Morgunblaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.01.2020, Blaðsíða 27
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Baráttuglaður Ýmir Örn Gíslason lék vel í vörn- inni í síðari hálfleik gegn Noregi. Hann skorar hér annað af tveimur mörkum sínum af línunni. EM 2020 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Leikurinn tapaðist í fyrri hálfleik og á fyrstu mínútunum,“ sagði svekktur Guðmundur Guðmunds- son, landsliðsþjálfari í handbolta, í samtali við mbl.is eftir 28:31-tap fyr- ir Noregi á EM karla í kvöld. Norð- menn skoruðu sjö fyrstu mörkin og tókst Íslandi ekki að jafna eftir það, þrátt fyrir góðan seinni hálfleik. „Ég tók leikhlé þegar það voru liðnar tvær mínútur og fjórtán sek- úndur. Þá var staðan 4:0. Þessi byrj- un sló okkur út af laginu og var mjög slæm. Byrjunin kom mér á óvart og kom svo öllu liðinu í koll og okkur öllum. Það er vont að gefa sjö marka forskot. Ég tók aftur leikhlé á fjórtándu mínútu og skipti nánast öllu liðinu út af. Þá fóru hlutirnir að ganga betur.“ Seinni hálfleikur jákvæður Eins og gefur að skilja var Guð- mundur mun ánægðri með seinni hálfleikinn, sem Ísland vann 16:12. „Ég verð að hrósa liðinu fyrir að svara fyrir sig. Síðari hálfleikurinn er frábærlega vel leikinn af okkar hálfu. Vörn, sókn og markvarsla gekk mjög vel í seinni hálfleik. Það er það jákvæða sem maður tekur úr þessu en byrjunin var afleit,“ sagði Guðmundur, sem átti erfitt með að útskýra hvers vegna íslenska liðið byrjaði eins illa og raun bar vitni. „Ég get ekki gefið þér skýringu á því. Ég er að leita skýringa og það getur verið sambland af ýmsu. Við förum yfir það innan hópsins. Það er ýmislegt sem kemur til greina; þreyta hjá sumum og svo fram- vegis.“ Fjárfesting til framtíðar Táningarnir Viktor Gísli Hall- grímsson og Haukur Þrastarson komu mjög sterkir inn í leikinn og var Viktor Gísli að lokum valinn maður leiksins. „Þeir voru frábærir. Þetta var dýrmæt reynsla fyrir þá í reynslu- bankann og fjárfesting til framtíðar líka. Við spiluðum eins og við ætl- uðum okkur í seinni hálfleik en það var ekki til staðar í fyrri,“ sagði Guðmundur, sem var ekki sáttur við spænska dómara leiksins. „Mér fannst þeir fá að hnoðast endalaust inn í vörnina og alltaf dæmt fríkast. Þetta var mjög ein- kennileg dómaralína. Þetta var ekki handbolti sem þeir spiluðu á köflum í seinni hálfleik.“ Aron Pálmarsson átti alls ekki sinn besta leik í dag og var tekinn af velli um miðbik fyrri hálfleiks. Hann kom ekkert meira við sögu. „Hann er heill heilsu,“ sagði Guð- mundur og bætti svo við að hann hefði ekki séð ástæðu til þess að setja Aron inn á í seinni hálfleik. „Ég sá ekki ástæðu til þess. Alex- ander Petersson var svo orðinn mjög þreyttur,“ bætti hann við. Guðmundur vildi ekki mikið fara út í lokaleik Íslands á mótinu, en hann er gegn Svíum í kvöld. „Við þurfum að láta verkin tala þá, ég vil ekki vera með neinar yfirlýsingar,“ sagði Guðmundur. Get ekki gefið skýringar á þessari slæmu byrjun okkar Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson Malmö Guðmundur Guðmundsson var að vonum óhress með byrjunina. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2020 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: DHL-höllin: KR – Valur ...................... 19.15 Blue-höllin: Keflavík – Breiðablik ...... 19.15 Mustad-höllin: Grindavík – Haukar ... 19.15 Í KVÖLD!  Óðinn Þór Ríkharðsson, landsliðs- maður í handknattleik, er búinn að skrifa undir eins árs samning við danska úrvalsdeildarfélagið Tvis Hol- stebro, frá og með 1. júlí í sumar. Óð- inn leikur í vetur sitt annað tímabil með GOG í sömu deild og lýkur því með liðinu. Óðinn var í 28 manna hópnum sem var valinn fyrir Evr- ópumótið en hann er örvhentur hornamaður eins og þeir Arnór Þór Gunnarsson og Sigvaldi Björn Guð- jónsson sem urðu fyrir valinu.  Enska knattspyrnufélagið New- castle fékk í gær alsírska miðjumann- inn Nabil Bentaleb lánaðan frá Schalke í Þýskalandi. Hann er 25 ára gamall og var áður í röðum Totten- ham í fimm ár og spilaði þá 46 leiki í ensku úrvalsdeildinni.Bentaleb hefur leikið 35 landsleiki fyrir Alsír.  Micheline Marcelita, bandarísk körfuknattleikskona sem er einnig með hollenskt ríkisfang, er gengin til liðs við Val. Hún er 24 ára gömul, leikur sem framherji og spilaði síðast með Visby í Svíþjóð en áður í Belgíu og á Spáni. Valskonur mæta KR í toppslag Dominos-deildar kvenna í Vesturbænum í kvöld.  Viðureign Fjölnis og Skautafélags Reykjavíkur á Íslandsmóti karla í ís- hokkíi gat ekki farið fram í Egilshöll- inni í gærkvöld eins og til stóð. Vélin sem sléttar svellið bilaði og þar með þurfti að fresta leiknum til 13. febr- úar.  Kristinn Ingi Halldórsson, sóknar- maður Vals í fótboltanum, er á förum frá félaginu eftir sex ára dvöl, en samkvæmt frétt á fotbolti.net býður félagið honum ekki nýjan samning. Kristinn er þrítugur og lék áður með Fram en hann hefur spilað 175 leiki í efstu deild og skorað í þeim 33 mörk.  Jóhann Berg Guðmundsson gæti leikið með Burnley á ný í kvöld þegar liðið mætir Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Jóhann hefur misst af tveimur síðustu leikjum Burnley eftir að hafa tognað í læri í bikarleik 4. janúar en knattspyrnustjórinn Sean Dyche sagði í gær að hann kæmi til greina í liðið á ný. Óvíst er að Victor Lindelöf, sænski miðvörðurinn hjá United, verði með í leiknum en hann var sendur heim af æfingu liðsins í gær vegna veikinda. Eitt ogannað Norðmenn eru komnir í undan- úrslit Evrópumótsins í handknatt- leik en þeir tryggðu sér þó ekki sætið þar með sigrinum á Íslend- ingum í gær. Það voru Svíar sem hjálpuðu þeim síðasta spölinn með því að vinna Ungverja, 24:18, í loka- leik dagsins í Malmö en þar með varð endanlega ljóst að norska liðið gæti ekki klúðrað undanúrslitasæt- inu með stórtapi gegn Slóvenum í lokaumferð milliriðilsins í dag. Það eru hinsvegar Ungverjar og Slóvenar sem slást um seinna undanúrslitasætið í dag. Ungverjar þurfa að vinna Portúgala í fyrsta leik dagsins og treysta síðan á að Slóvenar taki ekki stig af Norð- mönnum. Ef Ungverjar ná Slóven- um að stigum og bæði enda með 6 stig, er það ungverska liðið sem fer áfram vegna sigursins í innbyrðis viðureign liðanna. Slóvenar unnu nokkuð öruggan sigur á Portúgölum, 29:24. Leikur Svía og Ungverja var hinsvegar jafn þar til Svíar gerðu sex síðustu mörk leiksins. vs@mbl.is AFP Langþráð Kristján Andrésson, þjálfari Svía, gat loksins fagnað fyrstu stig- unum í milliriðlinum í gærkvöld. Svíar mæta Íslendingum í kvöld. Svíar komu Norðmönn- um síðasta spölinn Tindastóll tryggði sér í gærkvöld fjórða og síðasta und- anúrslitasætið í bikarkeppni karla í körfuknattleik með því að vinna afar öruggan sigur á Þór frá Akureyri, 99:69, í Norðurlandsslag á Sauðárkróki. Tindastóll náði tuttugu stiga forskoti í öðrum leik- hluta og staðan var 52:32 í hálfleik. Bilið breikkaði fljót- lega í seinni hálfleik og sigur Sauðkrækinga var aldrei í hættu. Hannes Ingi Másson skoraði 19 stig fyrir Tinda- stól og Gerel Simmons 14 en Pablo Hernandez skoraði 12 stig fyrir Þór. Tindastóll mætir því Stjörnunni í undanúrslitunum sem fram fara í Laugardalshöll miðvikudaginn 12. febr- úar. Í hinum leiknum mætast Fjölnir og Grindavík en úrslitaleikurinn fer fram í Höllinni þremur dögum síðar en dregið var til undanúrslitanna í há- deginu í gær. Í undanúrslitum kvenna drógust saman Valur og KR annarsvegar en Skallagrímur og Haukar hinsvegar. Þau eru leikin 13. febrúar og úrslita- leikurinn 15. febrúar eins og hjá körlunum. vs@mbl.is Sannfærandi hjá Tindastóli Hannes Ingi Másson Fjölmiðlar á Kýpur skýrðu frá því í gær að meistaralið landsins, APOEL frá Nikósíu, væri búið að ganga frá samningum við Rostov í Rússlandi um kaup á íslenska framherjanum Birni Bergmann Sigurðarsyni. Hann væri kominn til Kýpur og ætti aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun hjá félaginu. APOEL hafði í gær- kvöld ekki skýrt frá komu Björns til félagsins en viðbúið er að hann verði kynntur til leiks í dag. APOEL leik- ur í 32 liða úrslitum Evrópudeildar- innar í næsta mánuði. Björn mættur til Kýpur Morgunblaðið/Eggert Kýpur Björn Bergmann Sigurð- arson er á leiðinni til APOEL. Malmö Arena, EM karla, milliriðill II, þriðjudag 21. janúar 2020. Gangur leiksins: 7:0, 8:1, 11:3, 15:7, 16:9, 19:12, 20:15, 22:18, 23:20, 26:23, 27:24, 30:25, 31:28. Mörk Noregs: Sander Sagosen 9/2, Christian O’Sullivan 5, Magnus Jöndal 4/1, Harald Reinkind 4, Gör- an Johannessen 3, Petter Överby 2, Magnus Gullerud 2, Kristian Björn- sen 1, Eivind Tangen 1. Varin skot: Torbjörn Bergerud 11, Espen Christensen 1/1. Utan vallar: 12 mínútur. Mörk Íslands: Ólafur Guðmunds- NOREGUR – ÍSLAND 31:28 son 6, Arnór Þór Gunnarsson 4, Haukur Þrastarson 3, Viggó Krist- jánsson 3, Sigvaldi Björn Guð- jónsson 3/3, Ýmir Örn Gíslason 2, Elvar Örn Jónsson 2, Bjarki Már El- ísson 2/1, Guðjón Valur Sigurðsson 1, Kári Kristján Kristjánsson 1, Aron Pálmarsson 1. Varin skot: Viktor Gísli Hall- grímsson 13/2, Björgvin Páll Gúst- avsson 1. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Oscar Raluy og Ángel Sabroso, Spáni. Áhorfendur: 8.000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.