Morgunblaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2020 Í blaði Morgunblaðsins um bílaog vinnuvélar, sem kom út í gær, var rætt við Sigurð Kr. Björnsson, markaðsstjóra bílainn- flytjandans Ísband. Hann benti á að gjaldaumhverfi bílamarkaðarins bitnaði hvað harð- ast á þeim sem þyrftu á stórum bílum að halda til að takast á við þunga færð og erf- iða vegi. Þá væru gjöldin það há að þau hægðu á endurnýjun íslenska bílaflotans svo að hann væri með þeim elstu í Evrópu, ef ekki sá elsti.    Sigurður sagði: „Mig grunar aðef stjórnvöld myndu lækka gjöldin myndi það örva söluna svo að tekjur ríkissjóðs ykjust. Því myndi þó fylgja sá ávinn- ingur fyrir neytendur að komast í sparneytnari og öruggari bíla.“    Sigurður sagði miklar framfar-ir hafa orðið í hönnun véla svo að bílar í dag færu mun betur með eldsneytið en eldri bílar. „Mestar eru þó framfarirnar í þróun öryggisbúnaðar sem t.d. vaktar aksturinn og grípur inn í þegar stefnir í árekstur. Væri forvitnilegt að reikna út þjóð- hagsleg áhrif þess ef yngri og fullkomnari bílafloti drægi úr slysum á fólki.“    Skattar á bíla eru óhóflegir hérá landi og full ástæða til að lækka þá þegar af þeirri ástæðu. En það ætti líka að gera til að flýta endurnýjun vegna minni eldsneytisneyslu og aukins örygg- is.    Þá eru rök í málinu ef slíkbreyting yrði til að skila rík- issjóði auknum tekjum. Það er að minnsta kosti athugunar virði. Sigurður Kr. Björnsson Skattar á bíla þurfa að lækka STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bæjarráð Ísafjarðarbæjar leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir við samgönguyfirvöld að komið verði upp upplýstum og upphituðum þyrlupalli á Ísafjarðarflugvelli og aðstöðu fyrir þyrlu á vellinum til að mögulegt sé að þyrla verði staðsett á svæðinu til að stytta viðbragðs- tíma. Einnig óskar bæjarráð eftir því að skoðaður verði möguleiki á því að þyrla sé staðsett á svæðinu þegar spáð er aftakaveðri eins og var í síðustu viku. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðsins frá fundi sem haldinn var í gærmorgun, þar sem fyrst á dagskrá voru umræður um snjóflóð í Önundarfirði og Súg- andafirði og viðbrögð við náttúru- hamförum. Að auki við ofannefndar tillögur lagði bæjarráðið til við bæjarstjórn að óskað yrði eftir, við stjórn Of- anflóðasjóðs, að gert yrði nýtt hættumat fyrir Flateyri og gerð út- tekt á möguleikum á endurbótum á varnargörðum ofan Flateyrar. Einnig að skipuð yrði hættumats- nefnd fyrir öll hættumöt í Ísafjarð- arbæ og þau endurskoðuð. Mikilvægi hafnarinnar Jafnframt leggur bæjarráð til að óskað verði eftir því að Ofanflóða- sjóður taki þátt í að verja hafn- armannvirki á Flateyri fyrir snjó- flóðum í ljósi mikilvægis mannvirkisins, bæði vegna öryggis- hlutverks hafnarinnar og að varn- armannvirkin beina snjóflóðum inn á svæðið og auki þar með áhættu þar. Þá leggur bæjarráð til að óskað verði eftir því við Vegagerðina að endurskoða sjóvarnir á Suðureyri. Vilja þyrlupall á Ísafjarðarflugvöll  Í kjölfar snjóflóðs vill bæjarráð að gert verði nýtt hættumat fyrir Flateyri Alls bárust Fiskistofu umsóknir um leyfi til að veiða alls 188 land- seli og 60 útseli. Umsækjendur voru 20, en jafnframt hafa Fiski- stofu borist nokkrar fyrirspurnir um veiðarnar. Umsóknir verða sendar til Hafrannsóknstofnunar til umsagnar. Samkvæmt reglugerð eru sel- veiðar bannaðar, en Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag. Leyfi vegna takmarkaðra selveiða til eigin nota verða gefin út fyrir 1. mars í samræmi við setta reglu- gerð. Ekki liggur fyrir hvert um- fang veittra leyfa verður og mun það m.a. taka mið af umsögn Haf- rannsóknastofnunar, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. Stofn landsels er talinn í sögu- legu lágmarki við Ísland og á vá- lista íslenskra spendýra á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands er landselur metinn „í bráðri hættu“. Útselsstofninn er hins vegar met- inn „í nokkurri hættu“ á listanum. aij@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Fylgist með Landselur hefur átt í vök að verjast við Ísland. Vilja veiða 248 seli  20 sóttu um leyfi til Fiskistofu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.