Morgunblaðið - 03.02.2020, Side 21

Morgunblaðið - 03.02.2020, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020 í legudeild fyrir langlegusjúk- linga, þar vann hann við smíðar og ég við málun. Við urðum síðan góðir vinir þegar við vorum báðir einhleypir og hittumst á Broad- way, þá leigðum við saman íbúð í Árbænum en þá var Kristján for- stöðumaður vinnuheimilisins Bjarkaráss. Það var alltaf gott að leita til Kristjáns sem var boðinn og búinn að hjálpa mér og mínum. Ég á margar góðar minningar úr ferðalögum okkar Kristjáns norður á Strandir og til Höfða- borgar í Suður-Afríku. Hann var alltaf fremstur í flokki í leit að ævintýrum og til í allt. Eitt sinn var verslunarmannahelgin fram undan og ég hringi í Kristján á fimmtudagskvöldi og spyr hvort hann sé til í að fara eitthvað út á land, „bara eitthvað stutt“ segir hann. Ég kem til hans á föstudag um kaffileytið og við leggjum í hann og ég segi ég honum að við séum á leið á Strandirnar, mína heimahaga. Hann var til í það enda aldrei komið þangað og við keyrðum alla leið norður í Árnes- hrepp. Úr varð skemmtileg ferð og við hittum fullt af skemmti- legu fólki og ég sýndi honum það sem mér fannst markvert í sveit- inni minni og hann var mjög hrif- inn af bæði staðnum og fólkinu. Við Kristján fórum ásamt Hreini vini okkar til Suður-Afríku. Þrátt fyrir að ferðin væri skipu- lögð af Ingólfi Guðbrandssyni heitnum vorum við alltaf að gera eitthvað annað og fljótlega var hópur farinn að fylgja okkur í þau ævintýri, sem Kristján oftar en ekki átti frumkvæði að. Eitt kvöldið fórum við á fínasta veit- ingahúsið í Höfðaborg ásamt fylgifiskum og þegar leið á kvöldið áttum við staðinn, Kristján lét kalla fram starfsfólkið og píanó- leikarinn spilaði óskalögin okkar. Kvöldið var án efa mun skemmti- legra en 400 manna veislan sem skipulögð hafði verið fyrir hópinn. Leigubílstjórinn okkar í ferðinni bauð okkur að heimsækja fá- tækrahverfið sem hann bjó í sunn- an við Höfðaborg, þar sem við fór- um til kaupmannsins og á barinn í litlum skúrum í hverfinu. Þar sáum við m.a. konur að svíða svið úti á götunum. Dóttir og tengda- sonur Ingólfs slógust með í ferð- ina og gátu róað Ingólf niður þeg- ar við snerum aftur heim á hótelið. Síðustu árin fórum við Höfða- borgarfélagarnir oft á kaffihús saman og ætluðum einmitt að fara í slíka ferð laugardaginn áður en hann dó en hittum hann þess í stað á spítalanum. Ég kveð góðan vin og votta fjölskyldu Kristjáns mína innilegustu samúð. Kristinn Sigurðsson. ✝ Hólmfríður Ás-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 11. febrúar 1932. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 18 .janúar 2020. Foreldrar henn- ar voru Ásmundur Vilhjálmsson, múr- arameistari, fædd- ur á Skeggjastöð- um í Kjós 1902, d. 1987, og Guðbjörg Þorbjörns- dóttir, Húsfreyja, fædd í Reykjavík 1907, d. 1983. Systk- ini Hólmfríðar eru Sigrún, f. 1934, Svanhvít, f. 1938, Vilhjálmur, f. 1940, d. 1991, Örn, f. 1942, Þorbjörn, f. 1947 og Guðríður Guðrún, f. 1950. Eiginmaður Hólmfríðar var Kristinn Daníelsson, ljósameist- ari í Þjóðleikhúsinu, f. 22. jan- úar 1926, d. 16. nóvember 2017. Þau gengu í hjónaband 20. maí Magnús, f. 23. maí 1959, maki Dagný Egilsdóttir, f. 18. febr- úar 1959. 7) Sigurður, f. 30. jan- úar 1961, maki Siriwan Krist- insson, f. 28. október 1963. 8) Áslaug, f. 11. september 1962, maki Oddur Daníelsson, f. 6. október 1959. Ömmubörn Hólmfríðar er 22 og langömmubörn 42. Hólmfríður og Kristinn hófu búskap á Sogavegi 90 þar sem þau bjuggu lengst af. Síðar fluttu þau í Sólheima 27 þaðan sem leið þeirra lá á Hrafnistu í Reykjavík. Hólmfríður lærði kjólasaum hjá Kristínu H. Eyfells sem átti og rak kjólaverslunina Fix. Hún starfaði við saumaskap í seinni tíð eftir að hafa sinnt heim- ilisstörfum sem fylgdu því að koma 8 börnum á legg. Hólm- fríður starfaði á saumastofu Hagkaups, Max og hjá Sjó- klæðagerðinni 66°N. Hólm- fríður var virkur félagi í Odd- fellowreglunni til margra ára og jafnframt var hún meðlimur í kvenfélaginu Hringnum. Útför Hólmfríðar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 3. febr- úar 2020, og hefst athöfnin klukkan 15. 1950. Foreldrar Kristins voru Daní- el Kristinsson, bú- fræðingur og bók- ari, f. 1888, d. 1950, og Áslaug Guð- mundsdóttir, handavinnukennari og húsmóðir, f. 1890, d. 1969. Börn Hólmfríðar og Kristins eru: 1) Daníel, f. 3. sept- ember 1950, d. 26. nóvember 2017, maki Vigdís Greipsdóttir, f. 5. október 1954. 2) Ásmund- ur, f. 5. desember 1951, maki Sigrún Guðjónsdóttir, f. 17. júlí 1953. 3) Kristinn, f. 30.nóv- ember 1953, maki Ásdís Þór- arinsdóttir, f. 17. desember 1953. 4) Hólmfríður Guðbjörg, f. 11. maí 1955, maki Gunnar Karl Gunnlaugsson, f. 24. sept- ember 1955. 5) Knútur, f. 2. jan- úar 1958, maki Þuríður Páls- dóttir, f. 24. október 1960. 6) Nú hefur elskuleg tengda- móðir mín kvatt þennan heim eftir langvarandi veikindi. Hennar heimili síðustu 6 árin var hjúkrunarheimilið Hrafn- ista í Reykjavík. Þar bjó hún ásamt honum Kristni tengda- föður mínum en hann kvaddi okkur 16. nóvember 2017. Fía og Kiddi bjuggu sitt í hvoru herberginu á Hrafnistu en eyddu öllum þeim stundum saman yfir daginn sem þau gátu, sem var mjög fallegt að sjá. Fía var alla tíð stórglæsileg og róleg kona sem skipti aldrei skapi og minnist ég hennar með þakklæti. Ef einhvern tímann einhver staður hefði átt skilið að hljóta Michelin-stjörnu fyrir pönnu- kökubakstur, þá væri það eld- húsið á Sogavegi 90. Því þar stjórnaði Fía og var hún einn sá mesti snillingur í pönnuköku- bakstri sem fundist hefur. Sogavegur 90 er mjög mið- svæðis og kom það sér oft vel, sérstaklega þegar vantaði pöss- un fyrir stelpurnar okkar. Það voru ófá skiptin sem ég og Bubba vorum bæði að vinna um helgar og stelpurnar fengu að vera hjá ömmu og afa á meðan. Eitt skiptið sem ég kom með Hildi mína snemma morguns á Sogaveginn og skildi hana eftir á útitröppunum, eins og ég hafði gert svo oft áður, nema hvað í þetta skiptið klikkaði það aðeins því ég gleymdi einu mik- ilvægu atriði sem var að láta vita að ég kæmi með hana þennan morgun. Þetta fór þó allt vel að lokum og kom ekki fyrir aftur, ég slapp meira að segja við að vera „tekinn á teppið“. Fía átti það til að nota orð eins og „nú jæja“ á skemmti- legan hátt og gat þýtt svo skemmtilega margt. Eitt skipti fékk ég að heyra „nú jæja“ og náði strax að þar var hún í raun að segja: „Nú, hann sótti þá stelpuna.“ Fíu verður sárt saknað, en ég veit að Kiddi og Dassi eru búnir að taka vel á móti henni. Takk fyrir mig, Fía. Tengdasonurinn, Gunnar Karl Gunnlaugsson. Elsku amma Fía. Það er mjög skrítið og sárt að hugsa til þess að nú sért þú farin en okkur hlýnar í hjart- anu við að hugsa til þess að nú séuð þið afi Kiddi aftur saman. Samband ykkar afa var alveg einstakt og fram á síðasta dag sáum við hvað þið afi voruð skotin hvort í öðru. Þú gafst okkur systrum eitt hjúskaparráð og það var að við skyldum aldrei færa mönnunum okkar kaffi því ef við myndum byrja á því gætum við aldrei hætt því. Þegar við systurnar byrjuð- um að rifja upp allar minning- arnar um þig sáum við að við hefðum efni í nánast heila bók. Það sem kom þó fyrst upp í huga okkar var Sogavegurinn en þaðan eigum við yndislegar minningar um þig og afa. Við sjáum þig svo myndrænt í eldhúsinu með vatn í bollanum þínum sem á stendur Amma, að horfa á ömmu Fíu-fjallið (Esj- una) eða berfætta úti að vinna í garðinum; já eða standandi á haus úti á túninu. Hjá ykkur afa fengum við að gera svo margt sem ekki mátti heima og með því skemmtileg- asta var að fara í búðaleik með gullið en þá fengum við lánaðar töskurnar þínar og allt gullið í skartgripaskríninu og settum upp verslun. Saumavélin þín var líka alveg sérstök en hún kom upp úr stóru borði sem var með fullt af skúffum með allskonar dóti til að leika með. Þar voru tölur, tvinnar, títuprjónar, nálar og ekki má gleymda dúdúinu, en það kallaðir þú stóru tvinna- keflin og sem þú settir upp að munninum og sagðir „dúdú“ eins og þú værir með lúður. Þú varst alltaf svo flott og fín til fara en sérstaklega fannst okkur þú flott þegar þú varst á leið á Oddfellow-fundi og komin í glæsilega dragt eða kjól og í fína pelsinn sem afi gaf þér og með flottu töskuna með gull- keðjunni. Ekki má gleyma hárinu, varalitnum og slæðunni en þú varst alltaf með lagningu í hárinu, varalit og svo auðvitað slæðu yfir höfðinu svo lagningin skemmdist ekki. Það er ekki í öllum fjölskyldum að orðatil- tækið „ég er amma Fía“ sé not- að yfir það að vera með slæðu á höfðinu. Heimilið þitt var líka alltaf svo hreint og fínt og við efumst um að það séu margir í dag sem fægja málminn á útidyrahurð- inni eins og þú gerðir. Þú varst líka algjör sauma- snillingur og saumaðir meðal annars á okkur árshátíðarkjól, skautbúning, fegurðardrottn- ingarkjól og þú gast meira að segja lagað nælonsokkabuxur. Það var heldur ekki erfitt að fá þig til að prófa nýja hluti og eru það ekki mörg ár síðan við fengum þig til að prófa hoppu- kastala í afmæli hjá okkur. Þú varst meira en til í það enda hafðir þú aldrei prófað það áð- ur. Í lokin langar okkur að enda á vísunni sem þú sagðir svo oft: Amma Fía gekk á fjall, hafði með sér grautardall, þá kom afi Kiddi og át það allt, þá var ömmu Fíu kalt. Takk fyrir allt, elsku amma. Þínar ömmustelpur, Hildur, Áslaug og Ragna. Hólmfríður Ásmundsdóttir- ✝ Ari Rögnvalds-son fæddist í Litlu-Brekku á Höfðaströnd 20. nóvember 1932. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Lög- mannshlíð á Akur- eyri 20. janúar 2020. Ari var yngstur 12 barna hjónanna Guðnýjar Guðna- dóttur, f. 1891, d. 1981, og Rögn- valdar Sigurðssonar, f. 1888, d. 1935. Systkini Ara voru í ald- ursröð: Þóranna, Sigurður, Matt- hías, Rósa, Páll, Jón, Sigrún, Steinunn eldri, Steinunn Ásdís, sem ein lifir systkini sín, Kristján og þá Ari. Ari giftist hinn 26. desember 1954 eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði Halldóru Hermannsdótt- ur, fv. afgreiðslukonu og hús- móður, f. á Akureyri 1930. Börn Ara og Sigríðar eru: Anna Guðný, f. 1956, starfsmaður Ice- landair í Reykjavík, gift Ásgeiri og Trausta er Elmar Ás. Yngst er Sigríður Matthildur, f. 1963, starfsmaður Landsbankans í Reykjavík, gift Sindra Má Heim- issyni, píanóstillara og tónlistar- manni. Þeirra börn eru Sindri Rafn, giftur Elínu Jónsdóttur og eiga þau tvö börn, Dagur og Val- borg Sunna. Ari ólst upp á Siglufirði og fór snemma til sjós. Hann hélt til náms á Akureyri þar sem hann lærði til vélstjóra. Ari var lengst af sjómaður og vélstjóri á tog- urum Útgerðarfélags Akureyr- inga. Hann var á síldarskipum hjá Hreiðari Valtýssyni útgerð- armanni og fleiri skipum. Árið 1976 tekur Ari við starfi dælu- stjóra hjá Hitaveitu Akureyrar og vann þar til 70 ára aldurs. Ari og Sigga bjuggu fyrstu árin í Fjólugötu 13 og Byggðavegi 84 en byggðu sér síðan hús í Skála- gerði 2, sem var heimili þeirra fram til ársins 2018 þegar heils- an fór að bila og þau fluttust í Lögmannshlíð. Ari var söng- maður góður og elskaði að taka lagið með börnum og barnabörn- um. Útför Ara verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 3. febr- úar 2020, kl. 13.30. H. Steingrímssyni tónlistarmanni, dætur þeirra eru Auður Karitas, maki Ari Magn- ússon, og eiga þau tvö börn, og Arna Sigríður. Hermann Ingi, fram- kvæmdastjóri og tónlistarmaður á Akureyri, f. 1957, í sambúð með Maríu Ólafsdóttur en hans synir eru Ari Freyr (móðir Kristín Helgadótt- ir), maki Guðrún Arna Jóhanns- dóttir og eiga þau tvo drengi, og Jón Atli (móðir Þórhildur Jóns- dóttir), maki Vera Stefánsdóttir og eiga þau einn dreng. Ingi- björg, f. 1960, starfsmaður Sam- herja á Akureyri, gift Trausta Guðmundssyni kerfisfræðingi. Sonur Ingibjargar er Sigurður Ari Blöndal (faðir Sigurður Blön- dal), maki Íris Egilsdóttir og eiga þau þrjú börn en sonur Sigurðar með Ásu Magnúsdóttur er Alex Daði Blöndal. Sonur Ingibjargar Ég var 14 ára þegar Ari kom inn í fjölskyldu okkar og giftist Siggu Dóru systur minni. Ari og Sigga Dóra keyptu neðri hæðina í fjölskylduhúsinu í Fjólugötu 13 eftir andlát afa okkar og stofnuðu þar sitt heimili en foreldrar okk- ar áttu efri hæðina. Brátt stækk- aði fjölskylda Ara og Siggu Dóru og börnin urðu fjögur. Við Ari urðum strax góðir vinir og áttum eftir að bralla ýmislegt. Við keyptum okkur bíl saman, sem var jafnframt fyrsti bíllinn minn. Þetta var Ford Junior árgerð 1946. Grænsanseraður og glæsi- kerra að okkar áliti. Ari var alltaf á sjónum svo það kom í minn hlut að slíta út úr bílnum, sem við gerðum sannarlega. Þegar ég var kominn með konu og barn og við bjuggum á efri hæðinni í Fjólu- götunni með móður minni var farið að þrengjast um fjölskyld- urnar, þá ákváðum við að ráðast í að byggja saman nýtt fjölskyldu- hús að Byggðavegi 84. Þá var Ari á sjónum og mikið fjarverandi en réð smið með meistararéttindi til að reisa með mér húsið með dyggri aðstoð og stuðningi frá „frænda“ þ.e. Stefáni Halldórs- syni múrarameistara móðurbróð- ur okkar Siggu Dóru. Það var gott að eiga gamla „Júnnann“ meðan á húsbyggingunni í Bv. 84 stóð. Ég verð alla tíð þakklátur fyrir traustið sem Ari sýndi mér „stráklingnum“ við byggingu á húsinu í Bv. 84. Húsið reis á einu sumri og þau fluttu með hópinn sinn á efri hæðina, við Auður á neðri hæðina og mamma okkar Siggu Dóru í 2ja herbergja íbúð í kjallaranum. Þarna fór vel um okkur öll í mörg ár. En þar kom að húsnæðið sprakk utan af Siggu Dóru og Ara og börnum svo þau reistu sér nýtt hús sem rúmaði þau öll. Við hjónin og börnin okkar þökkum Ara samfylgdina í gegn- um áratugina. Alltaf var hann glaður og hlýr við börnin okkar og þegar hann kom úr siglingum færði hann þeim alltaf eitthvað spennandi og gott í munninn, t.d. Smarties sem var aldeilis vin- sælt. Ari var glaðvær og bros- mildur og aldrei varð okkur sundurorða. Hann hafði gaman af söng og var félagi í Karlakórnum Geysi um tíma. Hann var góður dansari og elskaði að dansa. Allt- af hefur verið gott og gaman að koma í Skálagerðið og samgleðj- ast með þeim öllum og miklir kærleikar eru á milli frændsystk- inanna þ.e. barnanna okkar systkina. Nú eru breyttir tímar fram undan, gefst ekki lengur tækifæri til að líta við í Skála- gerðinu til að ræða heimsins gagn og nauðsynjar; ruglið í póli- tíkinni eða um daginn og veginn. Elsku Ari. Þökkum þér vinátt- una og samveruna í gegnum ára- tugina. Góða ferð í Sumarlandið! Sendum Siggu Dóru, börnum, tengdabörnum og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Ingólfur og Auður. Suðurbrekkan á Akureyri undir lok sjöunda áratugarins. Í nýbyggðu hverfinu var líf og fjör, ungar fjölskyldur með krakka- skara bjuggu í hverju húsi. Líf okkar krakkanna í Byggðavegin- um virtist endalaus leikur, skemmtileg uppátæki og ævin- týri. Í kjallaranum bjó amma Anna og á efri hæðinni bjuggu Lagga frænka og Ari með krakk- ana sína fjóra, Önnu Guðnýju, Hemma, Ingu og Möttu. Þetta var fríður flokkur í Byggðavegi 84, ein stór fjölskylda. Ari var á sjó og þegar hann kom heim úr siglingum fengum við systkinin glaðning alveg eins og frænd- systkinin á efri hæðinni. Ari kom færandi hendi, það var ekki bara framandi rafmagnsbíll eða töfrandi dúkka sem kom upp úr töskunum, okkur fannst Ari hafa allan heiminn í farteskinu þegar hann kom frá útlöndum. Árin liðu, Ari kom í land, börn- in fullorðnuðust og fjölskyldan á efri hæðinni flutti. Í Skálagerði 2 var alltaf tekið á móti okkur með opnum faðmi, hlýju og umhyggju. Það var mikið skrafað, spurt fregna og rætt um það sem var efst á baugi. Ari kom sér vel fyrir í eldhúskróknum og sagðar voru sögur af mönnum og málefnum. Eftir því sem árin liðu barst talið meira að fréttum af barnabörn- um og barnabarnabörnum. Nú hefur Ari lagt upp í sína hinstu sjóferð. Siglfirðingurinn glæsilegi stendur í stafni og siglir fleyi sínu um fagurblá víðerni. Við hlýjum okkur við góðar minn- ingar og erum þakklát fyrir að hafa átt langa samleið með Ara. Hugur okkar er hjá Löggu frænku sem kveður nú lífsföru- naut sinn. Við vottum Löggu, frænd- systkinum okkar og afkomendum dýpstu samúð. Elín Björg, Hermann Örn og fjölskyldur. Ari Rögnvaldsson Okkar ástkæri sonur, bróðir, barnabarn, systursonur og vinur, SIGURÐUR DARRI BJÖRNSSON, Erluási 31, Hafnarfirði, lést af slysförum 29. janúar sl. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 7. febrúar og hefst athöfnin kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Björn Arnar Magnússon Rannveig Sigurðardóttir Salvör Svanhvít Björnsdóttir Hinrika Salka Björnsdóttir Sigurður Þórðarson Gróa Guðbjörnsdóttir Sigríður Sigurðardóttir fjölskyldur og vinir undanfarna daga og um leið kall- að fram óteljandi minningar um yndislega konu. Það var aldrei neitt mál hjá þeim hjónum að skjótast lands- horna á milli og höfðu þau gaman af að ferðast. Ein áramótin feng- um við símtal rétt áður en við vor- um að setjast að borðum á gaml- árskvöld, hvort við værum ekki heima, þau voru að koma upp úr „göngunum“ og væru að koma í heimsókn. Það var því ekki annað að gera en skella fleiri diskum á borðið og taka á móti ferðalöng- unum. Upp frá þessu dvöldu þau ætíð hjá okkur um áramótin og gerðu líf okkar ríkara fyrir vikið. Þegar við svo mörgum árum seinna þurftum að fá aðstoð við barnapössun á meðan við biðum eftir dagmömmuplássi, þá var lít- ið mál að flytja til okkar í nokkrar vikur og redda málunum. Það var ekki fyrirferð á Gúu en hún var sterkur bakhjarl fyrir fjölskyldu sína á hógværan og látlausan hátt. Heilsuleysi síð- ustu árin tók toll af henni og var hún eflaust löngu orðin tilbúin fyrir þetta síðasta ferðalag sitt. Ég minnist hennar með hlýju og söknuði og þakka í leiðinni okkar kynni í gegnum árin og alla vel- vild við mig og mína. Góða ferð í sumarlandið, Gúa mín. Agla Sigríður Björnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.