Morgunblaðið - 02.03.2020, Page 13

Morgunblaðið - 02.03.2020, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020 Fáðu tilboð í verkið hjá okkur Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Suðurkóresk stjórnvöld saka leiðtoga trúarsöfnuðarins Shincheonji Church um að hafa ekki farið að fyr- irmælum stjórnvalda til að hindra út- breiðslu kórónuveirunnar. Greind smit í Suður-Kóreu eru nú á fjórða þúsund. Meðlimir söfnuðarins eru meirihluti smitaðra. Flest smit utan Kína hafa greinst í Suður-Kóreu, en þar eru staðfest smit 3.730 talsins og hefur 21 látið líf- ið af völdum veirunnar. Ákæruvaldið í höfuðborginni Seúl hyggst kæra Lee Man-hee, stofn- anda trúarsöfnuðarins, ásamt 11 öðr- um fyrir að hafa leynt upplýsingum um meðlimi söfnuðarins fyrir heil- brigðisyfirvöldum, þegar reynt var að hafa uppi á smituðum áður en veir- an breiddist út. Hyggst ákæruvaldið því kæra leiðtoga söfnuðarins og aðra tengda málinu fyrir manndráp og meingjörð. Stjórnvöld í Suður-Kóreu greindu frá því að meðlimir Shincheonji-söfn- uðarins hefðu smitað hver annan í borginni Daegu í suðurhluta landsins í febrúar. Síðan hefðu þeir dreift sér um landið. Allir 230 þúsund meðlimir kirkj- unnar hafa setið fyrir svörum og um níu þúsund þeirra sögðust sýna ein- kenni kórónuveirunnar. Trump hvatti til stillingar 61 árs gömul kona er talin fyrst allra í söfnuðinum til að greinast með veiruna og er vitað til þess að hún hafi mætt á nokkrar trúarsamkomur áður en hún greindist með veiruna. Hinir ýmsu trúarsöfnuðir hafa nú aflýst samkomum til að sporna við út- breiðslu veirunnar. Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjun- um greindu frá því í gær að einn ein- staklingur í Washington-ríki hefði látið lífið vegna kórónuveirunnar. Eftir tilkynninguna ávarpaði Donald Trump Bandaríkjaforseti þjóðina og greindi frá því að fjórir væru fárveik- ir vegna smits og að líklegt væri að enn fleiri bandarískir ríkisborgarar myndu veikjast af veirunni. Heilbrigðisyfirvöld í Ástralíu og Taílandi tilkynntu einnig í gær andlát sjúklinga vegna veirunnar. Lést einn í Taílandi og einn í Ástralíu. Í Ástr- alíu var hinn látni 78 ára farþegi skemmtiferðaskipsins Diamond Princess sem var með yfir 700 far- þega innanborðs. Eiginkona manns- ins er einnig smituð og liggur á spít- ala. Í Taílandi lést 35 ára gamall maður sem glímdi einnig við beinbrunasótt. Þá greindi BBC í gær frá 12 nýjum smitum í Bretlandi og eru því stað- fest smit þar orðin 36 talsins. Mengun minnkar í Kína Gervihnattamyndir bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA sýna að mengun hefur minnkað í Kína frá því kórónuveirufaraldurinn fór af stað. Sérfræðingar NASA segja að mikill samdráttur í atvinnu- starfsemi í kjölfar faraldursins skýri ástandið, í það minnsta að hluta til. Myndirnar sýna hvernig styrkur köfnunarefnistvíoxíðs í andrúmsloft- inu hefur hríðfallið á þéttbýlustu svæðum landsins. 3.730 kórónusmit í Suður-Kóreu  Meirihluti smitaðra í sama söfnuði  Trúarleiðtogar bornir þungum sökum AFP Varúðarráðstafanir Suðurkóreskir hermenn úðuðu smitvarnarefni um götur borgarinnar Daegu. Á laugardag greindu stjórnvöld frá 594 nýjum smitum en helmingur allra greindra er í Shincheonji-söfnuðinum. Fyrsta tilfelli kórónuveirunnar kom upp í Dóminíska lýðveldinu í gær. Starfsfólk Ramon de Lara- spítalans í Santo Domingo varði sig gegn veirunni sem herjar nú á heimbyggðina. Ítalskur ferðamaður á sjötugs- aldri greindist með veiruna eftir ferðalag frá Pesaro á Ítalíu 22. febrúar. Tveimur dögum síðar fór maðurinn að sýna einkenni lungnasýkingarinnar og var sett- ur í einangrun. Heilbrigðis- ráðherra landsins, Rafael Sanc- hez Cardenas, greindi frá smitinu á blaðamannafundi í gær. Smitið greindist tveimur dögum eftir fyrsta kórónusmitið á Íslandi en það má einnig rekja til Ítalíu. Kórónuveiran breiðist út Kórónusmit í Dóminíska lýðveldinu AFP Talíbanar og bandarísk stjórn- völd undirrituðu sögulegt sam- komulag í Doha í Katar á laugar- dag, sem miðar að því að binda enda á 18 ára samfelld átök þjóðanna. Þykir það sögulegt, þar sem unnið hefur verið að því árum saman. Í samkomulaginu felst að talíb- anar, sem stjórna stóru landsvæði innan landamæra Afganistans, skuldbinda sig til þess að leyfa hvorki al-Quaeda né öðrum öfga- hópum að starfa á yfirráðasvæðum þeirra. Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra í Atlantshafsbandalaginu hafa skuldbundið sig til þess að senda allt herlið sitt frá Afganistan innan fjórtán mánaða, standi talíb- anar við gefin fyrirheit. KATAR Talíbanar og Banda- ríkin semja um frið Samkomulagið innsiglað. Forsetaframbjóðandinn Joe Biden sigraði í forvali Demókrataflokksins í Suður-Karólínu í gær, með 48,8% atkvæða. Næstflest atkvæði hlaut Bernie Sanders. Niðurstaðan þykir benda til þess að Biden muni veita Sanders harða keppni um útnefningu demókrata í forsetakosningunum vestanhafs. Þriðji í kjörinu varð Tom Steyer, með 11,3% atkvæða, og ráku Pete Buttigieg (8%), Elizabeth Warren (7%) og Amy Klobuchar (3,1%) lest- ina, öll með innan við 10% atkvæða. Joe Biden er 77 ára gamall og býð- ur sig fram til forseta nú í þriðja sinn, en hingað til hefur hann ekki sigrað í forvali neins ríkis. Í sigurræðu sinni sagði Biden að fyrir nokkrum dögum hefðu fjöl- miðlar og álitsgjafar talið að framboð hans væri dæmt til glötunar en þökk sé stuðningsmönnum hans í Suður- Karólínu, í hjarta Demókrataflokks- ins. „Gott fólk, valið er á milli þess að vinna stórsigur eða að tapa, það er valið. Flestir Bandaríkjamenn vilja ekki loforð um byltingu. Þeir vilja meira en bara loforð. Þeir vilja ár- angur,“ sagði hann í ræðu sinni. Óhætt er að álykta að þessi orð bein- ist að Bernie Sanders, sem hefur tal- að fyrir byltingu í sinni kosningabar- áttu. Biden hefur lýst yfir miklum stuðningi við Bandaríkjamenn af afr- ískum uppruna og skoðanakannanir hafa bent til þess að stuðningur þing- mannsins James Clyburn hafi haft áhrif á niðurstöðurnar í ríkinu syðra. Á morgun er svokallaður ofur- þriðjudagur. Þá verður gengið til kosninga í 14 ríkjum, í forvali demó- krata. Joe Biden sigrar í Suður-Karólínu  Hlaut 48,8% atkvæða  „Stórsigur“ AFP Sigur Joe Biden hélt þrumuræðu eftir sigurinn í Suður-Karólínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.