Morgunblaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2020
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALAN
heldur áfram
30-50%afsláttur
Peysur • Bolir • Kjólar
Jakkar • Pils • Túnikur
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Tilfellið er að börn eru miklumóttækilegri fyrir slökunheldur en fullorðið fólk.Þau eru ekki með hugann
fullan af áhyggjum og lífsins flækj-
um sem koma á fullorðinsárum. Þau
eru því miklu opnari og mjög fljót að
tileinka sér slökun og hugleiðslu,
það er að segja ef þetta er kynnt fyr-
ir þeim og haldið að þeim. Það þarf
að leiða þau inn í þetta,“ segir Eva
Rún Þorgeirsdóttir, höfundur
bókarinnar Ró, sem er fjölskyldubók
um frið og ró. Bókin geymir einfald-
ar æfingar fyrir krakka sem kalla
fram slökun og innri ró, en bókina
byggir Eva á margra ára reynslu af
því að kenna börnum jóga, slökun og
hugleiðslu. Eva Rún og Bergrún Íris
Sævarsdóttir teiknari unnu bókina
saman en litríkar vatnslitamyndir
prýða bókina.
Börn skynja streitu annarra
„Ég man þegar ég byrjaði að
kenna börnum jóga fyrir um áratug.
Þá var ekki mikið um jóganámskeið
fyrir börn og ég var oft spurð hvort
það væri í alvörunni hægt að kenna
börnum að slaka á. Á tímabili kenndi
ég sömu hópunum jóga yfir langan
tíma í Barnaskóla Hjallastefnunnar
og þá sá ég hvað börnin voru flink að
ná því að slaka á og hugleiða. Ég sá
hvað þetta gaf þeim mikið og hvað
þau voru farin að hlakka til að leggj-
ast niður og slaka á eða hlusta á hug-
leiðslusögu. Þetta snýst um að láta
slökun og hugleiðslu verða eðlilegan
hluta af lífinu.“ Eva segir að lífs-
mynstur fólks í nútímasamfélagi sé
orðið þannig að hraði og spenna sé
hluti af daglegu lífi barna okkar.
„Sífellt fleiri sem ég tala við
hafa sömu sögu að segja. Foreldrar
eru alveg farin að átta sig á að börn
þeirra upplifa streitu, ekkert síður
en við fullorðnu sem þurfum að
sinna mörgum ólíkum verkefnum á
hverjum degi. Allt gerist mjög hratt
og það eru miklar kröfur alls staðar.
Þetta ástand er samofið samfélaginu
og erfitt að leiða þetta allt saman hjá
sér. Börn eru líka svo næm, þau eru
eins og litlir svampar. Þau horfa á
okkur foreldra sína, eða
aðrar fyrirmyndir sem
eru eldri, og gera eins.
Ef það er streita inni á
heimilinu skynja þau það
og taka það inn á sig.
Þess vegna er um að
gera að kenna börnum
nógu snemma að til-
einka sér aðferðir til að
róa hugann og láta sér
líða vel.“
Þurfum ró í hversdagsleika
Eva segir að það sé gott að nota
slökun rétt áður en börnin fara að
sofa.
„Af því að þau eru eins og við,
oft uppspennt þegar þau leggjast á
koddann og alls ekkert til í að fara
að sofa. Það þarf ekkert mikið til að
byrja að kalla fram ró hjá þeim. Til
dæmis hlusta á rólega tónlist, setja
kannski lavenderolíu í vatnsbrúsa og
úða þeim ilmi í rýmið, hlusta á eina
stutta hugleiðslusögu eða anda djúpt
nokkrum sinnum.
Ef við byrjum að kynna fyrir
börnunum snemma hvernig hægt er
að kalla fram innri ró verður þetta
eitt af verkfærunum sem þau fara
með út í lífið. Það getur líka verið
mjög hughreystandi tilfinning að
einfaldlega vita að þú getir kallað
fram innri ró og látið þér líða vel.
Við búum öll yfir þessari innri
ró og með slökun og hugleiðslu erum
við í raun aðeins að kalla hana fram.
Þetta eru engir utanaðkomandi
galdrar eða sérstök hæfni sem þarf
til að geta gert þetta; allir geta tengt
sig svona inn á við. Það þarf aðeins
að gefa sér tíma og rúm til þess. En
þetta þarf samt að vera meðvituð
ákvörðun, því samfélagið býður okk-
ur sannarlega ekki mikið upp á
rólegheit. Tilgangurinn með bókinni
er að hvetja börn og fjölskyldur til
þess að kalla fram meiri ró í hvers-
dagsleikanum.“
Æfingin skapar meistarann
Eva segir að það sé hægt að
kynna hugleiðslu fyrir börnum þeg-
ar þau eru mjög ung.
„Ég hef mest unnið með börn-
um frá fimm ára aldri en ég veit að
mjög margir leikskólar hafa unnið
með slökun og hugleiðslu með
krökkum allt niður í tveggja ára. Þá
eru til dæmis gerðar örstuttar æf-
ingar í að anda djúpt og leggjast nið-
ur í smá stund.
Ég á sjálf fjögur börn og hef
notað slökun og hugleiðslu mjög
mikið heima hjá mér. Einnig er
mikilvægt að muna að til að kalla
fram ró þarf ekki endilega að taka
frá tuttugu mínútur eða hálftíma,
það er alveg nóg að taka frá nokkrar
mínútur til að anda djúpt eða gera
örstutta slökun. Allt telur og þeim
mun oftar sem við leitum í ró, þeim
mun betur gengur það hjá okkur.
Eins og svo oft skapar æfingin
meistarann.“
Engir utanaðkomandi galdrar
Börn upplifa streitu
ekkert síður en hinir full-
orðnu. Allt gerist mjög
hratt í nútímasamfélagi
og víða miklar kröfur.
Því er gott að kenna
börnum nógu snemma
að tileinka sér aðferðir
til að róa hugann.
Morgunblaðið/Eggert
Anda rólega Hér má sjá eina opnu úr fjölskyldubókinni um frið og ró.
Vinkonur Eva Rún (sú dökk-
hærða t.h.) og Bergrún Íris
teiknari unnu bókina saman.
Á kaffistundunum Borgarbókasafns-
ins er komið víða við, hvort sem það er
handverk, bókmenntir, heimspeki eða
þjóðlegur fróðleikur, svo fátt eitt sé
nefnt. Góðir gestir koma og kynna
hugðarefni sín í máli og myndum auk
þess sem áheyrendur taka virkan þátt
í umræðunum. Hún Gunna Stella ætl-
ar að vera með lífsstílskaffi í bóka-
safninu í Sólheimum í Reykjavík á
morgun fimmtudag 23. jan. kl. 17.30.
Hún kallar erindi sitt Einfaldara líf, en
Gunna Stella er heilsumarkþjálfi,
kennari og fyrirlesari sem sérhæfir sig
í því að hjálpa einstaklingum að
minnka hraðann, njóta lífsins og finna
leiðir til að einfalda lífið, heilsuna og
heimilið.
Í tilkynningu kemur fram að Gunna
Stella sé fjögurra barna móðir og eig-
inkona sem búsett er á Selfossi. Hún
miðlar eigin reynslu og aðstoðar ein-
staklinga við að breyta hugarfari sínu,
auka sjálfstraust, einblína á nærandi
mataræði, læra tímastjórnun, auka
jafnvægi og tileinka sér einfaldara líf.
Allir eru velkomnir á lífsstílskaffið
með Gunnu Stellu á morgun í Sól-
heimasafni og að sjálfsögðu verður
heitt á könnunni.
Lífsstílskaffi í Sólaheimasafni á morgun, fimmtudag
Gunna Stella hjálpar fólki að
finna leiðir til að einfalda lífið
Gunna Stella Hún er heilsumarkþjálfi, kennari og fyrirlesari með meiru.