags- stofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef- síðu stofnunarinnar: www. skipulag.is. Allir hafa ré l að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 25. febrúar 2020 l Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupós á skipulag@skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9 -12. Leikfimi með Hönnu og Maríu kl. 9. Morgunsagan kl. 11. Opin handavin- nuhópur kl. 12-16. Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 12.30. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkom- nir. s: 535-2700. Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Opin handavinnuhópur kl. 12-16. Boccia með Guðmundi kl. 10. Morgunsa- gan kl. 11. Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 12.30. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Mánudagur: Mánudagur: Boccia kl.10.30 Gönguhópur kl.10.30 Félagsvist (FEBK) kl.13.00 Myndlist kl.13. Vatnsleikfimi kl.14.30 Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl. 8.50. Byrjendanámskeið í Línudansi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið kl. 12.30-15.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhor- nið kl. 13. Foreldrastund kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Núvitund kl. 10.30. Silkimálun kl. 12.30. Göngutúr um hverfið kl. 13. Handaband kl. 13. Bridge kl. 13. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30. Skák kl. 14. Handavinnuhópur hittist kl. 15.30. Verið öll hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Vatnsleikf. Sjál kl.7.10/7.50/15.15. Kvennaleikf Sjál. kl. 9.30. Kvenna- leikf Ásg. kl.11. Stjólajóga í Jónshúsi kl. 11. Zumba salur Ísafold kl. 16.15 Gerðuberg 3-5 Mánudagur Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong 10-11. Leikfimi Helgu Ben 11-11:30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9. Handavinna, kl. 9. Boccia, kl. 9.30 Postulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta, kl. 16.30 Kóræfing, kl. 19. Skapandi skrif. Gullsmára Mánudagur: Postulínshópur kl. 9. Jóga 9.30 og 17. Bridge og Handavinna kl. 13.. Félagsvist kl. 20. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9 –14. Jóga kl. 10 – 11. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl. 12.30-14. Prjónaklúbbur kl. 14-16. Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika fra kl 8.-12. Myndmennt kl 9. Gaflarakórinn kl 11. Félagsvist kl 13. Ganga frá Haukahúsi kl10. Korpúlfar Ganga kl. 10. frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Prjónað til góðs kl. 13. í Borgum allir vekomnir í prjónagleðina og gefið til líknarmála. Félagsvist kl. 13. í Borgum. Tréútskurður í umsjón Gylfa kl. 13. á Korpúlfsstöðum. Kóræfing Korpusystkina með Kristínu kórstjóra kl. 16. í Borgum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30. morgunleikfimi kl.9.45, upplestur kl.11, trésmiðja kl.13-16, Gönguhópurinn kl.13.30, bíó í betri stofunni kl.15.30.Uppl í s.4112760. Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga með Ölduí salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 –16. Heitt á könnunni frá kl. 10 –11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 –15.30. Al- lir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Stangarhylur 4. ZUMBA Gold framhald kl. 10.30 -STERK OG LIÐUG leikfimi fyrir dömur og herra kl. 11.30 umsjón Tanya. Nú  þú það sem þú eia að FINNA.is Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift Magga föðursyst- ir mín er fallin frá, síðastliðið haust fékk hún áfall og eft- ir það hrakaði henni mikið og vitað var í hvað stefndi, öll lífsgæði búin. En þangað til alltaf hress. Þegar Magga frænka fæddist þá var hún einungis níu merkur og ég get ekki hætt að dáðst að föður- ömmu minni að halda í henni lífi, svona litlu kríli, ekkert rafmagn og þessar aðstæður eins og þær voru á þeim tíma. Ég er svo lánsöm að eiga tvær dótturdætur sem báðar fæddust níu merkur, þvílík kríli. Eftir það gerði ég mér enn betur grein fyrir því hvað hún Magga frænka væri mikið kraftaverk. Það er mér minnisstætt er ég var lítil stelpa í Efstadal þegar allt frændfólkið kom frá Reykjavík á sumrin. Alltaf gestir allar helgar á sumrin og hvað það var gaman. Ekkert tiltökumál hjá móður minni að fá alla í mat og kaffi þó það væru yfir 20 manns í mat og kaffi, svona var þetta á þeim tíma. Það var allt- af tilhlökkun þegar Magga frænka og fjölskylda komu og ég man eftir því hvað ég dáðist að þessari fal- legu frænku minni, hún var stór- kostleg kona, stórglæsileg, hógvær og einstaklega kærleiksrík og það besta, hún var svo falleg í gegn. Það var líka yndislegt að finna þennan kærleik sem ríkti á milli Magnhildur Sigurðardóttir ✝ MagnhildurSigurðardóttir fæddist 4. desem- ber 1922. Hún lést 2. janúar 2020. Útför Magnhild- ar fór fram 10. jan- úar 2020. þeirra systkinanna. Það var henni stórt áfall er Steinunn systir hennar dó á besta aldri því þær voru svo nánar. Eftir að foreldrar mínir féllu frá fann ég bréf sem hún hafði sent pabba mínum og hún að þakka fyrir jóla- hangikjötið, en það er mér mjög minnis- stætt hvað hún orðaði bréfið fal- lega og maður skynjaði allan kær- leikann í bréfinu. En við Magga áttum það sam- eiginlegt að vera báðar yngstar í okkar systkinahóp, hún var litla systir hans pabba míns og ég yngst af mínum systkinum. Við hlógum oft að því að feður okkar hefðu vandað sig sérstaklega þeg- ar við hefðum verið búnar til. Og að sjálfsögðu vorum við bestar og svo hlógum við af þessu öllu saman. Það var alltaf stutt í brosið hjá henni og við gátum hlegið að ýms- um hlutum. Hún hafði t.d mjög gaman að því er hún flutti í Mörk- ina fyrir nokkrum árum að hún væri fyrst til að flytja þangað í húsið vegna þess að börnin hennar og fólkið hennar gerði gaman að því að Magga frænka hefði flutt í einbýlishús á gamals aldri. En svona var Magga, sá alltaf bara já- kvæðni og gleði í öllu. Það var Möggu mjög erfitt er hún missti Júlla son sinn í nóvember 2017 og áður var hún búin að missa tvö barnabörn, Elísabetu og Ásgeir, á besta aldri. Við spjölluðum um hvað þetta væri ósanngjarnt, hvernig þetta allt æxlaðist og við hreinlega gátum ekki skilið þetta. En allir sem þekktu Möggu dáð- ust að henni, svo kærleiksrík, já- kvæð, hógvær og ég er ekki í nokkrum vafa að það hafa verið miklir fagnaðarfundir er hún hitti Júlla, Ásgeir, Elísabetu og Steinu ásamt öllum systkinum sínum. Elsku frænka, ég á eftir að sakna þín og verð ævinlega þakk- lát að hafa fengið að kynnast þér svona vel. Við Egill sendum inni- legar samúðarkveðjur til barna þinna og fjölskyldna þeirra og allra ástvina. Hvíl í friði elsku frænka og hafðu þökk fyrir allt og allt. Ása Björk Sigurðardóttir. Magnhildur Sigurðardóttir er látin, komin hátt í tírætt. Ég var svo lánsöm að kynnast henni fyrir nokkrum árum og er fyrsta kaffi- boðið af mörgum mér afar minn- isstætt. Kannski eru það smáýkj- ur en svignandi borðin undan bakkelsi minntu á ekkert frekar en Kristnihaldið undir Jökli, þar sem aldrei var boðið upp á minna en 18 sortir! Allt var heimabakað hjá Möggu, sem þá þegar var komin yfir nírætt, og hún notaði hvorki hvítasykur né hvítt hveiti, nei hollara skyldi það vera og í takt við tíðarandann og nýjustu stefnur og strauma. Magga kom sex duglegum og myndarlegum börnum á legg með eindæma dugnaði, þrautseigju og ósérhlífni. Hún var góðum gáfum gædd og fróðleiksfús og fylgdist t.d. með þjóðmálunum nánast alla ævi, las blöðin og hlustaði á út- varp. Magga hafði létta lund og var félagslynd og naut þess að vera innan um fólk. Ég er þakklát fyrir að hafa átt vináttu Möggu um hríð. Far í friði elsku vinkona. Guðrún Erna Hreiðarsdóttir. ✝ Guðlaug Þórð-ardóttir fædd- ist í Efri-Úlfs- staðahjáleigu (nú Sléttubóli) í Austur-Landeyjum 25. september 1936. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Hrafnistu, Boðaþingi í Kópa- vogi, hinn 6. jan- úar 2020. Guðlaug var fimmta í ald- ursröð fimm systkina, barna hjónanna Þórðar Þorsteins- sonar, f. 6. ágúst 1883, d. 26. apríl 1970, og Ólafar Guð- mundsdóttur, f. 7. október 1891, d. 17. mars 1976. Látin systkini Guðlaugar eru: Guð- mundur, f. 25. október 1923, d. 3. maí 1981, Sesselja, f. 22. desember 1924, d. 7. ágúst 2012, Valgerður, f. 3. mars 1926, d. 2. febrúar 2005, og Þorsteinn f. 2. nóvember 1929, d. 21. ágúst 2019. Áttu þau Noregi. Knut Egil, f. 1985, kvæntur Marit, f. 1984, þau eiga tvíburana Martine og Marcus, f. 2016, og Magda- lene, f. 2018, búsett í Noregi. 2) Björn Þór, f. 2. febrúar 1961, kvæntur Hólmfríði, f. 1953. Hún á Jenný Rut, þau eiga Geir Atla og Birnu Guð- laugu. Jenný Rut, f. 1972, gift Stein, f. 1972, þau eiga tví- burana Ísak og Viljar, f. 2005, búsett í Noregi. Geir Atli, f. 1987, kvæntur Nínu, f. 1986, þau eiga Axel, f. 2016, og Elvu, f. 2017, búsett í Dan- mörku. Birna Guðlaug, f. 1989, í sambúð með Hólm- geiri, f. 1986, þau eiga Örnu Þorbjörgu, f. 2019. 3) Magnús, f. 24. júlí 1964, í sambúð með Berglindi, f. 1966. Dóttir Magnúsar er Guðný Íris, f. 1990, í sambúð með Guy, f. 1979, þau eiga Elínu Christinu, f. 2014, og Theo Óliver, f. 2018, búsett í Sviss. 4) Guðný, f. 28. febrúar 1972, gift Árna Þór, f. 1966. Þau eiga Birni Þór, f. 2000, og Egil Þór Yang, f. 2010. Útför Guðlaugar verður gerð frá Lindakirkju í Kópa- vogi í dag, 13. janúar 2020, klukkan 13. eina uppeldis- systur, Jóhönnu Snæfeld, f. 22. mars 1935, d. 5. september 2014. Guðlaug giftist 1. janúar 1960 Agli Friðbjörns- syni frá Vík í Fá- skrúðsfirði, f. 13. ágúst 1932, d. 14. nóvember 2016. Foreldrar hans voru Guðný Guðjónsdóttir, f. 7. desember 1891, d. 26. des- ember 1973, og Friðbjörn Þor- steinsson, f. 8. ágúst 1891, d. 8. febrúar 1977. Guðný og Friðbjörn voru ábúendur á Vík á Fáskrúðsfirði. Börn Guðlaugar og Egils eru: 1) Ólöf, f. 4. nóvember 1959, gift Kåre, f. 1955, búsett í Noregi. Þau eiga Írisi og Knut Egil. Íris, f. 1983, gift Per Åke, f. 1973, þau eiga Knut, f. 2007, Önnu, f. 2009, og Magnus, f. 2017, búsett í Kveðja frá ástvinum Yfir liðnum ævidegi, aðalsmerki fagurt skín. Sæmd og drenglund saman flétta, sveig, um mörgu árin þín. Ein af Íslands óskadætrum, öll þín störf í kærleik gjörð. Allir hjartans auðinn sanna, unnir þinni frjóu jörð. Ástkær móðir, okkur varstu, ávallt fyrirmyndin sönn. Höfðingi í heimaranni, hetjan prúð í dagsins önn. Veganestið veittir besta, vaktir yfir okkar hag. Umhyggjan frá æskuárum, entist fram á hinsta dag. Amma kær, um árin liðu, er við nutum saman hér. Ótal bjartar unaðsstundir, áttum við í fylgd með þér. Marga sæla sumardaga, sóttum dvöl á bæinn þinn. Þar var rausn og hjartahlýja, hæst á metum hvert eitt sinn. Langamma ljúfa og góða, litlu börnin þakka nú. Ávallt þeim af ástúð þinni, allt hið besta veittir þú. Tengdamóðir, traustur vinur, tryggðin þín var dýrmæt gjöf. Gæðin sönn og góðvild alla, geymum hér, þótt lokist gröf. Innilegar ástarþakkir, áttu nú á kveðjustund. Fyrir allt, sem árin geyma, okkur veitt af kærleiks lund. Drottinn launar lífsins störfin. Leiðir hér þá skilja nú, æðstu von um endurfundi, okkur gefur heilög trú. Ástarkveðjur, Ólöf, Björn Þór, Magnús og Guðný og fjölskyldur. Guðlaug Þórðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.