Morgunblaðið - 03.02.2020, Page 1
M Á N U D A G U R 3. F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 28. tölublað 108. árgangur
FJÖLHÆFT TÓN-
SKÁLD OG SÍFELLT
AÐ SEMJA Í SÓLINNI Á VETURNA
ÞREFALDUR
SIGURVEGARI Í
HÖLLINNI
1.500 ÍSLENDINGAR Á KANARÍ, 11 ÍÞRÓTTIR 27GAVIN BRYARS 28
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verkfall Starfsemi leikskóla verður
skert ef ekki næst að semja.
Stéttarfélagið Efling hefur boðað til
verkfallsaðgerða á morgun sem
munu hafa víðtæk áhrif á 63 leikskóla
borgarinnar, hjúkrunarheimili, þjón-
ustuíbúðir og sorphirðu í borginni.
Matarþjónusta verður með ólíkum
hætti milli leikskóla en eldhúsum
hjúkrunarheimila verður lokað.
Efling samþykkti undanþágu frá
verkfalli fyrir um 245 stöðugildi af
450 á velferðarsviði fyrir starfsfólk
Eflingar sem sinnir umönnun fatlaðs
fólks, aldraðra á hjúkrunarheimilum
og í heimahúsum, barna og þeirra er
þurfa á neyðarþjónustu að halda í
gistiskýlum.
Eflingarfólk starfar á 129 starfs-
stöðvum hjá Reykjavíkurborg og
starfa 1.000 félagsmenn á skóla- og
frístundasviði. Í heildina tekur verk-
fallið til 1.850 starfsmanna borg-
arinnar. Sorphirða og umhirða borg-
arlands, til dæmis snjóhreinsun og
hálkuvarnir, fellur niður á verkfalls-
dögum.
Samninganefnd Eflingar fundar
með Reykjavíkurborg í dag. Náist
ekki að semja verður farið í fyrr-
greindar verkfallsaðgerðir. »2
Mötuneyti
lokuð og
sorphirða
frestast
Yfirvofandi verk-
fall hefur mest áhrif á
börn og eldri borgara
Hildur Guðnadóttir tónskáld vann BAFTA-verðlaunin fyrir tónlist sína í
kvikmyndinni Joker á verðlaunaafhendingu í gærkvöldi. Hún hefur áður
fengið Golden Globe-verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni. Hún hefur
einnig fengið Grammy-verðlaunin og Emmy-verðlaunin fyrir tónlist sína í
sjónvarpsþáttunum Chernobyl. Hildur er einnig tilnefnd til Óskars-
verðlauna fyrir tónlistina í Joker en þau verða afhent eftir viku.
AFP
Hildur Guðnadóttir hlaut
BAFTA-verðlaunin
Vann verðlaunin fyrir tónlist sína í Joker
sem stunda íþróttir og líkamsrækt,
miðað við notkun frístundakorts á
árinu 2019, er í flestum hverfum borg-
arinnar um 60%. Þó er þátttakan
áberandi lítil í Hóla- og Fellahverfi,
miðbæ og Vesturbæ en töluvert um-
fram meðaltal í Grafarholti.
Í skýrslunni er því velt upp hvernig
skipuleggja skuli íþróttir barna og
unglinga í Vogabyggð og Ártúnshöfða
þar sem til stendur að byggja upp 13
þúsund manna hverfi. Sagt er að til
greina komi að skipta hverfinu upp á
milli félaganna í nágrenninu, þ.e. Vík-
ings, Þróttar/Ármanns, Fjölnis og
Fylkis eða þá að skilgreina nýtt
íþróttahverfi með nýju eða gömlu
hverfisfélagi.
Guðmundur Sv. Hermannsson
Helgi Bjarnason
Rekstur hverfisíþróttafélaganna í
Reykjavík hefur versnað. Afkoman
var neikvæð á árinu 2018 eftir já-
kvæða útkomu á árunum á undan.
Fór afkoma aðalstjórna og deilda úr
því að skila liðlega 100 milljóna króna
afgangi í heildina á árunum 2016 og
2017 í það að vera neikvæð um tæpar
20 milljónir kr. á árinu 2018.
Kemur þetta fram í nýjum drögum
að stöðumati varðandi stefnumótun í
íþróttamálum Reykjavíkurborgar til
ársins 2030 sem voru til umfjöllunar á
fundi menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráðs í síðustu viku. Hluti af
stöðumatinu er úttekt á rekstri.
Meðal skýringa á versnandi stöðu
félaganna er að laun og verktaka-
greiðslur þeirra hafa hækkað um
51,4%, eða um 542 milljónir kr., á ár-
unum 2014 til 2018, sem er töluvert
umfram launavísitölu. Heildarkostn-
aður við laun og verktakagreiðslur
var 1,6 milljarðar á árinu 2018.
KR skuldar mest
Í heildina jukust skuldir nokkuð ár-
ið 2018 eftir að hafa lækkað á árinu á
undan. Skuldastaða félaganna er
mjög mismunandi. KR skuldar mest
eða um 200 milljónir og hafa skuld-
irnar aukist verulega frá árunum á
undan. Skuldir Fjölnis hafa einnig
aukist. Skuldir handknattleiksdeilda
hafa aukist verulega á þessum tíma.
Hlutfall þeirra barna og unglinga
Íþróttafélög
úr hagnaði
í taprekstur
Kostnaður við laun og verktaka-
greiðslur hefur hækkað umfram verðlag
Morgunblaðið/Ómar
Íshokkí Um 60% barna taka þátt í
íþróttum eða stunda heilsurækt.
M Íþróttafélögin borga ... »14
Áframhaldandi jarðskjálftavirkni
mælist í grennd við Grindavík, en
töluvert hefur dregið úr hrinunni,
samkvæmt upplýsingum Veður-
stofu Íslands. Stærstu skjálftarnir í
gær mældust 3,3 að stærð. Sá fyrri
klukkan 9 um morguninn og sá
seinni rúmlega sjö í gærkvöldi.
Báðir fundust í Grindavík.
Stærsti skjálftinn í þessari hrinu
varð á föstudagskvöld, 4,3 að stærð.
Það er eini skjálftinn sem mælst
hefur yfir 4. Alls hafa yfir 1.200
jarðskjálftar orðið á Reykjanesi frá
því landris hófst vestan við Þor-
björn 20. janúar sl., samkvæmt
jarðskjálftavefsjá Veðurstofunnar.
Landrisið heldur áfram og er nú
komið í 4 sentimetra á þessu tíma-
bili. Veðurstofan segir að með land-
risi megi búast við áframhaldandi
jarðskjálftavirkni. »6
Dregið hefur úr
jarðskjálftavirkni
Maður réðst á
óbreytta borgara
með hníf á
Streatham-stræti
í London í gær.
Stakk hann tvo
og hlaut annað
fórnarlambið
lífshættulega
áverka. Breskir
miðlar hafa
greint frá því að
maðurinn sé dæmdur hryðjuverka-
maður og hafi nýlega verið sleppt
úr fangelsi eftir afplánun dóms fyr-
ir hryðjuverk. Var hann látinn laus
eftir að hafa aðeins afplánað helm-
inginn af þriggja ára dómnum sem
hann fékk fyrir að dreifa hryðju-
verkatengdu efni. Lögreglan í suð-
urhluta London skaut manninn til
bana á vettvangi árásarinnar. »13
Árásarmaðurinn var
nýlega látinn laus
Einn hlaut alvarlega
áverka í árásinni.