Morgunblaðið - 02.03.2020, Blaðsíða 32
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran-
söngkona, best þekkt sem Diddú,
mun koma fram á hádegistón-
leikum í Hafnarborg í Hafnarfirði í
hádeginu á morgun, þriðjudag,
klukkan 12. Með henni leikur á pí-
anó Antonía Hevesi, listrænn
stjórnandi tónleikaraðarinnar í
Hafnarborg. Á efnisskrá er úrval af
aríum og sönglögum.
Diddú á hádegistón-
leikum í Hafnarborg
MÁNUDAGUR 2. MARS 62. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Íslenska kvennalandsliðið í íshokkíi
hafnaði í 2. sæti í 2. deild B á HM á
heimavelli. Mótið fór fram í Skauta-
höllinni á Akureyri. Ísland tapaði
fyrir Ástralíu í fyrsta leik, en vann
síðustu fjóra afar sannfærandi. Ís-
land tryggði annað sætið með 7:0-
sigri á Úkraínu í lokaleik sínum.
Silvía Rán Björgvinsdóttir var valin
besti sóknarmaður mótsins. »26
Ísland náði í silfur-
verðlaun á heimavelli
ÍÞRÓTTIR MENNING
KR gerði góða ferð á Suðurnesin
og vann 87:81-sigur á Njarðvík í
Dominos-deild karla í körfubolta í
gærkvöld. Frammistaða KR-inga
var mjög góð og skoruðu fimm
leikmenn 14 stig
eða meira. Stjörn-
una vantar aðeins
einn sigur til við-
bótar til að tryggja
sér deildarmeist-
aratitilinn annað ár-
ið í röð eftir 107:86-
sigur á Þór Akureyri.
Keflavík tók stórt
skref í að tryggja sér
annað sætið með
80:69-sigri á Haukum
og Grindavík vann
sannfærandi 90:68-
sigur á Val. »27
Góð ferð Íslandsmeist-
aranna til Njarðvíkur
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Fataskiptimarkaður fór fram í
Borgarbókasafninu í Árbæ í gær.
Þar var hægt að koma með flíkur
og skó og fá sér annan fatnað í
staðinn. Mætingin hefði mátt vera
betri, að sögn Katrínar Guðmunds-
dóttur, deildarstjóra bókasafnsins.
Fólk var hvatt til að kíkja í fata-
skápana og taka þar til fatnað sem
það var hætt að nota eða orðið
leitt á. Þannig væri hægt að nýta
flíkurnar áfram frekar en að henda
þeim í ruslið.
Saumavélar á safninu
Aðspurð segir Katrín hugmynd-
ina um markaðinn hafa komið upp
í framhaldi af margs konar vanga-
veltum um endurnýtingu og um-
hverfismál. Hún bendir á að á
bókasafninu séu þrjár saumavélar,
tvær venjulegar og ein overlock-
vél, sem gestir safnsins geti notað
til að búa til eða gera við flíkur.
„Við höfum ekki verið með fata-
skiptimarkað hér áður og vorum
bara spennt að sjá hvernig myndi
ganga. Ég veit til þess að ungt
fólk er duglegt að hittast og
skiptast á fatnaði og þá oftast í
heimahúsum en við töldum að það
gæti að sumu leyti verið þægilegra
að hittast á hlutlausum stað, eins
og bókasafnið er í raun,“ segir
Katrín.
Hún segir starfsmenn safnsins
hafa rennt blint í sjóinn með
markaðinn.
„Við vissum ekki hve margir
myndu koma, enda engin skráning,
fólk mætti bara með flíkurnar. Við
teljum að það sé full þörf fyrir
svona skiptimarkað, ég hef það
fyrir satt að í fataskápum lands-
manna sé töluvert af góðum en svo
til ónotuðum fatnaði,“ bætir hún
við.
Einu sinni í mánuði hefur klæð-
skeri komið í bókasafnið, leiðbeint
fólki og kennt því á saumavél-
arnar. Einnig hafa verið örnám-
skeið, eins og að sauma skikkjur
fyrir öskudaginn eða önnur tilefni.
„Hugsunin með saumavélunum
er sú að hægt sé að samnýta vél-
arnar, að ekki sé nauðsynlegt að
slík tæki séu til á hverju einasta
heimili,“ segir Katrín.
Hún bætir við að til tals hafi
komið að vera með námskeið í að
sauma upp úr gömlum fötum, en af
því hafi ekki orðið enn.
Plöntuskipti í vor
Katrín minnir svo á að í maí nk.
verður plöntuskiptidagur í bóka-
safninu. Það verður í þriðja sinn
en hin tvö skiptin hafa gengið
mjög vel. Stefnt er að því að hafa
slíka skiptimarkaði vor og haust.
„Almennt má segja að samnýt-
ingarhugsjónin sé grunnhugsunin
með bókasöfnum. Að allir hafi
greiðan aðgang að bókum, við-
burðum, kvikmyndum, myndlist og
öðru. Bókasöfn eru þannig mið-
stöðvar fyrir mannlíf,“ segir Katr-
ín að endingu.
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Árbær Fataskiptimarkaður fór fram í Borgarbókasafninu í Árbæ, menningarhúsi hverfisins.
Miðstöð fyrir mannlíf
Fataskiptimarkaður á Borgarbókasafninu í Árbæ í gær