Morgunblaðið - 13.01.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020
SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS
LÁTTU FAGFÓLK
SELJA
ÞÍNA EIGN
Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Sími 899 0720
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Horfur eru á góðu ferðasumri hjá
Úrvali-Útsýn og virðist ekkert lát
ætla að verða á áhuga sólþyrstra
Íslendinga á spænskum strandbæj-
um þar sem njóta má lífsins í góða
veðrinu. Þórunn Reynisdóttir, for-
stjóri ferðaskrifstofunnar, segir líka
vaxandi áhuga á ferðum til Austur-
Evrópu og má m.a. þakka það kom-
um nýrra flugfélaga sem bjóða upp
á beinar tengingar við borgir á
borð við Varsjá og Ríga. Spennandi
tækifæri kunna að vera handan við
hornið með tengingum við Asíu.
Þá mun Úrval-Útsýn á næstu
dögum taka í notkun nýja bókunar-
vél á netinu sem á að auðvelda ís-
lenskum ferðalöngum að kaupa,
með einföldum hætti, hvort heldur
er flug eða ferðapakka um allan
heim. Hefur ferðaskrifstofan gert
flugleigusamning við Icelandair fyr-
ir þetta sumar og mun því m.a.
geta boðið þeim viðskiptavinum
sem þess óska að ferðast til útlanda
og aftur heim í „betra sæti“.
Þórunn segir þetta ólíkt venjulegu
leiguflugi þar sem yfirleitt er að-
eins eitt farrými í boði.
Aðspurð hvers vegna Icelandair
varð fyrir valinu segir Þórunn að
sú ákvörðun hafi m.a. byggst á því
hvernig tryggja mætti sem besta
þjónustu við viðskiptavini ferða-
skrifstofunnar á tímum mikilla
breytinga á íslenskum og alþjóð-
legum flugmarkaði. „Áfangastaðir
okkar í sumar eru að mestu leyti
þeir sömu og í fyrra, og hefð-
bundnir áfangastaðir á Spáni í aðal-
hlutverki. Við höfum getað boðið
upp á mjög hagstæða flug- og
hótelpakka á þessum stöðum og
þökk sé samstarfi við okkar er-
lendu hótelbirgja á hverjum stað
erum við með vöru sem hefur tölu-
verða sérstöðu,“ útskýrir Þórunn
en Úrval-Útsýn býður upp á flug til
Gran Canaria og Tenerife árið um
kring.
Tímasparnaður og öryggi
Sumum gæti þótt það merkilegt
að spænsku strandbæirnir skuli
hafa svona sterkt og viðvarandi að-
dráttarafl á íslenska ferðalanga
sem sumir geta varla hugsað sér
annað en að skreppa eins og einu
sinni á ári – og helst oftar – suður
að Miðjarðarhafi eða til Kanarí til
að spila nokkra hringi á fallegum
golfvelli, sigla eða hjóla, versla og
gera vel við sig í mat og drykk.
„Það á ekki bara við um Íslendinga
heldur Skandinavíubúa almennt að
þeir sækja í þessa staði og skemm-
ir ekki fyrir að þjónustan þar er í
alla staði mjög góð og búið að taka
gististaðina í gegn. Við sjáum líka
að ferðalangar kunna að meta fjöl-
breytnina í gistiframboðinu og
hægt að velja á milli ólíkra svæða
og ólíkra gæðaflokka, allt upp í
fimm stjörnu lúxushótel og lúxus-
íbúðagistingu,“ útskýrir Þórunn og
bætir við að enginn afgerandi mun-
ur sé á milli þess hvert ákveðnir
viðskiptavinahópar ferðaskrifstof-
unnar leita. Þannig sé ekki hægt að
segja að eldri og rólegri ferða-
langar velji tiltekna bæi en nætur-
uglurnar og gleðiljónin taki stefn-
una annað. „Það á við um alla
áfangastaði okkar að þeir sækja í
alla markahópa með þjónustu- og
afþreyingarframboði sínu.“
Einnig er áhugavert að rekstur-
inn skuli blómstra hjá ferðaskrif-
stofum eins og Úrvali-Útsýn og
pakkaferðir höfði enn til stórs hóps
neytenda, nú þegar leitarvélar á
netinu auðvelda fólki að skipuleggja
ferðalög sín sjálft. Þórunn segir
hægt að skýra þetta m.a. með því
öryggi og þægindum sem fylgja því
að versla við ferðaskrifstofu. „Ef
það t.d. gerir vonskuveður og
röskun verður á flugi, eins og hefur
gerst í vetur, þá eru viðskiptavinir í
góðum höndum hjá okkur og við
leysum úr vandanum. Sama hvað
kemur upp á eru starfsmenn okkar
á vakt sjö daga vikunnar, 24 tíma á
sólarhring, en margir hafa brennt
sig á að ef þeir t.d. kaupa ódýrasta
fáanlega flugmiðann frá erlendum
seljanda sem þeir finna í gegnum
leitarvél er ekki alltaf hægt að stóla
á að fá aðstoð utan hefðbundins af-
greiðslutíma, hvað þá að fá aðstoð á
íslensku,“ segir Þórunn og bætir
við að á sólarstrandaáfangastöðum
Úrvals-Útsýnar sé ferðaskrifstofan
líka með sína eigin starfsmenn á
staðnum til að aðstoða gesti.
Þórunn bendir jafnframt á að
það sem naskir neytendur hafi gert
sér grein fyrir er að það getur ver-
ið flókið og tímafrekt að skipu-
leggja ferðalag. „Ef leitin að rétta
fluginu og gistingunni kallar á að
grúska á netinu í fimm daga, eða
jafnvel lengur, þá er það vitaskuld
ákveðinn fórnarkostnaður.“
Loks segir Þórunn að jafnvel
reyndasta fólk geti slysast til að
gera mistök þegar það bókar flug
og gistingu á eigin spýtur og tölu-
vert öryggi fólgið í því að versla í
staðinn við ferðaskrifstofu sem axl-
ar alla ábyrgð á bókunum og skipu-
lagningu. „Að slysast t.d. til að
bóka flug til Portland í Maine frek-
ar en Portland í Oregon, eða rugla
dagsetningum, geta verið dýr mis-
tök og þarf ekki nema minniháttar
rugling til að eyðileggja fríið.“
Eftirliti ábótavant
Eins og fyrr var getið hafa
undanfarin misseri einkennst af
hræringum á flugmarkaði og þá
hafa líka verið sviptingar á ís-
lenska ferðaskrifstofumarkað-
inum. Er þess skemmst að minn-
ast að WOW air fór á hausinn
snemma á síðasta ári, en mögulegt
er að tvö ný flugfélög hefji rekst-
ur innan skamms.
Þá fór rekstur Primera á hliðina
og því tengt tók Arionbanki yfir
rekstur TravelCo, sem rekur tvær
ferðaskrifstofur hér á landi. Í
desember hætti ferðaskrifstofan
Farvel rekstri og sátu margir eftir
með sárt ennið, eins og komið hef-
ur fram í umfjöllun Morgun-
blaðsins.
Þórunn segir alla samkeppni af
hinu góða en þykir vanta upp á
eftirlit stjórnvalda með starfsemi
ferðaskrifstofa. „Þetta hef ég bent
bæði ráðuneyti ferðamála og
Ferðamálastofu á – margsinnis –
og allt of mörg dæmi um vafasam-
an rekstur þar sem fyrirtæki og
einyrkjar eru að taka á sig skuld-
bindingar sem þau geta ekki endi-
lega staðið við,“ segir hún og bæt-
ir við að það þurfi að hafa nánari
gætur á fyrirtækjunum í greininni
til að koma nokkuð hratt og vel
auga á hættumerki í rekstri
þeirra. „Það er mjög mikilvægt að
eiginfjárstaða þessara fyrirtækja
sé skoðuð áður en ferðaskrifstofu-
leyfi er endurnýjað.“
Þórunn segir líka áríðandi að
allir sitji við sama borð, og óheppi-
legt að þurfa að standa í sam-
keppni við ferðaskrifstofur sem
hafa heilan banka sem bakhjarl.
„Það er mjög óðlilegt að vera í
samkeppni við banka sem er að
leigja heilu flugvélarnar til að
senda Íslendinga í sólarferðir.
Einnig er með ólíkindum að sjá
Andra Má Ingólfsson [sem átti
Primera Group] undirbúa opnun á
ferðaskrifstofu korteri eftir að
Arionbanki þurfti að taka allar
hans ferðaskrifstofur yfir til sín.
Hann upplýsir nýlega í viðtali við
Morgunblaðið að hann sé full-
fjármagnaður, en skv. fyrirtækja-
skrá er „fullfjármagnaður“ kr.
500.000. Það er eitthvað mikið
bogið við þetta kerfi okkar.“
Of mörg dæmi um vafasaman rekstur
Úrval-Útsýn opnar nýja bókunarvél og hefur gert flugleigusamning við Icelandair Þægindi og ör-
yggi fylgja því að versla við góða ferðaskrifstofu Bæta þarf eftirlit stjórnvalda með ferðaskrifstofum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Um eftirspurnarhliðina á ferðamarkaði
segir Þórunn að áherslur landsmanna
hafi breyst. „Áður fyrr mátti reikna
með því á óvissu- og samdráttar-
skeiðum að fólk biði með að stækka
við sig, endurnýja bílinn og slægi utan-
landsferðum á frest. Í dag er það
vissulega þannig að fólk bíður með
bíla- og fasteignakaup en áhrifin á sölu
pakkaferða eru ekki jafn greinileg. Í
huga margra snýst lífið jú um að skapa
góðar minningar og eiga ánægjulegar
stundir með ættingjum og vinum. Að
fara af og til í frí til útlanda og njóta
tilverunnar er því alveg ómissandi.“
Vilja njóta þess
að vera til
FERÐALÖG Í FORGANGI
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Notalegt Í sólbaði á Benidorm. Spænskir strandbæir laða til sín fjölda Íslendinga.
Utanumhald „Sama hvað kemur upp
á eru starfsmenn okkar á vakt sjö
daga vikunnar, 24 tíma á sólarhring,“
segir Þórunn Reynisdóttir.