Morgunblaðið - 03.02.2020, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020
Forvitni Framhaldsskólanemar fræddust og skemmtu sér konunglega á kynningu tannsmíðanema á námi sínu á Háskólaherminum, sem haldin var í Háskóla Íslands dagana 30. og 31. janúar.
Eggert
Mikil umræða hef-
ur átt sér stað á und-
anförnum áratugum
um legu Sundabraut-
ar, einkum um hvaða
leið sé best við þver-
un Kleppsvíkur, sem
líka er kölluð Elliða-
árvogur á kortum.
Lágbrú besti
kosturinn
Nokkrar tillögur hafa verið sett-
ar fram um þverun Kleppsvíkur,
m.a. um hábrú. Er þetta sá kostur
sem líklega fæstir mæla með, ekki
síst vegna kostnaðar, veðurs og
vinda og óboðlegs aðgengis fyrir
hjólandi og gangandi. Lágbrú er
verulega ódýrari og fellur mun
betur að landslagi og umhverfi og
hefur öllu minni sjónræn áhrif en
hábrú.
Jarðgöng fengu jákvæðar und-
irtektir borgaryfirvalda fyrir um
15 árum, en sá kostur er fjárhags-
lega nánast óviðráðanlegur. Ljóst
er að jarðgöng eru tugum millj-
arða króna dýrari en lágbrú.
Lágbrú er einnig verulega hag-
stæðari en jarðgöng hvað varðar
rekstrarkostnað og aðgengi fyrir
gangandi og hjólandi vegfarendur.
Mikilvægt er að skoðaður verði
nýr möguleiki á lágbrú í stað til-
lögu um lágbrú með tengingu við
Holtaveg.
Komið í veg fyrir
bestu lausnina
Til skamms tíma var svokölluð
Innri-leið eða Eyjaleið með land-
töku við Kleppsmýrarveg ódýrasti
og besti kosturinn. Þessi lausn,
sem kynnt var á sínum tíma í Að-
alskipulagi Reykjavíkur, er í dag
ekki framkvæmanleg, þar sem
borgaryfirvöld samþykktu árið
2015 nýja byggð á svæði við Súð-
arvog sem kemur í veg fyrir þá
lausn. Reykvíkurborg og Vega-
gerðin sitja nú uppi með valkosti
sem eru bæði dýrari og óhag-
kvæmari.
Áhugi meirihluta borgarstjórnar
á lagningu Sundabrautar hefur frá
árinu 2011 verið í lágmarki, en 22.
sept. 2011 var undirrituð vilja-
yfirlýsing af hálfu innanríkis- og
fjármálaráðuneyta, Vegagerð-
arinnar og Samtaka sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu, sem gerði
m.a. ráð fyrir frestun Sundabraut-
ar í 10 ár. Sundabraut komst á ný
inn á samgönguáætlun 2013-2016
en greinilega ekkert gert með þá
samþykkt. Sú staðreynd, að
Sundabraut hefur ekki þegar verið
byggð, á verulegan þátt í því að al-
gjört umferðaröngþveiti ríkir í dag
á höfuðborgarsvæðinu.
Afstaða samgönguráðherra
Á facebooksíðu sinni hinn 20.
sept. 2019 sagði Sigurður Ingi Jó-
hannsson samgönguráðherra m.a.
þetta: „Tveir valkostir eru einkum
taldir koma til greina. Annars veg-
ar jarðgöng í Gufunes sem miðast
við núgildandi skipulag og hins
vegar lágbrú yfir Kleppsvík yfir á
Holtaveg sem kallar á breytt
skipulag á hafnarstarfsemi. Ég hef
áður sagt að lágbrú yfir Kleppsvík
sé fýsilegri kostur en jarðgöng.“
Ennfremur segir hann í grein í
Fréttablaðinu 12. des. 2019, að
„næstu skref að Sundabraut verði
kynnt fljótlega“. Ekki er vitað til
þess að einhver viðbrögð hafi kom-
ið frá borgaryfirvöldum vegna
ofangreindra viðhorfa samgöngu-
ráðherra.
Lágbrú yfir Kleppsvík, sem
tengist Holtavegi, er lakur kostur
út frá umferðarlegum forsendum;
setur hafnarstarfsemi á svæðinu í
uppnám og kallar á verulegan
kostnað við uppbyggingu nýs hafn-
arsvæðis.
Ný tillaga um lágbrú
Hér er kynnt tillaga um lágbrú,
um 400 metrar að lengd, sem hef-
ur landtökustað á móts við Kjal-
arvog og tengist við Sæbraut í
undirgöngum. Tillagan felur í sér
óverulega skerðingu á athafna-
svæði hafnarinnar og ætti teng-
ingin jafnframt að hafa lítil sem
engin áhrif á starfsemi fyrirtækja
á hafnarsvæðinu.
Ný skipulagstillaga um legu
Sundabrautar felst í eftirfarandi:
Myndin sýnir tillöguna í meg-
indráttum. Rauð lína sýnir þverun
Sundabrautar yfir Elliðaárvog.
Rauðar slitnar línur sýna teng-
ingar við Sæbraut í göngum.
Grænar línur sýna afmörkun
nýrra landfyllinga. Landtöku-
staður Sundabrautar er nokkurn
veginn mitt á milli Holtavegar og
Kleppsmýrarvegar.
Í samgöngusáttmála ríkisins og
sveitarfélaganna á höfuðborg-
arsvæðinu (frá haustinu 2019) er
gert ráð fyrir því að Sæbraut verði
lögð í stokk á kaflanum milli
Miklubrautar og Holtavegar. Hér
er hins vegar gert ráð fyrir að Sæ-
braut sé aðeins í stokk á kaflanum
milli Miklubrautar og Skeiðarvogs.
Í þessari nýju tillögu er ekki þörf
á að hafa Sæbraut í stokk á kafl-
anum milli Skeiðarvogs og Holta-
vegar, þar sem ekki er gert ráð
fyrir að umferðarstraumar milli
Sæbrautar og Sundabrautar fari
um þennan kafla Sæbrautar.
Tillagan felst m.a. í því, að göng
fyrir tengingar Sundabrautar við
Sæbraut til og frá suðri opnist um
200-300 m sunnan Skeiðarvogs.
Þessar tengingar liggja undir mót
Sæbrautar og Skeiðarvogs og
auka því flutningsgetu gatnamót-
anna. Með þessu er líka uppfyllt
skilyrði um að öll gatnamót á meg-
instofnveginum Reykjanesbraut-
Sæbraut-Sundabraut séu mislæg.
Áætlaður kostnaður
nýrrar tillögu
Ætla má að stofnkostnaður 1.
áfanga Sundabrautar, þ.e. milli
Sæbrautar og Borgarvegar í Graf-
arvogi, yrði á bilinu 35-40 millj-
arðar kr. Til samanburðar er lík-
legt að valkostur um lágbrú með
landtöku á móts við Holtaveg yrði
um 15 milljörðum kr. dýrari. Í
þeim valkosti þarf Sæbrautar-
stokkur að vera um 500 m lengri,
eða um 5 milljörðum kr. dýrari.
Auk þess má gera ráð fyrir a.m.k.
10 milljörðum kr. í bætur til Faxa-
flóahafna, Samskipa og fleiri aðila
vegna skerðingar á hafnaraðstöðu
og starfsemi fyrirtækja.
Eftir Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson og
Þórarin Hjaltason
»Hér er kynnt tillaga
um lágbrú, um 400
metrar að lengd, sem
hefur landtökustað á
móts við Kjalarvog og
tengist við Sæbraut í
undirgöngum
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Vilhjálmur er fv. borgarstjóri. Þór-
arinn er umferðarverkfræðingur og
fv. bæjarverkfræðingur í Kópavogi.
villith@isl.is
thjaltason@gmail.com
Sundabraut – ný leið
Þórarinn
Hjaltason
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Lágbrú með tengingu
við Sæbraut í
undirgöngum
Elliðavogur
Holtav
egur
Holtagarðar
Kjalarvogur
S
æ
b
ra
u
t
S
æ
b
ra
u
t
Kleppsmý
rarvegur