Morgunblaðið - 02.03.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.03.2020, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Sú hugmynd hefur verið ræddí átakshópi sex ráðuneytaum úrbætur innviða í kjöl-far óveðursins í desember síðastliðnum, að sameina nokkur lykilfyrirtæki á heildsöluhluta fjar- skiptamarkaðarins í eitt innviðafyr- irtæki með breiðri eignaraðild, svo sem Mílu, Öryggisfjarskipti, Orku- fjarskipti, Farice og jafnvel Gagna- veitu Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tölvupósti formanns átakshópsins til Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS), þar sem óskað er eftir áliti PFS á hug- myndum um að komið verði á lagg- irnar miðlægu innviðafyrirtæki í fjarskiptum. Um þetta er fjallað í greinargerð sem PFS hefur sent átakshópnum, sem fylgir tillögum um framkvæmdir með grein- argerðum átakshópsins, sem kynnt- ar voru sl. föstudag. Ljóst er af greinargerð PFS að stofnunin telur þessar hugmyndir orka tvímælis í tengslum við upp- byggingu fjarskiptainnviða á kom- andi árum m.a. vegna samkeppn- issjónarmiða. Í tölvupósti átakshópsins til PFS kemur fram að á fundum og í samtölum sem átaks- hópurinn hefur átt með nokkrum fyrirtækjum á raforkumarkaði og fjarskiptamarkaði hefur komið fram stuðningur við það sjónarmið að tækifæri felist í frekari samnýtingu innviða á fjarskiptamarkaði, jafnvel því að sameina ofangreind fyrirtæki. „Þá gæti komið til álita að slíkt inn- viðafyrirtæki sæi um rekstur tiltek- inna fjarskiptainnviða fyrir stærri stofnanir. Þau rök sem helst koma fram eru óheppilegt eignarhald Sím- ans á Mílu og að ef rétt yrði að mál- um staðið gæti slíkt fyrirtæki fjár- magnað uppbyggingu á ljósleiðara á landsvísu, hugað sérstaklega að uppitíma afskekktra fjarskiptastaða ásamt auknum varaaflskröfum og al- mennt auknum öryggiskröfum sem sameinað innviðafyrirtæki gæti staðið straum af frekar en hvert fyrirtæki fyrir sig,“ segir þar m.a. um þessar hugmyndir en hópurinn hefur hug á að kosti og galla við þessa hugmynd áfram þó mikið vatn eigi eftir að renna til sjávar áður en hún verði að veruleika. Markaðsforsendur eða samfélagsleg sjónarmið Í ítarlegri greinargerð PFS segir að erindi hópsins beri það með sér að hugmyndin sé á frumstigi og ekki séu skilgreind skýr markmið með stofnun miðlægs innviðafyr- irtækis. Lesa megi út úr erindinu að gert sé ráð fyrir breiðari eignaraðild m.a. með innlendum og eða erlend- um fjárfestum en óljóst sé með beina aðkomu hins opinbera. Ekki séu skilgreind skýr markmið með stofn- un miðlægs innviðafyrirtækis. Ráða megi af þessu að samfélagleg sjón- armið séu viðmælendum átakshóps- ins ofarlega í huga. „Ef fyrirtækið á að starfa á markaðsforsendum, hvernig á þá að stuðla að því að það horfi til sam- félagslegra sjónarmiða í uppbygg- ingu og rekstri fjarskiptainnviða? Hvernig á að fjármagna verkefni sem ekki verður ráðist í á markaðs- forsendum? Ef fyrirtækið er rekið á samfélagslegum grunni, hvernig á þá að tryggja rekstur þess í ljósi þess að fjarskiptaregluverkið leyfir ekki einkaleyfi? Ekki er ósennilegt að undir slíkum kringumstæðum kæmu fram fyrirtæki sem mundu „fleyta rjómann“ og skilja óhagkvæmustu verkefnin eftir fyrir miðlæga inn- viðafyrirtækið. Þetta gæti síðan leitt til þess að verð þjónustu miðlægs innviðafyrirtækis mundi til lengri tíma litið verða ósamkeppnishæf á þeim svæðum þar sem samkeppni ríkti,“ segir m.a. í greinargerð PFS. Fram kemur að ákveðins mis- skilnings virðist gæta varðandi vissa þætti, t.d. um það að einungis sé um það að ræða að hvatt sé til sam- keppni í erlendu regluverki í fjar- skiptainnviðum. Hið rétta sé að hvatt er til samkeppni í fjarskiptainn- viðum bæði í innlendu sem og er- lendu (ESB) regluverki. Á grund- velli EES samningsins sé skylt að innleiða farskiptaregluverk ESB hérlendis. Samkeppni, þ.m.t. í inn- viðum, sé grundvallaratriði í því regluverki. Ræða sameiningu 4 eða 5 lykilfyrirtækja Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjarskiptamöstur Miklar umræður fara fram um hvernig standa eigi að uppbyggingu innviða fjarskipta. 14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ríkisstjórninkynnti fyr-ir helgi áform um innviða- framkvæmdir, sem felast einkum í að bæta dreifi- kerfi raforku hraðar en ætlað hafði verið, að leyfisveitingar vegna framkvæmda sem því tengjast verði einfaldaðar, að varaafl fyrir raforku og fjar- skipti verði eflt og að upp- byggingu ofanflóðavarna verði lokið eftir áratug. Þessi áform ríkisstjórnarinnar eru jákvætt skref, meðal annars að til standi að flýta framkvæmdum næsta áratuginn fyrir 27 millj- arða króna, „bæði hvað varðar framkvæmdir í flutnings- og dreifikerfi raforku og í ofan- flóðavörnum,“ eins og segir á vef stjórnarráðsins. Ekki verður þó framhjá því litið að ríkið hefur á liðnum ár- um sölsað undir sig fé úr ofan- flóðasjóði og er þar um veru- legar fjárhæðir að ræða og slagar hátt í þá fjárhæð sem nú á að flýta framkvæmdum fyrir næsta áratuginn. Horft á mál- in í því samhengi, sem er óhjá- kvæmilegt, eru fjárhæðirnar sem ætlaðar eru í að flýta framkvæmdum næsta áratug- inn ekki umtalsverðar. Þrátt fyrir þetta skiptir miklu að búið sé að taka út stöðuna eftir ofsaveðrið í des- ember og leggja mat á hvernig raða þurfi verkefnum til að auka öryggi landsmanna sem hraðast og bæta raforkukerfið sem mest. Ástand eins og það sem kom upp í desember, og aftur þó í minna mæli væri á þessu ári, má ekki endurtaka sig. Þó að slík ofsaveður séu fátíð eru þau ekki óþekkt og í landi eins og Íslandi verða innviðirnir að geta staðið af sér slæmt veður. Eitt af því sem upp kom í umræðunni eftir ofsaveðrið í desember var hve stirt leyfis- veitingakerfið er hér á landi vegna framkvæmda í flutn- ingskerfi raforku. Nú er ætl- unin að einfalda þetta kerfi og gera skilvirkara og vonandi gengur sú endurskoðun reglu- verksins hratt og vel fyrir sig. Þetta er afar þýðingarmikið og á ekki aðeins við um leyfisveit- ingar vegna framkvæmda af þessu tagi, heldur hvers kyns framkvæmda. Það er því miður orðið allt of erfitt að ráðast í framkvæmdir hér á landi, hvort sem það er í þéttbýli eða dreifbýli. Þetta þyrftu stjórn- völd að taka til heildarend- urskoðunar til að auðvelda fólki og fyrirtækjum að at- hafna sig hér á landi. Það skiptir miklu að skapa atvinnulífinu almennt þær að- stæður að framkvæmdagleði sé ekki drepin í dróma og þetta getur ríkið gert með því að ein- falda allar leyfisveitingar, draga úr óþörfum afskiptum og skriffinnsku og lækka skatta. Í umræðunni um inn- viði má ekki gleyma innviðum atvinnulífsins. Nú þegar herð- ir að í efnahagsmálum er mik- ilvægast að þessir innviðir at- vinnulífsins séu með þeim hætti að kraftur þess verði leystur úr læðingi svo að þjóð- arbúið geti siglt sem fyrst upp úr þeim öldudal sem það er í um þessar mundir. Ekki má gleyma inn- viðum atvinnulífsins}Innviðauppbygging Bandaríkjamennog talíbanar undirrituðu á laug- ardag friðarsamn- ing sem ætlunin er að verði til þess að bandarískir her- menn verði að fullu farnir frá Afganistan eftir fjór- tán mánuði. Ýmislegt þarf þó að ganga upp áður, ekki síst að ta- líbanar nái einnig sáttum við stjórnvöld í Afganistan, sem kann að reynast þrautin þyngri, og að þeir standi við það að rjúfa öll tengsl við hryðju- verkasamtök og hætta skærum og drápum í landinu. Ekki er útilokað að friðar- samningurinn haldi, en þá hljóta ýmsir að velta því fyrir sér hver áhrif talíbana verða í landinu til frambúðar. Þó að þeir láti af formlegum eða jafn- vel óformlegum tengslum við þekkt hryðjuverkasamtök eru þeir sjálfir mesta ógnin við mann- réttindi í Afganist- an og frelsi al- mennings, einkum þó kvenna. Það hljóta að vera veru- leg vonbrigði, fyrir almenning í Afganistan, fyrir Bandaríkjamenn og fyrir stærstan hluta heimsbyggð- arinnar, að ekki hafi tekist að uppræta talíbana. Til marks um að samtökin standa enn er að hrópað var „alluah ahkbar“ þegar friðarsamningarnir höfðu verið undirritaðir og ljóst að talíbanar vilja líta á þá sem mikinn sigur. Utanríkisráðherra Banda- ríkjanna varaði þá við að fagna um of og hvatti þá til að halda sig við samninginn. Ef til vill gera þeir það en afar ólíklegt er að þeir verði til friðs að fjórtán mánuðum liðnum. Ekki er líklegt að talíbanar verði til fyrirmyndar nú eftir kúgun og ofbeldi síðustu áratuga} Óvissa eftir friðarsamning Á Íslandi eru enn stjórnmálamenn sem hafa þá undarlegu sýn á framtíð Íslands að best sé að bjúrókrötum í Brussel verði falið ákvörðunarvald í sem flestum málefnum landsins. Þessir sömu stjórn- málamenn vilja helst að lög og reglur Evrópu- sambandsins (ESB) renni ljúflega í gegnum stjórnkerfið og Alþingi stimpli þegjandi og hljóðalaust það sem þangað ratar. Þessi sýn þessara stjórnmálamanna virðist ekkert breyt- ast þótt augljóst sé að Ísland hefur ekkert í ESB að sækja frekar en bretar sem við illan leik hefur loks tekist að segja sig frá valda- leysinu í Brussel. Þeir eru líka til á Íslandi sem neita að horfast í augu við það að í ár eru 5 ár síðan slitið var viðræðum við ESB um aðild landsins að banda- laginu. Það var gert með bréfi þar sem þetta var tilkynnt alveg eins og þegar sótt var um með bréfi. Flestir þessara aðila sem berja hausnum við steininn eru fyrst og fremst ósáttir við að ekki var slitið eins og þeir vildu að það yrði gert. Á það skal minnt að boðið var upp á það 2015 en þá treystu félagar þeirra sér ekki til þess. En þessu er lokið. Í dag byrjar þingmannaráðstefna um sameiginlega ut- anríkis- og öryggisstefnu Evrópusambandsins. Ráð- stefnan fer að þessu sinni fram í Zagreb í Króatíu þar sem króatar eru í forystuhlutverki í ESB. Þátttakendur í ráð- stefnunni koma frá ríkjum Evrópusambandsins, umsókn- arríkjum og samstarfsríkum ESB og sækja fulltrúar Ís- lands ráðstefnuna sem samstarfsríki ESB. Fyrir þá sem annaðhvort halda í vonina um að afhenda brusselskum bjúrókrötum lyklana að Íslandi eða þá sem neita sannleikanum er rétt að benda á þátttökulistann fyrir ráðstefn- una í Zagreb. Þátttakendur eru flokkaðir í nokkra flokka og eru aðildarríkin saman í flokki (Member states). Síðan eru það áheyrnarríki (Obser- vers) en þar eru Ísland, Noregur og Bretland saman. Þá koma umsóknarríki (Application co- untries) en þau eru Albanía, Norður Make- dónía og Tyrkir en Tyrkir hafa haft stöðu um- sóknarríkis síðan 1999 en viðræður hófust 2005. Ísland er sem sagt í hópi með Noregi og Bretlandi og undarlegt ef einhver heldur því fram að Noregur hvað þá Bretland sé í um- sóknarferli. Einhver ætti þá að láta Boris vin okkar vita. Nýlega sást á dagskrá Alþingis þingmál er varðaði meinta stöðu Íslands sem umsóknarríkis. Ann- aðhvort var málið lagt fram af misskilningi, þekking- arleysi eða til þess eins að reyna að ná athygli. Ég kýs að veðja á misskilning því hitt væri afar óviðeigandi. Það sem mestu skiptir er að staða Íslands er alveg skýr. Við erum í hópi með Bretlandi og Noregi en hvorugt ríkið er umsóknarríki eða á einhvers konar viðræðum um inn- göngu í Evrópusambandið. Ísland er ekki á leið í Evrópu- sambandið, horfist í augu við það. gunnarbragi@althingi.is Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Ísland og Bretland ekki umsóknarríki Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.