Morgunblaðið - 02.03.2020, Side 17

Morgunblaðið - 02.03.2020, Side 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2020 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í Sæll Guðmundur Ingi. Þann 19. febrúar sl. birtir þú á vefsíðu ráðu- neytisins „auglýsingu um hreindýraveiðar ár- ið 2020“. Þessi auglýsing sýnir að veiðimenn hafa haft betri aðgang að þér en undirritaður, eða þá að samkennd þín með þeim og þeirra veiðigleði er meiri en samkennd þín með saklausum og varnarlausum dýrum, hverra velferð þér er þó skylt að bera fyrir brjósti. Þú kannt að meta jarðveginn og landið, en skilning virðist vanta fyrir því hjá þér að landið og lífríkið á því mynda eina heild. Augljóst er af þess- ari afgreiðslu hreindýraveiða 2020, þar sem veiðitímar eru óbreyttir og hreindýrskýr verða áfram skotnar með og frá 8 vikna gömlum kálfum þeirra, að dýravernd og dýravelferð liggja þér ekki nærri. Það eru mikil vonbrigði fyrir undirritaðan. Þú fylgir veiðimönnum í einu og öllu í þessari ákvörðun, nema hvað þú reynir sýnilega að réttlæta lítillega gjörðir þínar með því, að „hvetja veiðimenn eindregið“ til að veita kúm með kálfa grið í 2 vikur með því að einbeita þá drápinu að geldum kúm. Góðir og virkir stjórnunarhættir það, til manna sem hafa engar tilfinn- ingar fyrir dýrunum – kálfum eða kúm –, en ef svo væri lægju þeir ekki í því að murka úr þeim lífið að gamni sínu. Það mætti líkja þessu við það að ökumenn væru „eindregið hvattir“ til að aka ekki ölvaðir, í stað þess að banna það, sem auðvitað hefur verið gert. Því miður liggur það fyrir að eftir að þú hefur gegnt starfi umhverf- isráðherra, nú í 26 mánuði, er hvergi hægt að sjá nokkur merki þess að þú hafir gert eitt eða neitt fyrir vernd eða velferð dýra í landinu. Á þó slíkt að vera á stefnuskrá VG, en það virðist gleymt ásamt með hvalavernd og ýmsu öðru sem flokkurinn þykist standa fyrir. Eitt er það að þú virðir vernd dýranna og okkar baráttu fyrir vel- ferð þeirra að vettugi, annað og verra er að þú skulir taka óheftan veiðivilja veiðimanna – líka innan UST, en þar eru þeir enn með rík ítök, það sama gildir um NA, sem er miðstöð fjárflæðis af drápi dýranna, í allar áttir austur þar, sem nemur hundruðum milljóna – fram yfir tilmæli Fagráðs um velferð dýra, frá 3. september 2019, þar sem Fagráðið beindi þeim tilmælum til UST og þín „að kýr verði ekki skotn- ar frá kálfum yngri en þriggja mán- aða“. Þetta hunzar þú. Hvernig getur þú leyft þér að meta vilja veiðimannaklíkunnar, líka meðal embættismanna, meir en vilja og til- mæli Fagráðs um velferð dýra með yfirdýralækni í broddi fylkingar? Ég mun ekki óska eftir frekari fundum með þér vegna verndar eða velferðar villtra dýra, þar sem fyrir liggur að slíkt er tímasóun og til einskis. Ég mun, hins vegar sýna fram á það í opinberri umræðu hversu huglaus og dáðlaus þú hefur reynzt í dýraverndunarmálum, þrátt fyrir stórar skyldur og yfirlýsta dýra- verndunarstefnu VG. Kveðja, Jarðarvinir – Friends of Earth. Eftir Ole Anton Bieltvedt » Það mætti líkja þessu við það, að ökumenn væru „ein- dregið hvattir“ til að aka ekki ölvaðir, í stað þess að banna það, sem auð- vitað hefur verið gert. Ole Anton Bieltvedt Hreindýraveiðar 2020: Opið bréf til umhverfisráðherra Höfundur er stofnandi og formaður Jarðarvina. 32% frá árinu 2013 koma því verk- fræðistofum innan FRV ekki á óvart. Atvinnugreinin starfar ekki að- eins hér á landi heldur skapar hún útflutningstekjur með því að leiða og taka þátt í verkefnum erlendis sem eru leidd af íslenskum ráðgjafarverkfræðingum. Í litlu samfélagi þar sem verkefnin eru færri og smærri er því mikilvægt að hið opinbera leiti til sérfræð- inga í atvinnulífinu, þannig tekst fyrirtækjunum að efla mannauð sinn og skapa samkeppnishæfa út- flutningsvöru. Hjá hinum Norð- urlandaþjóðunum er útflutningur á þekkingu verkfræði- og arkitekta- stofa stór hluti af veltu þessara fyrirtækja, til dæmis í Danmörku og Svíþjóð er hlutfallið um 20%. Útvistun hjá hinu opinbera getur skapað mörg ný störf ,sem gefur fyrirtækjunum tækifæri til að fara með þekkingu sinna starfsmanna í útrás og færa hana milli verkefna og sviða. Það blasir við að aukin innhýsing hins opinbera dregur úr getu fyrirtækjanna til að nýta slík tækifæri. Í stað þess að taka starfskrafta út úr atvinnugreininni hér á landi ætti hið opinbera frek- ar að styðja við uppbyggingu greinarinnar þannig að Ísland gæti náð hinum norrænu löndunum í út- flutningi á verkfræðiráðgjöf. Það hlýtur að vera vilji stjórn- valda að auka verðmætasköpun hér á landi með því að styðja við bakið á atvinnulífinu frekar en að draga til sín starfsfólk með dýr- mæta þekkingu og reynslu úr ein- stökum atvinnugreinum og koma þannig í veg fyrir að tækifærin til vaxtar séu nýtt. Það er ástæða til að hafa áhyggjur því það er eitt- hvað öfugsnúið við þessa stefnu stjórnvalda. » Það er áhyggjuefni að hið opinbera er í síauknum mæli að taka til sín verðmæta lykil- starfsmenn frá íslensk- um verkfræðistofum. Höfundur er sviðsstjóri mann- virkjasviðs Samtaka iðnaðarins. Efnahagsleg og stjórnmálaringulreið ríkir hjá ESB og ríkj- um þess. Búrókrat- arnir neita að sníða sér stakk eftir vexti og vilja stórhækka áskriftir aðildarríkj- anna til að fylla 75 miljarða evra svarthol eftir Brexit. Fyrir Svía þýðir tillagan 40% hækkun áskrift- argjaldsins úr 40 milljörðum sek upp í 54 milljarða árlega sem sam- svarar heildarútgjöldum Svíþjóðar til hermála. ESB gælir við eigin upptöku beinna skatta á fyrirtæki og almenning og verður þá ekki langt í að stóri draumurinn um al- ríkið rætist. Efnahagur stórvelda ESB, t.d. Þýskalands, sýnir veikleikamerki með minnkun framleiðslu og auknu atvinnuleysi. Deutsche Bank hefur sagt upp þúsundum starfsmanna en bankinn hefur m.a. útblásturssvindl Volkswagen í farangrinum. Þýskaland hefur tek- ið á móti meira en einni miljón flóttamanna og innanlandsátök fara vaxandi þar eins og í Svíþjóð vegna eftirlitsleysis með inn- fluttum hryðjuverkamönnum og glæpamönnum. Sýndarstjórnmál ráða för en ekki lýðræðislega kjörnir leiðtogar innan ESB. Eru lýðræðislega kjörnir fulltrúar í hlutverki sendi- sveinsins og selflytja skilaboð bú- rókrata Brussel heim til skjól- stæðinga sinna. Mun þessi stjórnskipan verða einkar skýr eftir Brexit en margir krefjast sömu réttinda áfram, t.d. að veiða í breskri landhelgi. Má búast við hörku ef Macron Frakklands- forseti gerir alvöru úr hótun sinni að tryggja veiði franskra sjó- manna í breskri lögsögu með frönskum herskipum. Búrókratarnir munu tefla á tæpasta vað til að „hefna“ sín á eina landinu sem fram að þessu hefur sýnt þor að yfirgefa sökkv- andi skútu ESB. Munu margir á meginlandinu eiga erfitt með að kyngja velgengni Breta eftir Brexit sem notfæra sér viðskipta- módel Alþjóðaverslunarráðsins í stað ráðstjórnarríkjamódels ESB. Martin Daubney, fv. ESB- þingmaður Brexitflokksins, segir að „Þjóðverjar elska sannanir og fái þeir sannanir fyrir velgengni fyrir utan ESB gætu þeir orðið næstir til að yfirgefa sambandið.“ Það er hollt öllum að staldra við og íhuga orð Boris John- son, forsætisráðherra Breta, sem sagði að „Bretar hefðu end- urheimt sjálfsákvörð- unarréttinn við út- gönguna úr ESB“. Margir stjórn- málamenn nútímans hafa gleymt því að fullveldið er stærra en einstakir við- skiptahagsmunir, – að einungis frjáls maður er fær um að stunda frjálsa verslun. Sérstaklega þeir sem dáleiddir eru af klappi al- þjóðlegra búrókrata á eigin öxl eins og utanríkisráðherra Íslands, Guðlaugur Þór Þórðarson. Ekki veit ég hvor er meiri Össur eða Guðlaugur en Guðlaugur virðist vera í eilífri keppni við fv. starfs- bróður sinn Össur Skarphéðinsson um efsta sætið í sniðgöngu á stjórnarskránni. Þannig er því einnig varið með meginlunga forystu Sjálfstæð- isflokksins allt síðan Bjarni Bene- diktsson flokksformaður keppti við Steingrím J. Sigfússon og Svavar Gestsson um fyrsta sætið í Icesave-samningagerð. Þá lagði formaður Sjálfstæðisflokksins fram hið umtalaða „ískalda hags- munamat“ með tillögu um Ice- save-samning sem þjóðin felldi. Formaðurinn sagðist þá hafa komið með lausn sem væri sú besta fyrir þjóðina sem seinna sýndi sig vera haldlaus eftir dóm erlendis. Aldrei hafa neinar frek- ari útskýringar komið hjá for- manni Sjálfstæðisflokksins af hverju þessi misreikningur hans var svo mikið þjóðhagsmunamál. Þvert á móti fleipra ráðherrar sjálfstæðismanna í vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur um „hags- munamat“ til hægri og vinstri, t.d. utanríkisráðherra vegna und- irlægjuháttar við ESB og iðn- aðarráðherra vegna sölu á raforku um sæstreng til útlanda. Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur gloprað niður hugtakinu þjóð í hags- munaútreikningum sínum, eins og t.d. gjörbreytt stefna í raforku- málum sýnir, sem er að eyðileggja samkeppnisstöðu landsmanna, þannig að stóriðjan neyðist til að flýja annað. Það sést hvergi eins skýrt og í raforkumálum hversu mikilvægur sjálfsákvörðunarréttur þjóð- arinnar er, því raforkumarkaður ESB beinist fyrst að því að gera dýra, óhreina orku meginlandsins (aðallega Þýskalands) samkeppn- isfæra við hreina raforku á Norð- urlöndum með því að hækka verð- ið á raforku Norðurlanda og skítavæða með aflátsbréfum. Rík- isstjórnin hefur innleitt raf- orkumarkað ESB á Íslandi án að- komu þjóðarinnar. Eini tilgangur þess fyrirkomulags er að leggja sæstreng og selja rafmagn á ESB-markaðinn. Þjóðin þarf að muna, hverjir það eru sem koma fjöreggi henn- ar í hendur erlends valds og flytja löggjafarvaldið úr landi sem er ólöglegt skv. stjórnarskránni. Lærdómsorð víkinganna um heið- arleika og sjálfstæði í viðskiptum gilda enn í dag og ætti öllum að vera ljóst, að ófrjáls maður er ófær um að stunda frjáls við- skipti. Að samþykkja að flytja umboð á eigin hagsmunum til erlends valds er í anda umboðslaga Þýskalands 23. mars ár 1933 – Gesetz zur Behebung der Not von Volk und Reich – sem gaf kansl- aranum Adolf Hitler umboð til að setja einhliða öll lög. Íslenska þjóðin hefur aldrei gefið neinum stjórnmálamanni slíkt umboð og mun ekki til lengdar þola að stjórnmálamenn reyni að auðgast í eigin skyni með framsali slíks umboðslauss umboðs til erlendra aðila. Stjórnarskrá lýðveldisins gildir og ekkert annað. Löggjafinn er á Íslandi. Eftir Gústaf Adolf Skúlason Gústaf Adolf Skúlason »Margir hafa gleymt því að fullveldið er stærra en einstakir viðskiptahagsmunir, – að einungis frjáls maður er fær um að stunda frjálsa verslun. Höfundur er fv. ritari Evrópska smáfyrirtækjabandalagsins. Ófrjáls maður stundar ekki frjáls viðskipti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.