Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN Hrannar Jónsson Löggiltur fasteignasali Sími 899 0720 VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Horfur eru á góðu ferðasumri hjá Úrvali-Útsýn og virðist ekkert lát ætla að verða á áhuga sólþyrstra Íslendinga á spænskum strandbæj- um þar sem njóta má lífsins í góða veðrinu. Þórunn Reynisdóttir, for- stjóri ferðaskrifstofunnar, segir líka vaxandi áhuga á ferðum til Austur- Evrópu og má m.a. þakka það kom- um nýrra flugfélaga sem bjóða upp á beinar tengingar við borgir á borð við Varsjá og Ríga. Spennandi tækifæri kunna að vera handan við hornið með tengingum við Asíu. Þá mun Úrval-Útsýn á næstu dögum taka í notkun nýja bókunar- vél á netinu sem á að auðvelda ís- lenskum ferðalöngum að kaupa, með einföldum hætti, hvort heldur er flug eða ferðapakka um allan heim. Hefur ferðaskrifstofan gert flugleigusamning við Icelandair fyr- ir þetta sumar og mun því m.a. geta boðið þeim viðskiptavinum sem þess óska að ferðast til útlanda og aftur heim í „betra sæti“. Þórunn segir þetta ólíkt venjulegu leiguflugi þar sem yfirleitt er að- eins eitt farrými í boði. Aðspurð hvers vegna Icelandair varð fyrir valinu segir Þórunn að sú ákvörðun hafi m.a. byggst á því hvernig tryggja mætti sem besta þjónustu við viðskiptavini ferða- skrifstofunnar á tímum mikilla breytinga á íslenskum og alþjóð- legum flugmarkaði. „Áfangastaðir okkar í sumar eru að mestu leyti þeir sömu og í fyrra, og hefð- bundnir áfangastaðir á Spáni í aðal- hlutverki. Við höfum getað boðið upp á mjög hagstæða flug- og hótelpakka á þessum stöðum og þökk sé samstarfi við okkar er- lendu hótelbirgja á hverjum stað erum við með vöru sem hefur tölu- verða sérstöðu,“ útskýrir Þórunn en Úrval-Útsýn býður upp á flug til Gran Canaria og Tenerife árið um kring. Tímasparnaður og öryggi Sumum gæti þótt það merkilegt að spænsku strandbæirnir skuli hafa svona sterkt og viðvarandi að- dráttarafl á íslenska ferðalanga sem sumir geta varla hugsað sér annað en að skreppa eins og einu sinni á ári – og helst oftar – suður að Miðjarðarhafi eða til Kanarí til að spila nokkra hringi á fallegum golfvelli, sigla eða hjóla, versla og gera vel við sig í mat og drykk. „Það á ekki bara við um Íslendinga heldur Skandinavíubúa almennt að þeir sækja í þessa staði og skemm- ir ekki fyrir að þjónustan þar er í alla staði mjög góð og búið að taka gististaðina í gegn. Við sjáum líka að ferðalangar kunna að meta fjöl- breytnina í gistiframboðinu og hægt að velja á milli ólíkra svæða og ólíkra gæðaflokka, allt upp í fimm stjörnu lúxushótel og lúxus- íbúðagistingu,“ útskýrir Þórunn og bætir við að enginn afgerandi mun- ur sé á milli þess hvert ákveðnir viðskiptavinahópar ferðaskrifstof- unnar leita. Þannig sé ekki hægt að segja að eldri og rólegri ferða- langar velji tiltekna bæi en nætur- uglurnar og gleðiljónin taki stefn- una annað. „Það á við um alla áfangastaði okkar að þeir sækja í alla markahópa með þjónustu- og afþreyingarframboði sínu.“ Einnig er áhugavert að rekstur- inn skuli blómstra hjá ferðaskrif- stofum eins og Úrvali-Útsýn og pakkaferðir höfði enn til stórs hóps neytenda, nú þegar leitarvélar á netinu auðvelda fólki að skipuleggja ferðalög sín sjálft. Þórunn segir hægt að skýra þetta m.a. með því öryggi og þægindum sem fylgja því að versla við ferðaskrifstofu. „Ef það t.d. gerir vonskuveður og röskun verður á flugi, eins og hefur gerst í vetur, þá eru viðskiptavinir í góðum höndum hjá okkur og við leysum úr vandanum. Sama hvað kemur upp á eru starfsmenn okkar á vakt sjö daga vikunnar, 24 tíma á sólarhring, en margir hafa brennt sig á að ef þeir t.d. kaupa ódýrasta fáanlega flugmiðann frá erlendum seljanda sem þeir finna í gegnum leitarvél er ekki alltaf hægt að stóla á að fá aðstoð utan hefðbundins af- greiðslutíma, hvað þá að fá aðstoð á íslensku,“ segir Þórunn og bætir við að á sólarstrandaáfangastöðum Úrvals-Útsýnar sé ferðaskrifstofan líka með sína eigin starfsmenn á staðnum til að aðstoða gesti. Þórunn bendir jafnframt á að það sem naskir neytendur hafi gert sér grein fyrir er að það getur ver- ið flókið og tímafrekt að skipu- leggja ferðalag. „Ef leitin að rétta fluginu og gistingunni kallar á að grúska á netinu í fimm daga, eða jafnvel lengur, þá er það vitaskuld ákveðinn fórnarkostnaður.“ Loks segir Þórunn að jafnvel reyndasta fólk geti slysast til að gera mistök þegar það bókar flug og gistingu á eigin spýtur og tölu- vert öryggi fólgið í því að versla í staðinn við ferðaskrifstofu sem axl- ar alla ábyrgð á bókunum og skipu- lagningu. „Að slysast t.d. til að bóka flug til Portland í Maine frek- ar en Portland í Oregon, eða rugla dagsetningum, geta verið dýr mis- tök og þarf ekki nema minniháttar rugling til að eyðileggja fríið.“ Eftirliti ábótavant Eins og fyrr var getið hafa undanfarin misseri einkennst af hræringum á flugmarkaði og þá hafa líka verið sviptingar á ís- lenska ferðaskrifstofumarkað- inum. Er þess skemmst að minn- ast að WOW air fór á hausinn snemma á síðasta ári, en mögulegt er að tvö ný flugfélög hefji rekst- ur innan skamms. Þá fór rekstur Primera á hliðina og því tengt tók Arionbanki yfir rekstur TravelCo, sem rekur tvær ferðaskrifstofur hér á landi. Í desember hætti ferðaskrifstofan Farvel rekstri og sátu margir eftir með sárt ennið, eins og komið hef- ur fram í umfjöllun Morgun- blaðsins. Þórunn segir alla samkeppni af hinu góða en þykir vanta upp á eftirlit stjórnvalda með starfsemi ferðaskrifstofa. „Þetta hef ég bent bæði ráðuneyti ferðamála og Ferðamálastofu á – margsinnis – og allt of mörg dæmi um vafasam- an rekstur þar sem fyrirtæki og einyrkjar eru að taka á sig skuld- bindingar sem þau geta ekki endi- lega staðið við,“ segir hún og bæt- ir við að það þurfi að hafa nánari gætur á fyrirtækjunum í greininni til að koma nokkuð hratt og vel auga á hættumerki í rekstri þeirra. „Það er mjög mikilvægt að eiginfjárstaða þessara fyrirtækja sé skoðuð áður en ferðaskrifstofu- leyfi er endurnýjað.“ Þórunn segir líka áríðandi að allir sitji við sama borð, og óheppi- legt að þurfa að standa í sam- keppni við ferðaskrifstofur sem hafa heilan banka sem bakhjarl. „Það er mjög óðlilegt að vera í samkeppni við banka sem er að leigja heilu flugvélarnar til að senda Íslendinga í sólarferðir. Einnig er með ólíkindum að sjá Andra Má Ingólfsson [sem átti Primera Group] undirbúa opnun á ferðaskrifstofu korteri eftir að Arionbanki þurfti að taka allar hans ferðaskrifstofur yfir til sín. Hann upplýsir nýlega í viðtali við Morgunblaðið að hann sé full- fjármagnaður, en skv. fyrirtækja- skrá er „fullfjármagnaður“ kr. 500.000. Það er eitthvað mikið bogið við þetta kerfi okkar.“ Of mörg dæmi um vafasaman rekstur  Úrval-Útsýn opnar nýja bókunarvél og hefur gert flugleigusamning við Icelandair  Þægindi og ör- yggi fylgja því að versla við góða ferðaskrifstofu  Bæta þarf eftirlit stjórnvalda með ferðaskrifstofum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Um eftirspurnarhliðina á ferðamarkaði segir Þórunn að áherslur landsmanna hafi breyst. „Áður fyrr mátti reikna með því á óvissu- og samdráttar- skeiðum að fólk biði með að stækka við sig, endurnýja bílinn og slægi utan- landsferðum á frest. Í dag er það vissulega þannig að fólk bíður með bíla- og fasteignakaup en áhrifin á sölu pakkaferða eru ekki jafn greinileg. Í huga margra snýst lífið jú um að skapa góðar minningar og eiga ánægjulegar stundir með ættingjum og vinum. Að fara af og til í frí til útlanda og njóta tilverunnar er því alveg ómissandi.“ Vilja njóta þess að vera til FERÐALÖG Í FORGANGI Morgunblaðið/Brynjar Gauti Notalegt Í sólbaði á Benidorm. Spænskir strandbæir laða til sín fjölda Íslendinga. Utanumhald „Sama hvað kemur upp á eru starfsmenn okkar á vakt sjö daga vikunnar, 24 tíma á sólarhring,“ segir Þórunn Reynisdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.