Morgunblaðið - 22.01.2020, Side 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2020
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Pier leðursófi
Fáanlegur 3 lengdum
Verð frá 259.000 kr.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Demókratar á Bandaríkjaþingi lýstu
í gær yfir megnri óánægju sinni með
tillögur Mitch McConnells, leiðtoga
repúblikana í öldungadeildinni, um
málsmeðferðina í ákærumálinu til
embættismissis á hendur Donald
Trump Bandaríkjaforseta, en fyrsti
dagur réttarhaldanna fór fram í
gær.
Sökuðu demókratar McConnell og
repúblikana um að ætla að „hylma
yfir“ með forsetanum, þar sem ekki
væri gert ráð fyrir að sönnunargögn
úr rannsókn fulltrúadeildarinnar
yrðu leyfð í réttarhöldum öldunga-
deildarinnar. Þá fengi málið mun
minni tíma í meðförum deildarinnar
en ákærumálið á hendur Bill Clinton
árið 1998, auk þess sem ekki verður
tekin ákvörðun um hvort kalla eigi
vitni fyrir deildina í málinu fyrr en
báðir aðilar hafa flutt munnlegan
málflutning í því.
Adam Schiff, sem leiðir saksókn
demókrata, sakaði McConnell um að
starfa náið með Hvíta húsinu til þess
að koma í veg fyrir að réttarhöldin
yrðu sanngjörn. Hvatti hann þing-
menn repúblikana í deildinni til að
hafna tillögum McConnells.
Þurfa að fá fjóra með sér í lið
Vonir demókrata standa til þess
að þeim takist að fá fjóra þingmenn
repúblikana til þess að snúast á sveif
með sér, þegar kemur að því að
ákveða hvort vitni verði kölluð fyrir
deildina.
Demókratar vilja kalla til fjögur
vitni, sem þeir segja að geti sagt frá
því frá fyrstu hendi, hver ásetningur
Trumps var, þegar hann frestaði því
að veita Úkraínu hernaðaraðstoð.
Fátt bendir hins vegar til annars en
að meirihluti repúblikana muni
halda í málinu, sem aftur þýðir að
réttarhöldunum gæti verið lokið
með sýknu Trumps innan tveggja
vikna.
Ósáttir við tillögur McConnells
Demókratar saka repúblikana um að reyna að „hylma yfir“ með Trump
AFP
Réttarhöld Adam Schiff, sem leiðir saksókn demókrata, ávarpar fjölmiðla.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og
umhverfissinninn Greta Thunberg
voru áberandi á fyrsta degi við-
skiptaráðstefnunnar í Davos í Sviss,
en bæði ávörpuðu ráðstefnuna.
Thunberg sagði í sínu ávarpi að í
raun hefði ekkert verið gert til þess
að bregðast við loftslagsbreytingum
og að barátta sín hefði ekki enn skil-
að árangri, þó hún hefði náð eyrum
valdhafa. „Húsið okkar er enn að
brenna,“ sagði Thunberg og vísaði
þar í ávarp sitt í fyrra.
Trump notaði hins vegar ræðu
sína til þess að vara við dóms-
dagsspámönnum, sem hefðu reynst
hafa rangt fyrir sér trekk í trekk,
hvort sem um væri að ræða offjölg-
un, hungur eða að olían myndi klár-
ast. Sagði Trump jafnframt að
Bandaríkin hefðu aldrei staðið bet-
ur. „Bandaríski draumurinn er snú-
inn aftur, stærri, betri og sterkari en
nokkru sinni fyrr.“
AFP
Trump og
Thunberg
í forgrunni
Asíuríki juku í gær viðbúnað sinn í
von um að takast mætti að hefta út-
breiðslu kórónaveirunnar nýju sem
valdið hefur faraldri í Kína og dreift
sér til nærliggjandi ríkja. Heil-
brigðisyfirvöld í Kína sögðu í gær að
sex hefðu látist af völdum sjúkdóms-
ins, og að 291 maður hefði sýkst af
völdum veirunnar. Þá staðfestu yf-
irvöld á Taívan fyrsta tilfellið á eyj-
unni í gær, en það var kona sem var
að koma frá Wuhan-borg, þar sem
sjúkdómurinn á upptök sín.
Eftirlit með farþegum hefur verið
aukið á flugvöllum í nokkrum ríkjum
Asíu og í Bandaríkjunum í þeirri von
að hægt sé að greina þá sem smitast
hafa og koma í veg fyrir að þeir
breiði sjúkdóminn út.
Eftirlit hafði áður verið aukið í
Taílandi og í Hong Kong, en þar
höfðu tilfelli fundist. Ástralía,
Bangladess, Nepal og Singapúr eru
einnig á meðal þeirra ríkja sem ætla
að fylgjast betur með farþegum sem
koma frá Wuhan.
Auka viðbúnað
á flugvöllum
Sex látnir af völdum sjúkdómsins
AFP
Eftirlit Farþegi gengur í gegnum tæki á Narita-flugvellinum í Japan sem
mælir líkamshita. Fleiri ríki hafa tekið upp eftirlit vegna sjúkdómsins.
Juan Guaido,
leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í
Venesúela, heim-
sótti Downing-
stræti 10 í Lund-
únum í gær og
fundaði þar með
Boris Johnson,
forsætisráðherra
Breta, og Dom-
inic Raab utanríkisráðherra. Bret-
land hefur ásamt 50 öðrum ríkjum,
Íslandi þar á meðal, viðurkennt
Guaido sem tímabundinn forseta
Venesúela, þar sem Nicolas Mad-
uro, sem nú situr í embættinu, var
ekki kjörinn til þess með lögmætum
hætti.
Í tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu sagði að Bretar hefðu enn
trú á því að Guaido væri rétti mað-
ur til að leiða Venesúela úr núver-
andi stjórnlagakreppu.
VENESÚELA
Juan Guaido á fundi
með Boris Johnson
Juan Guaido
Hillary Clinton,
fyrrverandi ut-
anríkisráðherra
og forsetafrú
Bandaríkjanna,
segir að enginn
kunni vel við
Bernie Sanders,
mótframbjóð-
anda hennar í
flokksvali Demó-
krataflokksins árið 2016, og að eng-
inn vilji vinna með honum. Ummæl-
in falla í heimildarmynd um
Clinton, sem sýnd verður í vor á
streymisveitunni Hulu.
Í viðtali um heimildarmyndina í
tímaritinu Hollywood Reporter
neitaði Clinton einnig að staðfesta
hvort hún myndi styðja framboð
Sanders verði hann útnefndur sem
frambjóðandi flokksins. „Enginn
kann vel við hann, enginn vill vinna
með honum og hann kom engu í
verk,“ segir Clinton meðal annars.
Þá segir hún áhyggjuefni hversu
oft framboð hans tengdist árásum á
aðra frambjóðendur demókrata,
sér í lagi ef þeir eru kvenkyns.
BANDARÍKIN
Segir engan vilja
vinna með Sanders
Hillary Clinton