Morgunblaðið - 02.03.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.03.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020 mánudaginn 2. mars, kl. 18 Fold uppboðshús kynnir Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is LISTMUNAUPPBOÐ Karl Kvaran Listmunauppboð nr. 118 mánudag kl. 10–17 Forsýning á verkunum í Gallerí Fold Kristín Jónsdóttir Ásgrímur Jónsson 70 ára Jóhann er Reykvíkingur, ólst upp í Stangarholti, en býr í Seljahverfinu. Hann fór í Tollskólann og vann í Tollgæslunni. Hann var síðan lengi sölustjóri hjá PON ehf. og er núna sölustjóri hjá Íslyft. Jóhann var gít- arleikari í hljómsveitinni Fjarkar á 7. ára- tugnum og er í kórnum Hallveigarsynir. Maki: Ingibjörg Hjaltalín Jónsdóttir 1949, íþróttakennari í Melaskóla. Börn: Guðrún Hjaltalín, f. 1971, og Hulda Björk, f. 1975. Barnabörnin eru 6 og barnabarnabarn er 1. Foreldrar: Ögmundur Guðmundsson, f. 1916, d. 1998, yfirtollvörður í Reykjavík, og Halldóra Pálmarsdóttir, f. 1920, d. 1992, húsmóðir í Reykjavík. Jóhann Gunnar Ögmundsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Erfið mál kalla á krafta þína bæði heima fyrir og í vinnunni. Ástarsamband syngur sitt síðasta. 20. apríl - 20. maí  Naut Vertu á verði gagnvart tungulipru fólki og mundu að ekki er það útlitið sem öllu skiptir. Þú ert að falla á tíma í vissu máli. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gættu þess vandlega að enginn hlunnfari þig í viðskiptum. Þú átt aðdá- anda sem á eftir að gera þér lífið leitt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að tala við yfirmann þinn eða annan yfirboðara í dag. Þú veltir vöngum yfir framtíðinni, viltu flytja eða vera á sama stað? 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur þörf fyrir að skipuleggja þig og koma hlutunum í lag í kringum þig. Tjáskipti verða að vera skýr og ná- kvæm svo ekkert fari á milli mála. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Stundum er best að mætast á miðri leið. Nú er komið að því að herða sultarólina um stund. Göngutúrar bæta og hressa. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ákvarðanirnar sem þú tekur í vinnunni í dag hafa áhrif á frama þinn. Þú ættir að fara að huga að sumarfríinu þínu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Lokaðu þig ekki af frá um- heiminum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Haltu ótrauð/ur þínu striki en láttu ekki þétta dagskrá draga úr þér máttinn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það liggur ekkert á og þú átt á hættu að gera alvarleg mistök í öllum þessum hamagangi. Komdu böndum á eyðsluseggina á heimilinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þeir sem leita ráða hjá þér hafa stundum á orði að þú ættir að ger- ast ráðgjafi. Taktu áhættu í vissu máli. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú finnur auðveldlega til pirr- ings í dag. Viljirðu ná málum fram af ein- hverju viti þarftu að vera mjög þolinmóð/ ur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ekki ólíklegt að ímynd- unaraflið hlaupi með þig í gönur í dag. Nú er rétti tíminn til að ganga að samn- ingaborði, en lestu smáa letrið vel. þessum tíma hrundu Sovétríkin og nýir möguleikar sköpuðust fyrir fyrirtæki á Norðurlöndum í austri. NOPEF setti í gang svokallað „Bal- tic Investment Program“ til aðstoðar norrænum fyrirtækjum sem hugðu á útrás í austurvegi. Í því sambandi átti ég tvisvar fund með Vladimír Pútín sem þá var yfir alþjóðlegum samskiptum Pétursborgar en NO- PEF studdi yfir 400 fjárfestingar- 1990. „Ríkisstjórn Steingríms náði með fjölþættum aðgerðum þeim ár- angri að koma 35% verðbólgu niður í 5% á aðeins 18 mánuðum. Þessi ár- angur skapaði forsendur Þjóðarsátt- arsamninganna 1990.“ Í apríl 1990 var Þorsteinn ráðinn forstjóri Nor- ræna verkefnaútflutningssjóðsins, NOPEF. „Eftir 20 ára störf á Íslandi langaði mig að starfa erlendis og árin í Helsinki voru mjög viðburðarík. Á Þ orsteinn Ólafsson fæddist í Reykjavík 2. mars 1945 og ólst upp á Þórsgötu og Lynghaga. Hann varð stúdent frá MR 1965 og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá HÍ 1970. Hann var í fyrsta ung- lingalandsliði Íslands í körfubolta og varð tvisvar Íslandsmeistari með KR. Þorsteinn var ráðinn fulltrúi í fjár- málaráðuneytinu og síðar deild- arstjóri. Hinn 1. janúar 1970 gengu Íslendingar í EFTA. „Var þá unnið myrkranna á milli við að vinna að að- lögun íslensks iðnaðar að EFTA, og síðar að aðlögun viðskiptasamnings við Evrópusambandið 1973.“ Árið 1976 tók hann við starfi forstjóra í Kísiliðjunni. Í Kröflueldum 1977 varð mikið tjón á Kísiliðjunni, sprungur opnuðust undir hráefnisþróm verk- smiðjunnar og allt hráefni hvarf í ið- ur jarðar auk annarra skemmda. „Okkur tókst að fá erlenda meðeig- endur ríkisins, sem sáu um alla sölu á afurð Kísiliðjunnar erlendis, til að fjárfesta aftur í Kísiliðjunni sem tryggði rekstur hennar næstu ára- tugi.“ Þorsteinn var aðstoðarmaður Hjörleifs Guttormssonar iðn- aðarráðherra 1978-79 og aðstoð- armaður Erlendar Einarssonar, for- stjóra Sambandsins, 1980-1984. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri þróunardeildar SÍS 1984-1987 og varð við stofnun stjórnarformaður og síðar framkvæmdastjóri Sam- vinnusjóðs Íslands hf. 1982-1988. Þorsteinn var fyrsti stjórn- arformaður Marel, stofnað í mars 1983 og gegndi þeirri stöðu til 1988 en forsaga Marel var þróunarsam- starf Framleiðni sf., í eigu frystihúsa innan Sambandsins og Raunvís- indastofnunar HÍ um þróun raf- eindavoga í fiskiðnaði. Starfsmenn Marel voru þrír í byrjun en nú eru þeir yfir 6.000 um allan heim. „Sam- vinnusjóður Íslands varð stærsti hluthafinn og frystihús Sambandsins meðhluthafar. Á þessum árum var Sambandið mjög öflugt í nýsköpun í atvinnulífinu.“ Þorsteinn varð efnahagsráðgjafi Steingríms Hermannssonar í rík- isstjórn hans frá okt. 1988 til feb. verkefni norrænna fyrirtækja í Aust- ur Evrópu.“ Þorsteinn hefur gegnt fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum, en hann sat m.a. í 7 ár í stjórn Alþjóðasamtaka frjálslyndra stjórnmálaflokka, Hann beitti sér fyrir stofnun Icecon í sam- vinnu SH, SÍF og SÍS til átaks í verkefnaútflutningi í sjávarútvegi og var formaður stjórnar 1986-1988. Hann beitti sér einnig fyrir stofnun minningarsjóðs um Jean Pierre Jac- quillat, stjórnanda Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, til styrktar efnilegu tónlistarfólki. Þorsteinn var fulltrúi Íslands í stjórn NIB 1996-2005, for- maður bankaráðs FBA 1997-2000, og fulltrúi Íslands í bankaráði CEB í París 2004-2008. Þá var Þorsteinn aðalræðismaður Tyrklands á Íslandi 2002-2011. „Ég kynntist æskuástinni 17 ára og höfum við alið hvort annað upp síðan. Áhugamálin eru alþjóðastjórn- mál, saga, klassísk tónlist, myndlist og brids sem ég er reyndar arfaslak- ur í en hef gaman af að spila með góð- um vinum. Þá hef ég yndi af ljóðlist en nokkur ljóð eftir mig birtust í Les- bók Morgunblaðsins á sínum tíma.“ Fjölskylda Eiginkona Þorsteins er Ásthildur S. Rafnar, f. 22.8. 1947, sérkennari. Foreldrar hennar: Hjónin Halldór S. Rafnar, f. 20.1. 1923, d. 1.5. 2009, borgarfógeti og formaður Blindra- félagsins, og Þorbjörg Jónsdóttir Rafnar, f. 23.7. 1926, húsfreyja og fv. símamær í LÍ. Börn Þorsteins og Ásthildar eru 1) Halldór Friðrik, f. 25.7. 1967, við- skiptafræðingur. Sambýliskona hans er Steindóra Gunnlaugsdóttir, kenn- ari. Börn Halldórs eru: Þorsteinn Friðrik, Magnús Friðrik og Sigrún Ásta; 2) Bergljót, f. 9.2. 1974, ljós- myndari. Maður hennar er Magnús Stephensen framkvæmdastjóri. Börn: Kristófer, Ólafur Flóki og Hrafn. 3) Þórhallur Eggert, f. 18.8. 1977, fjárfestingastjóri hjá NEFCO í Helsinki. Eiginkona hans er Jóhanna Gunnlaugsdóttir, viðskiptafræð- ingur. Börn: Ólafur Bjarni, Ásthildur Jóna og María Fjóla. Systkini Þorsteins: Sigríður Helga, f. 1.5. 1939, d. 5.11. 2011, skrif- Þorsteinn Ólafsson, viðskiptafræðingur og frumkvöðull – 75 ára Fjölskyldan 70 ára afmæli Ásthildar, en á myndina vantar Þórhall Eggert og hans börn og elsta barnabarnið, Þorstein Friðrik. Fjölbreyttur ferill að baki Marel 1985 Samningar undirritaðir við norska fyrirtækið Scanvest Ring um dreifingu á Marel vogum í Noregi. Efri röð frá vinstri: Höskuldur Ásgeirsson, Rögnvaldur Ólafsson, Gylfi Aðalsteinsson og tveir norskir fulltrúar. Í fremri röð: Magne Storvik, forstjóri Scanvest Ring, og Þorsteinn. 50 ára Hildur ólst upp í Reykjavík en býr í Garðabæ. Hún er cand.oecon. frá HÍ og er með M.Sc.-gráðu í viðskiptum með áherslu á vinnusál- fræði frá BI- háskólanum í Osló. Hún er einnig mark- þjálfi frá Evolvia. Hildur er skrifstofustjóri LOGOS lögmannsþjónustu. Maki: Alexander Kristján Guðmundsson, f. 1970, fjármálastjóri Matorku. Börn: Sandra Kristín, f. 1997, Óttar, f. 1999, og Kristín Helga, f. 2004. Fyrsta barnabarnið er væntanlegt í sumar. Foreldrar: Kristján Ragnarsson, f. 1938, fv. formaður LÍÚ, búsettur í Reykjavík, og Kristín Möller, f. 1940, d. 2014, húsmóðir í Reykjavík. Hildur Ragna Kristjánsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.