Morgunblaðið - 03.02.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bakkabæirnir tengjast aftur sínu
forna höfuðbóli, Odda á Rangár-
völlum, þegar brú á Þverá verður
tekin í notkun. Oddabrú er tilbúin en
unnið er að því að veita ánni aftur
undir brúna og tengja hana við að-
liggjandi vegakerfi. Stutt er í að brú-
in verði tekin í notkun.
„Frá gamalli tíð
voru vatnsföllin
hluti af vegakerf-
inu. Menn fóru
um á hestum og
riðu yfir árnar.
Bakkabæirnir til-
heyrðu Odda-
hverfi, eins og
nöfn sumra þeirra
gefa til kynna,
eins og Fróðholt
sem tengt er nafni Sæmundar fróða,“
segir Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri
í Rangárþingi ytra.
Þjóðleiðin um Suðurland og í kaup-
stað á Eyrarbakka lá um Oddastað.
Það er talið hafa átt þátt í frægð stað-
arins og völdum Oddaverja og hefur
Helgi Þorláksson, fyrrverandi pró-
fessor í sagnfræði við Háskóla Ís-
lands, bent á það í riti sínu „Gamlar
götur og goðavald“.
Bakkabæir sem nú eru um tíu tals-
ins en voru fyrr á tíð mun fleiri með
hjáleigum og kotum, voru frá fornu
fari, að líkindum frá dögum Sæmund-
ar fróða, í eigu Oddakirkju, eða þar
til á síðustu öld að ríkið fór að selja
kirkjujarðir. Þeir áttu því kirkjusókn
í Odda og tilheyrðu Rangárvalla-
hreppi hinum forna sem rann inn í
Rangárþing ytra þótt þessi mikli far-
artálmi væri á milli.
Hugsanleg skýring á tengslum
bæjanna við Rangárvelli en ekki
Landeyjar er að Þverá hafi runnið
sunnan við Bakkabæi en breytt um
farveg. Það eru þó ósönnuð munn-
mæli.
Öryggið aðalástæðan
Lengi hefur verið barist fyrir því
að tengja Bakkabæina og þar með
Vestur-Landeyjar við Rangárvelli.
Ágúst segir að aðalástæðan sé öryggi
íbúanna, að þeir hafi fleiri möguleika
ef jökulflóð fara yfir í kjölfar elds-
umbrota. Almannavarnir hafa hvatt
til þess að ráðist verði í þessa veg-
tengingu.
Fleira kemur til. Sókn Oddapresta
var víðfeðm og erfið yfirferðar. Þjóð-
skáldið Matthías Jochumsson sem
var prestur í Odda seint á nítjándu
öld sagði þegar hann orti um sóknina:
Brauðið erfitt er / áin kölluð þver …
Ágúst bendir á að framkvæmdin
hafi margar góðar hliðarverkanir.
Betri tenging verði innan sveitar.
Þess má geta að leið íbúa á Bakka-
bæjum til Hellu styttist mikið því nú
þurfa þeir ekki að fara krókinn upp á
Suðurlandsveg og í gegnum Hvols-
völl til að komast til stjórnsýslu-
miðstöðvar sveitarfélagsins, Hellu.
Ágúst bendir á að þarna sé komin
aukaleið um Suðurland, ef Suður-
landsvegur teppist af einhverjum
ástæðum. „Þetta mun ábyggilega
hafa áhrif til að gera ferðalög fjöl-
breyttari,“ segir Ágúst og bendir á
vaxandi straum ferðafólks og mik-
ilvægi ferðaþjónustu fyrir héraðið.
Þá komist forna höfuðbólið Oddi í
þjóðleið á ný.
Sveitarfélagið tekur þátt
„Við höfum tekið þessa fram-
kvæmd af hugmyndastigi yfir á fram-
kvæmdastig,“ segir Ágúst spurður
um ástæðu þess að ráðist er nú í
framkvæmd sem barist hefur verið
fyrir í langan tíma. Í fyrstu var hug-
myndin að koma á bráðabirgðateng-
ingu, í öryggisskyni, og nota til þess
bráðabirgðabrú sem var að ljúka
hlutverki sínu á Múlakvísl. Það
reyndist ekki skynsamlegt en málið
þróaðist áfram. Sveitarfélagið lýsti
vilja til að koma að verkinu með rík-
inu og að lokum var ráðist í fram-
kvæmdir.
Fyrsta fjárveiting fékkst á árinu
2016. Reknir voru niður um 10 metra
langir straurar sem sökklar og brú-
arstöplar voru steyptir ofan á. Á síð-
asta ári voru síðan stálbitar lagðir of-
an á stöplana og brúargólf lagt úr
timbri.
Á vegum sveitarfélagsins er verið
að leggja vegi að brúnni en vegurinn
á milli Bakkavegar og Odda verður
ekki nema tveir kílómetrar. Brúin
sjálf er 93 metra löng. Sveitarfélagið
leggur um 50 milljónir í verkið og rík-
ið um 120 milljónir. Ágúst segir að
verkið hafi verið unnið í skorpum og
ýtrustu hagkvæmi verið gætt.
Ágúst er ánægður með verkið.
„Þetta er óskaplega falleg leið. Hekla
er hvergi fallegri en frá brúnni,“ seg-
ir Ágúst Sigurðsson.
Oddi kemst í þjóðbraut á ný
Oddabrú á Þverá er að verða tilbúin Unnið að lagningu vegar Íbúar Bakkabæja tengjast
beint inn í sveitarfélag sitt Rangárþing ytra greiðir hluta kostnaðar á móti Vegagerðinni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Oddabrú Brúin á Þverá er hin myndarlegasta. 93 metrar að lengd og vegurinn að Odda tveir kílómetrar. Unnið er að því að veita ánni undir brúna.
Vegagerð Nýja brúin styttir leiðina frá Bakkabæjum að Odda um 25 km og leiðina til Hellu um 11,5 kílómetra.
Ágúst
Sigurðsson
Meðlimir hljómsveitarinnar Á móti
sól lentu í árekstri við leigubíl á leið
sinni á ball í Njarðvík í fyrrakvöld.
Hljómsveitin greindi frá slysinu á
Facebook-síðu sinni.
Sævar Helgason, gítarleikari í
hljómsveitinni, rotaðist við árekst-
urinn og var sendur á Landspítala
til athugunar. Kom í ljós rifbeins-
brot og „nokkrir fleiri fylgikvillar“.
Fóru hinir liðsmennirnir „nokk-
uð lemstraðir“ upp í annan bíl sam-
kvæmt tilkynningunni og óku til
Njarðvíkur þar sem ballið var hald-
ið þrátt fyrir slysið. Fóru meðlim-
irnir í skoðun á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja í kjölfarið og fengu að
sögn „æðislega meðhöndlun og
sprautur“. rosa@mbl.is
Lentu í bílslysi á
leiðinni á ball
Morgunblaðið/Þorkell
Hljómsveit Á móti sól er vinsæl á sviði.