Morgunblaðið - 03.02.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.02.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020 Forvitni Framhaldsskólanemar fræddust og skemmtu sér konunglega á kynningu tannsmíðanema á námi sínu á Háskólaherminum, sem haldin var í Háskóla Íslands dagana 30. og 31. janúar. Eggert Mikil umræða hef- ur átt sér stað á und- anförnum áratugum um legu Sundabraut- ar, einkum um hvaða leið sé best við þver- un Kleppsvíkur, sem líka er kölluð Elliða- árvogur á kortum. Lágbrú besti kosturinn Nokkrar tillögur hafa verið sett- ar fram um þverun Kleppsvíkur, m.a. um hábrú. Er þetta sá kostur sem líklega fæstir mæla með, ekki síst vegna kostnaðar, veðurs og vinda og óboðlegs aðgengis fyrir hjólandi og gangandi. Lágbrú er verulega ódýrari og fellur mun betur að landslagi og umhverfi og hefur öllu minni sjónræn áhrif en hábrú. Jarðgöng fengu jákvæðar und- irtektir borgaryfirvalda fyrir um 15 árum, en sá kostur er fjárhags- lega nánast óviðráðanlegur. Ljóst er að jarðgöng eru tugum millj- arða króna dýrari en lágbrú. Lágbrú er einnig verulega hag- stæðari en jarðgöng hvað varðar rekstrarkostnað og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Mikilvægt er að skoðaður verði nýr möguleiki á lágbrú í stað til- lögu um lágbrú með tengingu við Holtaveg. Komið í veg fyrir bestu lausnina Til skamms tíma var svokölluð Innri-leið eða Eyjaleið með land- töku við Kleppsmýrarveg ódýrasti og besti kosturinn. Þessi lausn, sem kynnt var á sínum tíma í Að- alskipulagi Reykjavíkur, er í dag ekki framkvæmanleg, þar sem borgaryfirvöld samþykktu árið 2015 nýja byggð á svæði við Súð- arvog sem kemur í veg fyrir þá lausn. Reykvíkurborg og Vega- gerðin sitja nú uppi með valkosti sem eru bæði dýrari og óhag- kvæmari. Áhugi meirihluta borgarstjórnar á lagningu Sundabrautar hefur frá árinu 2011 verið í lágmarki, en 22. sept. 2011 var undirrituð vilja- yfirlýsing af hálfu innanríkis- og fjármálaráðuneyta, Vegagerð- arinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem gerði m.a. ráð fyrir frestun Sundabraut- ar í 10 ár. Sundabraut komst á ný inn á samgönguáætlun 2013-2016 en greinilega ekkert gert með þá samþykkt. Sú staðreynd, að Sundabraut hefur ekki þegar verið byggð, á verulegan þátt í því að al- gjört umferðaröngþveiti ríkir í dag á höfuðborgarsvæðinu. Afstaða samgönguráðherra Á facebooksíðu sinni hinn 20. sept. 2019 sagði Sigurður Ingi Jó- hannsson samgönguráðherra m.a. þetta: „Tveir valkostir eru einkum taldir koma til greina. Annars veg- ar jarðgöng í Gufunes sem miðast við núgildandi skipulag og hins vegar lágbrú yfir Kleppsvík yfir á Holtaveg sem kallar á breytt skipulag á hafnarstarfsemi. Ég hef áður sagt að lágbrú yfir Kleppsvík sé fýsilegri kostur en jarðgöng.“ Ennfremur segir hann í grein í Fréttablaðinu 12. des. 2019, að „næstu skref að Sundabraut verði kynnt fljótlega“. Ekki er vitað til þess að einhver viðbrögð hafi kom- ið frá borgaryfirvöldum vegna ofangreindra viðhorfa samgöngu- ráðherra. Lágbrú yfir Kleppsvík, sem tengist Holtavegi, er lakur kostur út frá umferðarlegum forsendum; setur hafnarstarfsemi á svæðinu í uppnám og kallar á verulegan kostnað við uppbyggingu nýs hafn- arsvæðis. Ný tillaga um lágbrú Hér er kynnt tillaga um lágbrú, um 400 metrar að lengd, sem hef- ur landtökustað á móts við Kjal- arvog og tengist við Sæbraut í undirgöngum. Tillagan felur í sér óverulega skerðingu á athafna- svæði hafnarinnar og ætti teng- ingin jafnframt að hafa lítil sem engin áhrif á starfsemi fyrirtækja á hafnarsvæðinu. Ný skipulagstillaga um legu Sundabrautar felst í eftirfarandi: Myndin sýnir tillöguna í meg- indráttum. Rauð lína sýnir þverun Sundabrautar yfir Elliðaárvog. Rauðar slitnar línur sýna teng- ingar við Sæbraut í göngum. Grænar línur sýna afmörkun nýrra landfyllinga. Landtöku- staður Sundabrautar er nokkurn veginn mitt á milli Holtavegar og Kleppsmýrarvegar. Í samgöngusáttmála ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborg- arsvæðinu (frá haustinu 2019) er gert ráð fyrir því að Sæbraut verði lögð í stokk á kaflanum milli Miklubrautar og Holtavegar. Hér er hins vegar gert ráð fyrir að Sæ- braut sé aðeins í stokk á kaflanum milli Miklubrautar og Skeiðarvogs. Í þessari nýju tillögu er ekki þörf á að hafa Sæbraut í stokk á kafl- anum milli Skeiðarvogs og Holta- vegar, þar sem ekki er gert ráð fyrir að umferðarstraumar milli Sæbrautar og Sundabrautar fari um þennan kafla Sæbrautar. Tillagan felst m.a. í því, að göng fyrir tengingar Sundabrautar við Sæbraut til og frá suðri opnist um 200-300 m sunnan Skeiðarvogs. Þessar tengingar liggja undir mót Sæbrautar og Skeiðarvogs og auka því flutningsgetu gatnamót- anna. Með þessu er líka uppfyllt skilyrði um að öll gatnamót á meg- instofnveginum Reykjanesbraut- Sæbraut-Sundabraut séu mislæg. Áætlaður kostnaður nýrrar tillögu Ætla má að stofnkostnaður 1. áfanga Sundabrautar, þ.e. milli Sæbrautar og Borgarvegar í Graf- arvogi, yrði á bilinu 35-40 millj- arðar kr. Til samanburðar er lík- legt að valkostur um lágbrú með landtöku á móts við Holtaveg yrði um 15 milljörðum kr. dýrari. Í þeim valkosti þarf Sæbrautar- stokkur að vera um 500 m lengri, eða um 5 milljörðum kr. dýrari. Auk þess má gera ráð fyrir a.m.k. 10 milljörðum kr. í bætur til Faxa- flóahafna, Samskipa og fleiri aðila vegna skerðingar á hafnaraðstöðu og starfsemi fyrirtækja. Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og Þórarin Hjaltason »Hér er kynnt tillaga um lágbrú, um 400 metrar að lengd, sem hefur landtökustað á móts við Kjalarvog og tengist við Sæbraut í undirgöngum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Vilhjálmur er fv. borgarstjóri. Þór- arinn er umferðarverkfræðingur og fv. bæjarverkfræðingur í Kópavogi. villith@isl.is thjaltason@gmail.com Sundabraut – ný leið Þórarinn Hjaltason Grunnkort/Loftmyndir ehf. Lágbrú með tengingu við Sæbraut í undirgöngum Elliðavogur Holtav egur Holtagarðar Kjalarvogur S æ b ra u t S æ b ra u t Kleppsmý rarvegur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.