Morgunblaðið - 03.02.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020
50 ára Ragnar er
Hafnfirðingur og er
rafvirkjameistari að
mennt frá Iðnskól-
anum í Reykjavík.
Hann rekur fyrirtækið
Losta og vinnur einnig
fyrir Óðin OS ehf. í
Noregi.
Maki: Rúna Sigríður Örlygsdóttir, f.
1971, leikskólakennari á Víðivöllum.
Börn: Bjarki Freyr, f. 1995. Alma Brá, f.
1998, og Harpa Líf, f. 2001.
Foreldrar: Svanlaugur Sveinsson, f.
1947, byggingatæknifræðingur, og
Freyja Guðlaugsdóttir, f. 1947, fyrrver-
andi stuðningsfulltrúi í Víðistaðaskóla.
Þau eru búsett í Hafnarfirði.
Ragnar Sveinn
Svanlaugsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Samstarfsfólk styður þig í dag og
þess vegna gætir þú átt dásamlegan
vinnudag. Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur.
20. apríl - 20. maí
Naut Dagurinn hentar vel til að ræða
fjármálin. Láttu ekki hugfallast þótt ein-
hver mótvindur sé, það lægir fljótt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sköpunargáfa þín er í sögulegu
hámarki í dag. Huggaðu þig við það að
með hækkandi sól færðu að ferðast
meira.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Leiðist þér í vinnunni? Ekki bíða
eftir að þú fáir tilboð um eitthvað nýtt,
stundum þarf maður bara að skapa
sjálfur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú kannt að fá merkilegar upplýs-
ingar sem gætu á endanum haft breyt-
ingar í för með sér. Kapp er best með
forsjá.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er rétti tíminn til að hringja í
gamla vini. Einhver færir þér svör á
silfurbakka og þú gætir ekki verið
ánægðari.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt þú
getir ekki keypt það sem hugurinn
girnist. Koma tímar, koma ráð. Einhver
stígur í vænginn við þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst þú standa uppi
með fangið fullt af verkefnum. Þú dáist
að vissri manneskju og það er gagn-
kvæmt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sinntu þínum nánustu sér-
staklega, því þú hefur satt að segja látið
þá sitja á hakanum. Snúðu þér að þeim
sem þú getur treyst og fáðu ráð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér finnst aðrir sækja um of í
þig. Notaðu tækifærið og lærðu að vera
umburðarlyndari. Enginn verður óbarinn
biskup.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það sem þú ákveður að gera í
dag munt þú leysa mjög vel úr hendi.
Hlustaðu á ábendingar um það hvernig
þú getur hagrætt í vinnunni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur vindinn í bakið á þessu
ári. Einhver fylgist með þér úr fjarlægð.
Grafðu stríðsöxina, þér líður betur á eftir.
þeirra 2017 og gegnir þeirri stöðu
ennþá.
„Þar höfum við Afríku líka í okkar
umsjá og því segi ég stundum í góðra
vina hópi að ég sé forseti yfir bæði
Evrópu og Afríku. Sem slíkur hef ég
farið í nokkrar heimsóknir til aðild-
arlanda, meðal annars til Bosníu sem
hafði mikil áhrif á okkur hjónin.
Einnig fórum við síðasta haust til
Simbabve til að vinna þar verkefni,
með styrk frá utanríkisráðuneytinu,
fyrir stómaþega en stómaþegar í Afr-
íku búa almennt við allt annað og
verra atlæti af hálfu heilbrigðiskerf-
isins í heimalandi sínu en við getum
ímyndað okkur. Þar fyrir utan er það
mjög fræðandi, og líka sjokkerandi,
að kynnast aðstæðum í Afríku, sér-
staklega ef menn komast út fyrir
stóru borgirnar. Ég stefni á aðra ferð
til Afríku í haust og nú til Sambíu og
vona að aðstæður þar séu betri. En
kosinn í stjórn Evrópusamtaka
stómaþega (European Ostomy Asso-
ciation eða EOA; sjá ostomyeu-
rope.org). Hann var fyrst gjaldkeri
samtakanna en var kosinn forseti
J
ón Þorkelsson er fæddur 3.
febrúar 1960 í Reykjavík
og bjó þar fyrstu árin. Fjöl-
skyldan flutti 1963 til
Ólafsvíkur og bjó þar til
jóla 1968. „Það var mikið frjálsræði
að búa þar og hægt að fara víða um
næsta nágrenni. Ég týndist þar í
berjamó eftir að ég hafði tínt ber af
stórum kletti sem huldufólk býr í. Ég
datt í gjótu og fannst ekki fyrr en eft-
ir einn eða tvo klukkutíma. Mömmu
var náttúrlega farið að líða mjög illa
yfir þessu en eftir þetta hef ég ekki
afneitað huldufólki, álfum, dvergum
eða tröllum.“ Fjölskyldan flutti aftur
til Reykjavíkur og síðan til Hafnar-
fjarðar 1973.
Jón kláraði landspróf frá Flens-
borgarskóla vorið 1976 með hæstu
einkunn það árið. Hann varð síðan
stúdent frá Flensborgarskóla vorið
1979 og viðskiptafræðingur frá Há-
skóla Íslands í janúar 1985.
Jón vann á endurskoðunarstofu í
Hafnarfirði meðfram námi en flutti á
Hellu 1985 og bjó þar í um tvö ár. „Ég
vann þar hjá Kaupfélaginu Þór, sem
var eitt síðasta sjálfstæðiskaup-
félagið. Ég var aðstoðarkaupfélags-
stjóri og fetaði þar með í fótspor föð-
ur míns sem var kaupfélagsstjóri í
Ólafsvík. Ég kynntist mörgu góðu
fólki á Hellu en þar skildum við, ég og
fyrri eiginkona mín. Ég flutti aftur á
Stór-Hafnarfjarðarsvæðið og vann
ýmis störf um stund en sneri svo aft-
ur á endurskoðunarstofuna í Hafnar-
firði og vann þar til 2015 þegar stofan
og við starfsfólkið þar vorum seld til
KPMG. Ég kynntist seinni eiginkonu
minni haustið1987 í biðröðinni fyrir
utan Þjóðleikhúskjallarann og tel það
eina mína bestu ákvörðun að hafa
ætlað á ball þar þetta kvöld. Reyndar
vorum við bæði að koma úr brúð-
kaupi, sitt úr hvoru að vísu.“
Á námsárunum veiktist Jón af rist-
ilbólgum sem áttu eftir að hafa mikil
áhrif á líf hans. Hann fór í sína fyrstu
skurðagerð haustið 1995 og hefur
verið stómaþegi síðan. Hann gerðist
meðlimur Stómasamtakanna árið
2000, var kosinn í stjórn þeirra 2003
og varð síðan formaður samtakanna í
maí 2007 og er það enn. Sem formað-
ur Stómasamtakanna var Jón síðan
ég mæli með því að menn geri sér
ferð til Afríku og kynni sér aðstæður
þar og beri síðan saman við það sem
við búum við hérna heima.“
Jón hefur undanfarin tæp sjö ár
verið í stjórn Krabbameinsfélags Ís-
lands og auk þess unnið töluvert að
innri málefnum félagsins og sömu-
leiðis hefur hann síðan 2006 unnið
töluvert innan Öryrkjabandalagsins,
síðustu árin sem formaður kjör-
nefndar.
„Eftir að ég flutti til Hafnarfjarðar
1973 fór ég fljótlega að æfa fótbolta
með Haukum og æfði fram til 1982 en
lagði þá skóna á hilluna frægu en hef
verið Haukamaður síðan þá og verð
til æviloka. Tvö af börnunum mínum
spila í dag körfubolta með Haukum
og það er ein helsta iðja okkar
hjónanna um þessar mundir að fylgj-
ast með þeim í boltanum og síðan
elsta barninu í myndlistinni. Ég hef
Jón Þorkelsson viðskiptafræðingur – 60 ára
Fjölskyldan Jón, Steinunn og börn á tónleikum með Elton John í Kaupmannahöfn í fyrra.
Forseti yfir Evrópu og Afríku
Í Simbabve Jón vann þar að verk-
efni fyrir stómaþega í fyrrahaust.
30 ára Rúnar ólst upp
í Hafnarfirði og á
Hvolsvelli en er í dag
búsettur í Vesturbæ
Reykjavíkur. Rúnar
stundar nám í fé-
lagsráðgjöf við Há-
skóla Íslands. Sam-
hliða námi starfar hann í Árlandi,
skammtímavistun fyrir börn með fötlun.
Maki: Alda Magnúsdóttir Jacobsen, f.
1992, náms- og starfsráðgjafi á Vinnu-
málastofnun.
Foreldrar: Auður Friðgerður Halldórs-
dóttir, f. 1957, grunnskólakennari í Hvols-
skóla og Jens Sigurðsson, f. 1955, gítar-
kennari í Tónlistarskóla Rangæinga. Þau
eru búsett á Hvolsvelli.
Rúnar Smári
Jensson
Til hamingju með daginn
Reykjanesbær Logi Hildiberg
Davíðsson fæddist 17. mars
2019 kl. 19.41 í Reykjavík. Hann
vó 3.825 g og var 52,5 cm að
lengd. Foreldrar hans eru Soffía
Klemenzdóttir og Davíð Hildi-
berg Aðalsteinsson.
Nýr borgari
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Einfalt og nett hjartastuðtæki fyrir stofnanir og fyrirtæki. Tækið greinir sjálfkrafa
mögulega rafvirkni í hjartanu og sé þess þörf gefur það rafstuð.
Tækið talar til notandans og gefur fyrirmæli á íslensku*
*Einnig fáanlegt með ensku tali.
LIFEPAK CR PLUS
HJARTASTUÐTÆKI
TILBOÐSVERÐ
LIFEPAK CR PLUS
159.900
KR M/VSK
VEGGFESTING
19.000
KR M/VSK