Morgunblaðið - 03.02.2020, Síða 22
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Bíll með öllum mögu-
legum aukabúnaði
Skráður 10/2012, ný tímareim
(skipt í 152 þ.km. Framhjóladrif, 1,6
TDI, ekinn 153 þ.km. beinskiptur,
dökkbrúnn, leðurklæddur, rafmagn
í sætum, minni í sætum, stafrænt
mælaborð, dráttarbeisli, skynjarar
allan hringinn, álfelgur, navigation,
skjár með bluetooth og öllu
mögulegu, tölvustýrð miðstöð bæði
fram í og aftur í, Xenon ljós sem
elta í beygjum, kastarar, langbogar,
sumar og vetrardekk.
Uppl. í síma 615 8080
TILBOÐ
1.250 þús. staðgreitt
SKODA Superb Station
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
5.000 tonna fiskeldi Landeldis ehf. innan lóða
Laxabrautar 21, 23 og 25, Ölfusi
Landeldi ehf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummats-
skýrslu um 5.000 tonna fiskeldi Landeldis ehf. innan lóða Laxabrautar
21, 23 og 25, vestan Þorlákshafnar, Ölfusi.
Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 3. febrúar til 17. mars 2020 á eftirtöldum stöðum: Bæjarskrifstofu
Ölfuss, Bæjarbókasafni Ölfuss, Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulags-
stofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar
www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 17. mars 2020 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105
Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Kynningarfundur: Vakin er athygli á að Landeldi ehf. stendur fyrir
kynningarfundi á frummatsskýrslu fimmtudaginn 1. febrúar 2020 kl.
18:00 í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn, allir velkomnir.
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisalur-
inn er opinn kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. Kraftur í
KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu kl. 10.10, Grandavegi 47 kl. 10.15
og Aflagranda kl. 10.20. Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13. Kaffi kl.14.30-
15.20. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin
handavinnuhópur kl. 12-16. Leikfimi með Hönnu og Maríu kl. 9.
Morgunsagan kl. 11. Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 12.30.
Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir
velkomnir. s: 535 2700.
Boðinn Boccia kl. 10.30. Gönguhópur kl. 10.30. Bingó (FEBK) kl.13.
Myndlist kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 14.30 Spjallhópur Boðans kl. 15.
Bústaðakirkja Félagsstarfið verður á sínum stað á miðvikudaginn
frá kl. 13-16. Spil, handavinna og kaffið góða frá Sigurbjörgu. Kristín
Ólafsdóttir frá Hjálparstarfi Kirkjunnar kemur í heimsókn og segir frá
starfi þess en nú í ár er Hjálparstarfið 50 ára. Hlökkum til að sjá ykkur.
Starfsfólk Bústaðakirkju.
Dalbraut 18-20 Myndlist í vinnustofu. Brids í borðsal.
Dalbraut 27 Fylgt í sundleikfimi frá Dalbraut 27 kl. 8.30.Óli og Embla
verða í setustofu á 1. hæð. Píla í parketsal.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl.
8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-12. Ganga kl. 10. Byrjendanámskeið í
Línudansi kl. 10. Æðstaráðfundur kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30.
Myndlistarnámskeið kl. 12.30. Foreldrastund kl. 13. Félagsvist kl. 13.
Handavinnuhorn kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð
aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi
kl. 11. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Vatnsleikf. Sjál kl. 7.10/7.50/15.15.
Kvennaleikf. Sjál. kl. 9.30. Kvennaleikf Ásg. kl. 11. Zumba salur, Ísafold
kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16.
Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong kl. 9-10. Leikfimi Maríu kl. 10.30-
11.15 Leikfimi Helgu Ben kl. 11.15-11.45. Kóræfing kl. 13-15.
Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 Boccia, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta, kl. 16.30 kóræfing, kl. 19 Skapandi skrif.
Gullsmára Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30 og 17. Bridge og handa-
vinna kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-14. Jóga kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30.
Sögustund kl. 12.30-14. Prjónaklúbbur kl. 14-16.
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika frá kl. 8-12. Myndmennt kl. 9.
Gaflarakórinn kl. 11. Félagsvist kl. 13. Ganga frá Haukahúsi kl. 10.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Jóga með
Carynu kl. 9. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Samverustund kl. 10.30. Jóga
með Ragnheiði kl. 11.10 og 12.05. Tálgun – opinn hópur kl. 13-16.
Frjáls spilamennska kl. 13. Liðleiki í stólum kl. 13.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt Yoga með Ingibjörgu kl. 9, ganga kl. 10
frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll, skartgripagerð kl. 13 í
Borgum, félagsvist í Borgum kl. 13 og tréútskurður á Korpúlfsstöðum
kl. 13 í dag í umsjón Gylfa og kóræfing Korpusystkina í umsjón
Kristínar kl. 16 í dag í Borgum.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ZUMBA Gold framhald kl. 10.30
umsjón Tanya.
Félagsstarf eldri borgara
Eins og þegar eldur
deyr í hlóðum
yfirgefins tjaldstaðar
um haust
vindur slökkvir hinsta gneista í
glóðum
sópar af hellu silfurgráa ösku
sáldrar henni yfir vatn og fjörð
svo vil ég duft mitt berist burt með
þeynum
um beitilönd og þýfðan heiðamó
falli sem skuggi á fjallavatnsins
spegil
finni sér skjól í hlýrri mosató
heimkomið barn við barm þér, móðir
jörð.
(Rose-Marie Huuva)
Það er við hæfi að byrja
kveðjuorðin til þín, elsku Nonni
okkar, með þessu fallega ljóði.
Það er gott að vita að þú ert
núna laus undan þjáningum
þínum og frjáls og við yljum
okkur öll saman við góðu minn-
ingarnar. Þú varst í miklu
uppáhaldi hjá yngri kynslóð-
inni, enda duglegur að gefa
henni tíma og stutt í glensið. Á
svona stundu minnir það okkur
líka á það hvað tíminn er miklu
dýrmætari en allar veraldlegar
gjafir.
Síðastliðin ár hringdi Yngvi í
þig hvert sumar og bauð þér á
golfmót Breiðholts Groups, sem
þeir æskufélagarnir úr Breið-
holtinu hafa haldið til fjölda
ára. Það var alveg sama hvað
stóð til hjá þér, alltaf varstu
klár og sagðir þú að tilhlökk-
unin eftir þessum degi væri
alltaf jafn mikil. Golfið sjálft og
að geta eitthvað á mótinu var
algjört aukaatriði, skemmtunin
og félagsskapurinn var það sem
skipti mestu máli. Í fyrra þegar
halda átti mót varstu nýbúinn í
lyfjameðferð og frekar slappur.
Það kom samt ekki til greina að
missa af mótinu. Þú sagðir að
þú myndir alltaf mæta, þú gæt-
ir bara dregið golfkerruna fyrir
einhvern, helst Guðna þjón sem
var í miklu uppáhaldi, enda
aldrei lognmolla í kringum
hann. Var gaman að sjá hvað þú
naust þín þrátt fyrir stóra verk-
efnið sem þú varst að kljást við.
Það sem var lagt á þig síð-
ustu ár var miklu meira heldur
en flestir fá að kynnast á allri
sinni lífsleið. Við eigum bágt
með að trúa því að við fáum
aldrei að sjá brosið þitt aftur og
heyra hlátur þinn. Þú ætlaðir
svo sannarlega ekki að gefast
upp enda barðist þú til síðasta
dags. Von okkar allra var sterk,
við vildum svo mikið að þú
fengir meiri tíma með okkur og
þínum uppáhalds.
Á þessum erfiðu tímum verð-
um við sem eftir sitjum að læra
að lifa með sorginni og halda
áfram. Þjappa okkur betur
saman og passa upp á fallegu
fjölskylduna þína. Við munum
öll sakna þín en við trúum því
að Dísa amma taki á móti þér
með sposka brosið sitt.
Elsku Unnur Björk, Brynja
Rán, Jóhann, Hjörtur Breki,
Anna Kristín og Kolbrún Klara,
missir ykkar er mikill, megi
hlýjar minningar um einstakan
mann styrkja ykkur í sorginni.
Yngvi Rafn, Íva Sigrún,
Herdís Hanna, Nökkvi
Rafn og Ebba Kristín.
Ég kynntist Nonna þegar
hann var upp á sitt besta, hann
var búinn að koma sér vel fyrir
Jón Þorkell
Gunnarsson
✝ Jón ÞorkellGunnarsson
fæddist 23. júlí
1979. Hann lést 21.
janúar 2020.
Útför Nonna fór
fram 31. janúar
2020.
með Unni sinni í
Rauðavaðinu og al-
gjörlega henni og
börnunum innan
handar ásamt því
að vera nýbúinn að
frétta að hann ætti
von á sínu eigin
kríli næsta sumar.
Nonni var ekki
lengi að taka mér
opnum örmum og
bjóða mig velkom-
inn í fjölskylduna og gat hann
alltaf séð það jákvæða í fari
annarra. Hann gat alltaf fundið
leið til að tengjast jafnvel ólík-
asta fólki og engin furða að
hann var jafn dáður af jafn
mörgum og raun ber vitni.
Næstu mánuði og ár var
mjög hjartnæmt að sjá hvernig
hann fékk fjölskylduna til að
snúast í kringum sig, rétt eins
og hann snérist um hana og var
föðurhlutverkið klárlega hans
köllun.
Þegar við Brynja fluttum að
heiman, honum til mikillar
gleði, enda orðin ansi mikil
þröng á þingi í Rauðavaðinu, þá
var hann alltaf tiltækur til að
hjálpa okkur koma undir okkur
fótunum og virtist honum allt
alveg fyrirhafnarlaust og það
sama var upp á teningnum þeg-
ar Hjörtur flaug úr hreiðrinu.
Þegar við elstu krakkarnir
vorum farin að standa á eigin
fótum tók við nýr kafli hjá þeim
Nonna og Unni þegar þau
fluttu á Selfoss og var Nonni
alltaf mjög stoltur af því heimili
sem þeim tókst að byggja sér
upp þar. Nonni vildi ekkert
meira en að eignast stóra fjöl-
skyldu og lifa notalegu lífi um-
kringdur þeim sem hann elsk-
aði mest og var sú vegferð
langt á leið komin. Það sást
langar leiðir hversu vel þeim
leið á nýja heimilinu og hversu
vel samfélagið þar tók á móti
þeim.
Þegar erfiðleikarnir byrjuðu
að hrjá Nonna þá lét hann ekk-
ert stöðva sig í að vinna að sín-
um markmiðum, og sama
hversu mikil þyngsli lífið lagði á
hann þá hélt hann alltaf áfram.
Ekkert ætlaði að stöðva hann
í að gera sitt besta fyrir sig og
sína og hélt hann í það hugarfar
alveg fram til síðustu stunda.
Með Nonna kveður hjarta-
hlýr, staðfastur og barngóður
maður. Hans verður sárt sakn-
að.
Kæri Nonni, takk fyrir mig
og góða ferð.
Jóhann Franks.
Það er svo gott þegar á vegi
manns verða persónulegir gull-
molar. Það auðgar lífið og sam-
félagið í kringum mann. Slíkur
skínandi gullmoli birtist á leið
minni haustið 2015 þegar hann
Nonni fór að vinna með okkur í
Norðlingaskóla.
Að sjá hann með krökkunum
sem þurftu svo einmitt á honum
og mannkostum hans að halda
var beinlínis mannbætandi.
Góður, rólegur, kankvís en þó
ákveðinn, frábær blanda fyrir
börn og ungmenni sem eftir
einhverjum skilgreiningum falla
ekki inn í það sem kallað er
normal.
Og hann hafði ástríðu fyrir
vinnunni sinni, vildi læra, leitaði
ráða og prófaði sig áfram. Það
gladdi okkur í skólanum mikið
þegar hann ákvað að prófa
þroskaþjálfanám, þar fannst
okkur hann svo sannarlega vera
á réttri hillu, þó að heilsan
leyfði ekki að hann kláraði það.
Hann féll einstaklega vel inn
í hópinn okkar í Norðlingaholt-
inu og við vildum helst eiga
hann með húð og hári og gönt-
uðumst með að hann hefði svik-
ið okkur þegar hann fór frá
okkur vorið 2018. En auðvitað
blómstraði Nonni okkar líka á
nýjum slóðum í nýju starfi og
við samglöddumst honum af
öllu hjarta.
Það var sama hvort var í leik
eða starfi, alls staðar nutu
mannkostir Nonna sín vel, hlýj-
an, brosið og gleðin umvöfðu
okkur öll.
Það kom sérstakur glampi í
augu Nonna þegar hann talaði
um Unni sína og börnin sín, þau
voru hans gimsteinar.
Það er óskiljanlegt að mann-
vinur og góðmenni eins og hann
Nonni þurfi að kveðja fjöl-
skyldu og vini svona snemma.
Eina leiðin til að sjá einhverja
glætu í þeim verueika er að
hugsa sér að hans bíði sérstök
verkefni, kannski börn og ung-
menni sem þurfa þann stuðning
og virðingu sem hann var sér-
fræðingur í að veita.
Unni og börnunum sendi ég
innilegar samúðarkveðjur, orð
mega sín lítils, en minningar
um einstakan öðling lifa um ei-
lífð.
Takk fyrir einstaka sam-
vinnu, Nonni minn, hún er
geymd en ekki gleymd.
Jónína Rós
Guðmundsdóttir (Nína).
En hvað lífið getur stundum
verið ósanngjarnt. Í dag kveðj-
um við starfsmann sem þrátt
fyrir stuttan starfsaldur hjá
Sveitarfélaginu Árborg náði að
heilla alla í kringum sig með
einstakri jákvæðni og hjálp-
semi.
Jón Þorkell eða Nonni eins
og við þekktum hann flest sótti
um starf forstöðumanns
íþróttahúss Sunnulækjarskóla
hjá sveitarfélaginu vorið 2018.
Það rifjast upp þegar maður
hugsar til Nonna að í starf-
sviðtalinu var eitthvað sem fékk
mig til að treysta honum strax.
Ég velti því fyrir mér eftir við-
talið hvort þetta væri of gott til
að vera satt en umsagnirnar
staðfestu svo sannarlega allt
sem kom fram hjá Nonna. Fyr-
ir yfirmann eru það ótrúleg for-
réttindi að hafa góða einstak-
linga í vinnu sem maður
treystir 100% fyrir verkefnun-
um og veit að þau eru leyst af
góðri skynsemi. Nonni hakaði í
öll þessi box og ávann sér virð-
ingu samstarfsmanna, nem-
enda, foreldra, kennara og
þjálfara með sinni einstöku
þjónustulund og hæfileika til að
miðla málum á jákvæðan hátt.
Fyrir hönd Sveitarfélagsins
Árborgar vil ég þakka Nonna
fyrir samstarfið og hans fram-
lag til samfélagsins. Votta Unni
Björk, börnum þeirra og fjöl-
skyldu innilega samúð á þessum
erfiðu tímum með von um að
þið finnið styrk hvert í öðru til
að halda áfram en andi Nonna
mun lifa áfram með okkur öll-
um.
Bragi Bjarnason.
Nonni var einstakur maður.
Ljúfur, góður og hlýr maður.
Ég hitti hann í fyrsta skipti fyr-
ir 10 árum en þá var hann nýi
kærasti Unnar vinkonu. Hann
var fljótur að sýna okkur Ró-
berti að hann var kominn til að
vera og milli okkar fjögurra
tókst einstök vinátta. Við Unn-
ur eignuðumst yngstu börnin
okkar með árs millibili og m.a.s.
fékk Nonni Svönu í afmælisgjöf
sem tengdi þau sterkum bönd-
um enda þótti henni endalaust
vænt um hann.
Nonni var „allra“. Allir löð-
uðust að honum. Við brölluðum
margt saman vinirnir, fórum í
bústað, matarboð, utanlands-
ferðir, grillveislur og margt
fleira.
Ferðin til Svíþjóðar stendur
upp úr í minningunni en Nonni
skipulagði hana sjálfur. Hann
pantaði flugið og bókaði „hót-
elið“. Þegar við komum út var
hafist handa við að finna hótelið
en það reyndist ekki vera hótel
heldur hostel. Þegar við komum
á hostelið var kort sem vísaði
okkur á herbergin. Okkar var í
kjallaranum. Við opnum dyrnar
að herberginu en þá komum við
inn í rými þar sem búið var að
stúka af fjögur herbergi með
glerveggjum en opin að ofan.
Þetta leit út eins og hellir, en
þrátt fyrir þetta skemmtum við
okkur konunglega eins og við
gerðum alltaf.
Nonni, þú stóðst við þitt,
varst trúr og endalaust góður
við Unni mína. Þín verður sárt
saknað af okkur Róberti. Elsku
Unnur, Brynja, Hjörtur, Anna
Kristín og Kolbrún, missirinn
er mikill. Ég votta ykkur mína
dýpstu samúð en ég veit að
hann mun fylgjast með okkur
glettinn á svip með tyggjó í
munninum.
Róbert Imsland,
Þórey Garðarsdóttir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Elsku Nonni okkar, með
þunga sorg í hjarta sitjum við
vinkonurnar og rifjum upp þær
fjölmörgu minningar sem við
æskuvinirnir höfum skapað
saman í gegnum árin.
Það fyrsta sem kemur upp í
hugann er hláturinn þinn og
hversu einlægur og smitandi
hann var. Það var alltaf stutt í
brosið og að sama skapi alveg
örstutt í stríðnispúkann.
Manstu öll þessi óteljandi skipti
sem farið var á rúntinn þar sem
þú áttir það svo oft til að grípa
fast í hnéð á þeim sem sat við
hliðina á þér þangað til sú
manneskja öskraði. Þetta
fannst þér svo sjúklega fyndið
og eins þegar þú barðir oft í
rúðuna þegar við vorum að
bakka og við héldum að við
hefðum bakkað á. Það virkaði í
hvert skipti því okkur brá alltaf
jafnmikið. Þá var mikið hlegið.
Við vorum óþreytandi þegar
kom að því að hittast og spila
og áttum við heldur betur mörg
dásamleg spilakvöldin. Þá var
yfirleitt spilaður kani og ein-
hvers staðar eru ennþá til heilu
stílabækurnar stútfullar af
stigagjöfum skrifuðum á fram-
og baksíður og í spássíurnar
líka. Spilakvöldin enduðu
reyndar misvel þar sem sumir
áttu svolítið erfitt með að tapa.
Þá fékk spilastokkurinn stund-
um að finna fyrir því í hita
leiksins.
Við minnumst líka allra góðu
stundanna þar sem við komum
saman hvort sem var í Hóla-
garði, í frímó, á körfuboltavell-
inum, í útilegunum eða í alls
kyns partíum, gleði og veislu-
haldi í þá daga og svo má enda-
laust lengi telja.
Þú varst góður vinur og fal-
leg manneskja og alltaf til stað-
ar fyrir okkur vini þína. Þú
varst mikill fjölskyldumaður og
talaðir oft um að þú vildir eign-
ast stóra fjölskyldu. Einhvern
veginn vissir þú alveg hvaða
eiginleikum hin eina sanna ætti
að búa yfir. Draumar þínir
rættust svo sannarlega þegar
Unnur og börnin komu inn í líf
þitt.
Elsku Unnur, Kolbrún Klara,
Anna Kristín, Hjörtur, Brynja,
Selma, Gunni, systkini og fjöl-
skyldur, hugur okkar er hjá
ykkur á þessum sorgartímum.
Með orðunum hans Bubba
kveðjum við góðan vin.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þínar æskuvinkonur,
Svana, Sandra, Sara
og Sandra Kristína.