Morgunblaðið - 03.02.2020, Page 14

Morgunblaðið - 03.02.2020, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020 Oddi á Rang-árvöllum ereinn mik- ilvægasti staður landsins þegar kemur að menningu þess og sögu. Sú staðreynd að Sæmundur fróði Sigfússon sat staðinn, vígðist þar til prests og reisti kirkju væri Íslendingum nægt tilefni til að sýna staðnum áhuga. En í Odda var einnig sonarsonur hans, Jón Loftsson, sem á sinni tíð var einn mesti, ef ekki mesti, höfðingi landsins. Þá var Oddi mikið mennta- og menningarsetur og raunar höfð- ingjasetur sem jafnaðist á við slík í fjölmennari ríkjum handan hafsins. Þetta er þó ekki allt því að í Odda var einnig lagður grunnur að menntun Snorra Sturlusonar sem Jón tók í fóstur eins og þá tíðkaðist í virðingar- skyni eða til að tryggja friðinn, eins og í þessu tilviki. Veganesti Snorra Sturluson- ar frá Odda nýttist honum vel bæði heima og erlendis enda varð hann um hríð helsti höfð- ingi landsins og byggði sjálfur upp menningarsetur í Reykholti í Borgarfirði. Á síðustu áratug- um hefur verið haldið vel á end- urreisn þess menningarseturs, sagan verið rannsökuð og varð- veitt með lifandi og áhugaverð- um hætti svo landsmenn allir, og raunar í seinni tíð erlendir ferðamenn í vaxandi mæli, geta kynnt sér merka sögu staðarins. Í Morgunblaðinu um helgina var sagt frá því að nú væri í und- irbúningi að ráðast í þverfag- lega rannsókn á Odda á Rangár- völlum sem rit- menningarstað. Á vegum Oddafélags- ins sé unnið að end- urreisn höfuðbólsins Odda og rannsóknirnar séu grundvöllur þess. Fram kemur í fréttinni að ekki hafi fengist fjárveitingar úr fornminjasjóði til að rannsaka hella á Odda sem tengdir hafa verið nafni Sæmundar fróða og taldir eru elstu manngerðu hell- ar hér á landi. Þar hafa þegar fundist merkar minjar og sjálf- sagt er að halda rannsóknum áfram. Íslendingar þurfa að sýna sögu staða á borð við Odda á Rangárvöllum virðingu með því að stunda þar nauðsynlegar rannsóknir og gera almenningi kleift að kynna sér söguna. Saga Íslands er stórmerkileg, ekki síst sú sem snýr að ritmenningu en þar var Oddi ótvírætt í fremsta flokki á miðöldum, eins og formaður Oddafélagsins, Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, bendir á í fréttapistli á vef félagsins. Hann bindur vonir við að með átaks- verkefni ríkisstjórnarinnar um ritmenningu miðalda, sem sett hafi verið á laggirnar í fyrra, fá- ist það fjármagn sem þurfi til að stunda rannsóknir á Odda sem séu á algjörum byrjunarreit. Óhætt er að taka undir að tíma- bært er að rannsóknir og upp- bygging á þessu merka menn- ingarsetri fái aukið vægi. Merkileg saga sem verðskuldar rann- sóknir og kynningu} Oddi á Rangárvöllum Afríka virðistsjálfsagt fjar- læg og hún er það að ýmsu leyti, jafn- vel þó að heimurinn fari minnkandi í vissum skilningi. Þessi fjarlægð á einkum við um löndin sunnan- vert við Sahara sem nefnd hafa verið Sahel. Í mörgum þessara landa hefur um árabil geisað stríð við ýmiskonar vígahópa, ekki síst íslamska, og í seinni tíð hefur íslömskum hryðjuverka- hópum vaxið ásmegin í þessum stríðsátökum. Skýringin á því er meðal annars liðsauki sem þeim hefur borist frá Sýrlandi og Írak þar sem þeir hafa farið halloka. Baráttan við þessa hópa í löndunum sunnanvert við Sa- hara er gríðarlega þýðingarmikil fyrir öryggi Evrópu, en eins og gjarnan hafa ríki Evrópusam- bandsins almennt dregið lapp- irnar þegar kemur að því að stilla til friðar á svæðinu. Frakk- ar, sem hafa skorið sig úr í þess- um efnum og reynt sitt til að stuðla að friði, greindu frá því um helgina að þeir ætluðu að fjölga í her sínum á svæðinu um 600 manns en þar eru nú 4.500 franskir hermenn. Þetta er ekki mikill fjöldi á þessu gríðarlega stóra landsvæði. Bandaríkjamenn hafa heldur fleiri hermenn á svæðinu, aðallega þó í austurhluta þess en hafa einnig stutt vel við baráttu Frakka í vesturhlutanum. Óvíst er um framhaldið í þessum efn- um hjá Bandaríkjamönnum. Forsetinn hefur talið Evrópu- ríkin eiga að taka aukinn þátt í stað Bandaríkjanna en þing- menn hafa lagt áherslu á að Bandaríkin haldi stöðu sinni. Mikilvægt er að Vesturlönd öll standi saman um að halda hryðjuverkahópunum niðri og reyna að vinna bug á þeim en eðlilegt væri að ríki Evrópu tækju meiri þátt í þessari bar- áttu. Þau verða fyrir mestum bú- sifjum vegna fólks sem flýr ástandið heima fyrir og mögu- lega einnig vegna hryðjuverka- manna sem geta átt greiða leið til Evrópu frá Afríku. Þau geta ekki ætlast til að Bandaríkin ein tryggi friðinn um allan heim og sitji jafnvel á sama tíma reglulega undir skömmum Evrópuríkja sem sjálf leggja lít- ið af mörkum. Hryðjuverkaógnin í Afríku sunnan Sahara fer vaxandi} Barátta sem virðist fjarlæg BAKSVIÐ Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Laun og verktakagreiðsluríþróttafélaga í Reykjavíkhækkuðu um 51,4% eðaum 541,7 milljónir króna á tímabilinu 2014 til 2018, og námu samtals um 1,6 milljörðum króna ár- ið 2018. Kostnaður aðalstjórna félag- anna vegna launa skrifstofa og mannvirkja hækkaði um 29,6% á tímabilinu og var rúmar 570 millj- ónir árið 2018. Á sama tímabili hækkaði launavísitala um 35,8%. Þetta kemur fram í drögum að stöðumati varðandi stefnumótun í íþróttamálum Reykjavíkur til ársins 2030, sem voru til umfjöllunar á fundi menningar- íþrótta- og tóm- stundaráðs borgarinnar í síðustu viku. En ákveðið var fyrir réttu ári á fundi borgarstjórnar, að setja af stað vinnu um stefnumótun í þessum málum. Markmið vinnunnar var einkum, að jafna aðstöðu til þátttöku í íþróttum með áherslu á að jafna að- stöðumun, m.a. með tilliti til kyns og efnahagslegrar stöðu barna og ung- linga og eldri borgara, mikilvægi hreyfingar fyrir alla aldurshópa og um öflugt íþróttastarf um alla borg. Hverfafélög í Reykjavík eru 9 talsins: Fjölnir, ÍR, Ármann, KR, Fylkir, Fram, Valur, Víkingur og Þróttur. Að auki eru 66 sérgreina- félög starfandi í borginni. Í stöðumatinu kemur fram að heildarrekstrarniðurstaða að- alstjórna hverfafélaganna sé að versna, hafi verið neikvæð 2018 en hafði árin á undan verið jákvæð. Einkum hafi afkoma körfubolta- og fótboltadeilda félaganna versnað undanfarin ár, ef Valur er undanskil- inn í fótbolta en félagið fékk árið 2018 styrk frá Knattspyrnu- sambandi Evrópu sem nam 172 milljónum króna. Sé sá styrkur und- anskilinn væri niðurstaða knatt- spyrnudeilda hverfafélaganna í heild neikvæð um 14,8 milljónir króna árið 2018. Framlag borgarinnar til rekstrar hefur á þessu árabili hefur hækkað um rúmlega 20%. sem þýðir að fé- lögin þurfa í meira mæli að treysta á sjálfsaflafé. Alls námu styrkir Reykjavíkurborgar til íþróttafélag- anna rúmum 2,6 milljörðum króna á síðasta ári. Ný mannvirki Áætlað fasteignamat íþrótta- mannvirkja í Reykjavík er nú um 51 milljarður króna. Tæplega helm- ingur þessara mannvirkja er stór íþróttahús. Rekstrarkostnaður þess- ara mannvirkja, án launa, hefur auk- ist talsvert umfram verðlag á ár- unum 2014-2018, eða um 50% og segir í skýrslunni að sá rekstur sé að verða æ meiri baggi á félögunum. Flest íþróttafélögin telja íþrótta- aðstöðuna ekki nógu góða og því hafa komið margar hugmyndir um nýja aðstöðu eða mannvirki fyrir íþróttafélögin í Reykjavík. Í skjalinu er birtur listi yfir hug- myndir íþróttafélaga og íþrótta- sambanda um ný íþróttamannvirki og kemur m.a. fram að viðræður séu í gangi milli ríkis, borgar og KSÍ um uppbyggingu á Laugardalsvelli sem þjóðarleikvangs í knattspyrnu og fyrir viðburði. Þá hafi Frjálsíþrótta- samband Íslands óskað eftir við- ræðum við borg og ríki um uppbygg- ingu á frjálsíþróttavelli sem yrði þjóðarleikvangur fyrir íþróttina. Þá hafa Handknattleikssamband Ís- lands og Körfuknattleikssamband Íslands óskað eftir umræðum við borg og ríki um uppbyggingu í íþróttahúsi sem yrði þjóðarleik- vangur með æfingaaðstöðu fyrir körfuknattleik og handknattleik og fyrir landsleiki og gæti nýst fyrir fleiri íþróttir og ýmsa viðburði. Loks hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur lagt fram hugmyndir um fjölnota Íþróttamannvirki í Laugardal. Sem flestir hreyfi sig Í drögum að lokaskjali um stefnu í íþróttamálum Reykjavíkur til 2030, sem einnig voru kynnt á fundi menn- ingar-, íþrótta- og tómstundaráðs, er m.a. sett fram sú framtíðarsýn að eftir áratug stundi nær allir Reyk- víkingar reglulega íþróttir, líkams- rækt eða aðra hreyfingu og að 70% borgarbúa að lágmarki stundi rösk- lega hreyfingu eða meira að minnsta kosti þrisvar í viku. Vísað er til þess að niðurstöður úr þjónustukönnun Reykjavíkur árið 2019 hafi gefið til kynna að 64% íbúa stundaði rösklega hreyfingu í að minnsta kosti 30 mínútur þrisvar sinnum í viku eða oftar. Rekstrarniðurstaða íþróttafélaganna í Reykjavík 2014-2018 Heildarrekstrarniðurstaða íþróttafélaga, m.kr. Rekstrarniðurstaða deilda, m.kr. Rekstrarkostnaður mannvirkja án launa, m.kr. Knattspyrna Handbolti Körfubolti 120 100 80 40 20 0 -20 120 100 80 60 40 20 0 -20 300 250 200 150 100 50 0 2014 2015 2016 2017 2018 2014 2015 2016 2017 2018 2014 2015 2016 2017 2018 47 75 110 103 -20 50% hækkun 2014-2018 Heimild: ÍBR UEFA-styrkur knatt spyrnu- deildar Vals meðtalinn Íþróttafélög borga stöðugt hærri laun Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ I nga Sæland fer oft mikinn í ræðustól Al- þingis, fjölmiðlum og greinaskrifum enda liggur henni oft mikið á hjarta. Hjarta Ingu er örugglega stórt enda vill hún taka utan um allt og alla. Inga á það hins vegar til að ýja að hlutum og dylgja. 25. jan- úar sl. ritaði Inga pistil hér í Moggann og kaus að tengja stutta viðkomu mína í sjávarútvegs- ráðuneytinu við afrit af samkomulagi sem ís- lensk og pólsk stjórnvöld stefndu á að gera og kom fyrir í tölvupóstum í sk. Samherjaskjölum. Ýjar hún að því að Samherji hafi haft einhvern aðgang að ráðuneytinu. Nú er það þannig að samkomulagið er milli tveggja aðila, Íslands og Póllands. Fjölmargir koma að slíkri vinnu, emb- ættismenn beggja landa, ræðismenn og sendi- ráðsfólk, starfsfólk ráðherra, ráðherra o.fl. Eftir fyrirgrennslan hér heima sem ég fór í er þessi skjöl komu fram er ljóst að ekki fóru nein gögn úr ís- lenska sjávarútvegsráðuneytinu til eins tiltekins fyrirtækis. Af skrifum Ingu verður heldur ekki séð að þetta sé endan- legt plagg sem ritað var undir. Stjórnvöld á hverjum tíma reyna að gera samninga við önnur ríki um hagsmuni þjóðarinnar. Stjórnmálamenn mæta á viðburði o.fl. til að sýna hópum eða fyrirtækjum stuðning en ekki man ég eftir því að nokkurn tíma hafi eitt fyrirtæki notið sérstakrar fyrirgreiðslu, a.m.k. ekki hjá mér. Dylgjur Ingu eru vitanlega pólitískar enda flokkur hennar í vanda en miðað við hvernig hún sjálf vill að stjórnmálin séu þá kemur þetta á óvart. Það má dylgja um margt t.d. að Inga nyti sérkjara í sinni risastóru öryrkjaíbúð sem rúmað gæti stóra fjölskyldu eða að fjár- munir sem hún lagði hald á eftir söfnun í Há- skólabíói hefðu ekki skilað sér á réttan stað? Í málatilbúnaði Ingu 25. janúar kom ekkert nýtt fram. Samningar sem gerðir eru við önnur ríki taka mið af heildarhagsmunum Íslands sem er annað en Inga ýjar að í sínum pistli. Sem betur fer þá fara þeir samningar oftast saman við hagsmuni fyrirtækja og einstaklinga en alltaf er horft á hagsmuni heildarinnar. Það á líka að vera þann- ig þegar samið er að leitað sé álits hagaðila því það er til lítils að semja ef það skilar engu. Við Inga vitum það bæði að í störfum okkar hittum við eða fáum óskir um að hitta fólk frá margs konar samtökum og fyrirtækum, hópa fólks og einstaklinga sem hafa skoðanir, hugmyndir eða óskir fram að færa. Það er eðli stjórnmálanna, en okkar að vega og meta hvort við getum, viljum og teljum við hæfi að hlusta og e.t.v. aðstoða. Ég myndi gjarnan vilja hitta fleiri frá fyrirtækjum og einstaklinga með frábærar hugmyndir en ég hef þegar gert. Við eigum í góðu sambandi við Pól- verja og án efa getum við eflt það enn frekar. Hér á landi búa þúsundir Pólverja og margir Íslendingar stunda við- skipti í Póllandi. Þannig á það að vera sem víðast. Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Inga og dylgjurnar Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins. gunnarbragi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.