Morgunblaðið - 03.02.2020, Side 11

Morgunblaðið - 03.02.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020 Smiðshöfða 9 , 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Ljósaskilti fyrir þitt fyrirtæki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnisölu í plexigleri og álprófílum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Á mörgum að heiman sem hingað koma heyri ég að fólki finnst nauðsynlegt að komast í sól á vet- urna,“ segir Svanhildur Davíðs- dóttir fararstjóri ferðaskrifstof- unnar Vita á Gran Canaria á Kanaríeyjum. „Hér er þægilegt að dveljast og núna þann 1. febrúar er hér 27 stiga hiti og hæg gola. Í þannig veðráttu eru stuttbuxur, bolur og sandalar klæðnaður dagsins.“ Um 1.500 Íslendingar dveljast um þessar mundir á Gran Canaria, en stóru ferðaskrifstofurnar á Ís- landi eru með Kanarí á sinni ferðaáætlun og aukinheldur sem nokkur hópur Íslendinga hefur fasta búsetu á svæðinu. Svanhild- ur og Karl Rafnsson komu til starfa fyrir Vita á Kanarí árið 2012 og hafa verið á hverjum vetri síðan. Þau fóru utan í september síðastliðnum, en talsvert er af Ís- lendingum á Kanarí á haustdög- um. Þeim svo fjölgar verulega eft- ir áramótin og vertíðin stendur út apríl. Þá er flogið vikulega til Kanarí á sumrin. Allar stóru ferðaskrifstofurnar á Íslandi eru með Kanarí á sinni ferðaáætlun og aukinheldur hefur nokkur hópur Íslendinga fasta búsetu á þessari fjarlægu strönd. Í fimm stunda fjarlægð „Á hverjum tíma eru um 300 farþegar frá Vita hér á svæðinu, fólk sem hér er bæði á hótelum og í íbúðagistingu. Margir ganga hér að sínu ár eftir ár; fara á sama hótelið, eru með sama vinafólkinu og svo framvegis. Vilja öryggi og láta sér líða vel. Yfirleitt er hér mjög þægilegt fólk og meðalald- urinn yfir vetrartímann er um 70 ár,“ útskýrir Karl sem segir starf þeirra Svanhildar vera mjög fjöl- breytt. Þeirra sé að skila af sér og sækja hópa sem koma á föstudög- um en milli Íslands og hinna sól- ríku Spánareyja í Atlantshafinu er rúmlega fimm klukkustunda flug. Og svo er að koma fólkinu á hótel og sjá því fyrir dægradvöl; en í boði eru gönguferðir, minigolf, fé- lagsvist og spilabingó, kvöld- skemmtanir sem og ferðir af ýmsu tagi svo eitthvað sé nefnt. Þá nýt- ur morgunleikfimi vinsælda. Svo er hægt að fara út að borða, en viðmiðunarverð fyrir máltíð á veitingahúsi er 15-20 evrur. Flöskubjór í búð kostar 30 cent! Harmonikan er þanin og spilað á gítarinn Um fimm milljónir ferða- manna koma til Kanaríeyja á hverju ári. Þjóðverjar, Bretar, Skandinavar og Holllendingar eru þar fjölmennir og Íslendingar líka sé hin fræga höfðatala höfð sem viðmið. Þá sækir fólk frá megin- landi Spánar mikið til eyjanna góðu og er talið að sá hópur sé um tvær milljónir talsins árlega. „Lífið hér á Kanarí er eins og í hverju öðrum samfélagi; hér get- ur allt gerst. Oftast er gaman en stundum bregður út af með veik- indum eða öðru. Sumir þurfa að komast til læknis og þá reddum við því eins og öðrum vanda- málum. En oftast eru veikindi ekki alvarlegri en svo að þau ganga fljótt yfir í mildu loftslag- inu hér,“ segir Svanhildur. Karl á að baki langan feril sem hótelstjóri og segir það starf um margt líkt því sem hann sinnir nú á Kanarí. „Störf í ferðaþjón- ustu ganga út á samskipti við fólk og hér á Kanarí kynnist maður mörgum. Fólkið kemur víða af landinu en svona í fljótu bragði finnast mér t.d. Suðurnesjamenn, Selfyssingar, Hornfirðingar, Djúpavogsbúar og Eyjafólk vera hér áberandi. Og auðvitað eru sungin Eyjalög og fleira á kvöld- skemmtunum, þar sem harm- onikan er þanin og spilað á gít- arinn,“ segir Karl og nefnir Íslendingafélagið sem nýlega var stofnað á Kanaríeyjum. Formaður þess er Jóhanna Júlíusdóttir úr Vestmannaeyjum. „Ætlunin með starfinu er að gefa landanum enn betra tækifæri til að hittast og fræðast um eitt og annað á hér á eyjunum þar sem til staðar er orðið íslenskt samfélag. Satt að segja er þetta mjög heillandi veröld hér þar sem er gaman að vera og starfa.“ Um 1.500 Íslendingar dveljast að staðaldri á Kanaríeyjum nú í skammdeginu Ljósmynd/Aðsend Kanarífólk Karl Rafnsson og Svanhildur Friðriksdóttir sælleg á hinu sólríku Spánareyjum í Atlantshafinu. Sólin er nauðsynleg á veturna  Karl Rafnsson er fæddur 1954. Hótelstjóri víða um land frá árinu 1975 og hefur sinnt fararstjórn á Kanaríeyjum á veturna frá 2012.  Svanhildur Davíðsdóttir er fædd 1952. Sinnti fararstjórn víða um lönd á vegum Sam- vinnuferða Landsýnar frá 1987- 1998. Eftir það fyrir Úrval Útsýn og nú VITA. Einnig starfandi með Karli við hótelstjórn á Ís- landi. Hver eru þau? Tæplega tvær milljónir erlendra ferðamanna komu til landsins með flugi um Keflavíkurflugvöll árið 2019 eða um 14,2% færri en árið 2018. Hlutfallslega var fækkunin mest í maí (-23,6%) og september (-20,7%). Þetta kemur fram á vef- síðu Ferðamálastofu í nýrri sam- antekt. Þar kemur fram að 71% ferðamanna var af tíu þjóðernum og þar af voru Bandaríkjamenn, Bretar, Kínverjar, Þjóðverjar og Frakkar fjölmennastir. Þá fækkaði Bandaríkjamönnum mest milli ára 2018-2019 eða um þriðjung og var fækkunin næst mest á Kanada- mönnum (-20%) og Bretum (-12%). Níu af hverjum tíu ferðamönn- um voru í fríi á Íslandi sem eru álíka margir og árið 2018. Dvalartími erlendra ferðamanna var um 6,6 nætur árið 2019, álíka og árið 2018. Lengst dvöldu ferða- menn hér í ágúst, að meðaltali í 8,4 nætur og í júlí en þá dvöldu þeir að meðaltali í átta nætur. Styst stöldruðu ferðamenn við í janúar þegar þeir dvöldu að meðaltali í 4,5 nætur. Af tíu fjölmennustu þjóðern- unum dvöldu Þjóðverjar, Frakkar, Spánverjar og Ítalir lengst eða meira en átta nætur. rosa@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Túristar Ferðamönnum fækkar. Enskumæl- andi ferða- fólki fækkar  14,2% færri heim- sóttu Ísland 2019 208 nemendur voru brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn á laugardag sem haldin var í Eldborgarsalnum í Hörpu. 153 nem- endur voru brautskráðir úr grunn- námi, 54 úr meistaranámi og einn úr doktorsnámi. 71 nemandi útskrifaðist samtals af samfélagssviði, 31 úr grunn- námi og 40 úr meistaranámi. Af tækni- sviði útskrifuðust samtals 137 nem- endur, 122 úr grunnnámi, 14 úr meistaranámi og einn úr doktorsnámi. Viðskiptaráð Íslands veitti verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur en þau hlutu Elín Lára Reynisdóttir, BSc í íþróttafræði, Valgarður Ragnheiðar Ívarsson, BSc í tölvunarfræði, Jónína Sigrún Birgisdóttir, BSc í sálfræði, Þorri Geir Rúnarsson, BSc í við- skiptafræði, Björgvin Grétarsson, BSc í byggingartæknifræði, Hannes Rann- versson, BSc í rekstrarverkfræði, og Sonja L. Estrajher Eyglóardóttir, BA í lögfræði. rosa@mbl.is 208 brautskráðust frá HR á laugardag  Einn brautskráðist úr doktorsnámi Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík Útskrift 208 nemendur Háskólans í Reykjavík fögnuðu brautskráningu sinni á laugardag. 153 brautskráðust úr grunnnámi og 54 úr meistaranámi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.