Morgunblaðið - 02.03.2020, Side 26
ÍSHOKKÍ
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí
var alla síðustu viku á Akureyri að
spila í 2. deild B á HM. Eftir slæmt
tap í fyrsta leik, gegn Ástralíu, rót-
burstuðu íslensku naglarnir aðra
andstæðinga sína og tryggðu sér
annað sætið á mótinu. Ástralía
vann alla sína leiki og færist því
upp í 2. deild A.
Ísland hefur lengstum spilað í 2.
deild B í íshokkí og hefur oft verið
á verðlaunapalli. Liðið sem spilaði á
þessu móti er mjög ungt. Af 22
leikmönnum eru tólf enn undir tví-
tugu og meðalaldurinn er 23 ár.
Fimm elstu leikmennirnir í liðinu
eru allir komnir yfir þrítugt en
Jónína Guðbjartsdóttir og Sarah
Smiley eru 39 og 37 ára. Þetta þyk-
ir þó enginn aldur þar sem elstu
leikmenn mótsins voru 47 ára
Úkraínumenn.
Ísland mætti einmitt Úkraínu í
lokaleik sínum á laugardag. Fyrir
leik var þegar orðið ljóst að Ísland
yrði í 2. sæti. Leikurinn var mjög
jafn á upphafsmínútunum og hvort
lið fékk sín færi. Ísland tók svo
smám saman völdin en ekki tókst
að skora í fyrsta leikhlutanum.
Áfram héldu yfirburðir Íslands og
fimm mörk komu í næsta leikhluta.
Kolbrún María Garðarsdóttir,
Sunna Björgvinsdóttir, Teresa
Snorradóttir, Hilma Bóel Bergs-
dóttir og Silvía Rán Björgvins-
dóttir skoruðu mörkin.
Besti sóknarmaðurinn
Tvö mörk bættust við í lokaleik-
hlutanum en þau skoruðu Flosrún
Vaka Jóhannesdóttir og Silvía Rán.
Ísland vann því leikinn 7:0 og hélt
hreinu þriðja leikinn í röð. Silvía
Rán varð stigahæsti leikmaður
mótsins og næstmarkahæst. Hún
fékk svo verðlaun sem besti sókn-
armaðurinn og var vel að þeim titli
komin. Ástralir fengu hin ein-
staklingsverðlaunin. Rylie Padjen
var besti varnarmaðurinn og hin
fimmtán ára gamla Olivia Last var
besti markvörðurinn.
Liðsfélagarnir frá Södertälja í
Svíþjóð, þær Silvía Rán og Sunna
Björgvinsdætur, voru bestu menn
liðsins á mótinu ásamt Kolbrúnu
Maríu Garðarsdóttur. Yngstu
stelpurnar stóðu fyrir sínu og þær
elstu skiluðu reynslu og yfirvegun
inn í liðið. Þeirra hlutverk er svo
ekki minna utan vallar enda gætu
flestir yngri leikmannanna verið
dætur þeirra.
Eftir viðtöl við hina ungu leik-
menn Íslands er ljóst að það er
hugur og metnaður í þeim og þeir
stefna upp á við með liðið. Það sem
skortir eru fleiri gæðaleikmenn
með reynslu úr sterkum deildum.
Æ fleiri leikmenn spila með liðum
annars staðar á Norðurlöndum og
þyrfti þeim að fjölga enn frekar. Ís-
lenska deildin er ágæt út af fyrir
sig en þar er erfitt að taka stór-
stígum framförum. Ný kynslóð er
nú að taka yfir í liðinu og mun von-
andi færa liðið upp um deild eða
deildir.
Ungt landslið
á uppleið
Hafnaði í öðru sæti á heimavelli
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Silfur Ísland fagnar í öruggum sigri á Úkraínu á laugardaginn var.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020
England
Newcastle – Burnley............................... 0:0
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Everton – Manchester United ................ 1:1
Brighton – Crystal Palace ....................... 0:1
Bournemouth – Chelsea .......................... 2:2
West Ham – Southampton ...................... 3:1
Watford – Liverpool................................. 3:0
Tottenham – Wolves ................................ 2:3
Staðan:
Liverpool 28 26 1 1 64:20 79
Manch.City 27 18 3 6 68:29 57
Leicester 28 15 5 8 54:28 50
Chelsea 28 13 6 9 47:39 45
Manch.Utd 28 11 9 8 42:30 42
Wolves 28 10 12 6 41:34 42
Tottenham 28 11 7 10 46:39 40
Sheffield Utd 27 10 10 7 29:25 40
Burnley 28 11 5 12 33:39 38
Arsenal 27 8 13 6 39:36 37
Everton 28 10 7 11 37:42 37
Crystal Palace 28 9 9 10 25:32 36
Southampton 28 10 4 14 35:51 34
Newcastle 28 8 8 12 24:41 32
Brighton 28 6 10 12 32:40 28
West Ham 28 7 6 15 35:49 27
Watford 28 6 9 13 27:43 27
Bournemouth 28 7 6 15 28:45 27
Aston Villa 27 7 4 16 34:52 25
Norwich 28 5 6 17 25:51 21
Ítalía
Lazio – Bologna ....................................... 2:0
Andri Fannar Baldursson var allan tím-
ann á bekknum hjá Bologna.
Frakkland
París SG – Dijon....................................... 4:0
Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli
stanganna hjá Dijon.
Olísdeild kvenna
HK – ÍBV .............................................. 27:25
Stjarnan – Afturelding......................... 25:25
Haukar – KA/Þór ................................. 27:22
Valur – Fram ........................................ 24:28
Staðan:
Fram 18 17 0 1 574:380 34
Valur 18 14 1 3 497:378 29
Stjarnan 18 8 4 6 454:437 20
HK 18 8 2 8 486:496 18
Haukar 18 6 2 10 398:449 14
KA/Þór 18 7 0 11 429:502 14
ÍBV 18 6 2 10 411:436 14
Afturelding 18 0 1 17 339:510 1
Meistaradeild Evrópu
París SG – Zagreb ............................... 37:26
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði ekki
fyrir PSG.
Aalborg – Elverum.............................. 30:28
Janus Daði Smárason skoraði 1 mark
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon
skoraði ekki.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 6
mörk fyrir Elverum.
Ferencváros – Esbjerg ....................... 26:25
Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Es-
bjerg.
Dominos-deild karla
Valur – Grindavík ................................. 68:90
Stjarnan – Þór Ak............................... 107:86
Keflavík – Haukar ................................ 80:69
Njarðvík – KR ...................................... 81:87
Staðan:
Stjarnan 19 16 3 1744:1581 32
Keflavík 19 14 5 1684:1539 28
Tindastóll 18 12 6 1562:1488 24
KR 19 12 7 1638:1584 24
Njarðvík 19 11 8 1628:1496 22
Haukar 19 11 8 1675:1618 22
ÍR 18 9 9 1526:1617 18
Grindavík 19 8 11 1616:1660 16
Þór Þ. 18 7 11 1448:1491 14
Valur 19 6 13 1530:1643 12
Þór Ak. 19 5 14 1640:1824 10
Fjölnir 18 1 17 1517:1667 2
Dominos-deild kvenna
Haukar – Skallagrímur........................ 69:76
Staðan:
Valur 23 21 2 1995:1500 42
KR 23 17 6 1761:1501 34
Skallagrímur 23 14 9 1566:1579 28
Keflavík 22 14 8 1615:1556 28
Haukar 23 13 10 1666:1597 26
Snæfell 22 7 15 1485:1717 14
Breiðablik 23 3 20 1493:1831 6
Grindavík 23 2 21 1469:1769 4
Þýskaland
Alba Berlín – Bamberg..................... 107:70
Martin Hermannsson skoraði 14 stig,
tók 3 fráköst og gaf 6 stoðsendingar hjá
Alba Berlín á 27 mínútum.
Spánn
Zaragoza – Estudiantes...................... 97:87
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 9 stig og
tók 5 fráköst á 18 mínútum.
Rússland
UNICS Kazan – Kalev/Cramo........... 87:76
Haukur Helgi Pálsson lék ekki með Kaz-
an vegna meiðsla.
fyrir neðan. Það yrði glæsilegt af-
rek hjá HK að komast í úrslita-
keppnina, en stöðugur uppgangur
hefur verið í HK síðustu ár. Liðið
var nýliði á síðasta ári og áttu
ekki margir von á að HK yrði á
meðal fjögurra efstu á þessum
tímapunkti. Þá fékk Afturelding
sitt fyrsta stig, en þau hefðu
kannski átt að vera tvö í 25:25-
jafntefli gegn Stjörnunni. Stjarnan
bjargaði stiginu með góðum loka-
kafla. Stjarnan hefur spilað illa í
síðustu leikjum og þarf að rífa sig
upp fyrir úrslitakeppnina.
johanningi@mbl.is
Fram fór langt með að tryggja sér
deildarmeistaratitilinn í Olísdeild
kvenna í handbolta með 28:24-
útisigri á Val í einvígi toppliðanna
á laugardag. Fram hefur nú fimm
stiga forskot á Val, þegar aðeins
þrjár umferðir eru eftir. Fram
getur því tryggt sér deildartitilinn
með sigri á Stjörnunni 13. mars
næstkomandi.
Valskonur höfðu betur í einvíg-
inu gegn Fram á síðustu leiktíð og
unnu þrefalt, en Framarar hafa
verið meira sannfærandi í allan
vetur. Aðeins þarf að líta á
markatölu liðanna til að sjá að
Fram hefur spilað betur; Fram-
arar eru með 194 mörk í plús og
Valur með 119 mörk í plús. Síð-
asta tap Framara kom í október,
einmitt gegn Val, og hefur liðið
sjaldan verið eins sterkt og nú.
Valskonur fá annað tækifæri á
miðvikudag þegar liðin mætast í
undanúrslitum bikarsins í Laug-
ardalshöll. Þá þarf allt að ganga
upp til að liðið geti unnið Fram í
Höllinni annað árið í röð.
HK tók stórt skref í áttina að
sæti í úrslitakeppninni með 27:25-
sigri á ÍBV. HK er í fjórða sæti,
með fjórum stigum meira en liðin
Með aðra hönd á deildarbikarnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Toppslagur Fram hafði betur í
toppslagnum á Hlíðarenda.
Manchester City varð deildabik-
armeistari þriðja árið í röð með 2:1
sigri á Aston Villa í úrslitaleik á
Wembley í Lundúnum. Með sigr-
inum varð City fyrsta liðið frá því
árið 1983 til þess að vinna titilinn
þrisvar í röð, en Liverpool vann
deildabikarinn fjórum sinnum, frá
1981-1984. City hefur nú unnið
deildabikarinn sjö sinnum, þar af
fimm sinnum á síðustu sjö árum.
Mörk City skoruðu Sergio Agüero
og Rodri í fyrri hálfleik en Mbwana
Samatta minnkaði muninn undir
lok fyrri hálfleiks eftir klaufaleg
mistök frá John Stones í vörn City.
Manchester City hafði tögl og hald-
ir á leiknum og skapaði sér urmul
hálffæra, en markvörður þeirra,
Claudio Bravo, varði skalla Björn
Engels meistaralega í stöng undir
lok leiks, og kom liðinu undan
framlengingu. Villa lék síðast til úr-
slita í keppninni árið 2010, vann tit-
ilinn síðast 1996 og hefur unnið
keppnina samtals fimm sinnum, þar
af fyrsta árið sem leikið var um bik-
arinn, árið 1961. sport@mbl.is
AFP
Bikar Pep Guardiola hefur stýrt Manchester City til sigurs þrjú ár í röð.
Enn á ný verður City
deildabikarmeistari
Gylfi Þór Sigurðsson var grátlega
nærri því að skora sigurmark fyrir
Everton í uppbótartíma gegn Man-
chester United á Goodison Park í
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Leiknum lauk með 1:1 jafn-
tefli þar sem markverðir beggja
liða reyndust skúrkar og er staða
liðanna nokkuð óbreytt í baráttunni
um Evrópusæti.
David de Gea, markvörður Unit-
ed, gaf fyrsta markið þegar hann
sparkaði boltanum í Dominic Cal-
vert-Lewin og þaðan í eigið mark
áður en Jordan Pickford tókst ekki
að verja langskot frá Bruno Fern-
andes. Dramatíkin var svo algjör í
lokin þegar Gylfi Þór fékk send-
ingu frá Richarlison inn í markteig
í uppbótartíma en skot hans var
ekki nógu gott og De Gea varði
glæsilega. Frákastið barst hins veg-
ar út í teig og þar náði Calvert-
Lewin að pota boltanum í varn-
armanninn Harry Maguire og það-
an í netið. Gríðarlegur fögnuður
braust út á Goodison áður en mynd-
bandsdómarar dagsins dæmdu
markið ógilt en Gylfi Þór sat eftir í
grasinu, í rangstöðu, og byrgði De
Gea sjónar á boltanum.
Wolves vann 3:2-sigur á Totten-
ham í hinum Evrópuslagnum og
blés meira lífi í vonir liðsins um að
hreppa Meistaradeildarsæti.
Ótrúlegustu úrslit tímabilsins
komu á Vicarage Road á Laug-
ardag þegar Watford gerði sér lítið
fyrir og vann 3:0-sigur á Liverpool.
Tapið var það fyrsta hjá Liverpool
á tímabilinu og það fyrsta í samtals
44 leikjum. Liverpool virkaði þreytt
og líflaust í leiknum og var sigur
Watford-manna fullkomlega sann-
gjarn og hefðu mörkin getað orðið
enn fleiri.
Gylfi Þór grátlega
nærri sigurmarki
AFP
Rangur Gylfi Þór Sigurðsson var
réttur maður á röngum stað.