Morgunblaðið - 03.02.2020, Síða 29

Morgunblaðið - 03.02.2020, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 6 ÓSKARSTILNEFNINGAR ÓSKARSTILNEFNINGAR11  Rás 2  FBL LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fréttin um yfirvofandi endalok kvik- myndahússins Bíó Paradísar, náist ekki að útvega aukið rekstrarfé vegna fyrirhugaðrar hækkunar á húsaleigu, hefur lagst illa í marga kvikmyndaunnendur og hefur Björn Þór Vilhjálmsson, lektor í almennri bókmenntafræði og kvikmyndafræði við Háskóla Íslands, ekki farið var- hluta af því. Hann segir nemendur í kvikmyndafræði miður sín yfir þeim fréttum og hann harmar sjálfur möguleg og líkleg endalok þessa fyrsta og eina listræna kvikmyndahúss landsins. „Að mínu mati er sjálf stofnun Bíós Paradísar það mikilvægasta sem gerst hefur í íslenskri kvikmyndamenningu í háa herrans tíð og ef við aðskiljum að- eins kvikmyndagerð og -menningu, þó að þetta fari saman og hægt sé að ræða líka tengingarnar, er þetta algjörlega lykilatriði fyrir íslenska kvikmyndamenningu. Bíóið ætti ekki að þurfa að berjast í bökkum eins og verið hefur ár eftir ár, þetta ætti bara að vera eins og listasöfn- in, sinfónían og leikhúsið. Þetta þarf að vera stofnun,“ segir Björn Þór. „Það sem almennt er sýnt í ís- lensku bíóunum er efni frá Holly- wood. Það hafa auðvitað alltaf ákveðin lögmál stýrt vali á kvik- myndum til sýninga en einsleitnin hefur verið að aukast, m.a. út af þró- un í kvikmyndaframleiðslu í heim- inum og þá sérstaklega í Bandaríkj- unum, þar sem færri en miklu dýrari myndir eru gerðar. Þetta þýðir að sama myndin er sýnd kannski í fjór- um bíóum, og á venjulegum degi gætu hátt í fimmtíu sýningar verið á henni, einkum ef um „stórmynd“ á borð við nýja Marvel-mynd er að ræða,“ segir Björn Þór, sem líst greinilega illa á þá þróun að tölvu- gerðar Hollywood-myndir tröllríði kvikmyndahúsum heimsins. „Þetta er ekki það eina sem er að eiga sér stað í kvikmyndamenningunni í dag, það er svo fjarskalega margt annað að gerast, en dreifikerfi Bandaríkj- anna og Hollywood er svo öflugt að bandarískar kvikmyndir eru einfald- lega einu bíómyndirnar sem eru sýndar alls staðar í heiminum. Ekkert annað þjóðarbíó er þannig að myndirnar þaðan fari í kvik- myndahús alls staðar á plánetunni.“ Frjálsari og fjörugri Björn Þór bendir á öll hin þjóðar- bíóin, t.d. kvikmyndir frá löndum Evrópu, Asíu og Suður-Ameríku. „Þarna er um afskaplega blómlega og mikilvæga kvikmyndagerð að ræða, og ákvarðanir um gerð mynd- arinnar eru ekki teknar af fjár- málaverkfræðingum sem sitja á skrifstofum í skýjakljúfum og stýra alþjóðlegum fyrirtækjasam- steypum,“ segir Björn Þór. Þessar myndir séu ekki bundnar lögmálum hagnaðar og arðbærni, ólíkt Holly- wood-myndum. „Kvikmyndin er í þeirri skrítnu stöðu að tvinna saman viðskiptaleg og listræn markmið á máta sem ekki er raunin í öðrum listformum. Nú, ef kvikmynd kostar 70 milljarða í framleiðslu þarf hún að fara víða og falla mörgum í geð til að tapa ekki stórfé, það er markaðs- bíóið og um það er allt gott að segja. En hér á landi er þeirri hlið sinnt mjög vel. Ef Bíó Paradís verður lok- að þurrkast hins vegar hin hliðin – sú sem er aðeins frjálsari og fjörugri – svo gott sem út þegar kemur að sýningarhaldi hér á landi,“ segir Björn Þór og bendir á að það sama eigi við um fleiri listgreinar hér á landi sem þurfi á stuðningi hins op- inbera að halda til að þrífast. Nefnir hann sem dæmi starfslaun lista- manna og Kvikmyndamiðstöð Ís- lands. „Bíó Paradís þjónar því hlutverki að sýna okkur að Marvel og Harry Potter eru það ekki það eina sem til er í heiminum. Þangað fer rjóminn úr heimsbíóinu, alþjóðlega lista- myndin og bara góðar og skemmti- legar bíómyndir úr öllum heims- hornum. Listamynd er að sumu leyti rangt hugtak í þessu samhengi en þarna eru myndirnar sem ber hæst í kvikmyndamenningu ólíkra þjóð- landa, þær rata til Bíó Paradísar. Þetta eru myndir sem við sáum aldr- ei á Íslandi nema á lista- og kvik- myndahátíðum eða í seinni tíð þegar sendiráð eru farin að styrkja sér- staka bíódaga. Að við höfum kvikmyndahús sem starfar allt árið um kring og sýnir svona myndir er ástæðan fyrir því að ég sagði í byrjun að þetta væri það mikilvægasta sem hefði gerst í íslenskri kvikmyndamenningu í háa herrans tíð, að við fengum loksins það sem er til mjög víða, „cinemate- que“, bíó sem er að sinna öðru en allra markaðsvænstu kvikmynda- afurðunum. Ef þér finnst menning mikilvæg, kvikmyndalistin og ís- lensk kvikmyndagerð mikilvæg, þá helst þetta algjörlega í hendur við það. Það er ekki hægt að búa til þjóðarbíó ef fólkið sem kemur inn í það er alið upp á algjörlega einsleitri kvikmyndamenningu sem á rætur að rekja til tveggja eða þriggja fyrirtækja á vesturströnd Banda- ríkjanna,“ segir Björn Þór. Þarf fjárstuðning og aðstoð –Hvernig er hægt að sjá til þess að til sé svona kvikmyndahús? Þessi rekstur stendur ekki undir sér. „Hann stendur ekki undir sér frekar en allt hitt sem ég taldi upp áðan; bókmenntir eða kvikmyndir, ekkert stendur undir sér á Íslandi. Við erum of fá. Það eina sem stend- ur undir sér er Marvel-myndir. Bíó Paradís væri ekki og hefði aldrei verið rekið án stuðnings opinberra aðila og það sem þarf að gera er að borg og ríki sameinist um að kvik- myndir séu listgrein, mikilvægur hluti af menningu okkar og það beri að rækta greinina eins og aðrar list- greinar og skapa henni tryggt og öruggt rekstrarumhverfi, sem þýðir bara fjárstuðningur og aðstoð við húsnæði. Þess vegna að byggja und- ir „cinemateque“. Ég sé ekki að neitt standi í vegi fyrir því, við erum að byggja alls konar byggingar fyrir alls konar menningarstofnanir og listgreinar. Allt íslenskt kvikmynda- gerðarfólk sem ég þekki hefur lifað og hrærst í kvikmyndum og það er ástæðan fyrir því að fólk ákveður að gerast kvikmyndagerðarmenn. Ég veit ekki hvort Spider-Man: Far from Home sé að fara að verða þess valdandi að hæfileikaríkur ein- staklingur ákveði að þetta sé það sem hann vilji gera, að búa til kvik- mynd í tölvu um mann í skrítnum fötum. Allir sem ég þekki voru að kafa í klassísku myndirnar,“ segir Björn Þór. Hann bendir að lokum á að Bíó Paradís sé ekki alltaf troðfullt en bíóið sé hins vegar athvarf og áfangastaður allra kvikmynda- áhugamanna í Reykjavík. Vídeóleig- urnar séu nær allar horfnar og því sé aðgengi að kvikmyndum minna en áður, treysta þurfi á streymis- veitur og stafrænar leigur með tak- mörkuðu úrvali. „Úrvalið er af- spyrnuvont,“ segir Björn Þór og skorar á blaðamann að horfa á Citi- zen Kane eftir löglegum leiðum. Blaðamaður bendir á að mögulega megi finna hana á bókasafni eða einu vídeóleigunni sem starfrækt er í 101. „Þarf að vera stofnun“ Morgunblaðið/Golli Sígild Átta og níu ára börn að horfa á The Kid, kvikmynd Charlie Chaplin frá árinu 1921, í Bíó Paradís árið 2010.  Tilkoma Bíós Paradísar það mikilvægasta sem gerst hefur í íslenskri kvikmyndamenningu í háa herrans tíð, að mati lektors í kvikmyndafræði Björn Þór Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.