Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
Verð frá kr.
79.995
GranCanaria
– fáðumeira út úr fríinu
2fyrir1 22. janúar í 7 nætur
Flug frá kr.
39.900
Ámann báðar leiðir m/tösku
og handfarangri
Stöðvuðu gangandi vegfar-
endur á Reykjanesbraut
Áður en flug var fellt niður í gær-
kvöldi og Reykjanesbraut lokað
hafði um þriggja kílómetra löng
bílaröð myndast frá Þjóðbraut, sem
liggur inni í Keflavík, og upp að
flugvelli. Einhverjir gripu til þess
ráðs að fara úr bílum sínum og
reyna að ganga upp að flugstöð í
von um að ná flugi, og sá lögreglan
á Suðurnesjum ástæðu til að gefa út
tilmæli um að farþegar héldu kyrru
fyrir í bílaröðinni. Engar flugferðir
væru hvort eð er áformaðar.
Farþegar um borð í sex vélum
Icelandair þurftu að sitja sem fast-
ast í vélunum um nokkurra klukku-
stunda skeið eftir lendingu, þar sem
ekki þótti óhætt að taka landganga í
notkun vegna veðurs.
Þá var tveimur vélum, vél Wizz
air frá Ríga og vél Icelandair frá
Berlín, vísað til Egilsstaða á níunda
tímanum þar sem ekki þótti óhætt
að lenda í Keflavík. Skömmu síðar
var allt flug Icelandair það sem eftir
lifði kvölds fellt niður. Var stranda-
glópum komið fyrir í fjöldahjálpar-
miðstöð Icelandair og Rauða kross-
ins í Íþróttahúsi Keflavíkur.
Alexander Kristjánsson
Lilja Hrund Lúðvíksdóttir
Ekkert lát er á lægðagangi og mikl-
um vindum sem hrellt hafa lands-
menn síðustu vikur. Veðurstofan
gerir ráð fyrir gulri viðvörun á nær
öllu landinu í dag, ef frá er talið
norðaustantil. Að sögn Óla Þórs
Árnasonar, veðurfræðings á Veður-
stofunni, er búist við miklum vindi
sunnan- og vestantil. Úrkoma verði
þó mest á Vestfjörðum og á norð-
vestanverðu landinu, þar sem élja-
gangur verður.
Ekkert ferðaveður verður í dag
neins staðar á landinu og segir Óli
að miðað við vindaspá dagsins megi
gera ráð fyrir víðtækum lokunum á
þjóðvegum í dag, jafnvel á helstu
vegum í kringum höfuðborgar-
svæðið. Spáin fyrir þriðjudag er síst
skárri, en gert er ráð fyrir að veðrið
nái hámarki víðs vegar um land
fyrri part þriðjudags með úrkomu
norðvestan- og austantil, en þó nán-
ast úrkomuleysi á Suðvesturlandi.
Flug fellt niður í gær
Gul viðvörun gekk í gildi á
vestanverðu landinu síðdegis í gær
með tilheyrandi röskun á sam-
göngum.
Grípa þurfti til lokana víða um
land í gær vegna veðurs. Þannig var
Reykjanesbraut, Hellisheiði, Holta-
vörðuheiði, Siglufjarðarvegi og
Grindavíkurvegi öllum lokað í gær-
kvöldi.
Ljósmynd/Lögreglan á Suðurnesjum
Ófært Þriggja kílómetra bílaröð myndaðist á Reykjanesbraut að Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi.
Sátu föst í vélunum
í nokkra klukkutíma
Allt flug fellt niður í gærkvöldi Ekkert lát á óveðri
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Lokað Búast má við lokunum á þjóðvegum víða um land í dag.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Aðstæður að undanförnu hafa
myndað kaupendamarkað, þar sem
framboð af eignum er meiri en
eftirspurn, segir Óskar Bergsson,
lögg. fasteignasali hjá Eignaborg í
Kópavogi. Að undanförnu hefur
verið ágæt sala á eignum á höfuð-
borgarsvæðinu, þá ekki síst 2-4 her-
bergja íbúðum í fjölbýlishúsum.
Gjarnan eru þær íbúðir á verðbilinu
35 til 50 milljónir króna og seljast
yfirleitt mjög fljótt sé verðlagningin
rétt og miðað við allar aðstæður.
„Markaðurinn kallar á öllum tím-
um eftir litlum og meðalstórum
eignum. Í dag er unnið að ýmsum
nýbyggingarverkefnum og verið að
reisa þyrpingar fjölbýlishúsa. Þar
er vandinn hins vegar sá að of hátt
hlutfall eignanna er einfaldlega of
stórt og of dýrt og íbúðirnar sitja
eftir óseldar eftir að þær minni eru
seldar. Takmarkaður fjöldi bíla-
stæða við sum af þessum húsum
fælir kaupendur í sumum tilvikum
líka frá,“ segir Óskar, sem lýsir
markaðnum í dag með þeim al-
mennu orðum að hann sé kvikur,
lifandi og kauptækifæri góð. Sögu-
lega lágir vextir hafi sömuleiðis örv-
að viðskipti að undanförnu.
Leitar jafnvægis
Sveinn Eyland, löggiltur fast-
eignasali hjá Landmark, segir mik-
ið framboð á nýjum eignum í fjöl-
býli áberandi á markaðnum í dag.
Víða á höfuðborgarsvæðinu hafi
verið reistir stórir blokkaklasar á
síðustu árum. Þar séu fjögurra
herbergja íbúðir áberandi og þær
sumar nokkuð hátt verðlagðar.
Markaðurinn sé hins vegar fremur
að kalla eftir tveggja til þriggja
herbergja íbúðum. Íbúðum í þeim
stærðum sem koma í sölu sé hins
vegar að fjölga, því margar hafi
verið í útleigu til ferðamanna en
þar sé eftirspurnin nú minni en
var. Sömuleiðis segir Sveinn að
nokkurt jafnvægi sé nú að komast
á leigumarkaðinn. Kapphlaupið um
eignir sem þar bjóðast sé minna en
var og fólk sitji lengur á þeim eign-
um sem bjóðast til útleigu hverju
sinni.
Kaupendamarkað-
ur er að myndast
Of stórar eignir í nýbyggingu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fasteignir Kaupendamarkaður er
að myndast á höfuðborgarsvæðinu.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Sveitarstjórnar- og samgönguráðu-
neytið og Isavia virðast vísa hvort á
annað hvað varðar ábyrgð á viðhalds-
leysi flugvallarins á Blönduósi.
„Isavia forgangsraðar verkefnum
innan þess fjárhagsramma sem þeir
hafa. Það voru veittir meiri fjármunir
í nýjum þjónustusamningi, en þeir
fara mestmegnis í að sinna áætlunar-
fluginu. Isavia forgangsraðar öllum
verkefnum. Ráðuneytið skiptir sér
ekki af því hvernig Isavia ráðstafar
fjármunum, Isavia sér um flugvell-
ina,“ sagði Ingveldur Sæmunds-
dóttir, aðstoðarmaður Sigurðar Inga
Jóhannssonar, sveitarstjórnar- og
samgönguráðherra, þegar gagnrýni á
ástand Blönduósflugvallar var borin
undir hana.
Guðmundur Haukur Jakobsson,
formaður byggðaráðs Blönduós-
bæjar, gagnrýndi Isavia harðlega í
samtali við mbl.is á laugardag fyrir
að láta flugvöllinn „drabbast niður“
og sinna ekki nauðsynlegu viðhaldi,
enda hafi hann komið að notum þeg-
ar þurfti að flytja þrjá með þyrlu til
Reykjavíkur eftir að rúta valt á föstu-
dag. Benti hann á að um væri að
ræða eina flugvöllinn við þjóðveg eitt
milli Akureyrar og Reykjavíkur og að
um 700 þúsund færu um veginn í
landshlutanum á hverju ári.
Að ráðum Isavia
Þessu svaraði Guðjón Helgason,
upplýsingafulltrúi Isavia, og sagði
ákvarðanir um viðhaldsmál, þjón-
ustustig og uppbyggingu flugvallar-
ins á Blönduósi ekki á hendi Isavia
heldur samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytisins.
„Þeir [Isavia] hafa þekkingu á
þessu og veita upplýsingar um það
hvað þarf að gera hverju sinni og það
er sett í þjónustusamning. […] Ráðu-
neytið getur ekki haft skoðun á ein-
stökum þáttum á stökum flugvöllum.
Fagþekkingin liggur hjá Isavia,“
segir Ingveldur.
„Flugvöllurinn er skilgreindur sem
lendingarstaður eins og allir aðrir
flugvellir á landinu, nema þeir flug-
vellir sem flogið er til með áætlunar-
flugi. Megnið af fjármagninu fer í að
sinna áætlunarflugi og þeim flug-
völlum, en þessi Blönduósflugvöllur
er í þjónustusamningi sem ráðuneyt-
ið gerir við Isavia. Það þýðir að ef það
þarf að nýta flugvöllinn, ef það kemur
upp neyð eða eitthvað slíkt, er hann í
umsjón Isavia. Það eru þeir sem
verða að ræsa út mannskap og gera
það sem þarf að gera,“ útskýrir hún.
Spurð hvort þjónustusamningur-
inn kveði ekki á um viðhald, upp-
byggingu og þjónustustig segir Ing-
veldur svo vera. Hins vegar sé það
Isavia að tryggja að hægt sé að nýta
flugvellina. „Samkvæmt upplýsingum
sem ég fæ frá ráðuneytinu,“ bætir
hún við.
Ábyrgð á viðhaldi virðist óljós
Ástand Blönduósflugvallar harðlega gagnrýnt Eini flugvöllurinn við þjóðveg eitt milli Reykjavíkur
og Akureyrar Isavia segir ábyrgðina vera hjá ráðunetinu en ráðuneytið segir hana hjá Isavia