Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 32
Fyrsta bókaspjall á nýju ári í
Borgarbókasafninu í Spöng fer
fram í dag kl. 17.15. Að þessu sinni
verður rætt um bækur sem lesnar
voru í jólafríinu og er öllum frjálst
að koma og segja frá bók sem þeir
hafa nýlega lokið við, mæla með
henni við aðra og fá hugmyndir að
nýju lesefni. Í bókaspjalli er eitt
þema tekið fyrir hverju sinni og fer
það fram annan mánudag í mánuði
hverjum á 2. hæð í safninu í Spöng.
Rætt um bækur sem
lesnar voru um jólin
MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 13. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Komist íslenska karlalandsliðið í
handknattleik í milliriðil Evrópu-
mótsins liggur nokkurn veginn fyr-
ir hverjir mótherjarnir verða.
Örugglega Norðmenn og Portú-
galar og að öllum líkindum Svíar
og Slóvenar. Íslenska liðið mætir
Rússum í dag og verður að vinna
til að vera áfram í góðri stöðu
með að komast áfram. »26-27
Mótherjarnir í milliriðli
eru nánast á hreinu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sergio Agüero varð í gær marka-
hæsti erlendi leikmaðurinn í sögu
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu þegar hann skoraði þrennu í
yfirburðasigri Manchester City á
Aston Villa, 6:1, á útivelli. Argent-
ínumaðurinn leikur níunda tímabil
sitt með City og hefur nú skorað
177 mörk fyrir liðið í
deildinni. City er komið
í annað sætið en er
fjórtán stigum á eftir
toppliði Liverpool,
sem að auki á leik
til góða. »26
Þrenna og markahæst-
ur erlendra leikmanna
fljótlega nálægt því að gefast upp,
var þarna ein 25 ára með 40 til 75 ára
mönnum og fannst ég ekkert eiga
sameiginlegt með þeim. Mér þótti
þetta leiðinlegt og ætlaði að hætta,
en þeir töluðu mig til, lögðu áherslu á
að ég hjálpaði þeim að byggja félagið
upp. Þegar ég mætti næst á fund
höfðu aðrar konur bæst í stjórnina,
fleiri lögðust á árar, mér fannst þetta
gaman og þetta fólk er miklir vinir
mínir.“
Eftir margra áratuga stjórnarsetu
er Jana orðin vel hagvön. Hún rifjar
upp að félagið hafi ekkert átt þegar
hún byrjaði en standi nú vel, hafi
keypt aðstöðu hjá Scandinavian
Centre eða Norræna félaginu og sé
með duglegt fólk í stjórn. „Áður fyrr
vorum við með alla fundi í kjallara ís-
lenska elliheimilisins og síðan keypt-
um við hús í New Westminster. Það
var mikið ævintýri og mikið sem
þurfti að gera. Við tókum þátt í
endurbótunum með fjölda manns og
hjálpuðumst að við allt sem þurfti að
gera í sjálfboðavinnu, hvort sem það
var að sanda, mála eða taka garðinn í
gegn. Óðinn endurlagði rafmagns-
leiðslur og við vorum þarna um helg-
ar og alla frídaga í um ár.“
Jana var fyrst formaður í fimm ár
og tók aftur við í mars í fyrra eftir
þriggja ára hlé sem slík. Óðinn hefur
líka verið verið virkur félagsmaður.
Jana segist einu sinni hafa hlaupið í
skarðið þegar félagið vantaði kenn-
ara, en hann hafi fljótlega tekið við
kennslunni og séð um hana í fimm ár.
Hann hefur stjórnað þorrablótum og
verið jólasveinn á barnajólaböllum
auk annarra verka. „Það eru ekki
margir jólasveinar sem tala íslensku
í Kanada og íslensku börnin kunna
vel að meta það auk þess sem við
syngjum jólalögin á íslensku og döns-
um í kringum jólatré. Mikill kraftur
er í félaginu og samkvæmt skráningu
erum við fjölmennasta félagið í Þjóð-
ræknisfélaginu.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fólk af íslenskum ættum velst eðli-
lega í forystu í Íslendingafélögum
vestanhafs og stundum eru Íslend-
ingar sem hafa flutt vestur kallaðir í
brúna. Kristjana Jónsdóttir (Jana
Helgason) er í þeim hópi og er nú
formaður Íslendingafélagsins í Van-
couver í Kanada (The Icelandic
Canadian Club of British Columbia
eða Íslendingar í Vancouver á fés-
bókinni).
„Við fluttum vestur fyrir nær 35
árum, gengum fljótlega í félagið, ég
fór strax í stjórn og hef verið þar
síðan,“ segir Jana. Óðinn Helgason,
eiginmaður hennar, er kanadískur í
móðurætt og fæddist í Kanada. Hann
bjó til skiptis þar og á Íslandi, en svo
fór að þau Jana ákváðu að flytja til
Vancouver með þrjú ung börn, fjög-
urra mánaða, 18 mánaða og þriggja
og hálfs árs. „Hann fór í skóla og við
ætluðum bara að vera í fjögur ár, en
það hefur tognað úr þeim,“ segir hún.
Ævintýri á ævintýri ofan
Nokkrum árum eftir að Óðinn út-
skrifaðist sem rafvirki ákvað hann að
reyna fyrir sér í þaksmíði og -við-
haldi með nágranna þeirra, sem átti
fyrirtæki á því sviði. Þeir stofnuðu
fyrirtækið Franklin Roofing og í
fyrstu einblíndu þeir á fyrirtæki í
timburiðnaði en þjónustan hefur
aukist og gangurinn er góður, að
sögn Jönu. Árið 2000 skiptu þau
fyrirtækinu í tvennt. Nágranninn
hefur síðan séð um þökin en þau um
þjónustuna við timburiðnaðinn.
Fyrirtæki þeirra heitir Franklin
Coatings, Óðinn er framkvæmda-
stjóri og hún sér um bókhaldið.
„Mest er að gera hjá okkur á vorin,
sumrin og haustin og því tökum við
sumarfrí á veturna,“ segir hún. Bæt-
ir við að innanhússræktunarklefar,
þar sem rækta má gróður, sé nýjung
hjá fyrirtækinu og annað ævintýri
því í uppsiglingu undir nafninu
Franklin Enclosures.
Þegar þau voru búin að koma sér
fyrir í Vancouver vildu þau hitta Ís-
lendinga og gengu því í Íslendinga-
félagið. „Ég fór beint í stjórn og var
Jana formaður fjöl-
mennasta félagsins
Mikill kraftur í Íslendingafélaginu í Vancouver í Kanada
Á Þjóðræknisþingi Jana Jónsdóttir og Óðinn Helgason.
Gítarar
Frábært úrv
al
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is