Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 Fjölskylda Maki Jóhanns er Elsa Lind Aust- fjörð, f. 22.6. 1993, móðir. Foreldrar hennar eru Harpa Brynjarsdóttir, f. 5.11. 1957, leikskólastjóri, býr í Grafarholti, og Ævar Austfjörð, f. 15.11. 1968, matartæknir, kjöt- iðnaðarmaður, kokkur og áhrifavald- ur, býr á Selfossi. Þau eru skilin. Sonur Jóhanns og Elsu eru Baltas- ar Emil Jóhannsson Austfjörð, f. 7.4. 2019, og stjúpdóttir Jóhanns er Harpa Lind Ingólfsdóttir Austfjörð, f. 1.9. 2014. Hálfsystkini samfeðra eru Friðrik Sæmundur Jóhannsson, f. 20.2. 1970, trillusjómaður, býr á Húsavík; Helgi Jóhann Hilmarsson, f. 13.6. 1974, smiður, býr í Reykjavik; Valur Ein- arsson, f. 5.11. 1975, skipstjóri á verk- smiðjuskipi í Afríku, býr á Akureyri; Árni Björn Jóhannsson, f. 25.11. 1980, starfsmaður hjá Krónunni, býr í Reykjavík; Þorsteinn Stefán Jó- hannsson, f. 28.12. 1982, sjómaður á Gnúpi GK hjá Þorbirni, býr í Reykja- vík; Dagur Már Jóhannsson, f. 8.11. 1985, öryrki og tvöfaldur Íslands- meistari í sundi fatlaðra og hefur keppt á ólympíuleikum fatlaðra í sundi, býr á Húsavík. Hálfsystkini Jóhanns sammæðra eru Svava Björg Mörk, f. 28.6. 1971, doktorsnemi, kennari og móðir, býr í Hafnarfirði; Eydís Hentze, f. 20.10. 1979, sál- fræðinemi og móðir, býr í Keflavík; Marin Hentze, f. 5.3. 1981, ferða- málafræðingur, býr í Færeyjum. Foreldrar Jóhanns: Hjónin Pálína Valsdóttir, f. 30.9. 1952, kennari, býr í Hirtshals í Danmörku, og Jóhann Guðni Sigvaldason, f. 21.7. 1946, d. 17.8. 2005, sjómaður, bóndi og bif- vélavirki. Þau bjuggu lengst af á Raufarhöfn. Jóhann Guðni Jóhannsson Sigurveig Sigvaldadóttir húsmóðir í Svalbarðsseli og á Raufarhöfn, úr Öxarfi rði Halldór Kristjánsson bóndi í Svalbarðsseli, síðast bús. á Raufarhöfn, úr Þistilfi rði Sigvaldi Eiríkur Halldórsson bóndi í Svalbarðsseli í Þistilfi rði og verkamaður á Raufarhöfn Guðný Soffía Þorsteinsdóttir húsmóðir í Svalbarðsseli og fi skverkakona á Raufarhöfn Jóhann Sigvaldason sjómaður og bóndi, síðast bús. á Raufarhöfn Jóhanna Sigfúsdóttir húsmóðir í Brekknakoti og á Raufarhöfn, frá Tjörnesi Þorsteinn Stefánsson bóndi í Brekknakoti í Þistilfi rði og verkamaður á Raufarhöfn, frá Kollavík í Þistilfi rði Ninna Sif Svavarsdóttir sóknarprestur í Hveragerði Hjalti Einarsson mjólkurfræðingur í Rvík Hjördís Hjaltadóttir fv. leikskólastjóri á Akranesi og í Rvík Sigurveig María Sigvaldadóttir húsmóðir á Akureyri Halldór Jóhann Sigfússon handboltaþjálfari í Þýskalandi, fv, Íslandsmeistari í handbolta með KA og Íslandsmeistari sem þjálfari með FH Pálína Benediktsdóttir húsmóðir í Einholti og á Gljúfri, frá Einholti Einar Sigurðsson bóndi í Einholti á Mýrum, A-Skaft. og á Gljúfri í Ölfusi, frá Slindurholti á Mýrum Valur Einarsson bifreiðarstjóri í Hveragerði Olga Mörk verkakona í Hirtshals á Norður-Jótlandi Magdalena Mörk húsmóðir í Þórshöfn Mortan Mörk sjómaður í Þórshöfn í Færeyjum Úr frændgarði Jóhanns Guðna Jóhannssonar Pálína Valsdóttir kennari, bús. í Hirtshals Davíð Hjálmar í Davíðshaga ortiá miðvikudag: Þótt sjaldan ég gangi af göflunum og geipi af stórhríðarköflunum er nýjabrum hér að nefið á mér er stöðugt að stíflast í sköflunum. Sigurlín Hermannsdóttir hefur orð á því að menn hamist nú við að yrkja um vont veður. Eins gott að láta ekki sitt eftir liggja: Sigurður Sævar frá Vatnskoti sagði við McEnro: „Assgoti“, er þeir fuku út á sæinn í fárviðri um daginn, „mikið helvíti er ’ann nú hvass, Skoti“. Á þriðjudaginn sagði Jón Giss- urarson þær fréttir úr Skagafirði að undanfarna daga hefði verið um- hleypingatíð og um fimmleytið skollið á suðvestanstormur með stórhríð. Þannig veðri væri spáð næstu tvo daga: Engin þíða yljar líð eða blíðar nætur. Úti hríð og hryssings tíð hreggi víða grætur. „Hér er snjókoma og nokkuð hvasst,“ bætti Ingólfur Ómar við: Stríðar kyljur vinna völd vefur hrímið skjáinn, hríðar lemur krumla köld klakahjúpuð stráin. Sama hljóð var í Pétri Stefáns- syni: Römm er tíðin, rösk og stríð. Raunir líð ég harðar. Þessi gríðar hörkuhríð hylur prýði jarðar. Friðrik Steingrímsson svaraði: Slær nú vetur margföld met mannsins leti hvetur, fráleitt getur færst um set fyrir hreti Pétur. „Síðbúin uppgötvun“ segir Helgi R. Einarsson: Er leiður í sófanum lá ég í ljósi nýju allt sá ég. Í auðmýkt mig beygi og einlægur segi: „Allt sem ég girntist víst á ég.“ Þessi staka Benedikts Jónssonar Gröndals er aldrei of oft rifjuð upp: Spennti ég miðja spjalda-gná, spriklaði sál á vörum; stillingin sem oss er á ætlaði að vera á förum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Meiri snjór og stífla í sköflunum „ÉG HEF VERIÐ TALANDI Í TALSVERÐAN TÍMA. ÉG VAR BARA EKKI VISS UM ÞAÐ HVORT ÞÉR VÆRI TREYSTANDI.” „VIÐ GETUM EKKI LIFAÐ AF VASAPENINGUM SONAR ÞÍNS.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sækja fötin úr hreinsun fyrir hana. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VIÐ ERUM SVAKA- GÓÐIR Í ÞESSU JÆJA, FÉLAGAR, NÚ ER TÍMI TIL KOMINN AÐ VERA GALLHARÐIR OG GRIMMIR! ÞIÐ ÞARNA Í KASTALANUM ERUÐ ÉG MEINTI NÚ EKKI AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ VERA MEÐ ANDLEGT OFBELDI!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.